Ísafold - 23.09.1899, Síða 1

Ísafold - 23.09.1899, Síða 1
Jíeiiiur nt vniist einu sinni eða tvisv. i viku. Verð árg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða l‘/a doll.; borgist fyrir miðjan júlí (erlendis fyrir fram). ISAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 1. október. A fgreiðslustofa blaðsins er Austurstrœti 8. XXVI. árg. Reykjavík, laugardaginn 23. sept. 1899. 63. blað. Forngripasafn opiðmvd.og Id. kl.ll—12. Landnbanlcinn apinn hvern virkan dag ikl. 11—2. Bankastjóri við kl 11-2 annar gæzlustjóri 12—1. Landsbókasafn opið hvern virkan dag kl 12 — 2 og einni stundu lengur (til kl. 3) md., mvd. og ld. til útlána. Skálbolt fer 26. þ. m , Ceres i fyrsta ligi 26. þ. m. ^xtx. x+x, X+A,.X^A,,xtx..xf A..xfA,,xjA.,X^A. ,xtA,,xtA.,X.t>, xf A, ‘á{x"áJx"áJx"aJx 'aJx"aJx"áJx"aJx"áJx"aJx"aJx"aJx' Nýir kaupendur að næsta árgangi „lsaíoldar“, 1900, fá, auk annara hlunninda, ókeypis síðasta ársfjórðung þ.á. október—deaember, ef þeir borga fyrirfram. Nýir kaupendur skil— vísir fá ókeypis skáldsöguna þegar. hún verður fullprentuð. Vendetta verður 30—40 arkir að Btærð. Hún er ein af þeirn nútíðar- eögum, Bem alþýða manna hefir mest sózt eftir, hvervetna þar sem hiin hefir verið gefin út. í Veaturheimi t. d. seldu8t af henni 200,000 eintök á örstuttum tíma. Frá útlöndmn. Khöfn 9. sept. 1899 Eáðherraskifti í Danmörku 28. f. mán. (ágúst): 3 frá — Rump íslands- ráðgj. og dómBmála, Bardenfleth inn- anríkisráðh. og Tuxen hermálaráðh., en við tekið Bramsen lífsábyrgðar- stofnunarstjóri innanríkismálum og Schnack hermálum, en Hörring for- sætisráðherra og fjármála þjónar hin- um ráðherrastörfunum (íslands og -dómsmála) að sinni. Húsabruni mikill í Arósum 18. f. m., fyrir 2 milj. kr. Vinnuteppunni miklu 1 Danmörku loks lokið 4. þ. m., eftir 4| mánuð, fyrir milligöngu þeirra Bings, Heide og Triers, og höfðu vinnuveitendur sigur í fle8tum meginatríðum. Rússakeisarahjónin komu til Dan- merkur kynnisför 4. þ. m. Keisara- móðirin komin á undan. Dvöl þar nál. y mánuði. Síðan haldið til Darm- stadt, þar sem keisarafrúin er upp alin. Flogið hefir fyrir, að þar ætti Nikulás keisari að segja af sér keis- aradóm, þreyttur og örvona um æski- legt gengi, og tekur þá við bróðir hans Mikael, rúmlega tvítugur. En á það leggja þó fáir trúnað að svo stöddu. Dáinn 17. f. mán. f Khöfn Erik Begh skáld og leikhússtjóri fyrrum m. m., hátt á áttræðisaldri. Nær þrotin öll von um að ófriði verði afstýrt með Búum og Bretum. Búast hvorirtveggju af kappi. Oran- íulýðveldi fylgir Búum að máli. Cham- berlain mun og vera búinn að fá full- komið fylgi embættisbræðra sinna til að setja Kriiger gamla og Búum hans harða skilmála, og var á ráðherrafundi í gær samið svar til Búanna, og segja menn það harðyrt, en það verður fyrst birt, þegar það er komið til Prætoria. Fjöldi útlendinga hefir haldið burt frá Transvaal með búslóð sína, en Búar þjálfa lið sitt nótt sem nýtau dag, og himr áköfustu þeirra vilja þegar senda herinn til landamær«nna, en hafa þó enn eigi fengið því framgengt. Eng- lendingar senda og hermenn suður til Kaplands, bæði frá Gibraltar og heim- an að. Dreyfusmál enn ódæmt, og tvísýna á, hvernig fara muni, eigi fyrir nein nýtileg sakargögn — síður en svo — heldur fyrir bersýnilega hlutdrægni dómaranna og taumlausa ofstæki lýðs- ins. Dómsforsetinn sýnt Dreyfus og verjeudum ha.ns beran fjandskap í málsrekstrinum. Labori komst á flakk eftir vikulegu, með veikum burð- um þó, og hefir þarist síðan eins og hetja fyrir dóminum fyrir hönd Drey- fus. — Margir menn í París, yfir 40, orðið uppvísir að samsæri gegn þjóð- valdsstjórninni; átt leynimök við höfð- ingja Orleansmanna (konungssinna) að koma þeim til valda. »Svartidauði« kominn til Lissabon og Oporto frá)Alexandríu; þó í rénun þar aftur. í Lissabon hefir svo ramt að kveðið, að öll verzlunarvið- skifti hafa hætt við borgina og vörður befir verið settur' kringum hana. Stjórnin gerði lengi alt sitt til að bæla niður alt umtal um veikina og hefir það víst orðið til þess að hún breidd- ist meir út en hún hefði annars gert, ef þegar í stað hefðu verið hafðar strangar gætur á sjúklingum. Lýður í Oporto hefir gert óspektir út af við- skiftabanninu og ætlaði jafnvel að drepa lækni þann, er fyrstur varð til að kveða upp úr með veikina og ann- ast um að tálmað væri útbreiðslu hennar. Auk þess hefir veikin gert vart við sig á Rússlandi. Slðari fréttir. Dreyfus dæmdur sekur. Dómur í Dreyfusmálinu var kveðinn upp laugardaginn 9. þ. m. Dreyfus var af nýju dæmdur sekur, með 5 atkv. gegn 2. Refsingin ákveðin 10 ára fangelsi. En gengið er að því vísu, að dregin verði frá jafnmörg ár og hann hefir þegar í fangelsi setið á Djöflaeynni. Dómurinn mælist svo illa fyrir í öllum löndum Norðurálfunnar, utan Frakklands, og þá ekki síður vestan hafs, að gætnustu blöð stórþjóðanna, þau er annars leggja í vana sinn að fara sem virðulegustum orðum um aðr- ar þjóðir, tala blátt áfram um hann sem stórglæp, er franska þjóðin hafi gert sig seka í. Til merkis um, hvern- ig á málið er litið, er það, að ráðgert er víðsvegar um Norðurálfuna að bind- ast samtökum um að senda ekki sýn- ismuni á Parísarsýninguna, né heldur að sækja hana. A Frakklandi var alt með friði og spekt, þegar síðast fréttist. Sum blöð- in skoraáríkisforsetann að náða Dreyfus og fregnir hafa jafnframt borist um, að hann verði áreiðanlega látinn laus innan skamms. Formgallar þykja á dómnum, og verður því sjálfsagt reynt að fá hann ógiltan. Anitmaðiirinn og botnvörpumálið. Mælirinn fullur. Amtmaður hefir tekið til máls í »f>jóðólfi« út af ummælum Jsafoldar um úrskurðinn nafntogaða í botn- vörpuveiðamálinu. Og það er líka sannast að segja, að þar á slík grein og slíkur málstaður heima. Hvert ættu þeir fremur að leita en þangað, sem mestum ofsa fyllast og reiði, ef reynt er að halda fram hagsmunum og réttindum þessarar þj'óðar? jpessari grein amtmanns í »þjóðólfi« er þann veg farið, bæði að efni og orðalagi, að hún mundi hafa vakið al- veg óvenjulega undrun manna á með- al — ef úrskurður amtmanns hefði ekki verið fólki í svo fersku minni. Meðan svo er, furða menn sig eigin- inlega ekki á neinu úr þeirri átt, sízt í þéssu máli. Mælirinn getur ekki orðið fyllri en fullur. islenzkt embættis-yfirlæti. Fyrsta atriðið í þessari amtmanns- grein er mótmæli gegn því að bréf hans, sem prentað var í ð8. tölubl. Isafoldar, var kallað viirn. »Mér hefir aldrei dottið í hug*, segir amtmaður, »að verja embættisverk mín í ísafold, heldur var bréf mitt ekki annað en leið- rétting á því, sem birzt hafði áður í blaðinu um málefni þetta«. Leiðrétting var amtmanns-bréfið ckki og gat ekki verið. |>ví að Isafold hafði skýrt nákvæmlega rétt frá mála- vöxtum og amtmaður reyndi ekki einu sinni að rengja frásögn hennar með einu orði. Bréfið var þvert á móti ó- mótmælanleg staðfestmg þess, er ísa- fold hafði sagt. Fyrst það var nú ekki leiðrétting, og fyrst amtmaður vill með engu móti kannast við, að það hafi verið vörn, þá er oss ekki með öllu ljóst, hvað það hefir verið, eða í hverju skyni það hefir verið ritað. f>að gerir líka minst til. í sjálfu sjálfu sér er þetta atriði smáræði eitt. En ummœli amtmanns um þetta eru svo einkennileg, að vér getum ekki stilt oss um að benda lesendum vor- um á þau. »Mér hefir aldrei dottið í hug að verja embættisverk mín í ísafold«, segir hann. Með því að amtmaður hefir, alt fram að 16. þ. m., fremur snviið sér til ísafoldar en annara blaðameðþað, sem hann hefir ritað, verður þetta al- veg sama sem hann hefði sagt: Mér hefir aldíei dottið í hug að verja embættisverk mín í nokkuru íslenzku blaði! Hvað það er bá-íslenzkt embættis- yfirlæti þetta — að vera upp úr þvf vax- inn að verja embættisverk sín fyrir dómstóli þjóðarinnar! Eins og ís- lenzkur amtmaður eigi að bera nokk- ura ábyrgð fyrir íslenzkri þjóð! Eins og henni komi það nokkuð við, hvort réttindum hennar og hagsmunum sé traðkað af embættisvaldi hennar! Von er, að þeim þyki »leitun á betra stjórnarástandú, afturhalds- draugunum! »Rangfærslan«. Næsta atriðið í þessari einkennilegu amtmanns-grein er sú ásökun, að ísa- fold hafi rangfært nokkur orð í bréfi hans. Bréfið var prentað óskert og orðrétt í Isafold, svo að hefði um nokkura rangfærslu verið að ræða í athugasemdunum við það bréf, þá hefði hún naumast getað orðið mjög háskaleg. Hún hefði sem sé ekki get- að farið fram hjá nokkurum manni, sem lesið hefði þetta tölublað ísa- foldar. En vitanlega er þessi »rangfærsla«, hvergi til nema í ímyndun amtmanns- ins. Hann segir í bréfi sínu, að vitnis- burðir þeirra Markúsar F. Bjarnason- ar skólastjóra og Waardahls skipstjóra hafi ekki komið í bága hvor við annan, að því, er þeir náðu til. f>etta skildi ísafold svo, sem amtmaður hefði við- urkent, að vitnisburðirnir hafi ekki komið í bága hvor við annan. í þessu á rangfærslan að vera fólgin, að í at- hugasemdunum við bréfið eru ekki tekin aftur upp úr því orðin: »að því, er þeir náðu til«. Auðvitað á hvert þroskað barn, hvað þá heldur hver amtmaður, að geta 8éð það, að þessi orð, sem ámtmaður er að kvarta um að slept hafi verið, gera hvorki til né frá í þessu sam- bandi. Annaðhvort hafa vitnisburðirn- ir komið í bága hvor við annan, eða þeir hafa ekki gert það. Eða vill þá amtmaður segja, að vitnisburðirnir hafi komið í bága hvor við annan að því, er þeir náðu ekki til? f>að getur eng- inn óvitlaus maður sagt, ef hann kann svo vel íslenzku, að hann skilur orða- tiltækið: að koma í bága við. Rangfærslu-ásökunin er því heila- spuni einn, sem hver meðalgreindur, læs maður getur séð tafarlaust, að i raun og veru er ekki svaraverður. En til nákvæmari skýringar fyrir lesendur vora skal þess getið, hvernig þessum vitnisburðum var háttað í að- alatriðunum: Báðir vottarnir bera það og vinna eið að því, að skipið hafi, ásamt fleiri botnvörpuskipum, verið að veiðum innan landhelgi. En svo getur annar votturinn í viðbót, fyrir eigin mælingu, borið nákvæmlega um staðinn, þar sem lögbrotið var framið. Vitnisburðirnir koma þannig ekki á

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.