Ísafold - 28.04.1900, Síða 3

Ísafold - 28.04.1900, Síða 3
manna og silfurvina. Dewey (djúi) aðmíráll, sigurvegarinn frá Manilla, hættur við að gefa kost á sér. Sýninguna miklu í París vígði Lou- bet forseti laugardaginn fyrir páska, eins og til stóð. En ekki var hún nærri fulltilbúin samt, og þóttust menn gabbaðir, er þangað vitjuðu um pásk- ana. Skarlatssóttin. Menn mega ekki að svo komnu »hugga sig við, að sýki þessi muni ekki breiöast frekar út«. Menn mega án nokkurrar efablendni reiöa sig á það, 1) að skarlatssótt hefir verið í Lóna- kotsbörnunum, og 2) að Guðjón, eldri sonur Hallgríms i Lónakoti, tók sóttina suður í Höfn- nm, eftir að hann hafði dvalið þar 2 eða 3 daga; lá hann þar (að Kalmans- tjörn) vikutíma í sóttinni, en þá flutti faðir hans hann heim, mánudaginn eftir pálma, og nú veiktust hin börnin von bráðar. Þar sem maður hefir legið í skarlats- sótt, þar getur sóttkveikjan lifað vikum saman og jafnvel mánuðum saman í húsum og fatnaði — einkum þar sem engin sótthreinsun hefir farið fram. Þess vegna getur svo farið, að skar- latssóttin komi aftur upp í Höfnunum. Að vísu veit eg, að héraðslæknirinn í Keflavík muni hafa nákvæmar gætur á Hafnahreppi fram eftir sumrinu; bans var ekki vitjað að Kalmanstjörn til Guðjóns litla og þess vegna alls ekki honum að kenna, þó að drengurinn slyppi hingað inn eftir. En þetta. getur aftur borið við, að einhver taki sóttina þar syðra og komi hingað inn eftir án þess, að læknir hafi séð hann. Þess vegna ræð eg almenningi í Keykjavíkurhéraði, að hafa í minni ráð mín og bendingar, sem út komu í 22. bl. Isafoldar. Guðm. Björnsson hóraðslæknir. Það er vafalaust iiyggilegra, að skjóta ekki skolleyrum við þessari á- minning hóraðslæknis vors. Veikin vof- ir hér yfir jafnt fyrir því, hvað sem líður uppruna hennar, sem sumir eru nú farnir að gizka á að gæti verið að- fengin föt (í Lóuakoti) eða þá að sóttin hafi borist þangað í brét'i frá Vestur- heimi, er konan þar á að hafa fengið nýlega frá systur sinni, sem bauð til sín drengnum 7 vetra, sem nú er dámn; hvorugt segja læknar óh andi. Það er ilt, hve Lónakotsbóndinn liefir verið missögull; var þó margyfirheyrður af héraðslækni G. B. Því vitaskuld getur enginn maðar verið tvíátta um Það, að trúa betur héraðslækni Þ. Th. en honum, þar sem þeim ber á milli. Mergurinn málsins er það um Hafn- irnar (Kalmanstjörn), að þótt svo væri, að sóttin hefði ekki kviknað þar í Lónakotspiltinum, heldur verið komin í hann áður, þá tiefir hann legið þar í henni vikutíma, —í skarlatssótt, er þar getur svo leynst áfram. Vídalíns-útvegurinn, botn vörpu-útgerðin mikla, sem hæst var á risið hér í fyrra og þingliðið hans vildi fórna landhelgi vorri, er nú búin að vera; enda þóttust margir fljótt sjá á henni ýms feigðarmörk: skipin að mölva hvert annað inni á höfnum, skips- hafnirnar mjög ruslkendar, að meðtöld- um yfirinönnum á skipunum, stórfé eytt í heimskubauk við »dauða« skip- skrokka (í Meðallandi og víðar) og þar frarn eftir götum. Félagið á að hafa skaðast um 200—300 þús. kr. þetta eina sumar. Var verið að selja skipin hvert af öðru nú fyrir nokkurum vik- um. Bæarbruni- Snemma í f. mán. brann allur bær- inn í Neskoti í Fljótum með áfastri skemmu og hér um bil öllu því, sem inni var. Bóndinn, Vorm Finnboga- son, skaðskemdist á höndum, fótum og andliti, svo að tvísýnt þótti um líf hans, en er nú samt á batavegi — er skrifað úr Fljótum 6. þ. m. »þetta var um nótt og fólkið vaknaði ekki fyr en frambærinn allur stóð í ljósum loga, en bóndinn stökk í eldinn og hafði sig út um bæardyrnar; gat svö hjálpað hinu fólkinu út um glugga á eftir«. Póstskipið Laura kapt. Christiansen, kom loks í fyrri nótt. Tafðist 4 daga í Færeyum, í bezta veðri þó; hafði svo mikinn flutn- ing þangað. Farþegar: kaupmennirnir D. Thomsen konsúll, Björn Kristjánss., Br. H. Bjarnas., W. O. Breiðfjörð, Frið- rik Jónsson, þorkell þorkelsson, Helgi Zoega; þórarinn B. þorláksson málari; verzlm. Jón Bjarnason, N. B. Nielsen frá Vestm. og þorsteinn Pálsson; þórð- ur Finsen, frá Ameríku; Englendingur einn, Black að nafni — að grenslast eftir um kolanámur hér og járnstein. það hafði gerst í Khöfn rétt áður en Laura átti að leggja á stað hing- að, að stýrimennirnir á henni báðir og þriðji vélmeistari voru reknir úr vistinni fyrir smávegis yfirsjón, en aðrir ráðnir í þeirra stað. Ný lög. Ein hafa lög verið vatni au3in í þessari ferð, þeirra 11 eða 12, er stjórnin hefir í fóstri frá síðasta þingi: 32. Lög um greiðslu dagsverks, off- urs, lambsfóðurs, lausamannsgjalds til prests og Ijóstolls og lausamannsgjalds til kirkju, staðfest 3. þ. m. Synjað staðfestingar hefir konungur sama dag lögum um verkkaup. Dáinn erlendis fyrir nokkrum vikum, á Borgundar- hólmi, stúdent Pétur Guðjohnsen frá Húsavík, lögnemi, úr lungnatæringu, nær þrítugur að aldri. Prestskosning á Akureyri fór fram 6. þ. m., og hlaut síra Geir Sœmundsson á Hjalta- stað 104 atkv., af 161 á fundi. Síra Kristinn Daníelsson á Söndum 39, og síra Stefán á Auðkúlu 18; á kjörskrá 306. Fjármarkaði vilja Árnesingar hafa þar innan sýslu í haust, á 8 stöðum, en reka ekki féð hingað tíl sölu, eins og í fyrra. það var samþykt þar á nýaf- stöðnum sýslufundi, og sömuleiðis að halda áfrarn samlagsverzlun fyrir sýsl- una, með forstöðu Eggerts Benedikts- soDar eins og í fyrra. Inflúenza gekk um allan Eyafjörð, er póstur lagði á stað þaðan fyrir 2—3 vikum, og komin vestur yfir Öxnadalsheiði. Kennarafundur fyrir Norðurlönd á að verða í sum- ar í Kristjaníu, hinn áttundi í röðinni, dagana 6.—9. ágústm. Gufuskipafó- Iagið sameinaða hefir fyrir tilmæli skóla- stjóra Jóns þórarinssonar veitt kennur- um og kenslukonum héðan þá ívilnun í fargjaldi, að það er 118 kr. alla leið fram og aftur í 1. farrými, en 76 kr. i öðru; komið við í Khöfn báðar leiðir. Stranduppboð var haldið í þykkvabænum þess- ari viku á vörum úr kaupfarinu »Kamp« frá Mandal, er var á leið frá Leith til Stokkseyrar með alls konar vörur til verzlunarinnar »Edinborg« þar og rak upp í þykkvabænum fyrir skömmu. (Fyrsta fréttin sagði það hafa verið til Ólafs kaupmanns Árnasonar og nefndi það Solid). Héðan sótti upp- boðið Geir Zoega kaupm., og segir töluvert hafa farið framan af uppboð- inu fyrir sama sem ekkert verð, sitt númerið í hvern hrepp sýslunnar — einn bauð fyrir hreppinn og aðrir þögðu —, en af utan-sýslumönnum heimtaðir ábyrgðarmeun, ef þeira væri slegið, þar á meðal t. d. faktor Lefolii- verzlunar á Eyrarbakka (hr. P. Nielsen), báðum Stokkseyrarkaupmönnum, hon- um sjálfum (G. Z.) o. fl. Eins og áður er frá skýrt, druknuðu hásetarnir af skipi þessu, þrír að tölu en skipstjóri og stýrimaður björguðust, annar meiddur á höfði, en hinn illa lær- brotinn; það er skipstjórinn, og liggur í þykkvabænum þungt haldinn; bein- brotið ilt viðfangs; maðurinn orðið fyrir harðhnjaski eftir að hann lær- brotnaði. Skagafirði (Fljótum) 6. april: Tíðarfar fremur gott. Þótt talsvert hafi snjóað í kuldaskotum, er komið hafa, þá hefir verið gott á milli og jökull hér ekki mikill á jörð, eftir þvi sem vér eigum að venjast. Yið lok f. m. komst frostið upp i 15° R., og er það langmest, er verið hefir á vetrinum. Nú þessa daga einnig and- kalt mjög, þótt logn sé og sólskin; það er eins og kuldastraumarnir njóti sin betur en verið hefir, liklega hæði í lofti og lög, og er eg því hræddur um, að eitthvað lakara sé í aðsigi, þótt is sé óvanalega langtund- an, eftir því sem fréttir af skipaferðum segja. Litið eitt fengist af hákarli á báta, en öðrum kosti ekki um nokkra björg að tala hér. Óviðfeldin brigsl. Svar frá hr. Sig. Thoroddsen gegn þeirri grein (22. thl.), sem átti að koma í þetta bl., biður næsta blaðs vegna þrengsla. fs selur ísfélag Ólafsvíkur á komandi vori og sumri þilskipum eft- ir þörfum. Heiðraðir útgjörðarmenn og skipstjórar skrifi þetta bak við eyr- að. Leiðarvísir ui lífsbyrgðar fæst ókeypis hjá rit-stjóranum og hjá dr. med J. Jónassen, sem einnig gefur þeim sem vilja tryggja lif sitt, allar upplýsingar Nýprentuð: Reikningsbók eftir E i r í k Briem. Annar partur (þriðja prentun). Rvík 1900. — Kostar innb. éo a. Fæst hjá bóksölum hér í bænum og síðar i vor út um land; en aðal- umboðssölu hefir Sigfús Ey- mundsson. Þetta eru nokkrar (3) arkir framan af II. parti, er áður var; hitt bíður seinni tíma. ö ppboðsauglýsing. Eftir kröfu landsbankans og að und- angengnu fjárnámi verður hálf jörðin Tjarnarkot í Njarðvíkurhreppi ásamt f af íbúðarhúsi því, er á jörðinm stend- ur, samkv. lögum 16. sept. 1885, 15. og 16. gr., boðin upp við 3 opinber uppboð, sem haldin verða mánudag- ana 23. þ. m. og 7 og 28. maí þ. á., 2 hin fyrstu á skrifstofu sýslunnar kl. 12£ e. h., en hið síðasta kl. 5 e. h. á eign þeirri, er selja á. Söluskilmálar og önnur skjöl snert- andi hina veðsettu eign verða til sýn- is hér á skrifstofunni 2 dögum fyrir hið fyrsta uppboð. Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu 10. apríl 1900. Páll Einarsson. Uppboðsauglýsing. Eftir kröfu landsbankans og að und- angengnu fjárnámi verður hálf jörðin Kolbeinsstaðir í Miðnesshreppi sam- kvæmt lögum 16. sept. 1885, 15. og 16. gr., boðin upp við 3 opinber upp- boð, sem haldin verða kl. lf e. h. mánudagana 23. þ. m. og 7. maíþ. á., og kl. 4 e. h. þriðjudaginn 29. s. m., 2 hin fyrstu á skrifstofu Sýslunnar f Hafnarfirði, en hið síðasta á jörð þeirri, er selja á til lúkningar 234 kr. veð- skuld með vöxtum og kostnaði. Söluskilmálar og önnur skjöl snert- andi hina veðsettu eign, verða til sýn- is hér á skrifstofunni 2 dögum fyrir hið 1. uppboð. Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu 10. apríl 1900. Páll Einarsson. Myndir og fermingar— kort mjög falleg og fáséð komu nú með Laura til S v e i n s E i r í k s- s o n a r, Garðhúsum. Hjer með auglýsist, að Sigurðar Pjet- ursson húsmaður, Laugavegi nr. 37, er fyrst um sinn settur lögregluþjónn í Reykjavíkurkaupstað. Bæjarfógetinn í Reykjavík 27. apríl 1900. Halldór Daníelsson. Irii í Ub hefir íengið nú með »Lauru« talsverð- ar birgðir af niðursoðnum matvælum, svo sem: Kjöti, Siípum, Fiski og Avöxtum, Syltetöj og Pickles. Alls konar kaffibrauð og tekex: mjög ódýrt og gott kex. Leirvörur mikið úrval og fallegt. Stuudaklukkur Loftþyngdarmælar- Yefnaðarvörur, svo sem Kjóla- og Svuntudúkar o. fl., o. fl. Með »Ceres« er von á miklu úrvali af fallegum og ódýrum sumar- og vetrarsjölum Og alls konar vefnað- arvörum. Alt selt mjög ódýrt gegn peninga- borgun. Allir þeir er skulda W. ChristeD- sens-verzlun á Eyrárbakka og frá Hafnarfirði, eru beðnir að greiða skuld- ir sínar sem fyrst til W- Christen- sens-verzlunar i Reykjavík.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.