Ísafold - 18.04.1900, Blaðsíða 3

Ísafold - 18.04.1900, Blaðsíða 3
83 H. Th. A. Thomsens og W. Fischers; og skonn. »August« (78 smál., skipstj. Drejö) frá Khöfn með ýmsar vörur til H. Th. A. Thomsen. --- » má -\— Um fátækramál Og þurfamannastofnanir. i. Um sveitarþyngsli og fátækramál hefir verið rætt og ritað, jafnvel meira en um nokkrfrt annað mál her á landi. Fyr og síðar hafa menn fundið til þess, að ýmsir annmarkar væru á fátækra- löggjöfinni, og að einhverra ráða þyrfti að leita til þess, ef unt væri, að draga úr hinum miklu sveitarþyngslum. þetta er engin furða, er þess er gætt, að fátækraskatturinn er óefað hinn langþyngsti og tilfinnanlegasti skattur, sem á þjóðinni liggur. Og þótt hann sé nokkuð misjafn í hrepp- unum, verður eigi annað sagt en að hann taki alstaðar drjúgum blóð. Samkvæmt Landshagsskýrslunum um árið 1897 voru aukaútsvörin 1895 206,271 kr. á öllu landinu. Tala þeirra, er borguðu til sveitar sama ár, var 15,383. Sveitarómagar voru þá 1989, þurfamannaheimili 301, en samtals 2390 þurfalingar. þó var tala þurfal- inga þetta ár lægri en hún hafði ver- ið áður um langan tíma, eða síðan 1850. En um 1871 var talan það hæst, er hún hefir orðið á þessari öld. Fátækraframfærið, sem gengið hefir beinlínis handa þurfamönnum, skift- ist niður á hvern þurfamann, gjald- anda o. s. frv. þannig: 1891 1893 1895 kr. kr. kr. Fátækraframfæri . . . 170,923.oo 169,807.oo 157,622.oo á hvern þurfamann . 50.8 (.6.7 66.. gjaláanda . 12.i 12.8 10.8 landsbáa . . 2.4 2.4 2.i Við þessa fúlgu, fátækraframfærið, bætast svo óvisx útgjöld sveitarsjóð- anna, sem námu hin sömu ór því, sem hér segir : 1891 .... 141638 kr. 1893 .... 182175 — 1895 .... 151941 — Um þessar tölur er komist svo að orði í Landshagsskýrslum árið 1897: »Sjólfsagt eru gjöldin til fátækra meiri í raun og veru en hér er talið, því bæði er ómagameðlagið sjálfsagt minna en það kostar í raun og veru að halda sveitarómaga, og svo telja hrepparnir undir óvissum útgjöldum flest annað en fast ómagaframfæri, svo sem allan annan sveitarstyrk, lán, greftrunarkostnað sveitarómaga og fá- tackraflutninga«. Samkvæmt ofangreindum tölum komu 10—12 kr. á hvern gjajdanda, og virðist það ífljótu bragði ekki ýkja- hátt. En hér er þess að gæta, að þetta er reikningsleg jafnaðartala eða eins konar meðaltal, sem kemur á hvern gjaldanda. Hins vegar er það öllum kunnugt, að fátækraútsvörin koma afarmisjafnt niður, bæði á sveit- irnar og ekki síður á gjaldendur. I mörgum hreppum eru það tiltölulega fáir menn, er bera meiri hluta byrð- arinnar. Hinir gjaldendurnir greiða að eins örfáar krónur hver og oft miklu minna en hér er kallað meðal- tal. þess eru aæmi, að 6—8 bændur, í sveitum með 60—80 gjaldendum, bera alt að helmingi allra útgjalda hreppsins. þeir, sem búa bezt eða komast helzt áfram, eru látnir gjalda þess með því, að á þá er lagt þeim mun meira. Hins vegar er þeim hlíft, sem miður búnast, þótt það oft sé deg- inum ljósara, að það er þeim sjálfum að kenna. Fátækragjaldið er því ekki einungis þyngsti skatturinn, er á þjóðinni ligg- ur, heldur einnig oft og einatt sá lang- ranglátf.sti og ósanngjarnasti. það er því alls engin furða, þótt menn kvarti sáran undan þessum gjöldum, og vildu fegmr fá dregið úr þeim, ef þess væri kostur. Hin síðari ár hafa umræðurnar að- allega lotið að því atriði fátækramóls- ins, hvernig bezt væri að ákveða sveit- festi þurfalinga og um fátækraflutning- ana. Sumarið sem leið voru fyrir þing- inu 2 frumvörp þar að lútandi, en hvor- ugt náði fram að ganga. Sumirhalda því fram, að maðurinn skuli eiga þar framfærslu, er hann dvelur, þá er hann fyrst þarf hennar með. Aðrir vilja, að fæðingarhreppurinn anmst þurfalinginn, og enn aðrir, að maður- inn eigi þar sveit, er hann hefir dval- ið lengst á bezta skeiði æfinnar. Enn er eigi séð til fulls, hvert af þessu verður ofan á í framkvæmdinni, því svo virðist, Bem hver af þessum stefn- um hafi töluvert fylgi. En ekkiþætti mér ólíklegt, að dvalarsveitin verði ofan á með tímanum, enda hefir það fyrirkomulag ýmsa mikilsverða kosti, eins og bent hefir verið á áður, bæði af síra þorkeli Bjarnasyni og fleirum. f>ótt samin yrðu lög um það, að hver maður eigi þar framfæri, sem bann hefir seinast átt lögheimili, er hann verður sveitarþurfi, þá mundi það ekki hafa stórvægilega breytingu í för með sér, að því er sveitarþyngsli snertirí heild sinni. f>ví skal ekki neit- að, að nokkuð kynni að vinnast við breytinguna, hvað sveitarþarfirnar á- hrærir. Og víst er um það, að kostn- aðurinn við fátækraflutningana mundi færast niður að mun, ef sveitfestinni yrði breytt í þetta horf. En aðalat- riðið f frumvarpi því, er síra þorkell Bjarnason er höfundur og flutnings- maður að, er mannúðin, og að afstýra miður góðri meðferð á þurfamönnum. þessi hugsun frumvarpsins er mjög virðingarverð og mikilsverð, og hlýtur hver rnaður að veita henni fylgi sitt. En um leið og þessu er haldið fram, væri nauðsynlegt að finna ráð til þess að mínka sveitarþyngslin, og gera þau saungjarnari en þau eru. En vel má vera, að þau ráð séu vandfundin og erfið til framkvæmda. Með breytingu þeirri á sveitfestinni, sem minst hefir verið á, má telja víst, að meiri sanngirni fáist en nú er 1 út- gjöldum til þurfalinga. En þótt eitt- hvað breyttist til batnaðar í því efni — og það þarf ekki aðefa, —þágæti það samt ekki breytt að miklum mun því ástandi, sem er. Til þess að geta betur áttað sig á því, hvað tiltækilegast muni að gera, til að draga úr kostnaði við framfærslu þurfamanna og gera hann jafnari og sanngjarnari, þarf að athuga, hverjar eru orsakir sveitarþyngslanna, og hvers konar menn það eru, sem gerast þurfa- lingar. í ritgerð um fdtœkramálefni í And- vara (22. árg., 1897) telur síra þorkell Bjarnason orsakirnar til sveitarþyngsl- anna vera þær, er nú skal greina: 1. Fátækt landsmanna og atvinnuleysi, auknar þarfir og óþörf eyðsla. 2. Áhugaleysi og getuleysi ungra manna að efnast og safna. þar með tilheyrir prjál og eyðsla áður óþekt, öreigagiftingar, ómenska og margt fleira þessu líkt. 3. Vond sveitarstjórn og ódugleg; en af því leiðir, að sveitarsjóðirnir tapa stundum fó, og menn gerast þurfa- lingar að óþörfu. Amtmaður Páll Briem skiftir öllum þurfamönnum í 3 flokka í ritgerð sinni nNokkur landsmáU o. s. frv. í And- vara (15. árg., 1889). Hann segir: »í fyrsta flokki ættu að vera börn, sjúklingar og þeir, sem fyrir slys og önnur ófyrirsjáanleg atvik verða þurf- andi, t. a. m. ekkjur, sem missa menn sína frá ungum börnum o. s. frv. þess- ir þurfalingar eru guðsþakkamenn, og það er athugavert, hvort sveitarstyrk- urinn ætti að haf v. réttarmissi í för með sér fyrir nokkurn af þessum mönnum«. »í öðrum flokki viljum vér telja þá, sem fara á sveitina án þiss að ófyrir- sjáanleg atvik séu orsök til þess. þe8sir menn hafa sýnt það, að þeir kunna eigi að fara með efni sín eða persónulegan vinnukraft. þeir kunna eigi að ráða sér sjálfum, og því á fyrsta afleiðingin að vera sú, að þeir missi rétt til að ráða yfir öðrum ... þar sern þeir enufremur eigi hafa kunn- að að fara með efni sín og persónu- legan vinnukraft, þá eiga þeir eigi lengur að hafa full ráð yfir þessu. Sveitin, sem veitir þeim styrk til að sjá fyrir sér og sínum, á að hafa hönd í bagga með þeim, og sveitarstjórnirn- ar eiga að hafa rétt til að setja þeim fjórróðamenn, sem hjálpi þeim og styðji þá til að hagtæra efnum sínum og verja vinnukrafti sínum vel«. »í hinum þriðja og síðasta flokki má telja þrjózkufulla letingja, drykkju- rúta, landshornamenn og þess konar fólk. |>essir menn eru alveg eins mik- il átumein fyrir mannfélagið og marg- ir afbrotamenn, og það á að tyfta þá til að fullnægja sjálfshjálparskyldunni með þvingunarvinnu í húsum, þar sem þeir eru undir aga, og þar sem þeir eru betraðir«. f>ví næst minnist höf. á að stofna þvingunarvinnuhús í Keykjavík, þar sem þessir menn væru látnir höggva grjót til húsabygginga eða rækta mýr- arnar og holtin í kring um Reykjavík. jþað er víst enginn efi á því, að slík stofnun myndi gera stórmikið gagn, og hafa áhrif á hugsunarhátt alþýðu; en ein stofnun nægir alls ekki, að minni hyggju; þær þyrftu að vera fleiri, og um land alt. í næsta blaði verður minst nónara á þessi þurfamannavinnuhæli, og hver áhrif þau mundu hafa á hugsunarhátt alþýðu og framfærslu þurfalinga í heild sinni. S. S. Bauatilræði við prinzinn af Wales. f>að bar til 4. þ. m. í Briissel, höf uðborginni í Belgíu, að skotið var þá á prinzinn af Wales, konungsefni Breta. Hann var þar á ferð sunnan af Frakklandi, frá Miðjarðarhafi, og þau hjóu bæði, Alexandra prinzessa og hanD, áleiðis til Kaupmannahafnar á fund Kristjáns konungs vegna afmæl- Í8 hans 8. þ. m. Járnbrautarlestin, sem þau óku með, var að leggja á stað. pá stökk unglingspiltur upp á vagnskörina með marghleypu í hendi og hleypti af inn um vagngluggann; miðaði á prinzinn, en hitti ekki. Skotið fór út um hina hliðina á vagn- inum. Oðru skoti fekk hann hleypt af áður hann yrði höndlaður, en það fór á sömu leið. Sipido heitir hann, þessi piltur, og er 16 vetra gamall, iðnsveinn, tin- smiður, all-lítilsígldur og tældur til verksins eða hræddur af sér verri lagsmönnum sínum eldri. Játaði þó áform sitt að verða prinzinum að bana, »til hefnda fyrir aðfarir Breta við Búa«, en æsingur mikill í blöðum í Belgíu áður, með því að Belgar eru Búum mjög hliðhollir. f>au hjón héldu áfram ferð sinni, svo sem ekkert hefði í skorist. En fagnaðarkveðjur dundu yfir prinzinn í öllum áttum víðsvegar um heim. Hann er og maður mjög vel þokkað- ur, ljúfmenni mikið og talinn all- frjálslyndur. Fimm sinnum hefir móðir hans, Viktoría drotning, orðið fyrir líku til- ræði sína stjórnartíð, en aldrei sakað neitt. Strandgufub- »Hólar«, kapt. Jacobsen, kom loks annan í páskum, 2 dögum eftir að hann átti að leggja á stað héðan í fyrstu strand- ferðina. Töfinni olli kyrrsetning báts- ins í Leith fyrir 4 óra gamla yfirsjón í landhelgi við England, ásigling á dróttarbát í Blyth; en þá áttu Norð- menn »Hóla« og skipstjóri annar. Bát- urinn átti kost á að losna þegar gegn ábyrgð. En henni vildi Gufuskipafó- lagið sameinaða skjóta sér undan og koma henni á fyrri eiganda bátsins, og varð úr því svona löng rekistefna, er lauk svo, að félagið tók á sig ábyrgð- ina, sem það virðist hefði átt að gera undir eins, að geymdu endurgjaldstil- kalli á hendur fyrri eigandanum. Á- byrgðin nam að sögn 1300 pd. sterl. Vegna ofviðris tafðist skipið einnig nokkuð hér undir Meðallandi, 18 stund- ir. Með skipinu kom Ólafur kaupm. Árnason á Stokkseyri með frú sinni og verzlm. Grímur Laxdal frá Vopna- firði. Báturinn lagði á stað í morgun austur með nokkuð af farþegum. Strandguíub »Skálholt« var um það leyti að leggja á stað vestur, er fyrst sást.til Hóla, en beið þeirra þá og fór ekki fyrr en kl. 3, annan í páskum. Með Skálholti fór töluvert af farþegum. Læknaskipan- Landshöfðingi hefir enn fremur veitt 9. þ. m. þessi 6 læknishéruð, mönn- um, sem þar hafa þjónað áður sem aukalæknar: Skipaskaga Ólafi Fm- sen; Ólafsvíkur Halldóri Steinsen; |>ingeyrar Magnúsi Ásgeirssyni; Höfðahverfis Sigurði Hjörleifssyni; Grímsness Skúla Árnasyni; Beiu- fjarðar Ólafi Thorlacius. |>að er (Berufj.) með 1300 kr. launum; hin öll með 1500 kr. Tveir þessara lækna eru háskólakandídatar: Magnús Ás- geirsson og Sig. Hjörleifsson; hinir læknaskóla. f>au eru eftirlaunalaus, öll læknis- embættin, sem landshöfðingi veitir. V etrarlok. Haldi viðlíka hagstæð tfð áfram hér það sem eftir er síðasta ársins á öld- inni, eins cg það sem af er, þá má segja að hún skilji mjög vel við oss að því leyti til. því vægari vetur en sá, er nú kveður oss, í dag, muna ekki elztu menn; það er líklega blíð- asti veturinn á allri öldinni. Svo segir, Páll Melsteð, maður nær níræð- ur og manna gagnfróðastur á það, er hún hefir látið fram við oss koma. Hefir hvorttveggja farið saman, snjó- leysi og frostvægð. Mjög skiftir í tvö horn nú sem oft- ar um vetrarfar hér og annarsstaðar f Norðurálfu norðanverðri og austan. f>ar hefir verið einhver mesti snjóa- vetur í manna minnum, ög frost einn- ig í meira lagi. Hefir hlotist af því mikill farartálmi og almennur á járn- brautum, og siglingateppa töluverð af ísalögum. Til dæmis um mikil snjókyngi er það í frásögur fært frá Kristjaníu, að daginn eftir jafndægur, nú í f. mán., var mannhæðar snjór á borgarstræt- um þar sumstaðar. En 1000 verk- manna með nær 300 hestum og vögn-

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.