Ísafold - 19.05.1900, Síða 3
119
dró úr frostunum. Sí'ðan sumarið byrj-
aði hefir tíðin verið mjög stirð, þar til nú
fyrir 2—3 dögum er komin stilt veðurátta,
en hlýindalitil. Hinn 1. þ. m. var hér um
slóðir blindbyiur, með ofsa-austanstormi og
snjógangi. Stöku kindur urðu úti í byl
þessum, er drápust.
Þrátt fyrir það þótt jörð hafi oftar ver-
ið snjóalitil og auðbser, hefir þó jafnaðar-
lega verið gefið meíra og minna á slétt-
lendinu. Til fjalla hefir það sjálfsagt ver-
ið minna, utan á einstöku nyrztu bæum.
Lítið hefir hér aflasl þessa vertíð, Einn
bátur mun hafa 80 til 100; en hinir íi, sem
til róðra ganga, hafa lítið aflað. Alstaðar
hér í sýslu lágir eða að minsta kosti rýr-
ir hlutir.
Eins og ísafold skýrði frá, strandaði á
Efri-Steinsmýrarfjöru þýzkur botnverping-
ur 29. marz. Menn allir komust heilu og
höldnu til bæa, 13 að tölu. Skipið hljóp
hátt upp i fjöru, að sjá ógallað. Sami
kapteinn hleypti skipi sínu inn á eyrar 29.
marz 1898, hér um bil 200 föðmum vestar,
fyrir Syðri-Steinsmýrarfjöru. Skipið sökk
þar nál. 100 til 200 faðma frá landi, svo
að dálítið tekur upp úr sjónum af sigiu-
trénu. A skrokkinn hefir aldrei neitt sést
síðan það rak sig þar á. Eins og kunn-
ngt er orðið, björguðust uokkurir þá á
báti til lands, en hinum bjargaði frönsk
fiskiskúta, sem þar var nálægt.
Austur-Skaftafellssýslu, 8. maí.
Veðrátta hefir vérið fremur köld síðan
29. f. m. Þá um kvöldið gjörði austanbyl,
er við hélst um nóttina og 2 daga á eftir.
3. mai var mjög hvast land-norðanveður,
og fauk þá mikið af eldivið og áhurði af
túnum.
Skepnuhöld eru yfirleitt góð, og hey-
birgðir góðar. Nokkuð hefir aflast af fiski
og hákarli í Suðursveit, Mýrum, Nesjum og
Lóni.
Þykkvabæaruppboðið. í greinar-
korni í 24. tbl. Isafoldar um stranduppboð
í Þykkvahæ er farið þann veg orðum (eft-
ir G. Zoega kaupmanní), að ætla mætti að
eg hefði amast við uppboðsgestum utan
sýslu til hagsmuna fyrir Rangæinga með því
að heimta af þeim ábyrgðarmenn, »ef þeim
væri slegið«.
Til þess að taka fyrir allan misskilning
um þetta mál, skal hér tekið fram, að eg
hefi ætið undantekningarlaust heimtað inn-
anhéraðs-ábyrgðarmenn fyrir utan-sýslubúa
á uppboðum, að eg man ekki til að neinn
maður þess vegna hafi orðið af boði,
hvorki á þessu né öðru uppboði, og að
utan-syslubúum var á Þykkvabæaruppboð-
inu slegið alveg jafnt og Rangæingum —
keyptu enda að tiltölu langmest.
Hafi nokkurir haft verulegt happ af
strandinu, þá voru það Arnesingar.
Árhæ, 15. maí 1900. Magnús Torfason.
Liandfarsóttirnar.
Nú er inflúenzan komin hér í
bæinn nokkuð alment, og er
sem óðast að ágerast. Hefir komið
með strandbátunum: hægt að rekja
hana þangað, þótt sumir, sem fluttu
hana með ser, veiktust ekki fyr en
nokkuru eftir að þeir stigu af skips-
fjöl. — Til Hafuarfjarðar flutti hana
maður, sem kom með Skálholti, frísk-
ur að sjá þá, en veiktist skömmu
eftir.
Ekki hefir hún komist lengra enn
að austan sunnanlands en í Oræfin,
og var nú þar í rénun í öndverðum
þ. mán. Dáið höfðu þar úr henni 2
bændur á bezta aldri, og ein hjón
roskin, nær sjötugu.
Skarlatssóttinni ber ekki frekar á,
og eru líkur til, að tekist hafi að stöðva
hana með rækilegri einangrun.
Með Ceres,
kapt. Eyder, sem lagði á stað í
gærkveldi ti Austfjarða og útlanda,
fóru rúmir 100 vesturfarar, þar af 40
börn, mest af Mýrunum og úr suður-
hreppum Gullbringusýslu; og austur í
kaupavinnu nál. 50 karlmenn.
Fundin steinkoianáma
hjá
Stafholti í Borgarfirði.
Englendingur sá, er hingað kom í
vor að leita að málmum, Mr. Black,
og með honum Norðmaður, er Kloster
heitir, kváðu sig hafa fundið stein-
kolanámu allmikla og góða hjá Staf-
holti í Borgarfirði, þar í sjálfum tún-
fætinum; þar er hamrastallur, sem
kallað er Stafholtskastali, rétt við
Norðutá. það var haldinn surtar-
brandur áður, þetta, sem þeir félagar
hafa skírt steinkol, og það dýra teg-
und steinkola: gljákol (anthracitkol).
|>að mun hafa vilt menn, hve ólík
þau eru venjulegum steinkolum, enda
loga ekki nema látin séu á megna
glóð; en eru þá og afar-hitamikil, og
þykja því fyrirtak undir gufukatla. Vel
má vera, að þarna só mikið af þeim;
og hægt er um flutning á þeim, með
því að vel er áin skipgeng (bátum)
alveg upp að kastalanum.
Mr. Black sigldi í gær til Eng-
lands með Ceres með þessi tíðindi, og
ætlar að koma aftur með menn og á-
höld til ítarlegri rannsóknar um fyrir-
ferð kolalagsins m. m.
Rauðann í Rauðanesi hafði Mr.
Black og skoðað, en sagt hið sama
og aðrir um hann, að ekki ‘ svaraði
kostnaði að vinna járn úr honum. —
Mikið væri það ánægjulegt, ef úr
þessu yrði verulegt ljós, enda eins
líklegt, að þetta sé þá engan veginn
eina kolanáman hér á landi, auk þeirr-
ar á Hreðavatni, er áður var kunn-
ugt um, en ekki þótti eigandi við
vegna of mikils flutningskostnaðar
meðal annars.
En hitt er oss eigi láandi, ísleud-
ingum, þótt eigi séum vér mjög auð-
trúa á kynja-gróðalindir hór; vér höfum
svo oft orðið fyrir miklum vonbrigð-
um í þeim efnum. Ógnar-þytur fyrst
í stað, er á slíku bólar, og sætt því
færi til að þyrla upp ryki í augu
manna erlendis og koma með því á
legg voldugu hlutafélagi með hálaun-
aðri stjórn og starfsmönnum, en alt
orðið að reyk eða froðu að liðnum
fáum missirum eða jafnvel mánuðum,
sbr. brennisteinsnámið hér, botnvörpu-
félagið vídalínska, o. s. frv.
Utan úr heimi.
Norðmenn bera sig illa út af því,
hve vetrarvertíð brást þar hrapallega
núna í Lófót. Varð aflinn á endanum
um S1/^ milj. fiska, og segja þeir slíkt
eins dæmi meira en heila öld. Fyrir
fáum árum liafi aflast þar einu sinni
meira á viku. í krónum urðu hlut-
irnir 'S1/^ milj., vegna geysiverðs á
fiskinum, í stað Vj.2—8 milj. í góðum
árum og GT/4 milj. í meðalári.
Að meðtöldum syðri veiðistöðunum
varð allur vertíðarfiskurinn 231/, milj.
fiska, í stað 50 milj. í meðalári.
Dýr voru orðin matvæli í Lady-
smíth síðustu vikuna, sem bærinn var
í herkví. T. d. "komust 14 pd. af
haframjöli í 3 pd. sterl. (54 kr.) á
uppboði þar 21. febr.j en kartöflur á
rúmar 8 kr. pd., kaffipundið á 7 kr.
50 a., egg á 22 kr. tylftin. Fyrir
50 vindla voru gefin 9J pd. sterl. (167
kr.).
2. ágúst.
|>au félög í bænum, sem ætla að
taka þátt í undirbúning þjóðhátíðar-
innar 2. ágiist í surnar, eru beðnir að
kjósa í því skyni tvo menn úr hverju
félagi og tilkynna undirskrifuðum for-
manni Stúdentafélagsins, hverjir kosn-
ir séu, fyrir maímánaðarlok-
Vilhjálmur Jónsson.
Eitt herbergi fæst leigt, fyrir eín-
hleypan kvenmann, til september-
mánaðarloka. Ritstj. vísar á.
Umlicritaðuf tckur að sér, eftir fleiri
úra æfingu við húsabyggingar i Norvegi,
alls konar múrverk, sementsteypingar, grjót-
hleðslur, götulagningar etc.
Lækjargötu 10, Tómas Jónsson
Hrognkelsanet hafa fundist vest-
ur af Garðskaga; réttur eigandi getur
vitjað þeirra til kaupm. Jóns jpórðar-
sonar í Reykjavík, en borga verður
hann þessa auglýsingu.
Sumarsjöl, Vetrarsjöl og
Herðasjöl
mikið úrval í verzlun G. Zoéga.
Sumarið 1898 var nýlegur yfirfrakki
blár skilinn eftir í húsi Jóhanns Jó-
hannessonar skósmiðs á Sauðárkróki,
og fanst í brjóstvasanum á frakka
þessum umslag með þessari áritun:
Herra söðlasmiður Bergur þorleifsson,
Reykjavík. Réttur eigandi getur feng-
ið andvirði frakka þessa að frádregn-
um kostnaði, ef hann gefur sig fram
innan árs og sannar rétt sinn fyrir
undirrituðum.
Skrifst. Skagafj.sýslu 8. maí 1900.
Eggert Briem.
Fataefni,
margar sortir, góð og ódýr í verzl.
G. Zoega.
Mar tha Stephensen kennir að lesa,
tala og skrifa dönsku.
Þingholtsstræti 21.
Suiidmagar
vel verkaðir verða keyptir fyris pen-
inga við verzl. »EDINBORG« í
Keflavik, Stokkseyri og Reykjavík
Ásgeir Sigurðsson.
Saltfiskur
vel verkaður, stór og smár, og ýsa, verð-
ur keyptur i sumar fyrir p e n i n g a
við verzl. »EDINBORG« í Keflavík,
Stokkseyri og Reykjavík.
Cppboð.
Mánudaginn 25. júní næstk. kl. 6
síðdegis verður boðin upp til sölu jörð-
in Breið á Skipaskaga með öllu til-
heyrandi. Jörðunni fylgir tún, um 2
dagsláttur að stærð, vergögn mikil,
f jörubeit, beitureki; hún er varin öfi.
ugum sjávargörðum. Uppboðið fer
fram á Breið.
Skrifst. Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
17. maí 1900.
Sigurður Þórðarson.
Uppboð.
Mánudaginn 25. júní næstk. fer frarn
þriðja og síðasta nppboð á fasteignum
þrotabús Thor Jensens á Skipaskaga
(sbr. auglýsingu í 63.—65 tölubl. ísa-
foldar f. á.). Uppboðið verður haldið
þar á staðnum eg byrjar á hádegi.
Skrifst. Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
17. maí 1900.
Sigurður Þórðarson.
Uppboð.
4 Lækjargötu 4 — fæst frá 24. þ.
m. keyptur kostur. Sömuleiðis er
þar kaffisala, sem liggur vel við, eink-
anlega fyrir ferðafólk.
María Ásgeirssen.
A. : Hvar hefirðu fengið svoua góða
handsápu?
B. : í verzluninni í þlNGHOLTS-
STRÆTI 1.
A.: Nei, segirðu satt? Einmitt þar,
sem eg keypti líkþornameðaliö
góða, sem eftir eina viku er búið
að lækDa gersamlega öll hornin á
löppunum á mér.
A.: Eigum við nú ekki báðir að koma
upp eftir þangað, og vita hvort við
getum ekki fengið þar fleira nýtt?
Kartöfiur og Laukur í verzl.
G . Z o eg a.
A 3 opinberum uppboðum, sem
haldin verða laugardagana 26. þ. m.
og 9. og 23. júní næstk. á hádegi,
verður boðin upp til sölu bærinn
Mýrarholt á Skipaskaga, sem gert hef-
ur verið fjárnám ífyrirskuld við verzl-
un Böðvars |>orvaldssonar, að upphæð
242 kr. 70 a. auk iostnaðar. 1. og
2. uppboð fer fram hér á skrifstof-
unni, en hið síðasta í Mýrarholti. Skil-
málar verða birtir á uppboðunum.
Skrifst. Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
17. maí 1900. '
Sigurður Hórðarson.
Uppboösauglýsing.
Miðvikudaginn 24. þ. m. kl. 4e. hád.
verður opinbert uppboð haldið við
hafnarbryggjuna hér í bænum og þar
seldar botnvörpur, vírstrengir o. fl. úr
botnvörpuskipunum »Earaday« og
Munið eftir
að bezt er gefið fyrir
sundmaga
»Swallow«.
Söluskilmálar verða birtir á undan
uppboðinu.
BæjarfógeHnn í Rvík 18. maí 1900.
Hallclór Daníelsson.
hjá
Th. Thorsteinsson.
V erziuuarstörf.
Nokkrlr menn geta fengið þjónustu nú
þegar. Ritstj. vísar á.
2 koffort ódýr til sölu. Laufás-
veg 39.
V efnaðarvara
alls konar ódýr og vönduð í verzlun
G. Zoega.
Leiðarvísir ui lífsbyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim,
sem vilja tryggja líf sitt, allar upplýsingar.
Ritstjórar: Björn Jónsson(útg.og ábm.jog
Einar Hjörleifsson.
ísafoldarprentsmiðja.
Reglusamur, aðgætinn og flinkur
verzlunarmaður getur fengið atvinnu
við verzluu í Reykjavík frá 1. júní
næstk.
Eiginhandar umsóknir auðkendar
»Verzlunarstörf 2«, með góðum meðmæl-
um þektra, áreiðanlegra fyrri hús-
bænda sendast ritstjóra þessa blaðs
fyrir 28. þ. m.
f>ær umsóknir, sem ekki verða tekn-
ar til greina, verða endursendar við-
komendum ásamt tilheyrandi fylgi-
skjölum hina sömu leið til baka.
I verzl B. H. Bjarnason
fást allar teg. skotfæra
Púður — Högl — Hvellhettur —
Patrónhylki —Forhlöð og Byssuþurkur.