Ísafold - 05.07.1899, Side 1

Ísafold - 05.07.1899, Side 1
.Kemur út vmist einu sinni eða tvisv. í viku. Yerð árg. (80 ark. minnst) 4 krv erlendis 5 kr. eða l‘/i doll.; borgist fyrir miðjan júli (erlendis fyrir fram). ISAFOLD. Uppsðgn (skrifleg) bnndin við áramót, ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslustofa blaðsins er Austurstrœti 8. XXVI. árg. Iieykjavík, miðvikudaginn 5 júlí 1899. 45. blað. I 0. 0. F. 81789 x+x, X+X. X+X. xfx. xfx. .xfx. xfx. xfx. xfx. xfx.,xfx. ,xfx. xfx. Tvisvar í viku kemar ísa- fold út að staðaldri í sum- ar, miðvikudaga og laugar- daga. JBJfL, Tekið við auglýs- ingum í blaðið til kl. 4 dag- inn áður. ISJAAÆjíÆÆAAAIULJLÆ.A.JL£ZJJLÆÆjgO LaMshantinn. Afgreiðslustofa Lands- bankans verður um alþing- istíman i sumar, eins og að undanförnu, opin frá kl. 9>/2 f. h —kl. 121/* e. h. hvern virkan dag. — Bankastjór- inn er til viðtals í bank- anum kl. íO'/s—ll1/2 dag hvern. Reykjavík 27. júní 1899. Tryggvi Gunnarsson. Forngripasafnoy>i<5mv&.og ld. kl.ll—12. Landsbankinn opinn bvern virkan dag kl. 9'/j—12'/a Bankastjóri við 10'/a—11 annar gæzlustjóri 12—1. Landsbókasafn opið hvern virkan dag kl. 4—ö og einni stundu lengur (til kl.7) md., mvd. og ld. til útlána. Póstskip Botnia væntanl. af Vestfjörðum P. júlí. Ctufub. Hólar fer 10. júlí austur um land. ,xfx..xfx .xfx..xfx..xfx. xfx..xfx. xfx..xfx. xfx. xfx ,xfX, xfX. xix’ 'xix' 'xíx' 'xix X^x' 'xix XJx XÍV.' 'xiv' xix' 'xiv' ’xix xix' Alveg eins og við var að búast. Afskifti stjórnarinnar af stjórnar- skrármáli voru, eins og þau koma fram í boðskap konungs til þingsins og bréfi ráðgjafans til landshöfðingja, dags. 26. maí síðastl., eru nákvæm- lega eins og við var að búast, og sjálf- sagt líka alveg eins og kunnugir menn hafa við þeim búist. Stjórnin stendur við tilboð sitt frá síðasta þingi. það er auðvitað aðal- atriðið, og í raun og veru eina atrið- ið, sem nokkurs er um vert. því að á skýringum þeim, sem hún kemur með viðvíkjandi tilboðinu, er naumast þörf. Helzt kynnu einhverjir að festa hugann við það, sem um ráðgjafaá- byrgðina er sagt, þar sem á það er bent, að tilboðið sé, að því er hana snertir, #í líking við ákvæði grund- vallarlaganna um ábyrgð ráðgjafa gegn ríkisþinginu#. Fjarstæðunum í þá átt, að vér getum ekki lögsótt ráðgjafann, er því óbeinlínis mótmælt í ráðgjafa- bréfinu. En þess gerðist naumast þörf; því að enginD skynbær maður tekur, hvort sem er, mark á þeim. J>ó að sú vitleysa hafi verið notuð sem grýla við alls ófróða menn, er það viianlega alt annað, sem undir býr hjá þeim mönnum, er berjast gegn tilboði stjórnarinnar. EinB og það var nokkurn veginn kunnugt orðið á undan þingi, að stjórn in mundi ætla að standa við tilboð sitt, svo mátti og ganga að því vísu, að utan um tilkynninguna um það yrði vafið þráttunum um setu ráðgjaf- ans í ríkisráðinu. Jafnframt því, sem efri deild samþykti stjórnarskrárbreyt- ingar-frumvarpið á síðasta þingi, mót- mælti hvm því með rökstuddri dagskrá, að sérmál íslands skuli vera flutt í ríkisráði Dana, og í neðri deild var ríkisráðsfleygurinn samþyktur. |>ar sem það er nú vitanlegt, að stjórnin lítur svo á, sem ekki geti komið til nokkurra mála, að sérmál vor séu flutt fyrir konungi annarsstaðar en í ríkisráðinu, þá getur það ekki komið neinum á óvart, að ráðgjafinn hefir farið að þrátta við þingið um það raál. Hér er ekki um neina nýa kenningu að ræða, ekkert annað en það, sem stjórnin hefir alt af sagt síðan vór fengum stjórnarskrána — enda éin- mitt það fyrirkomulag, meira að segja, sem talið var með öllu sjálfsagt í hinni fyrri stjórnarbótarbaráttu vorri, alt þangað til vér fengjum alinnlenda stjórn, eins og ómótmælanlega hefir verið sannað í Isafold. f>á kemur það víst ekki heldur nein- um óvart, þó að ráðgjafinn haldi fast að þinginu breytingunni á 61. grein stjórnarskrárinnar, sera skilyrði fyrir því, að þær umbætur fáist, sem í boði eru. lsafold hefir í síðustu viku gert svo nákvæma grein fyrir því atriði, að ekki virðist ástæða til að fjölyrða um það að þessu sinni. |>að er svo sem auðvitað, að þetta ráðgjafabréf hefði getað verið samið af þeim anda, er borið hefði ríkara vitni um samninga- og samkomulagsáhuga. Engum dylst það víst, að hefði stjórn- inni legið samkomulagið ríkt á hjarta, þá hefði bréf ráðgjafans verið töluvert annan veg orðað. En hefir nokkur maður haft ástæðu til að ætla, að stjórninni stæði ekki hjartanlega á sama um stjórnarskrár- mál vort, eins og flest áhugamál vor? Er ekki einmitt reynslan, sem vór höfum af stjórninni í því efni, aðalor- sökin til þess, að vér verðum fyrir hvern mun að fá breyting á stjórnar- skránni og stjórnarfarinu? Vor er þægðin, en ekki stjórnarinn- ar. f>að er mergurinn málsins, og það veit stjórnin ofurvel. |>ess vegna er nú ekki tíminn til að halda áfram þráttunum og ýfingum. Og það því síður, sem þrætuefnið er þess eðlis, að engmn maður getur sannað, að það standi oss á neinu. Hins er að minnast — ogeinskis ann- ars sem stendur — hve mikils vert það er, sem oss stendur til boða, og að vinna að því samtaka og af alefli, að hvorki þing né þjóð reynist svo neyð- arlega þroskalaus og misvitur, að hafna því. Verðlagsskráin i Dalasýslu 1899—1900. f>egar litið er á verðlagsskrána í Dalasýslu, mætti ætla, að í þeirri sýslu væri góður peningamarkaður fyrir land- aura, þar sem meðalalin er 71 eyrir. En þetta er samt ekki í raun og veru, því að minsta kosti hér í vesturparti sýslunnar er mikil peningaekla, svo varla er auðið að selja nokkurn hlut fyrir peninga, og væri verðlagsskráin samin eftir peninga gangverði, mætti hún vera afar-lág. Mikið af þeim hlutum, sem settir eru í verðlagsskrá þessa, munu alls ekki ganga kaupum og sölum hér í sýslu á móti peningum, og sumir alls ekki móti kaupstaðar- reikning. En það sem eingöngu gerir verðlagsskrána svona háa, eru vað- málin og einskeftan, sem sett hafa verið í hana. Að minni hyggju ætti hvorki að setja vaðmál né einskeftu í verðlags- skrána; því mér er ekki kunnugt um, að það gangi hér kaupum og sölum móti peningum, og ekki heldur upp í skuldir til kaupmanna nó fyrir búðar- vöru. f>eir sem sett hafa vaðmálin í verðlagsskýrslurnar, munu segja, að þau gangi í kaup hjúa eða til kaupa- fólks. En það hygg eg vera mjög lítið, ef það er nokkuð. Og ekki trúi eg því, að fólk, er samið hefir um peDÍnga upp í kaup, taki vaðmál í staðinn fyrir þá. Eg hefi undanfarin ár haldið bæði vinnuhjú og kaupafólk og ekki getað látið vaðmál upp í kaup þess, þótt eg hefði viljað og haft þau til. En um einskeftuna er það aó segja, að vfst er mjög langt síðan hún hefir verið látin upp í kaup fólks hér um slóðir. Svo mun nú ullarvinnan á bæjum ekki vera meiri en svo, að unnið sé upp á skyldulið bóndans, og á mörgum bæjum ekki svo mikil. Eg fæ því ekki séð, að ástæða sé til að setja vaðmál og einskeftu í verðlags- skýrslurnar og miða við það meðalal- in. Eg vil því leggja til, að vaðmál- um og einskeftu sé slept úr verðlags- skýrslunum hér í Dalasýslu eftirleiðis og líklega úr öllum verðlagsskýrslum á landinu, þar sem því er enn haldið. Svo framarlega sem vaðmál og ein- skefta verða sett í verðlagsskýrslurnar hérí Dalasýslu eftirleiðis, er óhjákvæmi- legt, að verðlagsskráiu verði ósann- gjarnlega há. Eg vona að þeir, sem semja skýrslur þessar eftirleiðis, geri sig ekki seka í annari eins óaðgætni og í þetta sinn. Ef vaðmál og ein- skefta hefðu ekki verið sett í skýrslur þessar í haust, þá hefði meðalalin ver- ið 54 aurar og mundi það vera nægi- lega hátt í þessu árferði. Hefði nú verðlagsskráin verið 54 aurar í staðinn fyrir 71, þá er verðmunurinn 17 aurar, og sá gjaldauki nemur hér í þessum litla hreppi rúmum 200 krónum og líklega í sýslunni 2000 krónum. XJm þetta væri ekkert að tala, ef það væri sanngjarnt eða réttlátt. En það er ekki, og allur almenningur á fult í fangi að inna af hendi þau skyldugjöld, sem hann þarf, þó ekki sé bætt við þau að óþörfu. J>að er nærri því ótrúlegt, að prest- ar, hreppstjórar og þriðji maður, val- inn af hreppsnefnd, skuli láta aðra eins fjarstæðu sjást eftir sig og verð- lagsskrána, sem gildir fyrir Dalasýslu frá miðju maímánaðar 1899 til sama tíma 1900. Eftirleiðis ættu gjaldend- ur sýslunnar að líta eftir, hvernig verðlagssýrslurnar eru samdar í hverj- um hreppi, úr því þær eiga að liggja til sýnis í hálfan mánuð í hreppnum, svo að þeir vissu, hverjum afglöpin væru að kenna, ef þau kæmu fyrir. f>að væri gagnlegt, ef einhverjir af þeim, sem sett hafa vaðmál og ein- skeftu í verðlagsskýrslurnar, gætu bent á þann markað, sem hægt væri að selja á vaðmál og einskeftu móti pen- ingum, þótt með lægra verði væri en sett er á þessar vörutegundir í verð- lagsskránni, svo að þeir, sem ekki vita af honum, gætu einnig notað hann, ef hannværi til og þeir hefðu þessar vor- ur til. Úr því eg fór að minnast á verð- lagsskrár, þá ætla eg að láta það álit mitt í ljósi, að Islendingar gætu vel komist af án allra verðlagsskráa, með því að grundvöllurinn, sem þær eru bygðar á, er úreltur og ramskakkur, svo að varla er hægt að byggja áhon- um opinber gjöld, svo í lagi sé, og er dálítið sýnishorn af því verðlagsskrárn- ar, sem gilda fyrir næsta ár. Úr því alþingi fór að káka við verð- lagsskrárnar, held eg að það um leið hefði átt að laga grundvöllinn, sem þær eru bygðar á, fella sumt úr, sem er úrelt, eða að minsta kosti laga undirstöðuna, svo að hún gæti átt við þeirra tíma; því reynslan í þetta sinn sýnir, að margir, sem hafa samið þessar skýrslur, eru ekki færir um að byggja skýrslur sínar á þeim grund- velli. Hóli, sumardaginn fyrsta 1899. Jens Jónsson. Þingmálafundip. Skagfieðingae. Ár 1899, 17. dag júnímánaðar var á Sauðárkróki haldinn almennur þing- málafundur fyrir Skagafjarðarsýslu, er boðað hafði verið til af 1. alþingis- manni Skagfirðinga, Ólafi Briem á Álfgeirsvöllum. Fundurinn var sóttur af allmörgum kjósendum úr ýmsum hreppum sýslunnar. Annar þingmaður sýslunnar, Jón Jakobsson, var eigi mættur á fundinum. Alþingismaður Ólafur Briem setti fundinn. Að því búnu kaus fundurinn Zóph. próf. Halldórsson- fyrir fundar- stjóra, en Jósef J. Björnsson á Hólum fyrir fundarskrifara. Mál þau er fundurinn tók til með- ferðar voru þessi: 1. Stjórnarskrármálið. Eftir all- langar umræður í þessu máli, er ýms- ir tóku þátt í, var samþykt svo hljóð- andi tillaga með öllum atkvæðum: |>rátt fyrir mikla annmarka á því fyrirkomulagi á æðstu stjórn landsins, sem gert er ráð fyrir í frumvarpi efri deildar 1897, þá álítur fundurinn það fyrirkomulag að sumu leyti betra en stjórnarástand það, sem nú er, og virðíst því gjörlegt að aðhyllast téða stjórnarskrárbreytingu, þó með því skilyrði, að trygging fáist fyrir fullu þingrœði í fjármálum landsins. 8. Lœknishéraðaskipun. í lækna- málinu urðu allmiklar umræður, og kom það fram í ræðum manna, að þeir yfirleitt væri algjörlega mótfalln- ir því, að eftirlaun lækna yrðu hækk- uð frá því, sem ákveðið var í lögum um læknaskipun frá síðasta þingi, og

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.