Ísafold - 26.05.1900, Page 3
127
forötöðumanns skólans, M. i\ Bjarna-
sonar, þeir premierlautinantar L. V.
O. Tvermoes og A. G. Topsöe-Jensen,
fyrirlíðar á strandvarnarskipiuu »Heim-
dal«, skipaðir af hinu íslenzka ráða-
neyti í Kaupmannahöfn, og var Tver-
moes af landshöfðingja jafnframt skip-
aður oddviti nefndarinnar. Bnn til
að dæma um kunnáttu í tungumálum
og farmaunalögum skipaði landshöfð-
ingi þá prestaskólakennara Eirík
Briem og yfirréttarmálfærslumann Odd
Gíslason.
Prófsveinar fengu þessar einkunnir:
Ólafur Sigurðsson frá Flatey 100 st.
Halldór Ágiíst Halldórsson
frá ísafirði................. 91 —
Hæsta einkunn við þetta próf er
112 stig og til að standast prófið þarf
48 stig.
pegar prófinu var lokið (23. þ. m.),
var skólanum sagt upp fyrir þetta
skólaár.
Utan úr heimi.
Mikil frost. f>að þykir mikill
kuldi hér á landi og er óalgengur í
bygð, ef frostið er um eða yfir 15—16
stig' á C. Og örsjaldan fer það fram
úr 20 stigum, og þá að eins lítið eitt.
Bn hvað segir þá landinn, sem
heldur að vér byggjum eitthvert kald-
asta land í heimi, er hann heyrir
þess getið, eem við bar í Noregi í
vetur, og það sunnarlega, nál. 20 míl-
um sunnar en Yestmanneyar?
Frostid komst þar upp í 56 stig á C.
f>að var 9. febr., í Tönset, efstu
bygð á Upplöndum, á að gizka 2—
3000 fet yfir sjávarmál.
það er nógu fróðlegt að heyra það,
að þetta er töluvert meira frost en
þeir Friðþj. Nansen fengu nokkurn
tíma í heimskautsför sinni; það var
mest 522/3 stig. Hann tekur það fram
í bók sinni um leið, að það sé ekki
svo ýkja-mikið á við það sem gerÍ3t í
Síbiríu; þar hafi einu sinni verið mælt
68 stiga frost, í Verkjojansk. Sá bær
er austarlega í Síbiríu, jafn-norðanlega
og Grímsey.
þann sama dag, 9. febr. í vetur,
var í Kristjaníu rúml. 21 stigs frost
kl. 8 um morguninn. f>ó eru þar
dæmi til miklu meiri frosta — mest
29V2 at- C., sem menn vita um fyrir
víst; það var 21. jan. 1841. Og þó er
Kristjanía 53 mílum sunnar en Vest-
manneyar. Daginn þenna sama var
27 stiga frost við Maríudalsvatn, ör-
skamt frá Kristjaníu, um ll/2 mílu,
og ekki hærra yfir sjávarmál en 300
fet. f>á var og 42 stiga frost í Böros,
30 í Kóngsbergi, 27 1 Litla-Hamri við
vatníð Mjörs, 21 í Niðarósi, sem er
alveg jafn-norðarlega og Vestmanney-
ar, en ekki nema 11 norður í Vargs-
ey, annari nyrztu borg í Noregi, 50—
60 mílum norðar en nyrzta tá ís-
lands.
Hér í Beykjavík var 9. febr. þ. á.
6 stiga frost um nóttina (áður), en 4
stig um hádegi!
Annar mestur víkingsvetur hér í álfu
utan íslands hafði verið fyrir 50 árum,
veturinn 1849/50. f>á hafði verið 2
mannhæða snjór á götum í Kristjaníu
einu sinni snemma á þorranum. f>á
var Maríudalsvegur, rétt hjá Kristjaníu,
ófær meira en viku, 0g unnu þó 45
menn að snjóakstri dag eftir dag, auk
snjóplógs. þá voru svo mikil snjóa-
og ísalög í Danmörku, að þingmenn
teptust, einkum við Stórabelti, og varð
að fresta þingsetningu nokkura daga.
þá varð ekki komist fulla viku milli
Helsingjaborgar ogHelsingjaeyrar, þar
sem Eyrarsund er mjóst, fyrir ísum
°g kafaldsbyljum. þá kyngdi niður
8vo miklum snjó einn dag, 29. jan., á
götum í Stokkhólmi, að fólk fenti þar;
meðal annars var maður dreginn þar
dauður úr kollhárri fönn uppréttur,—
segja norsk blöð frá í vetur.
þann vetur, 1850, var einu sinni 24
stiga frost (á C.) í Lundúnum. |>á
var og mannheldur ís á tjörnum suð-
ur í Madríd og Flórens, og er talið
eins dæmi þar að kalla.
Amerískir miljónamœringar. þeirra
er nú mestur John D. Bockefeller;
hans eigur nema töluvert fram yfir
900 milj. kr.
þá er Cornelius Vanderbilt honum
næstur með nál. 450 milj. kr.
þá koma þeir William K. Vander-
bilt, John Jacob Astor og William
Bockefeller með 370 milj. kr. hv6r
(100 milj. dollara).
Menell Sayre nokkur er sagður 11.
í röðinni í auðkýfingahóp þessum.
Hann er ekki hálfþrítugur. Fyrir 4
árum tók hann til að fást við verð-
bréfagróðabrall og átti þá eitthvað
150 þús. kr. Nú eru orðnar úr því
130 milj. kr.
Stefanía konungsdóttir frá Belgíu,
ekkja Budólfs keisarasonar í Austur-
ríki, er lézt fyrir mörgum árum vo-
feiflega, giftist í vetur í annað sinn ó-
tignum manni ungverskum, Lonyay
greifa, er hún hafði fengið ofurást á,
án ráði föður síns og tengdaföður,
þeirra Leópolds konungs og Franz
Jósefs keisara. Fyrir það var hún að
afsala sér áður hátíðlega öllu ríkistil-
kalli fyrir sig og sína niðja, svo og því
að vera ávörpuð með orðunum »yðar
keisaialega tign« eða »yðar konung-
lega tign«. Hitt var þó enn baga-
legra, að hún misti ekkjustyrk þann,
er henni bar eftir fyrri mann sinn, en
það voru nær 700,000 kr. um árið og
ókeypis bústaður í nokkrum keisara-
höllum í Austurríki, með miklu þjón-
ustuliði, vögnum o. fl. Keisarinn,
tengdafaðir hennar, er þó svo góður
við hana, að hann miðlar henni
150,000 kr. ársstyrk. En faðir henn-
ar, Leópold konungur, vildi ekkert
láta af hendi rakna. Maður hennar
er efnalítill, að kallað er: hefir að eins
60,000 kr. í árstekjur. þau hafa því
210,000 kr. að lifa á um árið, og þurfa
auðvitað ekki að komast á vonarvöl
fyrir það. En mikil viðbrigði verða
það fyrir veslings-konuna. — Hún á
dóttur eina barna eftir fyrri mann
sinn, Elizabeth; heitir eftir föðurmóð-
ur sinni, þeirri er myrt var í Sviss
fyrir fám missirum. Hún er nú 17
vetra.
þau fóru á fund páfa í Bóm, hjón-
in nýgiftu, skömmu eftir brúðkaupið.
Hann tók þeim mjög ljúfmannlega og
lagði blessun sína yfir þau.
Stjórnin í Kína hefir tekið upp það
nýmæli, að senda hingað í álfu ásinn
kostnað unga námsmenn, stúdenta,
til háskólanáms. Kvað vera von á
1200 þetta ár og mælt að eítthvað af
þeim ætli sér til Khafnar. þetta taka
þeir sýnilega eftir grönnum sínum,
Japansmönnum. Hefði líklega verið
eins holt að gera það fyr.
Háska-flótti. Fyrirliði einn úr Búa-
her, er Botha heitir og sár varð og
handtekinn af Bretum í einni fyrstu
orustunni í haust, þar sem heitir
Elandslaagte, í Natal, var hafður síð-
an í haldi með öðrum hertekum lönd-
um sínum á ensku herskipi, er Manila
heitir og lá við höfuðborgina Kap.
Undir eins og hann var gróinn sára
sinna, sat hann um að strjúka aftur
til sinna manna, þótt ekki væri á-
rennílegt. þeirra var mjög vandlega
gætt á skipinu, hinna herteknu manna;
skipið lá all-langt frá landi; þar var
brim mikið og nóg af hákörlum. Eigi
að síður hepnaðist Botha kveld eitt
að færa sig úr fötunum og ná sér í
bjarglinda, er lágu á víð og dreif um
skipið; fötin batt hann í pynkil, er
hann batt við höfuð sér og rendi sér
að því búnu niður í sjóinn.
það var langt sund og hættulegt.
Loks var hann alveg lémagna orðinn.
En þá varpaði brimið honum upp í
fjöruna. Hann skreið inn í runna til
að hvíla sig. Ekki mátti það naum-
ara standa. því að í sömu svipan er
brugðið rafmagnsljósvendi frá skipmu
upp yfir fjöruna, þar sem hann var
nýskroppinn á land, og < annan stað sér
hanD vel mentum bátum róið alt í
kring um skipið. Hann klæddi sig,
þegar ljósið var horfið, og hraðaði sér
á stað. Hann tók sér dularnafn og
komst loks klaklaust alla leið norður
í Bloemfontein; þar hafði þá Búaher-
inn höfuðstöðvar sínar. Ekki hafði
hann neitt vegabréf né önnur skilríki en
nokkur sendibréf, er hann hafði búið
sjálfur til, með utanáskrift til Youngs
nokkurs hrossasala í Óraníu. Nokk-
uð af leiðinni fór hann með járnbraut,
og bar þá einu sinni svo undir á járn-
brautarstöð, að hann snæddi við sama
borð sem Bóberts marskálkur, yfir-
hershöfðingi Breta! þó var stroku-
mannalýsing á honum komin um alt.
En enginn krafði hann sagna hinna
mörgu ensku liðsforingja, er fundum
bar saman við á leiðinni.
Fádsema-elja. Það er meira en lítil
elja, sem hr. landsvegafræðingnum er gefin
við — litilsvert orðaþras út af þessum
manni, sem nú er að eins ódæmdur eftir
kæru hans. Enn vill hann fyrir hvern
mun fá að taka til máls um sama efni; en
það verður nú i allra-síðasta skift.i í þessu
blaði.
* *
»Ohlutdrœgni«. Bitstjóri Isaf. hefir
enn fundið sér skylt að hnýta athugasemd-
um aftan við svar mitt í 27. tbl. og
ber þar E. E. fyrir þeim ummælum sín-
um, að »eg haíi ætlað að reka hann irá
vinnu o. s. frv«.
Þegar svo er komið, læt eg úttalað um
það atriði, þvi að við E. E. vil eg ekki
þrátta — eg legg mig ekki niður við það
— það mun sýna sig einhvern tíma, hvor
okkar er sannsöglari.
Hvað hitt atriðið snertir, her ritstjórinn
það blákalt fram — eða lætur það að
minsta kosti á sér skilja — að eg hafi ekki
fundið að sömu annmörkunum á reiknings-
færslu E. E. áður en byrjað var á vegin-
um yfir Holtin eins og á eftir. Eg vil þá
henda ritstj. á athugasemdir mínar við
reikninga E. E. sumarið 1896 — þær get-
ur liann séð á landshöfðingjaskrifstofunni
— þar hefi eg einmi.t fundið að kvittana-
skorti á reikningunum.
Svo segir ritstjórinn ennfremur: »0g
sami annmarki — kvittanaskorturinn —
var áreiðanlega á reikningum annars vega-
vinnustjóra í haust að minsta kosti, án
þess að sá hinn sami hafi fengið ávitur
fyrir«.
Það ekki mitt að gefa ávítur fyrir þenn-
an annmaika, úr því eg er ekki skipaður
yfirmaður verkstjóranna; eg að eins gerði
minar athugasemdir á reikninginn og sendi
þær á landshöfðingjaskrifstofuna.
Annars skal eg taka það fram, að þess-
ir gallar á reikningsfærslunni hjá verk-
stjórunum eiga ekkert skylt við það mál,
sem hafið hefir verið gegn E. F., því að
þó að kvittanir vanti á stöku reikninga,
þarf það ekki að benda á nein fjársvik;
það getur verið og er vanalega að eins
athugaleysi eða hirðuleysi.
Vitneskju' um fjárdrátt getur maður
fyrst fengið með þvi að yfirheyra verka-
mennina um það, hvað þeir hafi tekið á
móti af peningum og hvað mörg dagsverk
þeir hafi unnið, og það var á þann hátt,
að þessi sterki grunur hefir fallið á E. F.
Að öðru leyti skal eg vísa til eftir-
fylgjandi yfirlýsingar frá landritaranum:
Þér hafið, herra ingenieur, beiðst yfir-
lýsingar minnar um það, hvort eg hafi
orðið þess var, að þér hafið veitst meira
að herra Einari Einnssyni í athugasemdum
yðar við vegareikninga hans eftir að byrj-
að var á Holtaveginum 1898 en áður, og
hvort eg hafi tekið eftir því, að þér hafið
hallað fremur á hann i athugasemdum yð-
ar en aðra forstöðumenn landssjóðsvega-
gerða.
Báðum þessum spurningum verð eg að
svara neitandi. Auðvitað er hér undan-
skilin kæra sú, er þér hafið sent bæar-
fógeta hér. yfir herra Einari Finnssyni,
fyrir fals og fjárdrátt, og rannsóknir yðar
um það atriði.
Afgreiðslustofu landshöfðingja
Reykjavik 11. mai 1900.
Jón Magnússon.
Þá þykist eg hafa komið með næga
sönnun fyrir þvi, að ákærur ritstj. gegn
mér séu á engum rökum bygðar.
Rvík 11. maí 1900. Sig. Thoroddsen.
* *
Ojá; það er nú svo. Sönnun er það
engin, að hann segir sjálfan sig vera sann-
orðari en E. F. Ekki heldur vel liægt
fyrir menn út i frá að vita, að hann megi
ekki gefa verkstjórum ávitur. Og ætli
hann geri það aldrei samt? Eyrir E. F.
og öðrum i likum sporum eru þær einar
aðfinslur til, sem til þeirra sjálfra er beint.
Þeir hafa ekkert af því að segja, þótt ein-
hverjar aðfinslur séu til á landshöfðingja-
skrifstofunni, ef þær eru t. d. svo lítils-
verðar, að ekki þykir takandi þvi að tjá
þær verkstjórunum sjálfum.
Fyrir þvi virðist minna að græða en
hann ætlaðist til á vottorði landritarans,
sem oss dettur vitanlega ekki i hug að
rengja. — Þar með er þá slegið botni í
þetta þras.
Veðuratliuganir
í Reykjavik eftir landlækni Dr. J.Jónas-
sen.
‘3 g Hiti (á Celsius) Loftvog (millimet.) V eðurátt.
nóttu urnlid árd. siðd. átd. si7)d.
19. + ö +n 762.0 759.5 o d a h b
20. + 4 + 6 759.5 754.4 ahd nah d
21. + 4 +10 754.4 749.3 ahd o d
22. + 4 + 7 749.3 749.3 o b o b
23. + 4 + 8 749.3 754.4 o b o b
24. + 2 + 7 756 9 756.9 o b o b
25. + 3 + 8 759.5 754.4 o b s h b
Veðurhægð daglega; oftast rétt logn og
bjart viður, skúrir á mtlli.
Inflúenza.
Nú mun hvm vera komin í flest hús
hér í bænum, en er yfirleitt væg.
Hefir, svo kunnugt sé, ekki leitt til
bana hér nema 2 börn, stúlkur tvær
nál. fermingaraldri, börn Gísla Finns-
sonar járnsmiðs, en þær voru báðar
veikar af öðru undir. — Eitt þilskip
G. Zoega kom inn í dag, Sjana, með
skipshöfnina veika, en flestir þó í aft-
urbata. Hafði aflað 3600.
Veikin er nú sem óðast að færast
út um Borgarfjörð og Mýrar. Kvað
vera búin að ganga í Dölunum að
miklu leyti.
_______ »
Sigling.
Iíaupfarið »Waldemar«, kapt. Albert-
sen, kom áþriðjudaginn til W. Fischers-
verzlunar frá Khöfn.
Landhelgisbrot.
Herskipið Heimdallur kom í fyrra
dag inn hingað með eDskt lóðaveiði-
skip, frá Grimsby, er hann hafði hitt
í landhelgi milli Beykjaness og Eld-
eyar. Sektað um 10 pd. sterl.
Sjötugsafmælis
Geirs Zoega kaupmanns minst hér í
bænum í dag með flöggum og annari
viðhöfn eftir föngum; mundi meira að
kveðíð, ef ekki stæði nú landfarsóttin
sem hæst.
Agætar
Kartöfliir og Laukur.
í verzl. G. Zoega
Cement
gott og ódýrt í verzlun
G. Zoöga.
Fataefni,
Kjóiatau
Svuntutau
mjög falleg og og vönduð en þó ódýr
í verzlun G. Zoöga.
Útsáðskartöflur
fást á Langaveg 22.