Ísafold - 10.09.1898, Page 3
219
Trjárækt.
Oft heyrast umkvartanir um#það,
hve land vort sé kalt og »beinabert«,
enda er það sannarlega svo í saman-
burði við önnur Norðurlönd. Ættum
vér því að sýna rögg af oss og reyna
til að bæta úr því, ög til þess er trjá-
ræktin eina meðalið.
A hinum síðari árum hafa einstakir
menn fengist nokkuð við að planta
tré í görðum sínum og sumir af þeim
hafa lagt við það alla alúð. Aldrei
mun hafa verið plantað meira af trjám
hér á landi, en gjört var í sumar, en
það er þó ekkert í samanburði við það,
sem á að verða og blýtur að verða.
Hver maður, sem hefir umráð yfir
garði, þótt lítill sé, á að planta í hann
nokkur tré; það er skylda, sem
hver maður hefir gagnvart landinu
sínu og ef manninum heppnast að fá
trén til að þróast, þá verða þau hon-
um til ánægju og gagns. Norður í
Eyjafirði vaxa stór og falleg tré, sem
góðir menn hafa plantað þar fyrir
mörgum árum. þykir núverandi eig-
endum þeirra þægiiegt að geta setið í
skjóli þeirra í tómstundum sínum.
f>að sýnist vera óþarfi að láta Eyfirð-
inga vera eina um hituna. Enginn
maður er svo fátækur að hann ekki
þessvegna geti fengið sér nokkur tré,
gróðursett þau og hlynt að þeim.
þ>eir, sem áhuga hafa á því, geta snú-
ið sér til mín og fengið þau tré, sem
ennþá er útlit fyrir að helzt muni
þrífast hér. Bezt væri að menn sendu
pantanir þar að lútandi sem fyrst,
til þess að byrgðir verði nægar með
vorinu. Allar þær upplýsingar, sem
hægt er láta í té um gróðursetning
og meðferð trjánna, veiti ég fúslega
ókeypis.
Einar Relcjason.
----^ » wm------
Frá útlöndum.
Ensk blöð frá 27. f. m. segja afar-
mikla hita hafa venð í Norðurálfunni
þá um viku tíma. Sumstaðar í suð-
austurhluta álfunnar höfðu allmiklar
ár þornað upp og í Berlín hafði fjöldi
hesta drepist aí hitanum. Allmiklir
skógareldar hafi komið upp hér og þar.
Búist var við orustu mikilli næstu
dagana á eftir milli Breta og Egipta
á aðra hlið og kalífans í Súdan á hina.
Enski hershöfðinginn Sir Herbert
Kitehener átti ekki eftir nema 50 míl-
ur til Omdurman, en þar sat kalífinn
fyrir með sinn her. Kitchener hafði
24 þúsundir manna en kalífinn 40
þúsundir. Gengið að þvf vísu, að
kalífinn mundi taka á öllu, sem hann
ætti til og því yrði barist af hinni mestu
grimd, því að bíði hann nú lægra
hlut, er veldi hans í Súdan sjálfsagt
lokið.
Ótíð nyiða.
Úr Vatnsdal í Húnavatnssýslu er
skrifað um mánaðamótin síðustu:
þ>riðjudaginn 23. ágúst mátti heita
ófært veður — útnorðan bleytukafald
með stórviðri. Enginn maður var við
útivinnu. Kúm gefið inni á básum og
fé og hross stóðu inni mikið af degin-
um. Kom þá svo mikið flóð á lág-
lendið, að óg hef ekki séð annað eins
á sumardegi. Flekkir og sæti voru á
floti og mikið hey flaut alveg burt.
Telja má víst, að heyskaðinn og vinnu-
tjónið nemi svo miklu, að nokkrum
þúsundum króna skifti. Mikinn skaða
hef ég hevrt tilgreindan á jpingeyrum
°g víðar í þingi. — Síðustu daga mán-
aðarins rigndi ósköpin öll og snjóaði
ofan f miðjar hlíðar. Hey skemdust
þá enn mjög mikið.
I restafundir.
•iafnframtþví sem stöðugt virðist held
ur dofna yfir hinum lögskipuðu hóraðs-
fundum, eru prestarnir sjólfir farnir að
gangast fyrir fundarhöldum til að ræða
sín á milli kirkju-og trúarmálefni.
Prestarnir í Árnesprófastsdæmi héldu
einn slíkan fund að Stóranúpi 1. þ. m,,
sóttu allir fundinn að þremur undan-
teknum.
Valdemar prófastur Briem flutti fyr-
irlestur um sP ðio prestsins ntan kirkju
og innan, síra Úlafur (llafsson hélt ræðu
um prédikun oj jm'dikunaraðferö ogsíra
Ólafur Helgason um uppfrœðslu barna.
U mræður fóru frarn á efiirræðunum um
efni þeirra. Til prestaskólans var þeirri
áskorun beint að venja prestaefni við
að prédika blaðalaust og eins við
nýrri aðferð í barnaspurningum (fræðsl-
an meira fólgin i verulegum samræð-
um heldur en í beinum spurningum og
svörum, eins og hér á landi tíðkast).
Rætt var og um að taka upp þann sið,
meira en verið hefir, að láta kristin-
dómsfræðsluna byrja með biflíusögu-
námi, og mótmæli samþykt gegn um-
mælum um spurningakver síra Helga
Hálfdánarsonar, sem stóðu í vetur í
Isafold í ritgerð um alþýðumentun eft-
ir alþýðukennara. |>á var og samþykt
að skora á síra Eirík Briem presta-
skólakennara að koma opinberlega fram
með breytingartillögur viðvíkjandi til-
högun prestsekknasjóðsins og lára í ljós
skoðun sína um nýtt fyrirkomulag á
húsagerð og jarðabótum á prestsetrum.
Að lokum var samþykt að halda þess-
um samkomum áfram árlega.
Húnvetnskir prestar héldu og fund
á Blönduósi 9. ágúst í sumar til und
irbúnings undir næsta aðalfund presta-
félagsins nyðra. |>ar var rætt um
messutoll, lestur heil. ritninyar, sálu-
sorg, erfisdrykkjur og afstbðu presta
gagnvart bindindishreyfinjunni. Mál-
unum öllum vísað til aðalfundarins,
sem halda á að vori. '
>íslantlsþekking Norðurálfumanna*.
Um það efni — eða öllu heldur um
vanþekkinguna — hefir dr. August
Gebhardt í N urnberg skrifað ritgerð í
land-og þjóðfræðisritið »Globus«, einkar
góðviljaða í Islands garð, og tekið upp
í hana, með mjög vinsamlegum um
mælum, grein, sem prentuð var í ísa-
fold í fyrra sumar með ofanskráðri
fyrirsögn.
Veðurathuganir
i Reykjavik eftir landlækni Dr. J. Jónas-
sen.
Hiti
(A Celsius)
Loftvog
(millimeti.)
ártí.
V eðuráit.
árd.
síðd.
3. + 5 -f- 1 1 754.4 749.3 a li d Sali d
4. -+■ 8 + 12 751.8 749.3ja h d o d
5. + « + U 751.8 756.9 Sv h d Sv h d
6. + 7 + 10 754.4 736.6 a h d a hv d
7. + 8 + 11 734.1 ,44.2iSa hv d Sv h d
8. + 5 + 9 749.3 744.2 Sv h d Sv h d
9. + 6 + 10 736.6 u h
Megnasti óþnrkur alla vikuna, rignt
meira eða minna á hverjum degi, oftast við
aastan og sunnanátt.
»Reykjavíkin«
kom vestan úr Stykkishólmi í gær-
kveldi; hafði komið við á öllum höfn-
um á leiðinni, en hrept ill veður og
varð einum sólarhringi á eftir áæ.tlun.
Með h9nni komu, auk aragrúa af
kaupafólki og nokkurra Englendinga,
Haraldur Nielsson cand. theol. og Hall-
dór Bjarnason cand. jur., sem nú um
tíma hafa verið í Stykkishólmi, síra
Jónas A. Sigurðsson frá Norður-Dakóta
í Bandaríkjunum, bróðir hans, Sigurð-
ur bóndi á Húnstöðum og Hermann
Jónasson, búfræðingur á þingeyrum.
Síra Jónas hefir dvalið mikinn hluta
sumarsins hjá skyldfólki sínu í Húna-
vatnssýslu.
Útbreiðsla G.-T.reglunnar.
Að henni hefir verið unnið einkar-
kappsamlegaum nokkurn tímaundanfar
inn. I júnímánuði fyrra sumar, þegar
stórstúka Good-templara hélt þing sitt,
voru undirstúkurnar 21 að tölu. Síð-
an hafa 18 bætst við, og von um að
nokkurar fleiri verði stofnaðar innan
skamms, svo að þær verða sjálfsagt
orðnar helmingi fleiri að ári, þegar
þingið verður aftur h&ldið, heldur en
þær voru í fyrra.
'í Húnavatnssýslu hafa verið stofn-
aðar, síðan í fyrra, 4 stúkur (í Langa-
dal, á Blönduósi, á Skagaströnd og í
Vatnsdal); í Skagafjarðarsýslu 2 (á
Sauðárkrók og Hofsós); í Eyjafjarðar-
sýslu 1 (Hjalteyri); í Suðurmúlasýslu
1 (Fáskrúðsfirði); í Norðurmúlasýslu 1
(Vopnafirði); í Kangárvallasýslu 3
(Hvolhreppi,f>ykkvabænum,Fljót8hlíð);
í Kjósar-og Gullbringusýslu 3 (Hafnar-
firði, Kjós, Njarðvik ytri); í Borgar-
fjarðarsýslu 1 (Akranesi); í Reykjavík
1; í Dalasýslu 1 (að Sauðafelli).
Auk þess hefir stórstúkan núgefið út
•Handbók Good-Templara, leiðbeining-
ar um stjórn stúkna í Good-templar-
reglunnio, þýðing af helmingnum af
frægri og ágætri bók, »The Templar at
work«, eftir ameriskan rithöfund, Frauk
J. Sibley.
Skipströnd.
Gufuskipið »Thomas Amlie« frá hval-
veiðastöðinni á Langeyri strandaði 14.
f. m. við Sauðanes í Onundarfirði með
kolafarm. Litlu eða engu bjargað af
farminum og alt selt fyrir 200 kr.
f>rjú þilskip Ásgeirs Ásgeirssonar
rak á land við Horn á Hornströndum
23 f. m. Manntjón varð ekkert.
Druknun.
Bátur fórst á Borgarfirði eystra 24.
f. m. Formaður, Sigurður Einarsson
Straumfjörð, druknaði, en hásetar 2,
síra Stefán Sigfússon og sonur hans um
tvítugt, björguðust. Prestur komst
upp á sker og var þar 3 klukkustund-
ir, en sonur hans synti í land og sótti
mannhjálp.
Sigling
»Sophie«, 80,72 smál., skipstjóri J.
M. Jensen, kom með salt til Brydes
verzlunar frá Middlesborough 1. þ. m.
»Ragnheiður«, 72,75 smál., skipstjóri
Bönnelykke, með steinolíu og fl. til
W. Christensens frá Liverpool 5. þ. m.
Látin
er hér í bænum í dag Katrín Waage,
kona Eggerts Waage verzlunarmanns,
merkiskona og valkvendi.
Farsóttir í Reykjavík.
Júní 1898: Taugaveiki 3. Heimakoma
2. — Hettusótt 3. — Hálsbólga 13.
— Lungnakvef 3. — Lungnabólga 4.
(Pn. croup. 2 — Pn. cat. 2). — Maga-
og garnakvef 8. — Barnsfararsótt 1.
— Gonorrhoea 2. — Lungnatæring 1.
Samtals 40.
Júlí 1898: Heimakoma 1. — Bráð
liðagigt 1. — Hálsbólga 5. — Lungna-
kvef 32. — Lungnabólga 23. (Pn.
croup. 3. — Pneum. cat. 20). — Maga-
og garnakvef 9. — Gonorrhoea 1. —
Lungnatæring 2. — Kláði 1.
Samtals 75.
Ágúst 1898: Bráð liðagigt 1. —
Hálsbólga 2. — Lungnakvef 18. —
Lungnabólga 14 (Pn. cr. 2. — Pn.
cat. 12). — Maga- og garnakvef 17.
— Lungnatæring 1. Samtals 53.
Ath.: Lungnakvefið, sem hér gekk
yfir í júlí og ágúst, kom nær því ein-
göngu niður á börnum og snerist oft
upp í lungnabólgu, en leiddi þó sjald-
an til dauða; af rúmum 80 börnum,
sem læknishjálp fengu, dóu ekki nema
2. G. B.
Hitt og þetta.
Eitruð skrautplanta.
í dönskum blöðum er varað við fall-
egri skrautplöntu, sem heitir »Primula
obconica« Blómið er lítið, hvítt eða
ljós-fjólulitt situr efst á allháum stöngli;
blöðin eru vökvamikil og stöngullinn
loðinn.
f>að getur farið illa með mann að
handleika þessa plöntu. Blöðrur koma
á hendurnar og þreifi maður um and-
litið, færist sýkin þangað — í augna
umbúninginn, varirnar og kinnarnar.
I blöðrunum er sár kláði og sviði.
Plantan mun ekki vera með öllu ótíð
hér í Reykjavík, og nú í sumar hafa
nokkurir sýkst af henni.
England er birgara af steinkolum en
öll önnur lönd Norðurálfunnar saman-
talin. f>ar fengust árið 1896 (yngri
skýrslur eru ekki til) 195 miljón smá-
lestir af kolum, sama sem hér um bil
1200 rnilj. skpd. f>ar næst var f>ýzka-
land með 85 milj. smáh, þá Frakkland
með 28 milj. og Belgía með 21 milj.
Spánar-konungurinn litli er kendur
við fleiri ríki en Spán, líkt og er um
fleiri stórhöfðingja, þótt miuni brögð
séu að. Hann er kallaður konungur
yfir Jerúsalem, sem Tyrkir eiga nú,
eins og kunnugt er; yfir Navarra á
Frakklandi; yfir Gibraltar, sem Bretar
eiga; yfir Austur- og Vestur-Indía-
löndum, sem Bretar eiga að miklu
leyti; ennfremur hertogi í Brabant og
greifi á Flæmingjalandi, en það eru
nú konungsríkin Holland og Belgía;
loks einvaldshöfðingi yfir ýmsum lönd-
um, sem ýmist eru orðin sjálfum sér
ráðandi fyrir löngu eða lúta öðrum
þjóðhöfðingjum.
Hvar fæst sætast kjöt?
Efst af Rangárvöllum.
f>að fæst í dag, og næstu viku við
verzlun Jóns f>órðarsonar og kost-
ar frá 18—-20 aur. pundið.
Fyrir einhleypa eru til leigu
tvö falleg herbergi í nýja húsinu
við Austurstræti frá 1. október. Upp-
lýs. á afgrst. Isaf.
Lífsábyrgðarfélagið ,STAR’
Skrifstofa félagsins, Skólavörðustíg
Nr- 11, er opin hvern virkan dag frá
11—2 og 4—5.
Galvaniseraðir steinolíudunkar
fást í verzlun
_______W. Christensens.__________
Allskonar Lampar
mikið úrval
uýkomið í verzlun
________ G. Zöega.______________
J úr jörðinni Leirá í L^-ársveit er
til sölu. Semja má við undirskrifaðan.
Stafholti 7 sept. 1898.
_______JÓHANN Þ0RSTEINSS0N.
Alþýðuskóli
Reykjavíkur
fyrtr pilta og stúlkirr.
Byrjar 1. nóv. þ. á. Kenslutími er
6 mán. Kenslukanp 40 kr. fyrir vet-
urinn. Námsgreinar eru: íslenska og
íslenskt stjórnarfar, danska, enska, reikn-
ingur og reikningsfœrsla, landajrœði,
sagnafrœði, náttúrufrœtii, einfaldar hugs
unarreglur og teikning. Alt kent svo
svo »praktist« sem auðið er. — Utan-
bæjar nemendum verður útvegað fæði
eða matreiðsla, húsnæði og annað, sem
þeir þurfa, svo ódýrt sem völ er á.
Reykjavík 7. sept. 1898.
Einar Gunnarson Hjálmar Sigurðsson.
(kand. phil.) (amtsskrifari.
S. J. Joh'anncsson. Sigurður pórólfsson.
(kand phil.)_________(kennari)___
Kristján l>orgrímsson befir til
sölu ágcetan bce með góðri lóð á hent-
ugurn stað í bænum.