Ísafold - 27.08.1898, Side 1

Ísafold - 27.08.1898, Side 1
Kemur út ýmist einu sinni eða tvisv. í viku. Yerð árg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða 1 'lz doll.; borgist fyrir miðjaíi júli (erlendis fyrir fram). ISAFOLD. Uppsögn tsltrifleg) bunuin við áramót, ógild nema kotnin sje til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslustofa blaðsins er i Áusturstrœti 8. Reykjavik, langardaginn 27. ágúst 1898. XXV. árg. Forngripctsaf 'n opið mvd.og Id kl.l 1—12 Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. 11—2. Bankastjóri við IVI% — l’/s, ann- .ar gæzlustjóri 12—1. Landsbókasafn opið hvern virkan dag kl, 12—2, og einni stundu lengur (til kl.fl) md., mvd. og ld. til útlána. Póstar fara norður og vestur 30. |t. m. austur 2. sept. Póstskip ('J.aura) væntanleg á morgun, fer aftur ,>1. þ. m. vest.ur um land og norður. Gufub. Hólar væntanl. 31. þ. m., fer aft- ur 4 sept. Slæm bakmælgi. Jón Ólafsson ritstjóri hefir tekið sig til og farið að rita grein um stjórn- armál Islands í danska blaðið »Poli- tiken«. Nærri má geta, hverri skoðun þar er fram haldið um það, hvað oss mundi fyrir beztu. |>að er auðvitað miðlunin frá ’89, sem er vort eina hjálpr<fiði í stjórnmálunum. Auðvitað má J. 6. halda því fram hvar sem honum sýnist og kemur því að. Kn hitt má honum ekki haldast uppi óátalið, að segja allsendis ósatt um aðra menn í sambandi við það mál. Og það gerir hann í þessari grein. Hann segir um viðtökurnar, sem til- boð stjórnarinnar frá í fyrra haö fengið, að langfiestir telji það með öllu frágangssök og að nokkru leyti aftur- för frá því sem er; í fyrstu haö því reyndar verið tekið allvel, en við ná- kvæmari íhugun muni þó nokkurir al- þingismenn, sem í fyrra studdu frum- varpið, vera komnir að annari niður- stöðu, og hér um bil allsstaðar haö, eftir því sem næst verði komist, kjós- endurnir risið upp gegn því með gremju (!!). Hyer er þá sú breyting á stjórnar- íarinu, sem Islendingar vilja, eftir sögusögn Jóns Olafssonar? Auðvitað miðlunin frá ’89 — ekkert nema miðlunin! Mönnum hnykkir ekki við að sjá aðrar eins staðhæöngar og þetta í »Nýju ()ldinni«. Hitt er furðanlegra, að hafa geð til þess að fara með aðra eins bakmælgi út yör pollinn. það cun óhætt að fullyrða, að Jón ólafsson heör ekki heyrt getið um nokkurn mann, utan þings né inn- an, aó sjálfum sjer einum undantekn- um, sem í fyrstu hefir tekið stjórnar- tilboðinu vel, en snúist á móti því »við nakvæmari íhugun*. Enginn sneöll af líkindum heör held- ur fram komið fyrir því, að megin- þorri þjóðarinnar sé stjórnartilboðinu andvígur í huga — að vér ekki tölum hin aðra eins fjarstæðu sem þá, að bjósendurnir hafi hér um bil alstaðar nsið upp gegn því með gremju. Leið- togi miðlunarmannanna, Jón Jónsson í Múla, œtlaði að fá þjóðina til þess, reyndi að koma mönnum á fúngvöll í þvf skyni — 0g hvernig fór? Og hvar 6kyldi hann vera, þessi mikli miðlunarðokkur — »Udjævning8- parti«, sem Jón Olafsson kallar og á að hafa svo að kalla alla Islendinga á sínu bandi? Enn heör ekki orðið vart við aðra en Jón í Múla, Skafta Jósefsson og Jón Olafsson. f>eir leyn- ast undarlega, hinir. f>ví að varlega er treystandi á kostnaðarmenn »Nýju Aldarinnar«, sem verið hafa, jafn-mik- ið orð eins og á því leikur að þeir muni nú ætla að lofa blaðinu sínu að sigla sinn eigin sjó. Þingyallaskýlið. f>að var vígt laugardaginn var, 20. þ. m., eins og getið var í síðastablaði, og skírt »Valhöll«, ef ir búð Snorra Sturlusonar, þó að það standi að vísu á alt öðrum stað. Benedikt Sveinsson sté í stólinn, þreppallinn fyrir framan dyrnar, að aöfðanda hádegi, og hélt vígsluræð- una: um tilgang hússins, — gistihús fyrir erlenda ferðamenn (innlendum þó líklega ekki frá bægt?), og funda- hús fyrir þjóðlegar samkomur, — ef mönnum, sem naumast eru mikil lík- indi til, þykir sælla að gera jafnlanga lykkju á leið sfna heldur en að láta staðar nema í Reykjavfk, þarsemöest- ir koma fyrst langt að, og hafa sína fundi þar. Kvæði var sungið á undan ræðunni eftir Einar Benediktsson og annað á eftir, er ort hafði Guðm. Guðmunds- son, læknaskólastúdent. f>á var húsið opuað og sýnt almenn- ingi, um 150 manna, karla og kvenna, nær eintómum Beykvíkingum og f>ing- vallasveitarmönnum; 2 menn alls að sögn úr öðrum hreppum Árnessýslu, og enginn (?) annars staðar að. Síðan mælti Ben. Sveinsson fyrir minni konungs inni í húsinu, og Tryggvi Gunnarsson fyrir minni ís- lands. Meiri ræðuhöld munu ekki hafa ver- ið fyrirhuguð, en langa tölu hélt f>or- björg Sveinsdóttir, — efnisins ekki getið — og síðan var farið að dansa. Með- an á þeirri athöfn stóð hélt fröken O- lafía Jóhannsdóttir langa og snjalla tölu, og loksins mælti Tryggvi Gunn- arson fyrir minni kvenna. Um náttmálaskeið var dansinum hætt. Margir höfðu tínzt burt á með- an, en leifarnar leituðu sér gistingará næstu bæjum. Veður var heldur dimt og drungalegt, en úrkomulítið. Húsið, þetta nýreista f>ingvallaskýli, stendur á völlunum fyrir neðan foss- inn í Oxará, þar sem kallaðir liafa verið Kastalar, spölkorn frá ánni, og er allmyndarlegt til að sjá, 32 álnir alls á lengd, en miðkaöinn, tólf álnir af lengd hússins, 12 álnir á breidd og 9 álnir á hæð; lægra miklu og mjórra (9 álnir) til endanna. Er þeim álm- um, tíu álna löngum hvorri um sig, skift í 10 smáklefa alls, með gangi eftir miðju frá salnum í miðjunni, en ellefta herbergið, á við tvo klefa að stærð, er ætlað til veitinga. Klefarn- ir eru á 4. alin á hvern veg. f>að eiga að vera hvílugólf, með tveim rekkjum, hvorri upp af annari. Alt er húsið járnvarið utan. Lítinn spöl frá húsinu heör verið reist dálítið geymsluhús, sem kallað er Valhallardilkur, og er annar end- inn ætlaður til matreiðslu. Yörsmiður að húsgerð þessari heör verið f>orkell Gíslason trésmiður úr Beykjavík, en að öðru leyti heör-Sig- fús Eymundsson staðið fyrir öllum framkvæmdum. Kostnaður sagður orðinn hátt á fimtu þúsund, þar af 2500 kr. úr landsjóði, en hitc fengið með hluta- tillögum fáeinna manna (250 kr. hlut- ir). Tilraunin að smala saman 25 kr. hlutum víðsvegar um land alveg á- rangurslaus, eins og við mátti búast. Flutningskostnaður á efni orðið afar- dýr, þótt akvegur sé nú kominn til fúngvalla, um eða yör 1000 kr. Innanstokksmunir í húsið ófengnir enn: rekkjur, borð, stólar, o. ð., enda ekki ætlast til að húsið verði notað til gistinga fyr en snemma sumars næsta ár. f>á mun kostnaðurinn að líkind- um komast upp í 6000 kr. Báðgert er að útvega tvo siglingabáta á f>ing- vallavatn, ferðamönnum til skemtun- ar, og mun þeim þá vonandi þykja þar gott að vera og fýsilegt, svo að gistihús þetta verði arðsöm eign fyrir hluthafendur. Ferðalag kapt Bruuns. Hr. kapt. Daniel Bruun kom á laug- ardaginn var hingað til bæjarins úr enn einni söfnunar-og rannsóknarferð sinni hér um land. Aðalerindið var í þetta sinn að safna munum og myndum til Parísarsýning- arinnar, sem halda á árið 1900. En jafnframt heör hann og haldið áfram samskonar fornmenjarannsóknum eins og að undanförnu. f>. 16. júlí síðastliðinn lagði hann á stað héðan sjóveg vestur á Breiða- fjörð. Við Berufjörð gróf hann í forn- manuahauga, og var Brynjólfur forn- fræðingur Jónsson með honum að því verki. Allmikið er af haugum þessum þar fram með ströndinni. Nokkrir munir fundust þar, sem fara eiga á Forngripasafníð, og á einum stað hafði hestur veriö lagður í haug með eig- andanum. En heldur var þar lítið að önna, og getur hr. Bruun þess til, að þeir, sem þar haö verið heygðir, haö yörleitt verið fátækir. f>aðan hélt hr. Bruun landveg aust- ur eftir, alt til Eyjafjarðar. Á leið- inni var meðal annars Borgarvirki ljósmyndað og mælt, og verður mynd af því mótuð og send á Parísarsýn- inguna. Uppdráttur var og gerður af Hólakirkju og þrem torfkirkjum í Skaga- örði- Yörleitt hafa verið gerðar mynd- ir af öllu, sem varð á vegi hans og heör menningarsögulega þýðingu, og verða þær myndir sendará sýninguna. Svo gróf hann og, eins og að undan- förnu, í nokkur forn hof og aðrar rúst- ir. Hr. Bruun fór Kjalveg suður, og rannsakaði á leiðinni bæði gamla og nýja veginn. Eftir samráði við Pál 53. blað. Briem amtmann hlóð hann bráða- birgðavörður á veginum, við vöð, í Kjalhraum og víðar, hvervetna þar sem vegurinn er óljós. Að vori á að stækka vörður þessar, svo að héðan af verður ekki vandratað þessa leið. Yör Hvítá fór hann á Skagörðingavaði. Var vatn lítið í ánni, eins og í öllum ám annars, með því að sumarið heör verið kalt. Hr. Bruun lítur svo á, sem útlend- ir ferðamenn ættu að leggja kapp á að fara þessa leið yfir þvert landið. Hún sé aðdáanlega falleg og skemti- leg. I sömu ferðinni fái menn þá að sjá meðal annars fingvelli, Geysi, Hvítárvatn, Kjalhraun með gígnum stórkostlega (200—250 faðma í þver- mál), dýrðlega jöklasýn, Hveravelli og Skagafjörðinn. Helzt ættu menn að leggja krók á leið sína upp að Kerl- ingarfjöllum og sjá gosbrunnana, sem eru þar á annað hundrað í afbragðs- fögrum dal. Fremur vill hann ráða mönnura til að stíga á land fyrir norðan og fara leiðina suður, með því að þá fái menn fegurðina yfirleitt vaxandi, auk þess sem hér sé betra færi á að hvíla sig eftir ferðalagið heldur en nyrðra. En óhjákvæmilegt skilyrði fyrir að þetta geti orðið ferðamannaleið algeng sé það, að menn eigi víst að geta komist yfir Hvítá á Skagfirðingavaði. Ferðamanna- félagið íslenzka, eða einhverjir aðrir, verði því að gangast fyrir að þar verði ferja. Danskur málari, Johanncs Klein að nafni, hefir ferðast með honum og gert myndirnar. Aður en þeir komu hing- að fóru þeir um Færeyjar í sams kon- ar erindum. Um Norveg hefir og hr. Bruun ferðast síðan í fyrra, er hann fór héðan. jbeir leggja á stað héðan í næstu viku með »Lauru«, og eru nú önnum kafnir í Forngripasafninu þessa daga, sem þeir standa hér við. Aðalfylgdarmaður þeirra var Magnús Vigfússon héðan úr bænum. Borgarfjaröarhérað. Þjóðminningardagsræða á Hvitárbökkum 7. ágúst 1898. Eftir Magnús próf. Andrésson. J>að eru liðin 988 ár síðan. Borgfirð- ingar og Mýramenn áttu hér á Hvít- árbökkum árið 910 allsherjar skemti- samkomu. Ibúar þessa héraðs beggja megin Borgarfjarðar og Hvítár skoð- uðu sig þá sem eina heild gagnvart öðrum héruðum og félagsbræður. Síð- an hefir margt á daga drifið fyrir þess- um sveitum, eins og öðrum, og stund um verið dimmar og dapurlegar tíðir. Nú þegar Borgfirðingar og Mýramenn eftir næstum 10 alda tíma minnast á ný skyldleika og forns bræðralags, þá eins og eygjum vér í anda dagsbrún til nýs tímabils í sögu þessa héraðs, tímabils, þá er kraftar, er lítið hefir gætt að undanförnu, taka á ný að hrærast til heilla fyrir alda og óborna. Vér hittumst því hér á gleðifundi, og erum hingað komnir eigi í þ im til- gangi einum, að skemta oss beinlínis, heldur einnig til þess, að »uppbyggja« hv r annan, hjálpa hver öðrum til þess, að ýmsar góðar tilfinningar og hugsanir, eem í hversdagsumsvifunum

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.