Ísafold - 04.07.1900, Qupperneq 4
172
víkur; atendur hér við 3 daga og fara
8umir farþegarnir til þingvalla. Bú-
ist við svo mörgum farþegum, að aðr-
ir geti ekki fengið far með skipinu
>tóan til Englands. Umboðsmaður
útgerðarfélags þessa hér er Sigfús Ey-
mundsson.
Búa-ríma.
Hún erl*r eftir »Lögbergi«
i því skyni, að Inargfalt fleiri fái að
heyra hana en það blað sjá sér á landi.
Hún er, segir höf., kveðin á jólunum
í vetur, 1899. Hún er órækur og á-
nægjulegur vottur þess, að kveðskap
þess mikla og fræga ljóðsnillings vors
er ófarið aftur, þótt hann sé nú hálf-
sjötugur að aldri. Búa-Páll er Paul
Kriiger, ríkisforseti í Transvaal; en
Jón Boli er alkunnugt uppnefni á
Bretum.
Dr. Finnur Jónsson
prófessor kom hingað frá Khöfn með
póstgufuskipinu Botnía 30. f. m. Hann
ætlar að ferða3t austur um Rangár-
vallasýslu og þá vestur í Dali, en
verða hér kominn aftur áður en stú-
dentarnir dönsku koma.
Brauðaveiting.
Akureyri veitt af konungi 8. f.mán.
síra Geir Sæmundssyni á Hjaltastað
og sömuleíðis Útskálar s. d. settum
presti þar Friðrik Hallgrímssyni.
Mælifell í Skagafirði veitt af Iands-
höfðingja 13. f. mán. síra Sigfúsi Jóns-
8yni í Hvammi í Laxárdal.
Biskupsvísitftzía-
Herra biskupinn, Hallgrímur Sveins-
son, lagði á stað héðan í gær með
gufuskipinu Ceres norður á Akureyri
til yfirreiðar um Eyafjarðarprófasts-
dæmi og nokkuð af Skagafirði. Er
væntanlegur heim aftur 22. ágúst með
sama skipí. Með honum fór skrifari
hans, Ólafur Rósenkranz kennari.
Frá útlöndiiin.
Búar þvælast enn fyrir Bretum,
þrátt fyrir ófarirnar um fyrri mánaða-
mót. Krúger ófáanlegur til að’ gef-
ast upp. f>eir gera fjandmönnum sín-
um ýmsar skráveifur, t. d. ónýta fyr-
ir þeim ritsíma og járnbrautir og þar
fram eftir götunum.
Óllu meiri tíðindum þykir nú sæta
ófriður sá, er Norðurálfustórveldin,
Bandamenn og Japanar eru komin í
við Kinverja og hófst 17. f. mán. með
þeim hætti, að Kínverjar létu upp úr
þurru og á náttarþeli fara að skjóta
úr kastalavirkjum í Taku, hafnarbæ
frá Tientsin, á herskip frá þessum
ríkjum, er lágu þar á höfnin»i, og
veittu þeim áverka. En þau tóku í
móti og sprengdu virkin á skammri
stundu, gerðu síðan landgöngu cueð
2000 manna og tóku bæinn (Taku),
en handsömuðu 400 Kínverja.
f>að hafði gerst áður, að ríki þessi
sum eða öll höfðu hleypt liði á land í
Kína með samþykki stjórnarinnar til
verndar þarlendum þegnum' sínum
fyrir uppreistarseggjum kínverskum,
er hún átti sjálf í höggi við, en ekkju-
drotningin, sem ríkjum ræður fyrir
keisarans hönd, er raunar grunuð um
að vera í vitorði með, enda er sögð
þeim jafn-fjandsamleg útlendum mönn-
um; það er þeirra áform, uppreistar-
manna, að myrða þá alla eða flæma
úr landi. þeir kalla sig »hnefamenn«
og eru nokkurs konar kínverskt þjóð-
vinafélag; kvað vera í því margt stór-
menni Kínverja.
Sannfrétt er, að myrtur hafði verið
í Peking kanzlari Japansmanna, hjá
sendiherra þ4irra þar, en bornarbrigð-
ur á, að sendiherra þjóðverja og Banda-
manna þar hafi farið sömu leið. En
fjölda kristniboða höfðu uppreistar-
menn myrt víðsvegar um land.
Nokkuru fyrir miðjan júnímánuð
lagði Seymour, enskur aðmíráll, upp
frá herskipalægi fyrnefndra ríkja áleið-
is til Peking landveg með 2000 manna,
samlagslið frá þeim, til fulltingis þeirra
mönnum í höfuðborginni. Vita menn
það síðast til þeirrar sveitar, að hún
var komin míðja leið milli Tientsin og
Peking, en svo hafði ekkert til henn-
ar spurzt 8—10 daga, með því að
Kínverjar höfðu og slitið ritsímann
frá Peking. það var 26. f. mán., sem
póstskip fór frá Skotlandi og þetta
var síðast þar að frétta.
J?að mun vera áform stórveldann^
að hlutast til um, að sá eða þeir taki
við stjórnartaumum í Peking, er vilji
og geti ábyrgst útlendum mönnum í
ríkinu full grið. þau búa nú sem óð-
ast skipalið þangað, ásamt Banda-
mönnum og Japansbúum.
Murawiew greifi, utanríkisráðherra
Rússakeisara, varð bráðkvaddur f Pét-
ursborg 21. f. mán.; varð ekki nema
rúmlega hálffertugur. Embætti það
hafði hann á hendi 3| ár, og þótti
vitur maður og skörungur. Hann var
friðarvinur mikill, og mun vandfylt
mjög skarð hans. Hann var áður
sendiherra í Kaupmannahöfn.
Gallifet, hermálaráðherra Frakka,
farinn frá embætti. Hann reyndist
skörungur í Dreyfusmálinu í fyrra,
réttvís maður og einarður.
Enn þykjast Norðmenn hafa kent á
gjörræðisér til hauda af konungs hálfu
eða sonar hans Gustavs konungsefnis;
hann synjaði í fjarveru föður síns, en
vitaclega með hans ráði staðfestingar
á laganýmæli um konsúlakaup, er þeim
var áhugamál, þvert ofan í tillögur
allra hinna norsku ráðgjafa sinna.
Póstgufuskipin.
f>au komu hingað bæði, Ceres og
Botnía, 30. f. m., Botnía beint frá
Khöfn og Skotlandi, en hitt norðan
um land og austan. Meðal farþega
með Botníu voru frá Khöfn: Lefolíi
stórkaupmaður, ekkjufrú H. Th. A.
Thomsen, Boilleau barón, fröken Ásta
S. Sveinbjörnsson, frk. Lucinde Möll-
er, ílannes Ó. Magnússon verzlunarm.
með konu sinni og Ari Jónsson stú-
dent; en frá Skotlandi ýmsir enskir
ferðamenn, þar á meðal Sandíord
biskup, faðir sjóforingja þess, er skaut
sig hér í fyrra á herskipinu Blonde og
grafinn er vestur á Dýrafirði — fer
þangað í dag með Botníu. þ>á var og
með skipinu maður vestan úr Mexico.
Með CereB kom frá útlöndum Gunn-
ar kaupm. Einarsson; að norðan Gísli
ísleifsson sýslum. á Blönduós; að
vestan þot valdur Jónsson héraðslækn-
ir á Isafirði, Árni Sveinsson kaupm.
og Björn þórðarson verzlunarstjóri þar.
Ceres fór aftur 1 gær sömu leið og
með henni flestir hinir sömu farþegar
og margir fleiri.
V e ðdeildar reglugi örð
Landsbankans hefir loks hfotið stað-
festing ráðgjafans fyrir ísland lð. f.
mán. |>ar stendur, að veðdeildin taki
til starfa 1. júlí.
Ný lög.
jbessi tvenn lög frá síðasta alþingi
kafa hlotió konungsstaðfestingu 21.
f. m.
33. Um undirbúning og stofnun
klæðaverksmiðju.
34. Um leyfi til vegalagningar um
Arnarhólstún í Reykjavík, n. fl.
Lagasynjanir.
Frumvarpinu frá síðasta þingi um
friðun fugla og hreindýra hefir verið
synjað konungsstaðfestingar 21. maí
þ. á.
Frumvarpi um heimild til að selja
lóð af Arnarhólstúni (Batterífrv.) 21.
júní.
Proelama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878,
sbr. opið bréf 4. jan. 1861, erhérmeð
skorað á alla þá, sem til skulda telja
í dánarbúi Kristjáns Kristjánssonar frá
Gunnarsstöðum (fyrrum í Straumfirði)
að lýsa kröfum sínum og sanna þær
fyrir skiftaráðanda Dalasýslu áður en
6 mánuðir eru liðnir frá 3. birtingu
auglýsingar þessarar.
Skiftafundur verður haldinn í dán
arbúi þessu að Blönduhlíð í Hörðu
dalshreppi miðvikudaginn 29. ágúst
næstk. um hádegisbil.
Skrifstofu Dalasýslu 22. júní 1900.
Björn Bjarnarson
Saltfiskur
vel verkaður, stór og smár, og ýsa,
verður keyptur í sumar fyrir peninga
við verzl. »EDINBORG« í Keflavík,
Stokkseyri og Reykjavík.
Snndmagar
vel verkaðir verða keyptir fyris pen
inga við verzl. »EDINBORG« í
Keflavík, Stokkseyri og Reykjavik
Asgeir Sigurðsson.
Kennari við barnaskóla
Stykkishólmshrepps næsta vetur er
enn óráðinn. Kenslan byrjar 1. okt.
og fer fram til 14. tnaí. Umsóknir
um kennarastöðuna sendist til hrepps-
nefndar Stykkishólmshrepps fyrir á-
gústlok.
Stykkishólmi 18. júní 1900.
Hreppsneýnd Stykkishólmshrepps.
Hér með auglýsist, samkvæmt 9.
gr. laga nr. 7, frá 13. apríl 1894 um
ýmisleg atriði, sem snerta gjaldþrota-
skifti, að bú Sigurðar bónda Sigurðs-
sonar frá Rauðamel ytra hér í sýslu
hefir veriö tekið til gjaldþrotaskifta,
samkvæmt 2. gr. nefndra laga.
Jafnframt er, samkvæmt skiftalög-
unum frá 12. apríl 1878 og opnubréfi
frá 4. jan. 1861, skorað á þá, er skuld-
ir kunna að eiga í búinu, að segja til
þeirra og sanna þær fyrir skiftaráð-
andanum hér í sýslu innan 6 mánaða
frá seinustu birtingu auglýsingar þess-
arar.
Skiftaráðandinn í Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu, Stykkishólmi 23.
dag júním. 1900.
Lárus H. B.jarnason.
Óhætt
er öllum að koma í pappírsbúð mína.
|>að er skarlatssótt í húsinu í ein-
angruðu herbergi> en á sóttvarn-
arauglýsing læknisins, sem fest er upp
á húsin, er berum orðum tekið fram,
að fólki sé óhætt aðkoma í búðina-
Jón Ólafsson.
Í verzlun
B. H. Bjarnason
pr. »Ceres« beint frá Berlin.
Úrval af nýmóðins höttum.
Óáýrari en allstaðar annar-
staðar-
Chartreuse
°g
Benedictiner-Pulver
á 1 kr. pakkinn
sem búa má til úr líkör, alveg einsog
þann ekta.
Brödr Berg
Amagertorv 14. Köbenhavn.
Sundmaga
fyrir peninga kaupir hæsta verði
W. Christensens-verzlun
r
I verzlun
B. H. Bjarnason
pr. s. s. »Botnia«
Eidammerostur, Goudaostur, Rúss-
neskur ostur, danski Mejeriosturinn
sem allir kaupa, Mysuosturinn
Cervelatpölse, Spegepylsa
Agúrkur, Pikles, Syltetöj, Marmelade,
Chocolade og Confekt, Biscuit og Te-
kex 20 nýar tegundir.
Mörg þúsund af Gratulationskort-
um mjög fallegum, sem seld verða i
stórkaupum c. 20% undir almennu
erlendu stórkaupaverði.
Mikið af alls konar járnvörum og
eldhúsgögnum o. m. fl.
Verzlanin hefir nú svo fjölbreyttar
vörubirgðir, að leitun mun verða á
margbreyttari vörutegundum á meðal
kaupmanna hér í bæ, að álnavöru
einni undanskilinni, sem ekki
fæst í verzluninni. Verðlagið svo ó-
dýrt, að enginn selur ódýrara, og má
sem dæmi nefna bezta Rjóltóbak
á kr. 1,25 aur. Munntóbak á kr.
1,75 a.
Koparístað Íundið á götum bæj-
arins. Ritstj. vísar á.
Undirritur hefir til sölu úrval af
ljómandi fallegum SILKISLIFSUM.
Sophia Heilmann Laufásveg 4
J.P.T.Brydes-verzlun
kaupir
hesta og hryssur fyrir vörur og
peninga miðvikudag 4. og fimtudag 5.
júlí fram á hádegi.
-= VINDLAR ==-
hvergi bétri eða ódýrari en í beztu
búðinni, HAFNARSTRÆTI 8; kaup-
ið einn til reynslu, þá munuð þið sann-
færast.
Holger Clausen.
OSTUR fæst í BEZTU BÚÐINNI
Hafnarstræti 8
Holger Clausen.
Hýkomið með Ceres í
beztu búðin
HAFNARSTRÆTI 8
Kaffi, Kandís, Melís, Export, Kringler,
Brjóstsykur o. fl.
________Holger Clausen-
Fundist hefir rauður hestur á EIl-
iðavatni, mark: heilrifað og biti a. h.,
sneiðrifað eða illa gerð heilrifa og biti
a. v., kliptur kro3S á lend.
Hans Hannesson póstur.
Nýar vörur með Botnia.
3 tunnur og 6 kassar með postulíni.
5 kassar með email. eldhúsgögnum.
16 kassar með lömpum og lampa-
áhöldum
17 kassar vefnaðarvörur alls konar.
33 kassar og 15 tunnur brauð allsk.
100 dunkar margarine.
19 dunkar og 12 kassar farfavörur.
224 kassar og pakkar með ýmsum
vörum.
Ritstjórar: Björn Jónsson(útg.og abm.)og
Einar Hjörleifsson.
Ísafoldarprentsmiðja.