Ísafold - 27.06.1900, Síða 4
164
»Eg hefi — hru — kæru frarri að
færa — hm — gegn manninum, sem
er í herberginu við hliðina á mér —
nr. 107«.
»f>að er Danella greifi«, segir dyra-
vörður kurteislega.
»Greifi?« etur Lundúnamaðurinn eftir
honum. »Eg hélt það væri leikflokks-
leiðtogi eða söngkennari eða eitthvað
þess háttar. f>að var kátlegur snáði,
sem hann hafði hjá sér — karlinn,
sem gengur í rómantiska ræningja-
búningnum*.
»Ó — Tómassó, þjónninn hennar
frk. Paoli«.
•Stendur heima«, tekur Englending-
urinn fram í fyrir honum, »hann, sem
er með gömlu skjóðuna. Greifinn var
að kenna honum að syngja í gærkveldi,
og það er versta kattarsönglið, sem eg
hefi heyrt á minni lífsfæddri ævi. Eg
kann ítölsku, skal eg segja yður, og
söngvarnir voru ekki um neitt annað
en dauða, manndráp og annað af því
tæginu«.
*f>ér verðið ekki fyrir neinu ónæði
framar ur þeirri átt, monsieur Jones«,
segir dyravörður; »Danella greifi og
samferðafólk hans leggur á stað til
Korsíku f dag. f>arna er fröken An-
struther, enska stúlkan fallega!«
»Nei, þá kýs eg heldur dökkeygðu
stúlkunaN svarar Lundúnamaðurinn
— »hana, sem nú er að fara upp í
vagninn«.
Sama daginn, síðdegis, kemur ung-
ur maður með Parísarlestinni til
Mónacó; það leynir sér ekki á fötum
hans og útliti að öðru leyti, að hann
hefir hraðað ferð sinni mjög. Maður-
inn er hr. Barnes frá New York.
í öllu annríkinu út af hjúskapar-
samningnum — lögfræðislegum ráða-
gerðum og sæsímaskeytum — hafði
honum orðið órótt út af fyrra símrit-
inu, sem Enid hafðí sent honum; þvf
að í því stóð, að Edvin Anstruther og
Marína Paoli væru á sama hótellinu í
Mónacó. Enn órórra varð honum þó
út af símritinu um brúðkaup Marínu,
og þá brá hann sér suður til Parísar.
f>ar hitti hann lafði Chartris, fekk
bréfið frá Enid og gekk nú úr skugga
um, að það var fram komið, sem hann
óttaðist mest. Marína var, án þess
að hún hefði hugmynd um það, kom-
in á fremsta hlunn með að giftast
þeim manni, sem hafði vegið bróður
hennar, þeim manni, sem hún hafði
hátíðlega heitið að lífláta. Hann þor-
ir ekki að símrita þetta, og þess vegna
leggur hann nú á stað með lestinni,
sem fer kl. 7,20, og kemur til Móna-
có á miðvikudag síðdegis, eins og áður
er sagt.
Hann flýtir sér til Grand Hotel og
segir óvenjulega vanstillingarlega við
dyravörðinn: »Færið þér frk. Anstruth-
er nafnspjaldið mitt«. ískyggilega er-
indið, sem hann á þangað, hefir gjör-
spilt fögnuði hans út af því að fá að
sjá hana aftur.
»Hr. B ar nes«, segir dyrav örðurinn, sem
þekkir hann mætavel, »frk. Anstruther
fór í morgun frá Monte Carló með bróður
sínum«.
»Fóru þau til Englands? f>á hljót-
um við að hafa farist á mis áleiðinni*.
*Nei, þau fóru til Korsíku«.
»Til Korsíku?« segir Bárnes stam-
andi; »hvaða erindi eiga þauþangað?«
»Hr. Anstruther ætlar að gera þar
brúðkaup sitt til frk. Paoli. Danella
greifi og Korsíku-ungfrúin urðu þeim
samferða. Eg held, að hjónavígslan
eigi að fara fram á föstudaginn á
jarðeignum ungfrúarinnar þar í ey-
unni. f>að er eins og yður komi þetta
á óvart, hr. Barnes«.
»Ójá, ekki er trútt um það«, tautar
Barnes fyrir munni sér. »Mig furðar
á, að þau skyldu ebki gera mér við-
vart«.
»En eg held, að þau hafi gert það.
Eg heyrði Danellu greifa spyrja frk.
Anstruther Um utanáskrift yðar, af
því að hann ætlaðí að bjóða yður í
brúðkaupið. f>au stóðu þarna skamt
frá mér og töluðu um það á máudags-
kvöldið*.
•Hvenær, segið þér?«
»A mánudagskvöldið, um kl. 9«.
Barnes vissi, að það kvöld hafði
hann verið í Lundúnum til kl. 12; en
nú er hann farinn að jafna sig og
svarar:
»Eg hlýt þá að hafa verið farinn,
þegar símritið kom. Hvaða leið fóru
þau til Korsíku?«
•Farangurinn var merktur til Bastia,
Nizza-leiðina«.
»Og gufubáturinn fer frá Nizza —?«
»í dag, miðvikudag. Kl. 5 síðdegis«.
»f>á næ eg ekki í hann«, segir Barn-
es. »Útvegið þér mér ofurlítið að
borða svo fljótt sem þér getið. Eg
kem aftur eftir nokkurar mínútur.
f>ér þurfið ekki að láta bera farangur-
inn minn inn í neitt herbergi, því að
eg legg á stað með næstu járnbrautar-
lest«.
Hann flýtir sér til rit3ímaBkrifstof-
unnar og kemst þar að raun um, að
alls ekkert símrit hefir verið sent til
han3, hvorki á mánudag, þriðjudagné
miðvikudag. Svo Danella hafði þá
spurt um ntanáskrift hans í því skyni,
að fá Enid til að halda, aðhannhefði
fengið vitneskju um brúðkaupið, og
tálma því, að hún sendi honum sím-
skeyti sjálf. Barnes símritar nú til
Nizza og fær það svar aftur, að Bast-
ia-báturinn sé farinn þaðan. Klukkan
var þá hálf-sex.
Peningabudda
hefir tapast, með peningum í, finnandi
er beðinn að skiia henni á afgr.stofu
ísafoldar gegn fundarlaunum.
Til SÖlu er nýr vandaður fata-
skápur. Ritstj. vísar á.
Fundur
4
verður haldinn í Iðnaðarmannafélag-
inu laugardagskvöldið 30. þ. m. kl. 8.
Áríðaudi að félagsmenn fjöl-
menni.
Ársfundur »búnaðarfjelags íslands*
verður haldinn næsta laugardag, 30.
dag júnímán., kl. 5 e. m. í Iðnaðar-
mannahúsinu hjer í Reykjavík.
Rvk 25. júní 1900.
H. K- Friðrikssou.
Eldiviður.
Uppboð á timbri úr »Slöngunni«
verður haldið næstkomandi föstudag
29. þ. m.
G r á r h e s t u r tapaðist úr pössun úr
Fossvogi 24. júní, viljngnr, klárgengur, al-
járnaður með ö-boruðum flatskeifum, brotn-
um á báðum framfótum, dökknr á fax.
Finnandi skili til Þorgrims Jónssonar söðla-
smiðs i Reykjavik.
Undirskrifuð hreinsar alls kon-
ar fatnað o. fl., hvort heldur úr ull
eða silki.
4 KIRKJU8TRÆTI 4
Jónína Magnússon.
Barónsbúið hefi r nú næga mjólk
og geta því bæjarmenn fengið pantaða
mjólk framvegis á 16 aura pottinn.
Sömuleiðis fæst mjólk keypt kvöld og
morgna kl. 7—8 í mjólkurhúsinu við
fjósið. f>eir, sem vilja fá fasta pönt-
un á mjólk, ættu að semja um það
hið fyrsta.
Skandinavislc export- kaffi- surrogat,
sem vér höfum búið tii undanfarin ár, er
nú viðurkent að hafa ágæta eiginlegleika.
Köbenhavn K. F, Hjorth & Co.
Gjafir og tillög
til Prestaekknasjóðsins árið 1899.
1. Suður-Múlaprófastsdœmi : Síra Jóh.
próf. L. Seinbjarnarson 5 kr.; síra Björn
Þorláksson 10 kr.; síra Magnús Bl. Jóns-
son 5 kr....................... 20 00
2. Vestur Skaftafellsprófasts- *
dœmi : Bjarni jmófastur Einars-
son, 8ira Magnús Bjarnarson og
síra Sveinn Eiríksson 2 kr. hver 6 00
3. Bangárvallaprófastsdœmi :
Kjartart próf. Einarsson, síraEgg.
Pálsson, síra Jes A. Gíslason, síra
Magnús Þorsteinsson, síra Olaf-
ur Finnsson og síra Skúli Gísla-
son 3 kr. hver og síra Einar Þ.
Thorlacius (fyrir 1898ogl899)8
kr. 14 a....................... 26 14
4. Arnessprófastsdcemi: Valdi-
mar próf. Briem 3 kr.; síra
Brynj. Jónsson 1 kr. ; síra Jón
Thorstensen, síra Magnús Helga-
son, sira 01. Helgason, síra 01.
Olafsson, síra 01. Sæmundsson,
s/ra Stefán Stephensen og síra
Steindór Briem 2 kr. hver...... 18 00
5. Rjalarnesþing : Amtm. J.
Havsteen 25 kr.; Hallgr. bisk-
up Sveinsson 15 kr. ; Jóhann
próf. Þorkelsson (fyrir 1898 og
’99) 5 kr.; síra Brynj. Gunnars-
son (fyrir 1898 og ’99) 4 kr. ;
síra FriÖrik Hallgrímsson 5 kr.;
síra Jens Pálsson (fyrir 1898 og
99) 5 kr.; kandídat Jóhannes
Sigfússon 2 kr.; síra 01. Step-
hensen 2 kr.; síra Þorkell Bjarna-
son (fyrir 1898) 1 kr.......... 64 00
6. Borgarfjarðarprófastsdœmi:
Jón próf. A. Sveinsson 5 kr.;
síra Arnór Þorláksson 4 kr.; síra
Guðm. Helgasou 5 kr.; síra Jón
Benediktsson 4 kr.; síra Olafur
Ólafsson 2 kr................... 20 00
7. Mýraprófastsdœmi: Einar
pröf. Friðgeirsson 2 kr. ; síra
Gísli Einarsson 1 kr.; síra Jóh.
Þorsteinsson 2 kr.; síra Magnús
Andrésson 2 kr................ 7 00
8. Suœfellsnessprófastsdœmi:
síra Jens V. Hjaltalín 5 kr.; og
síra Jósep Kr. Hjörleifsson 3kr. 8 00
9. Dalaprófastsdœmi : Kjart-
an prófastur Helgason......... 3 00
10. Barðastrandarprófasts-
dœmi : síra Lárus Benediktsson 3 00
11. Norður-ísafjarðarprófasts-
dœmi: Þorvaldur próf. Jónsson 4 00
12. Húnavatnsprófastsdcemi '■
Hjörleifur próf. Einarsson og
prestarnir Ásm. Gíslason, Bjarni
Pálsson, Björn Blöndal, Eyólfur
Kolbeins og Stefán M. Jónsson,
hver 2 kr.; síra Hálfdán Guðjóns-
son 3 kr.; síra Jón St. Þorláks-
son 3 kr.; Júlíus læknir Hall-
dórsson og kaupm. J. G. Möller
2 kr. hver.................... 22 00
13. Skagafjarðarprófastsdœmi:
Zófónías próf. Halldórsson 3 kr.;
síra Árni Björnsson 2 kr. ; síra
Björn Jónsson 3 kr,; síra Hall-
grímur Thórlacius 2 kr.; síra Jón
O. Magnússon 3 kr.jsíra Sigfús
JÓnsson 2 kr.; síra Sveinn Guð-
munsson 2 kr.; síra TómasBjörns-
son 2 kr...................... 19 00
14. Suður-pingeyarprófasts-
dœmi: Árni próf. Jónsson 4 kr.;
og Benedikt próf. Kristjánsson
4 kr. (báðir fyrir 2 árin 1898
og ’99) ...................... 8 00
15. Norður-pingeyarprófasts-
dœmi : síra Þorleifur Jónsson 3 00
Hefir þannig á árinu 1899
gefist úr 15 prófastsdæmum -—---------
samtals 231 14
Úr 5 prófastsdæmum hafa þetta ár
engar gjafir komið.
Yfirlit yfir gjafir og tillög síðustu
10 ár:
1890 gafst úr 1'4 prófastsd. 275 00
1891 — — 12 211 00
1892 t —- 15 — 235 00
1893 — ' — 14 —:— 188 00
1894 — — 16 ^24 06
1895 — — 17 — 218 45
1896 — — 12 193 27
1897 — — 16 228 81
1898 — — 13 — 226 96
1899 — — 15 231 14
samtals 2231 69
eða til jafnaðar 223 kr. 17 a. á ári
Á sömu 10 árum hefir prestaekkjum
verið veittur styrkur af vöxtum sjóðs-
ins að upphæð 5800 kr., og eign sjóðs-
ins þó aukist um nál. 4000 kr.
Reykjavik 25. júní 1900.
Hallgr. Sveinsson.
Takið nú eftir!
Hið bezta og langódýrasta
Límonadi og Sodavatn
fæst nú úr
ískjalra losirjkkjaieitsÉjiir
»GEYSIR«.
Chartreuse
Og
BeBedictiner-Pulyer
á 1 kr. pakkinn
sem búa má til úr líkör, alveg einsog
þann ekta.
Brödr Berg
Amagertorv 14. Köbenhavn.
Sundmaga
kaupir hæstu verði fyrir p e n i n g a
Ásgeir Sigurdsson.
Saltfiskur
vel verkaður, stór og smár, og ýsa,
verður keyptur í sumar fyrir peninga
við verzl. »EDINBORG« í Keflavíb,
Stokkseyri og Reykjavík.
Sundmaga
fyrir peninga kaupir hæsta verði
W. Christensens-verzlun
Sundmagar
vel verkaðir verða keyptir fyris pen
inga við verzl. »EDINBORG« í
Keflavík, Stokkseyri og Reykjavík
sésgeir Sigurðsson.
Hrossum verður smalað í Lax-
nes- og Mosfellsbringnalandi á hverjum
laugardegi nú fyrst um sinn og verða
réttuð að Laxnesi.
Öll þau hross, sem ekki ganga þeg-
ar út og ekki eru hirt, verða afhent
hreppstjóra.
Samkvæmt þessari auglýsingu verða
þau hross, er ekki ganga strax út,
seld við opinbert uppboð á staðnum.
23. júní 1900.
Mosfellsbringum Laxnesi
Jóhannes Þorláksson. Páll Vidalín.
Varmá
Björn Þorláksson hreppstjóri.
Uppboðsauglýsing.
Föstudaginn þ. 29. þ. m. kl. 11 f.
h. verður opinbert uppboð haldið í
fjörunni fyrir norðan Hafnarstræti og
þar selt brak o. fl. úr skipinu Slangen.
Söluskilmálar verða birtir á uppboðs-
staðnum.
Bæjarfógetinn í Rvík 26. júní 1900.
Halldór Daníelsson.
Ritstjórar: Björn Jónsson(útg.og ábm.)og
Elnar Hjörleifsson.