Ísafold - 26.04.1899, Síða 4
104
Siðan 10. þ. mán. hefír verið slæmt veð-
ur. snjór og austan-bylur, svo að taka var'ð
alla gripi á gjöf. Samt er hér svo rifinn
snjór, að jörð er að mestu auð.
Innflúenza
komin á Eskifjörð, að frótst hefir.
Hún hefir gengið í Khöfn í vetur, en
nú oröin þar mjög í rénun. Þó hafði
ei nn meðal skipverja á póstskipinu
Laura) haft hana á leiöinni hingað núna.
Botnverping
handsamaði Hoimdalur einn enn 22.
þ. m. snemma morguns, nálægt Reykja-
nesi, langsamlega í landhelgi, með botn-
vörpu útbyrðis. Kom herskipið með
hann hingað inn á höfn og fekk hann
sektaðan um 1000 kr. Skip þetta var
frá Grimsby, nr. 581, og heitir »Sihon«;
hafði og veitt með botnvörpu inni á
Eskifirði í vetur, mánudag fyrstan í
föstu, en með öðrum skipstjóra.
Mesti landburður
af fiski í Vestmannaeyjum. En salt-
laust þar! Eyjamenn hétu á konsúl
Ditl. Thomsen, er hann kom þar við á
leiðinni hingað með póstskipinu, að senda
þeim einhverja hjálp héðan, og fer skip
frá honum í dag þangað með nokkur
hundruð tunnur af salti. Ekki færri
en 8 frönskum fiskiskútum vísaði »Heim-
dalur« burt úr landhelgi við eyjarnar
nú fyrir síðustu helgi; þær voru að afla
þar á lóðir. Islenzkar fiskiskútur kváðu
og halda sig við eyjarnar í fiskimergð-
inni og afla vcl.
Póstskípið >Laura«,
kapt. P. Christiansen, kom í gær
snemma, degi á undan áætlun. Yms-
ir farþegar með: konsúll Ditl. Thoms-
en, Björn kaupm. Kristjáússon, Krist-
ján Jónasarson verzlunarerindreki,
Friðrik kanpm. Jónsson, W. Ó. Breið-
fjörð kaupm., frk. þordís Helgadóttir
o. fl.
Liík H. Th. A. Thomsens
kaupmanns kom með póstskipinu,
eins og til stóð. Hann verður jarð-
aður á morgun, og hefst útförin kl. 12
á heimilinu.
Suður í Mið.jarðarhaf
ætlar gufuskipafélagið sameinaða
að láta gufuskip bregða sér héðan með
fiskfarm seint í sumar, í öndverðum
Beptember,— tína farminn saman áhelztu
höfnum kringum landið. Skipið heit-
ir »Douro«. Aðra ferð þangað ráðgerir
það að láta »Hóla« fara héðan, að af-
loknum strandferðunum, síðast í okt-
óber. Loks hefir það í orði að senda
skip hingað í sömu erindum snemma
í desember, til Beykjavíkur og Isa-
fjarðar og fleiri vesturhafna.
Stórbarðindi vestra.
Skrifað úr Gilsfirði (Saurbæ) sfðasta
vetrardag, 19. þ. m.:
»Hór er mesta harðindatíð, hríð og
gaddur; 8 stiga frost í morgun, eða
með því mesta, sem komið hefir á
vetrinum. Engin snöp hér, og sama
í mörgum sveitum. Sumir farnir að
skera. Allir að verða heylausir.
Hafísfyrir öllum Vestfjörðum. Kom-
ist hann inn á Húnaflóa, sem
mjög er hætt við, ef að vanda lætur,
þá er fyrirsjáanlegur stórfellir.
Erostin eru alt af að vaxa«.
Og úr Borgarfirði (Stafholtstungum)
er Isafold skrifað núna á sunnudaginn
23. þ. mán.:
»1 dag er norðanbylur. Útlitið voða-
legt. Eyrir fám dögum komu hingað
suður í Mýrasýslu sendimenn úr Hrúta-
firði, til að reyna að koma fyrir fén-
aði. Hrútfirðingar eru allir uppi-
akroppa með hey, enginn sjálfbjarga,
hvað þá aflögufær. þetta er haft
eftir sendimönnunum, og sömuleiðis,
að ef ekki fáist hjálp, verði farið að
skera niður sauðfé og hross nú um
þessa helgi. Eg veit ekki hvað þeim
hefir orðið ágengt hér fyrir sunnan,
en er hræddur um, að það hafi verið
lítið, því menn mega ekkert missa
hér.
Sama voðaástand (og í Hrútafirði)
er í Miðfirði og á Snæfellsnesi. Lengra
að norðan en úr Miðfirði hefir ekki
frézt.
Um skipströndin
í Meðallandi, er frézt hefir af laus-
lega, er ísafold skrifað þaðan 16. þ.
mán.:
»Fyrst strandaði hér enskt botnvörpu-
gufuskip, »Richard Simpson« frá Hull
(nr. 91) á Skarðsfjöru aðfaranótt 7. f.
mán. og var selt á uppboði viku síðar,
15. s. m. Og síðan aðfaranótt 4. þ.
mán. spítalaskipið franska »St. Paul«
frá Havre. Menn allir komust sylsalaust
af af báðum skipunum. Síðara strandið,
skip og farmur, var selt við uppboð 12.
—13. þ. mán. og komst samanlagt hátt
á 5. þús. kr.
Vestmamiaey.jum 24. apríl:
I marzm. var mestnr hiti 15. ogl6.-f- 8°,
minstur aðf.nótt 4. -t-10,3°; úrkoma 88 milli-
metrar. Yeðráttan var mjög stormasöm;
nær sífeldir austanstormar síðari hluta
mánaðarins og útsynningar um miðbikið.
Fiskiafli var fremur lítill í marz, en
eftir páska hafa gæftir verið góðar, og
landburður af fiski. Hæstur hlutur er nú
orðinn um 80 til nínnda hundraðs, þar af
þorskur 660, og er þaö sá hæsti hlutur,
sem hér hefir komið, síðan á fiskiárunum
miklu um miðja öldina. Því miður getur,
ef til vill, orðið minna gagn að þessum
mikla afla en skyldi, ef óþerratið kæmi,
þar sem verzlanin er fyrir viku saltlaus,
svo að alt verður að herða. Er fólk, sem
von er, illa ánægt með fyrirhyggjuleysi
kaupmanns, að hafa eigi meiri hirgðir
fyrirliggjandi af svo ómissandi vöru.
Erá 7.—20. þ. mán. hafa gengið hrein-
viðri og kuldar; frost á hverri nóttu frá
2 til 6°, dagshiti oftast 3°.
Vöruskipið kom hingað 18. þ. mán.; var
þess orðin ærin þörf.
Fiskigufuskip frá Mjóafirði (»Reykir»),
aflaði hér farm fyrir skömmu, og mun
brátt koma aftur; og nú er hér »Muggur«
frá Bíldudal og »Leifur« frá Eskifirði, og
nokkur fiskiskip frá Faxaflóa, og afla víst
öli vel.
Heilbrigði góð.
VERZLANIN
„EDINBORGr“
í Reykjavík
hefir nú með »LAIJBA« fengið mjög
miklar birgðir af
alls konar álnayörum,
auk margs annars, sem nánara verð-
ur auglýst hið allra fyrsta að auðið
verður.
Heiðraður almennnigur treysti hérá
g’óðan varning
og gott verð.
Hreint, ósúrt ísl. smjör
fæst í verzlun
Jóns l»órðarsonar.
Verzlun
Johan Langes
í Borgarnesi selur vel vandaða tólg
á 24 aura og gott smjör á 55 aura
pundið fyrir peninga, ef keypt er minst
100 pd. í einu.
Takið eftir!
Gaddavírinn góði er aftur kom-
inn og selst með þessu óheyrt lága
verði: að eins 9 kr. 120 faðmar. Ódýr-
asta girðing, sem hægt er að fá.
Ennfremur alls konar grjótverk-
færi og vegavinnu- og jarðræktar-
áhöld- Menn snúi sér til undirskrif-
aðs eða herra járnsmiðs f>. Tómasson-
ar í Lækjargötu 10.
Einar Finnsson.
Munið eftir!
að
Samúel -----------
Ólafsson
í Beykjavík
pantar NAFNSTIMPLA með alls
konar gerð eftir því, sem hver
óskar.
Nokkur íhúðarherbergi fást til leigu
hjá Samúel Ólafssyni.
Húsnæði
í góðu húsi á skemtilegasta stað í
bænum getur fjölskylda fengið til leigu
frá 14. maí þ. á. Húsgögn fylgja, ef
um semur. Bitstjórinn vísar á.
Húsið nr. 37 við Laugarveg hjer í
bænum tilheyrandi dánarbúi Jóns |>or-
leifssonar fæst til kaups og íbúðar 14.
maí næstkomaudi, og má semja um
það við undirskrifaðan skiptaráðanda
í búinu.
Bæjarfógetinn í Rvík 18. apríl 1899.
Halldór Daníelsson.
Nýprentað
Tværs over Koien
af
DANIEL BBUUN
udgivet af
den islandske Touristforening,
(Touristrouter paa Island).
með 40—50 myndum, stórum og smá-
um, mörgum mjög góðum og eiguleg-
um.
Kostar 1 kr. 50 a. Fæst í bókverzl-
un Isafoldarprentsmiðju og víðar.
Nýprentað
Svar til dr. B. M. Olsens
gegn stafsetningarhúslestrihans í Studentafél.
eftir Jón Olafsson.
Kostar heft (ífí bls.) 15 a. Fæst i
afyr. ísaf. oy hjá bóksölum landsins.
Umsóknir
um styrk þann, er í fjárlögunum fyrir
1898, 13. gr. C. 31., er veittur Iðn-
aðarmannafélaginu í Reykjavík »til
að styrkja. efnilega iðnaðarmenn til
utanfarar, til að fullkomna sig í iðn
sinni«, verða að vera komnar til fé-
lagsstjórnarinnar innan loka júlímán.
næstkomandi.
Umsóknarbréfunum verða að fylgja
meðmæh frá þeim sem hlutaðeigend-
ur hafa lært iðn sfna hjá.
Yngri piltar en 18 ára geta eigi orð-
ið aðnjótandi þessa styrks.
Espólíns árbækur í góðu handi með
registrinn, ern til söln. Ritstj. visar á.
Garðyrlíjufélagið.
Fræ af alls konar garðjurtum, mat-
jurtum og skrautjurtum, samt grasfræ,
fæst í Vmaminni hiá Ernari Helgasyni.
TTTTTYTTTTTTT
Munið ? að livergi í
bænum fást jafn hent-
ugar, vandaðar og fall-
egar
FERMINGARGJAFIR,
eins og hjá
Gdjöiii Siprhspi.
Hér með auglýsist, að allir búendur
sem land eiga að Botnsheiði í Borg-
arfjarðarsýslu, ásamtPétri á Ingunnar-
stöðum í Kjósarhreppi (utan Ólafur á
Miðsandi og Gísli á Stórabotni) hafa
áformað að smala öllu stóði iir löndum
ábýlÍ8jarða sinna og rétta því í Brekku-
rétt 12. júní, 3. júlí, 29. júlí og 27.
september. Oll hross sem hirt verða
greiði hirðendur fyrir það gjald sem
ákveðið verður; hrossunum sem ekki
verða hirt verður á kostnað eigenda
ráðstafað sem öðrum óskilafénaði.
I umboði hlutaðeigenda
Efstabæ í Skorardal 10. apríl 1899.
Bjarni Bjarnason.
Sveinbjörn Bjarnason.
Hér með auglýsist, að öllu stóði,
sem kemur fyrir í landi þingvallastað-
ar, verður smalað og því réttað í þing-
vallarétt þessa daga: 12. júní, 3. júlí,
29. júlí og 26. september næstk. Öll
þau hross, sem hirt verða, verður að
borga undir það gjald, sem ákveðið
verður í hvert sinn. þeim hrossum,
er ekki verða hirt, verður á kostnað
eigenda ráðstafað, sem öðrum óskila-
fénaði.
þingvöllurn við Óxará 1. febrúar 1899.
Jón Thorstensen.
óskar maður þaulvanur
við skrifstörf alls konar,
bókfærslu og reiknings-
hald. Skrifar bréf á
dönsku, þýzku og ensku. Afbragðs-
meðmæli frá síðustu húsbændum. —
Bitstj. vísar á.
Alls ekkert kemst í samanburð við
Fineste Skandinavisk Export-Kaffi
Surrogat. Það tekur öllutn öðrum kaffi-
hæti fram að ilman og hragðgæðum.
Reinið hann og þér munuð aldrei annan
nota.
F. Hjorth & Co. Köbenhavn, K. (1)
Viöarreykt sauðakjöt
fæst í verzlun
Jóns í»órðarsonar.
Kjöt af töðuöldum
fæst daglega
f verzlun
Jóns JÞóröarsonar.
^t-t-aFt-t t y-t t t t t t
Agætar kartöílur
hjá
Ben. S. Þórarinssyni.
Samþykt
um verndun Safamýrar.
Samkvæmt ályktun sýslunefndarinn-
ar verður að Rifshalakoti laugardag-
inn 10. júní næstk. á hádegi, haldinn
almennur fundur til þess að bera und-
ir atkvæði hlutaðeigenda frumvarp til
samþyktar um verndun Safamýrar,
sem gildir fyrir Vetleifsholtshverfi og
jarðirnar Bjólu og Bjóluhjáleigu,
Atkvæðisrétt á þeim fundi eiga ábú-
endur og eigendur jarðanna, sem sam-
þyktin nær til.
Skrifst. Bangárv.sýslu, 12. apríl 1899.
Magnús Torfason.
t
Útgef. og ábyrgðarm. Björn Jönsson.
Meðritstjóri: Einar Hjörleifsson.
Isafoldarprentsmiðja.