Ísafold - 17.02.1900, Side 2
lingar utan spítalans. Munurinn er
sá að eins, að þá voru flestir sjúk-
lingarnir mjög þjáðir (líkþrá), en
flestir þeirra, sem nú eru eftir, eru
minna veikir, sýkin vægari, langvinn-
ari (limafallssýkí). —Að líkindum mun
líkt ástatt annarsstaðar.
Af þeim 81 sjúklingum, sem spf-
talinn veitti viðtöku fram að árslok-
um 1899, höfðu 54 (29 karlar og 25
konur) líkþrá; á 25 (16 körlum og 9 kon-
um) var limafallssýki. Tvær kon-
ur komu, sem ekki voru holdsveikar;
önnur var send heim aftur, hinni —
gamalli konu, áttræðri — hefir verið
lofað að vera, fyrir innilega beiðni
hennar.
Flestir þeirra sjúklinga, sem hing-
að til hafa komið á spítalann, hafa
verið mjög langt leiddir: sýkin verið
á síðasta stigi sínu. Afar-aumlegir
útlits hafa þeir verið, vegna þess, hve
illa þeir hafa verið stundaðir heima
fyrir; svo hefir virst um flesti þeirra,
sem þeir ættu ekki annað eftir en að
deyja. Tekist hefir þó að halda Iíf-
inu í mörgum þeirra um hríð með
hinum holla aðbúnaði á spítalanum.
Samt hefir manndauðinn verið mikill.
Einn sjúklingur dó fyrir lok ársins
1898. 16 dóu á árinu 1899; samtals
17 dánir, þar af 14 með líkþrá
og 3 með limafallssýki.
Einn drengur með limafallssýki
var sendur heim sumarið 1899 sem
læknaður.
Læknir spítalans, Sæm. Bjarnhéð-
insson, mun gera í dönsku læknis-
fræðistímaríti nákvæmari grein fyr-
ir veikindum á spítalanum, mann
dauðanum, lækningatilraunum, m. m.
Spítalahúsið hefir yfirleitt reynst
mjög hentugt. Svo sem kunnugt er,
eru tveir stórir salir á neðsta gólfi, og
átti annar þeirra að vera borðsal-
ur karlmanna, hinn vinnustofa.
Með því að fæstir sjúklingarn-
ir hafa til þessa verið vinnufærir, þá
hefir þessi vinnustofa verið höfð fyrir
kirkju handa spítalanum. Að líkind-
um verður hún ekki til annars höfð
eftirleiðÍ3. Að öðru leyti hefir húsið
verið notað á þann hátt, sem fyrir
var hugað.
Húsið stendur á bersvæði, en samt
hefir það reynst súglaustog hlýtt. Að
eins hefir orðið þörf á að hafaforskygni
að vetrinum fyrir dyrum úr ganginum
og eldhúsinu út í garðínn. Loftrásar-
ofnarnir gefast vel. pó skal þess
getið, að loftrásin varð of sterk í
fyrra vetur, þegar vindur stóð á fram-
hlið hússins. Ur því hefir nú verið
bætt með því að setja hreyfanléga
hlera yzt í loftrásar-pípurnar. Aldrei
verður vont loft í sjúklingastofunum
og aldrei verður þar vart við þann
einkennilega ódaun, sem annars er
vanur að vera af holdsveikum mönn-
um með sár á hörundinu; og má af
því sjá, að sjúklingastofurnar eru svo
rúmgóðar sem þörf er á, og að loftrásin
er nægileg.
þar á móti er það galli, að því er til
sparnaðarins kemur, að ógrynni af
I ólum þarf í alla þessa ofna. Að því
leyti er það all-tilfinnanlegt, að ekki
skuli vera miðstöðvarhitun í húsinu,
og eins er nokkuð torvelt að tempra
hitann í stofunum, með því að ekki
er unt að hafa stöðugar gætur á því,
að sjúklingarnir láti loftsnerlana á
ofnunum vera í friði.
Kompó-borðin (þiljuborðin) hafa ekki
reynst vel; þau þola illa hita og enn
lakar raka. Hinir stóru suðukatlar í
eldhúsinu eru heldur örðugir, með því
að hreinsa verður sót úr þeim að
kalla má á hverjum degi. þurkloftið
er orðið of lítið, því að ekki er unt
að þurka þvott úti að vetrinum til,
vegna þess, hve hér er rigninga- og
óveðrasamt.
Að öðru leyti hefir húsið yfirleitt
rcynst bœði traust og hentugt.
Fyrir löngu hefir mönnum hug-
kvæmst að búa til grasgarð fyrir
framan spítalann. þ>að mundi áreið-
anlega auka vellíðan sjúklinganna að
miklum mun að sumrinu til. En að'
hinu leytinu þarf að fá til þess auka-
fjárveitingu, og verið getur, að alþingi
verði ófúst á að veita það fé. þó
leggur yfirstjórn spítalans sjálfsagt
tillögu í þá átt fyrir næsta alþingi.
Naumast er nokkur stofuun til fyr-
jr sjúka eða hruma menn, aðekki séu
þar einhverjir óánægðir, þeirra er
hennar eiga að njóta. þeir eru ekki
fáir, er strokið hafa af norsku holds-
veikraspítölunum. Hér hefði mátt
búast við svipuðu. En sú hefir ekki
raun á orðið. Að eins þrír af sjúk-
lingunum hafa látið 1 ljósi þá ósk, að
hverfa heim aftur, og það hefir staf-
að af því, hve mjög þeir hafa þráð
fjölskyldu sína. En allir hafa þeir
sjálfviljugir tekið þessa ósk sína aftur,
þegar búið var að sýna þeim fram á
það vandlega, hvert böl þeir kynnu
að baka ættingjum sínum með því, að
vera samvistum við þá.
f>að er starfsmönnum spítalans til
sóma, að alt hefir þannig gengið von-
um betur. Maturinn — þetta sífelda
óánægjuefni í öllum spítölum — hefir
sjálfsagt átt góðan þátt í því. Eg
hygg, að mönnum hafi tekist vel með
matarskrána. Umferðin er látin ná yfir
lOdaga, semsjálfsagt er betra enaðhafa
en 7 daga umferð, sem enner gert íeldri
spítölum, t. d. öllum norskum holds-
veikraspítölum. Með því verður meiri
tilbreytni í matarhæfinu. Sömuleióis
stendur maturinn í þessum spítala
framar því, sem er í norskum holds-
veikisspítölum, bæði að gæðum ogvöxt-
um, og er jafn-góður því er tíðkast í full-
komnum nútíðar-hjúkrunarstofnunum,
t. d. hjúkrunardeildinni í »Almindelig
Ho8pital« í Kaupmannahöfn (skamtarn-
ir eru dálítið stærrí hjá oss). Sjúkl-
ingarnir eru líka mjög ánægðir með
matinn, sem þeir fá, svo að kalla undan-
tekingarlaust. Yfirhjúkrunarkonan, frk.
Jurgensen, kemst þannig að orði við
mig: »Hér hefir verið minni umkvört-
un um matinn á einu ári en í spítöl-
unum í Danmörku á einum mánuði«.
Eins og áður er á vikið, hafa flestir
sjúklingarnir reynst ófærir til vinnu.
Nokkurar af konunum hafa við og við
fengist við ullarvinnu. f>ar á móti
hefir hingað til verið mjög örðugt að sjá
karlmönnunum fyrir starfi, sem þeir
geti nokkuð fengið fyrir.
Að hinu leytinu hefir alt kapp ver-
ið á það lagt, að sjúklingunum þurfi
ekki að leiðast. Sumir spila og aðrir
tefla skák. Spítalinn kaupir íslenzku
blöðin handa sjúklingunum og hefir
auk þess aflað sér nokkurra bóka;
eiustök bindi hafa sjúklingarnir og
fengið frá íslenzkum bókaútgefendum.
I ráði er, að koma smátt og
smátt upp ofurlitlu bókasafni handa
sjúklingunum, og eiu bækur þær, sem
nýlega eru komnar frá Oddfellowum
— um 100 bindi — laglegur vísir til
til þess. Um jólin höfðu sjúklingarn-
ir mikla ánægju af skemtilegu jólatré,
er Oddfellowar í Kaupmannahöfn gáfu
þeim. YTfirleitt láta sjúklingarnir í
ljós mikið þakklæti fyrir alla þá um-
hyggju og góðvild, sem þeim er sýnd.
Eg skal ekki láta hjá líða að geta
þess, að allir sjúklingarnir hafa míkla
huggun af trúarbrögðunum. Prestur
spítalans hefir og haldið guðræknis-
samkomur á hverjum sunnudegi —
fyrir einar 200 krónur um árið.
f>ar sem nú segja má í bezta skiln-
ingi orðsins, að spítalinn hafi orðið
heimili sjúklinganna, þá er það ekki
hvað minst að þakka starfsmönnum
spítalans. I því sambandi vil eg eink-
um benda á, hve einkar-þörf yfirhjúkr-
unarkonan, frk. Jtirgensen, hefir verið
spítalanum. Arsskýrsla spítalalæknis-
ins, sem eg hefi átt kost á að lesa
og síðar verður birc á prenti, mun og
sýna, að hann er fullkomlega vaxinn
stöðu sinni.
Frá Reykjarvíkurbúum kom á sín-
um tíma fram allhörð mótspyrna gegn
þvi, að spítalinn yrði reistur nálægt
bænum. Sú óbeit er nú með öllu
horfin. Nú er enginn maður hræddur
við spítalann, enda væri það og fjar-
stæða, þar sem spítalinn er vel ein-
angraður og sjúklingarnir fá nær því
aldrei leyfi til að fara inn í bæinn.
f>ar á móti geta ættingjar og vinir
sjúklinganna fundið þá á spítalanum
á ákveðnum tímum. Komumenn hafa
verið mjög fáir, af því að fiestir sjúkl-
ingarnir eru langt að. f>etta leyfi
hefir verið veitt til þess, að sjúkling-
unum skuli ekki finnast, að þeir séu
í fangelsi. Um nokkura sýkingarhættu
af þessum gestakomum getur naumast
verið að tefla, þegar þess er gætt,
hvernig sjúklingunum er nú hjúkrað.
f>eir fá heitt bað tvisvar í viku og
um öll sár er bundið daglega eða
annanhvorn dag. Enda er holdsveikin
ekki í flokki þeirra sjúkdóma, sem
mjög eru næmir; það er að kenna ó-
þrifnaði og stórkostlegri óvarkárni,
hve mjög hún hefir breiðst út, — og
um hvorugt getur verið að tefla í
spítalanum.
Nokkurir voru þeir, er hugðu, að
holdsveikir menn mundu forðast spí-
talann, svo sem hann væri fangelsi.
Sú ímyndan hefir reynst úr lausu lofti
gripin. Holdsveikír menn keppast svo
mjög eftir að komast á spítalann, að
hingað til hefir ekki verið unt að veita
öllum umsækjendum viðtöku. Sem
stendur eru vonbiðlarnir sjö. Af þcim
81 sjúklingum, sem komið hafa, hafa
62 verið sveitarómagar og sveitirnar
hafa sent þá alla, án þess nokkur
þeirra liafi undan því færst. Hinir 20
hafa sótt um spítalann sjálfviljuglega.
Enginn hefir enn verið lagður á spí-
talann nauðugur, samkvæmt holds-
veikralögunum.
Kostnaðinn við spítalahaldið sjáið
þér af hjálögðum reikningi fyrir 1899.
Yfirstjórn spítalans hafði búist við, að
ársútgjöldin muudu verða meiri, og
kannast við það, að ráðsmaðurinn, br.
Guðm. Böðvarsson, hafi stýrt fjár-
málum spítalans fyrirtaksvel. Með síð-
ustu fjárlögum voru veittar kr. 56,000
til spítalahaldsins á fjárhagstímabilinu
1900—1901. Sú fjárveiting hrekkur
vafalaust fyrir útgjöldunum.
f>essum gjöfum hefir spítalinn tekið
á móti:
1. Samskot frá Vordingborg og nær-
sveitinni til hjálpar holdsveikum
mönnum á íslandi kr. 321,00.
f>egar tækifæri býðst, verður
gjöf þessari varið til þess að taka
á móti sjúklingi, sem er nýbúinn
að fá holdsveiki, einkum í því
skyni, að gera á honum lækninga-
tilraunir.
2. Frá stórkaupm. Thor E. Tulinius
kr. 256,18.
f>ví fé verður varið til smá-
þæginda handa sjúklingum,tóbaks,
bréfapappírs o. s. frv.
3. Frá Simonsen & Wells Efterfölg-
er, Khöfn • 500 ál. af umbúðalíni
og 50 pd. af umbúðabaðmull.
4. Frá »De forenede Vatfabrikker«,
Khöfn: 100 pd. af umbúðabaðmull.
5. Frá Fr. Neckelman, Kolding: Um-
búðavöndlar.
6. Frá Sölvgadens Porcelænsfabrik
(A. Smidt): 72 postulínsbollapör.
7. Frá lyfsala Lund, Reykjavík: 28
flöskur af ilmvatni handa kven-
sjúkl. og 13 kr. virði af frímerkj-
um, er skift sé milli allra sjúkl-
inganna.
8. Frá kaupm. Jes Zimsen, Rvík:
40 pd. af eplum.
9. Frá Kehlets Choholadefabrik, K-
höfn: kassi með sykri og súkku-
laði.
10. Frá enskum presti: Myndir í
kirkjuna og ofurlítil mynd handa
hverjum sjúklingi.
11. Frá Oddfellowareglunni í Iíhöfn:
jólatré til jólanna 1898 með öllu,
sem því fylgir, og peningagjöf.
17 veggdiskar í forsal spítalans.
Sjúklingavagn. Vatnskoddi. Jóla.
tré til jólanna 1899 með öllu, sem
því fylgir, og peningagjöf (80 kr.).
Vera má, að skrásetning þessi sé
ekki svo nákvæm sem vera ætti, með
því að gjafir þær, sem spítalanum
hafa verið sendar, hafa því miður ekki
verið skrásettar jafnóðum. En það
mun verða gert eftirleiðis.
Sjúklingarnir í Laugarnesspítala hafa
beðið mig að færa Oddfellowum í
Danmörku hjartanlegar þakkir fyrir
stöðuga umhyggju og góðvild frá þeirra
hálfu. Og eg get bundið enda á skýrslu
þessa með því að taka það fram, að
Lauganesspítalinn er að öllu leytiorð-
inn eins og honum var ætlað að verða;
heimili nokkurra allra-mestu vesalinga
mannkynsins, holdsveikra manna, og
sómi þeirrar reglunnar, sem mannúð-
legust er, Oddfellowreglunnar.
Eg ber ábyrgðina.
1 tilefni af dómum þeim, er komið
hafa fram í blöðunum um meðferð
»Leikfélags Reykjavíkur« á leik Björns-
sons »Milli bardaganna« og sérstak-
lega á hlutverki Ingu í þeim leik,
finn eg mór skylt að láta þess getið,
að eg ber ábyrgðiua á því, hvernig
það er skilið af hlutaðeigandi leikanda.
j?ví fer svo fjarri, að mér hafi skil-
ist það, að Inga sé þrekmikil og stilt
frá höf. hálfu, eins og blöðin halda
fram, að eg minnist naumast konu í
nokkurum leik, sem mér hefir fundist
vanstiltari.
þennan skilning minn ætla eg ekki
að fara að rökstyðja hér, því að eg
vil alls ekki valda því, að þetta verði
að neinu deiluefni. þessar línur eru
ritaðar í þeim tilgangi einum að
benda mönnum á, hvar ábyrgðin fyrir
misskilninginn á að lenda, ef hér er
um misskilning að ræða frá minni
hálfu. _ E. II.
Frá útlöiidum.
hefir borist hrafl af blöðum, með botn-
vörpuskipi nýkomnu, fram að 8. þ. m.
í Suður-Afríku hefir enn orðið fund-
ur með Bretum og Búum, á fjalli eða
hæð, sem Spion Kop heitir, rétt fyrir
norðan ána Tugela. Buller hershöfð-
ingi var kominn norður yfir fljótið
með hersveitir sínar um 20. f. m.
Hæðir eru þar rétt fyrir norðan og í
þeim hæðum voru Búar fyrir til varn-
ar. Nokkur hluti af liði Breta reyudi
að ná einni af þessum hæðum, Spion
Kop, sem þegar hefir verið nefnd, en
Búar ráku þá af höndum sór. Mann-
fall varð mikið í liði Breta, á annað
þúsund manna fallnir og særðir. Eft-
ir þessar ófarir hörfuðu Bretar aftur
suður fyrir ána. En er síðast fréttist.