Ísafold - 21.03.1900, Blaðsíða 2

Ísafold - 21.03.1900, Blaðsíða 2
54 til lands, þá umhverfist það, reynir að spilla fyrir málinu á allar lundir og sverta þá menn af alefli, sem fyr- ir þessu velferðarmáli þjóðarinnar eru að berjast. Svona er nú ættjarðarást, bændaást afturbaldsmálgagnsins ómótmælanlega farið í þessu efni. Nákvæmlega eins er farið afskiftum blaðsins af bankamálinu. Reykjavík er sá bletturinn á land- inu, sem haft hefir svo margfalt meiri not af Landsbanianum en aðrir lands- hlutar, að ekki er saman berandi. Hún er eini staðurinn á landinu, sem ekki verður sagt, að hafi verið í al- gerlega óþolandi peningaskorti að und- anförnu. þess vegna fá skammsýnir menn her í Reykjavík talið afturhalds- málgagninu trú um, að engin þörf sé á neinni tilbreytni ifieð peningamál landsins. Málgagnið gleypir þá flugu, { algerðu skilningsleysi á og skeyting- arleysi um það, að öll þjóðin utan Reykjavíkur er hnept í margvíslega áþjárr fyrir peningaleysi. Svo mikil er einfeldnin, vitsmuna- skorturinn, að hvenær sem út úr Reykjavík dregur, er málgagnið blint á báðum augum. f>rátt fyrir hina ó- virðulegu fíkn í að koma sér í mjúkinn hjá bændum með því að smjaðra fyrir þeim og ímynduðum hagsmunum þeirra, án nokkurrar hliðsjónar á þjóðarheild- mni, er vitleysan svo mögnuð, að málgagnið hefir sýnilega enga hugmynd um það, hvað það er að gera, þeg- ar það er að berjast með hnúum og hnefum fyrir því, að gera bændastétt þessa lands óbætanlegt tjón — eða hirðir þá ekki minstu vitund um það. Með öllu bændasmjaðrinu er það bersýnilega í höndunum á fáeinum mönnum hér í Reykjavík, sem bera annað fremur fyrir brjósti en hag bænda, — svo að vér verðum ekki um of stórorðir. Mjög sennilegt er, að málgagnið viti ekki, hvert það er að stefna, fyr- ir hvers hagsmunum það er berjast. En þeir, sem yfir málgagninu og rit- stjóranum drotna, fara sjálfsagt nærri um það. Og því þarf naumast að kvíða, að þjóðin komist ekki líka í skilning um það, áður lýkur. Syipfríð þjóðrækni. í þjóðólfi 23. f. m. stendur grein með fyrirsögninni *ískyggilegur far- aldur*. Grein þessari, sem eg tel eina stóra lokleysu, kemur mér ekki í hug að svara í heild, hvorki illmælunum um Vesturheimsprestana, sem eg hefi aldrei talað eitt orð við, né öðru bulli. það eru að eins fá atriði í greinar- skömminni, sem eg vii skýra og leið- rétta, og gjöri eg það að eins fyrir bænastað annara, því mér er nákvæm- lega sama, hvað ritstj. þjóðólfs þvaðrar. Ummæliu um »gamla prestinn, sem farinn er að taka upp nýja predikun- araðferð eða réttara sagt er farinn að halda aukaguðsþjónustu á eftir venju- legri embættÍ8gjörð« — mér finst nú »ný predikunaraðferð* og »aukaguðs- þjónusta« alveg sitt hvað — eru svo undir komin, sem hér segir: Eg jarð- söng garaalmenni við Miðdalskirkju rétt fyrir síðastliðin jól. þá vorubréf nýkomin að vestan. Eitt af þeim var til konunnar í Miðdal, frá bróður hennar, sem verið hefir mörg ár í Ameríku. Af því að menn vissu, að bréf þetta var svar upp á fyrirspurnir um lífið vestra, fýstust margir að heyra það. Eg var því beðinn að lesa bréfið, ekki útií kirkju, heldur inni í baðstofu; en af því að áliðið var dags og veður ískyggilegt, neitaði eg að tefja menn á því, og var því þess vegna frestað þangað til um kvöldið, á Snorrastöð- um; þar var dálítið samkvæmi haldið, en margir af þeim, sem við jarðarför- ina voru, fóru heim beint frá kirkj- unni. Eg las svo þetta bréf að lok- inni máltíð. Og hvað segir svo þetta bréf? Mest- ur hluti þess lýsir svo megnri ótíð vestra síðastliðið sumar, að brófritarinn segist ekki hafa orðið fyrir líku í 13 —14 ár. Ált engi undír vatni allan sláttinn og hann því neyddur th að slá óyrkta valllendis-bakka með smá- kvisti, bæta sér verkamönnum, skemma sláttuvél sína o. fl. Hann segir enn- fremur frá eigum sínum, getur um, hvað dilkur og sauður, sem hann hafði slátrað, hafi lagt sig, og er það lítið meira en hér heima í góðum fjársveit um. Hann eggjar engan á vesturferð, en segir systur sinni, að hann muni gjöri sitt til að liðsinna henni og leið- beina, komi hún vestur og skyldulið hennar, en bætir því þó við, að að- stoð sín muni verða minni en hann vildi óska. þegar hann er að lýsa ótíðinni, seg- ir hann, að hún hafi komið minna við sig en við hér heima getum bú- ist við; hún hafi komið þyngst niður á hestum þeim, sem gangi fyrir vél- um sínum. Út af þessum ummælum í bréfinu er það sjálfsagt, að ritstjórinn og fréttasnati hans hafa búið til alla lyga- romsuna um hugmyndir efnabóndans um vélarnar, og að hann kunni ekki að gjöra grein á almennum vinnuvél- um og járnbraut. þótt vér íslending ar séum í mörgu skamt á leið komn- ir í því, er að verklegum framfórum lýtur, er eg viss um, að enginn, sem annars er talinn með fullu viti, er svo vitlaus, að hann hendi slíkt, og lýsir það ekki mikilli ættjarðarást eða rækt til landa sinna, að leitast á þennan eða annan hátt að gjöra þá sem auðvirðilegasta og fyrirlitlegasta. Sem betur fer, er enginn flugufótur fyrir þessu þvaðri. Sagan um veiku konuna, sem á að hafa farið á fætur og orðið alheil, þeg- ar hún heyrði að bóndi hennar ætlaði til Ameríku, er svo undir komin, að móðir konunnar í Miðdal, kona hátt á sjötugs aldri, margreynd og mædd, hefir legið rúmföst rúmt ár, oft mik- ið þjáð. Allur bati hennar er fólginn í því, að hún hefir sagt mér og öðr- um kunningjum sínum, að hún vonaði að sér batnaði svo, að hún gæti orðið dóttur sinni samferða. þessa síðustu hlýu daga hefir hún tvisvar stigið á fætur. Afskifti mín af ferð hennar eru þau, að eg hefi hvað eftir annað sagt dóttur hennar og tengdasyni, að hún gæti tæplega orðið ferðafær; eg hefi leitað álits læknis um þetta o. fl. Enda tel eg víst að þau farihvergi Að hafa ástand slíkra krossberenda í fíflskaparmálum álít eg blátt áfram þrælmensku. Svo skal eg nú minnast stuttlega á heimíldir mínar fyrir því, hvernig sorp- grein þessi er til orðin. Bóndi einn í Laugardal sendi son sinn, ungling um tvítugt, til Reykja- víkur með rjúpur í síðastl. janúar. Piltur þessi, sem annars er ráðvandur og af bezta fólki kominn, er eitt af hinum mörgu sorglegu dæmum þess, hvernig éfnileg ungmenni eiga ekki að vera. Hann er latur, þykist vita alt og vera alt, en veit í rauuinni ekkert og er ekkert. Hann er tíasfenginn, stöðvunarlaus spjátrungur, bezta efni í vafsara, sem endar með gjaldþroti og á nreppnum. f>etta efnilega ungmenni kemst inn á skrifstofu þjóðólfs. Hefir ef til vill verið þar kunnugur áður, því »sækjast sér um líkir* o. s. frv. f>eir verða undir eins hrifnir hvor af öðrum, hann og ritstjórinn; fara að ræða um á- standið hjá oss, framtíðarhorfurnar, viðreisn búnaðarins o. fl. o. fl. Ritstjórinn stenzt ekki strákinn; nei, hann opnar honum hjarta sitt. Segir honum, að sig dauðlangi í sveit; talar um að sækja um Mosfell, telur sjálf- sagt að verða kosinn, komist hann á skrá, en efar það, því háyfirvöldunum sé illa við slík mikilmenni, aðra eins »reformatóra«; þau vilji halda öllu í gamla horfinu. f>á leggur kona ritstj. orð í — hún er sem sé eitt stórmeuni ió á þessari höfðingja(!)-samkomu. Hún segist ekkert hirða um prests- konutitilinn eða preststekjurnar; hún vilji bara vera rétt og slétt bónda- kona, og sem bóndakona sýna, að það sé hægt að búa, græða og lifa sældar- lífi í sveitunum á íslandi. Strákur verður frá sér numinn af þessari ætt- jarðarást. Að vilja yfirgefa hina glæsi- legu stöðu, sem þau hjón hafa, og gjörast postuli skrælingja, sem ekki þekkja járnbraut frá saumavél; að gjöia það að lífsstarfi sínu, að hefja slíka asna til æðri þekkingar og hrinda þeim a æðra stig fullkomnunar og sælu, — í það þótti strák, sem von- legt var, mikið varið. Haft tungu hans losnar. Til að sýna hjónunum verkefnið, sem fyrir hendi sé, lýsir hann nú ástandinu í sveitinni, því það þektu nú hjónin satt að segja ekki sem bezt. Hann útmálar vestur- farasýkina og ræktarleysið við gamla landið með sem svörtustum litum, og ætlar með þessu bragði að hleypa enn meiri jötunmóð í þessa miklu »refor- matóra«; en þetta sveik strák illa. Ritstj. varð bara lafhræddur. Hann sótti ekki um Mosfell og kona hans falaði enga af hinum mörgu lausu jörðum. Ritstj. lapti að eins spýuna úr þessu efnilega ungmenni, og gat ekki haldið henni niðri; kastaði henni upp aftur, en langtum ógeðslegri og verri en hún var í fyrstu, og í þeirri mynd birtist hún svo í f>jóðólfi. Um þetta grunaði strák ekkert. Hann kom austur hróðugur yfir sam- komunni á skrifstofu þjóðólfs og öllum hinum væntanlegu, stórkostlegu end- urbótum, og sagði mér og öðrum svo mikið, að alt mátti vel skilja. En svo brást ritstjórinn honum. Hann aug- lýsti að eins lygaþvættinginn hans í heiðruðu blaði sínu, vitanlega mikið aukinn og afbakaðan. Að lokum leyfi eg mér að fullvissa ritstj. um, að eg hefi aldrei gjörst og raun aldrei gjörast vesturfara-agent, hvorki í kirkjum né utan kirkju. Eg álít, að bezt sé að menn í þessu sem öðru séu sem frjálsastir. f>að tel eg óhugsandi, að vesturfarir haldist við, sé með þeim alment skift um til hins verra. Svo margir vandaðir íslend- ingar eru líka komnir vestur, að eg tel fjarstæðu að leiða sér í grun, að þeir allir vildu ginna vini og náunga út í ófæru. Ofstæki ritstj. þjóðólfs gegn vesturförum gefur grun um það, að hann haldi, að lífið þar vestra hafi eítthvað það við sig, sem menn gang- ist fyrir. Fyrir þetta vill hann girða með því að einangra landa sína í sem flestu. Verði honum að góðu. ^Til þess að gefa ritstj. enn texta sS®spreita sig á, sem hann þarf ekki að skammast sín fyrir, skal eg svo segja honum í fám orðum álit mitt á vesturförum. Eg álít ísjárvert, jafnvel rangt fyr- ir bændur, sem komast hér af, og hafa búið hér um sig, að rífa sig upp, þótt mikið gangi nú af þeim og útlit- ið sé alt annað en gott. Fyrir þá, sem hrakar svo áriega, að sýnilegt er, að þeir komast brátt á hreppinn, álít eg drengilegt að leita fyrir sér annar- staðar og reyna að forðast vansa þann, að verða annara byrði. Fyrir unga menn, sem efni hafaogvilja eðaþurfa að fara að búa, álít eg hæpið að hætta hér efnura sínum meðan sama stendur. Að því geta þeir búið alla æfi. Fyrir þá, sem lítil eða engin efni hafa — og svo eru flestir Vorir ungu menn — álít eg vitlaust, að taka stór- lán til þess að byrja með einhverja ómyndarsjálfsmensku. 8é það því satt, að ritstj. hafi lofað fréttasnatan- um sínum láni til að kaupa fénað af vesturförum með hálfvirði, álít eg hann gjörði honum þægt verk með því að svíkja hann, enda vona eg að, hann taki sér það ekki nærri, fuglinn. Ritað í marz 1900. St. Stephensen. Vegabætur og brúasmíöi. þegar maður ferðast héðan vestan úr Dölum suður í Reykjavík, er gleði- legt að sjá, hvað vegirnir hafa fengið mikla umbót á síðastliðnum áratug, og ef svona vel verður haldið áfram í önnur tíu ár, verður að líkindum búið að gjöra þennan veg vel viðun- anlegan reiðveg, ef þess verður einnig gætt, að halda honum nægilega við. þessar vegabætur eru að flestra á- liti vel af hendi leystar; og þótt þa& mætti að þeim finna, að við lagningu þeirra hafi ekki verið gjört ráð fyrir, að þeir yrðu nýtilegur vagnvegur, þá er það afsakanlegt, því með því móti hefði vegagjörðia orðið mikið dýrari, og þar af leiðandi miðað seinna áfram; en óneitanlega liggur mest á að gjöra slíkan veg, sem hér um ræðir, sem fyrst reiðfæran. En æskilegt væri, að eftirleiðis yrði aksturinn hafður í huga við lagningu þessara vega, og þar sem þeir eru lagðir um sveitir, ætti að leggja svo mikið kapp á að gjöra þá akfæra, sem framast er unt. þá eru brýrnar, sem lagðar hafa ver- ið á árnar á þessari leið, ekki síður þarfar umbætur, sem allir ferðamenn hljóta að láta sér þykja vænt um, eink- um vor og haust, þegar árnar eiga annars að sér að vera lítt færar og oft ófærar. það er eins um brýrnar og vega- bæturnar, að flestir telja þær vaudað- ar og vel gjörðar, og því ekkert að þeim að finna. Mig langar samt til með leyfi yðar, herra ritstjóri, að fara nokkrum orð- um um þessar brýr, þótt þau hafi að geyma töluverðar aðfinningar við verk mikilsvirtra manna. Allir hljóta að játa, að það sé nauð- synleg og sjálfsögð regla, að brýr séu gjörðar svo traustar og endingargóðar, sem efnið í þeim framast leytír og aðrar ástæður, og að það sé fyrsta og sjálfsagðasta skyldan, að þess sé gætt. það er einuig skoðun mín, að það sé bæði skylda og réttur hvers manns á landinu sem er, að benda á, ef mannvirki þau, sem kostuð eru af al- mannafé, eru ekki þannig af hendi leyst, að þessari reglu sé fylgt. Eg kem ekki með þessar aðfinning- ar mínar af því, að eg efi, að brýrnar sem gerðar hafa verið á þessari leið á landssjóðs kostnað, séu nægilega traust- ar til að bera klyfjaðar hestalestir og ríðandi fólk, og muni endast nokkuð lengi, heldur af því, að mér virðist vera að ástæðulausu brugðið út af mjög mikilsverðum og alkunnum regl- um, sem bæði snerta burðarmagnið

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.