Ísafold - 01.08.1900, Blaðsíða 4

Ísafold - 01.08.1900, Blaðsíða 4
192 H St •«B2pr Vandað Merkt ,Bedste4 ■"Ok Enskt smjörllki I í stað smjörs í smáum öskjum, sem ekkert kosta, með 10 og* 20 pundum í hverri, hæfi- legum fyrir heimili. Betra og ódýrra en annað smjörlíki. Fæst innan skamms alstaðar. H. Steensens Margarinefabrik, líejle. Mannalát. Skrifad er Isafold úr Skagafirði í f. m., að þar hafi látist í vor (úr inflú- enzu ?) þetta merkisfólk : Engilráð Jóhannenardótlir í Garði í Hegranesi, mikil greindar- og myndar- kona. Hannes Pétursssn, ungur og efnileg- ur bóndi á Skíðastöðuin, sem mikill mannskaði var að, frá konu og 3 ung- um börnum. Brynjólýur Jónsson, ungur efnismað- ur ókvæntur á sama bæ. Sigurður Gunnlaugsson, bóndi á Skriðu- landi í Kolbeinsdal, sjötugur, hafði verið merkisbondi og hreppstjóri, mesti búhöldur og ráðdeildarraaður; lézt 9. maf. Ennfremur nýlega látinn Jón Jóns- son, góður bóndi á Bakkakoti í Goð- dalasókn, bróðir síra Jónasar prófasts á Hrafnagili. Elus og hræfuglar varpa þeir sér yfir bæjarmenn, at- kvæðasmalar bankastjórans. f>að er naumast nokkur friður fyrir þeim nokkursstaðar, úti eða inni, nótt né dag, eða dag eftir dag — þar sem þeir gera sér einhverja hina minstu von um ofurlitla bráð. Fyrir hinum fara þeir huldu höfði, sem þeir vita sér muni ekki til nokkurs hlutar að revna við. Bn hamingjan hjálpi þeim, sem þeir halda sig finna einhverja hrælykt af. f>eir ofsækja þá blátt áfram. Ým- ist gerir sami maðurinn hverja at- rennuna eftir aðra sama kjósandan- um, 3, 4, 5 í striklotu, þótt hrygg- brot fái hvað ofan í annað, eða þá að 3 eða fleiri vargar ráðast að hon- um í senn. Maður kom úr ferð fyrir 2—3 dög- um. Óðara en hann var stiginn af baki, voru roknir á hann ekki færri en 4 atkvæðasmalar í einu vetfangi, eins og þeir spryttu upp úr steinunum eða hefðu setið fyrir honumtímunum sam- an. xNafnið undir skjalið, nafnið á skjalið !« heimtuðu þeir vægðarlaust; hann fokk ekki að fara úr reiðfötun- um áður en hann »forskrifaði« sig. þessu Iíkan lífróður róa þeir dag eftir dag, sendisveinar bankastjórans. |>eim þykir sér ríða lífið á að hremma bráðina áður en of hljóðbært er orðið um atgang þeirra. Utan fóru um daginn héðan þeir dr. B.M. ÓÍ- sen rektor með póstskipinu og Sigfús Eymundsson bóksali með skemtiskip- inu Cuzco, til Englands. Póstgufuskip Vesta kapt. Corfitzon, lagði á stað í gærkveldi vestur um land og norður, með eitthvað af farþegum, þar á með- al hermennina dönsku, sem verið hafa hér við landmælingar 6—8 vikur. Eandmælinga-yfirmennirnir, þeir kapt. Lund-Larssen og hansfé- lagar, fara hins vegar landveg norður; lögðu á stað í morgun, norður á Ak- nreyri, og ætla sér að vera komnir þar 5 dögum á undan Vestu. Vinnan þar búast þeir við að standi yfir 6—7 vikur. Eftirmæli. Um auðmanninn Jón bónda porkels- son á Svaðastöðum í Skagafirði, er lézt 13. maí í vor, skrifar mikið merkur sýslungi hans sem hér segir: »Hann var mörgum kunnur af reynd og af afspurn að góðu einu. Éftir hann komu til skifta nál. 60,000 kr. J>ar af voru í dönskum gullpeningum 13,600 kr., og í útlánum á ýmsum stöð- um nær 40 þús.; hittí jörðum, og lítið í hrossum, þar eð Una systir hans, er bjó með honum, átti búið. En getið er þess til, að útlán muni hafa verið enn meiri, en í mjög óáreiðan- legum stöðum. þar sem þau eru talin með vissu töpuð, og að eignin muni hafa verið all-miklu meiri í raun réttri, er ætlun margra. það er 6Ómi, að ís- lenzkur bóndi gat dregið slíkan auð saman með hagsýni, ráðvendni, dugn- aði og sparsemi, því að þessa kosti hafði hann í ríkum mæli. Hann var fæddur á Svaðastöðura 24. júlf 1826 og ól þar allan aldur sinn, og elskaði þennan sinn verustað með staðfastri trygð, enda var staðfesta og trygð eitt, sem einkendi hann mjög mikið. Hann var maður, sem ekki vildi vamm sitt vita, vandaður og virtur af öllum, er þektu hann. Hann var glaðlyndur, gestrisinn og góðviljaður og sérlega orðvar um aðra og tnildur í dómura. Allir hinir góðu mannkostir hans voru eflaust grundvallaðir á hjartanlegri og barnslegri guðhræðslu, sem kom iðu- lega fram í dagfari hans í ýmsum myndum. Hann var lángefinn mjög, en hann þakkaði aldrei sjálfum sér lánið, heldur drotni, enda naut hann þess með glaðværð og auðmýkt. Hann var í fáum orðum mannkostamaður, enda var hann dæmalaust vinsæll, og vinsælli en vanalegt er um auðuga menn, sem flestir heimta mikið af. Hann kvæntist aldrei, og átti ekki barn. Systkinum sínum og börnum þeirra unni hann svo einlæglega, að það hamlaði honum, því miður, frá því, að ráðstafa nsinu af eigum sínum eftir sinn dag til einhverra nytsemd- arfyrirtækja. J>að var mikið mein. En minning hans lifi í blessun; hún ætti að örva þá, er þekkja hann, til að líkjast honum að mannkostum. Og óskandi væri, að ísland ætti sem flesta bændur honum líka«. Uppskerubrestur var í vændum þegar síðast fréttist, í Manitoba, Dakota og Minnesota, þeim stöðum í Vesturheimi, sem ís- lendingar eiga einkum heima á, akrar gjörskemdir af þurkum, svo að upp- skera hlaut að verða mjög rýr, þó að þá færi að rigna, sem óvíst er hvort orðið hefir. Varaskeifur bankastjórans eigum vér að vera, Reykvíkingar, honum til þmgfylgis, — eða þá Arnesingar, hinir gömlu kjós- endur hans. Hann mun vera óráðinn í því sjálfur, hvora þeirra hann á held- ur að hafa að gabbi. Hugmyndin er sjálfsagt sú, að reyna, hvað smölunum tekst hér; og ef honum líkar ekki veið- in, að vöxtum eða gæðum,þáað halla sér að Árnesingum; þá eru þeir nógu góðir fyrir hann, garmarnir; þá má reyna að nota þá heldur en að verða af þingmenskunni, — nota þá til að skreið- ast inn á þing, í bandalagi við f>jóð- ólfsmanninn og með aðstoð smalanna hans þar. T A P A S T hefir frá Ráðagerði á Seltjarnarnesi sótrauður foli (stjörnótt- ur), 4 vetra, hálfgeltur, óafrakaður og járnaður með mark: hamarskorið hægra biti fr., heilrifað vinstra biti aftan, (grunnmarkað). Hestinn á Sigurð- ur Benediktsson í Geysi. H J Á undirskrifuðum er í óskilum rauð hryssa 5—6 vetra, vetrarafrökuð mark: biti fr. v. Réttur eigandi get- ur vitjað hennar gegn borgun fyrir hirðingu og sömuleiðis verður hann að borga þessa auglýsingu. Gaddstöðum 25. júlí 1900. Páli Jónsson. Til sölu eru jarðir og jarðar- p a r t a r þeir, er B. Muus & Co á hér á landi. Semja má við umboðsmann þeirra hér Matthías Matthíasson. Hérmeð leyfum við okk- ur að tilkynna heiðruðum al- menningi, að eftir nákvœma yfirvepuu höfum við kom- ist að þeirri niðurstóðti, að pað mundi ekki borga -sip fyrir okkm, að kaupa lif- andi fé á íslandi, og að við munum pví ekki halda 7narkaði í haust. Parker & Fraser Liverpool. Hinn 1. desember 1898 varð úti hér í sýslu Guðmundur nokkur Guðmunds- son, heimilislaus maður, ættaður að norðan. Mér hefir eigi tekist að spyrja til erfingja hans allra, og er því hér með, samkv. 17. gr. skiftalaganna frál2. april 1878, skorað á alla þá, er arf kunna að eiga eftir hann, að segja til nafns síns, aldurs og heimilis innan 15. dags nóvbr. þ. á., en þann dag verður skiftafundur haldinn í búinu. Skiftaráðandinn í Snæfellsness- og Hnappadalss. Stykkish. 2C. júlí 1900. Lárus H. Bjarnason. Uppboðsauglýsing Laugardaganna 18. ágúst, 1. og 15. september verða opinber uppboð hald- in á Norðurfirði á timþurhúsi tilheyr- andi dánarbúi M. S. Árnasonar kaup- manns. Húsið var ætlað bæði til verzlunar og íbúðar — ekki fullgert, en þó virt á 1600 krónur. Hin fyrri tvö uppboðin fara fram hér á skrifstofunni á hádegi; hið 3. og síðasta verður haldið í sjálfu húsinu kl. 10 f. h. Söluskilmálar verða birtir á öllum uppboðunum. Skrifstofu Strandasýslu, 20. júlí 1900. Marino Hafstein. Undirskrifaður hefir 2 síðustu árin brúkað Kínalífselixír Valdimars Pet- ersens, sem þeir hafa til sölu kaup- mennirnir H. Johnsen og M. C. Blön- dahl, og þekki eg engan magabitter, sem er eins góður og fyrnefndur Klna- bitter hr. Petersens. Eyrir því ræð eg löndum mínum eftir sjálfs míns reynslu og sannfæringu til að kaupa og brúka þennan bitter við alls konar maga- veiki og hvers konar meltingaróreglu (Dispepsi), því það er sannleikur að undir meltingunni er komin farsæld ungra og gamalla. Eg hefi reynt marga aðra svo uefnda magabittera (arcana) og tek þennan bitter langt fram yfir alla aðra. Sjónarhól. L. Pálsson prakt. læknir. Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flest- um kaupmönnum á íslandi. Til þess að vera viss um, að fá hinn ekta Kina-lífs-elixír, eru kaupend- ur beðnir að líta vel eftir því, að Yf •F • standi á flöskunni í grænu lakki, og eins eftir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðanum: Kínverji með glas í hendi, og firmanafnið Waldemar Pet- ersen, Frederikshavn, Danmark. Flensborgar-nemendur frá 1892—93! Samkoman, sem vér ráðgerðum að halda árið 1900, verður haldin í Flens- borgarskólanum 25. september næstk. Byrjar kl. 11 árd. Hlutaðeigendur eru beðnir að láta undirritaðan vita sem fyrst, hvort þeir muni geta mætt. Rvík 29. júlí 1900. Fyrir hönd forstöðunefDdarinnar] Sigurður Jónsson. Hvergi í Reykjavík eins mikið úrval af alls konar úrum, klukkum, gullstássi, úrkeðjuno (0,65—25 kr.), armhringum, handhringum, hálsmenum, kapselum, slipsis- nælum, brjóstnælum og kjólanælum og m. fl. Kíkirar, margskonar hljóðfæri, veiðarfæri og SINGERS-STÁL-SAUMAVÉLAR. Pétur Hjaltested. THE NORTH BRITISH ltOPEWORK C o m p a n y Kirkcaldy á Skotlatidi Contractors to H. M. Government búa til rússneslcar og italskar fiskilínur og færi, Manilla-og rússneska kaðla, alt sérlega vandað og ódýrt eftir gæðum. Einkaumboösmaður fyrir Danmörk, ís- land og Færeyar: Jakob Gunnlögssou. Kobenhavn K. Þyrilskilvindur (Kponseparatorer) eru nú taldar lang-beztar allra skil- vindna og eru til sölu hjá allflestum kaupmönnum hér á landi. Þessir seljendur hafa óskað nafns síns getið: Hr. kaupm. B. Kristjánsson, Rvík, hr. kanpm. H. Th. A. Thomsen, Reykjavík, hr. kaupm. Ó. Arnason, Stokkseyri, hr. kanpm. Jón Bergsson, Egilsstöðum; allar verzlanir hr. Tuliniusar á Austurlandi, allar verzlanir Gránufélagsins, hr. verzlunarstjóri Eggert Laxdal, Akureyri, hr. kaupm. V. Claesen, Sauðárkróki, hr. kaupm. L. Popp, Sauðárkróki, hr. kaupm. 1. G. Möller, Blöndn- ósi, hr. verzlunarstjóri P- Sæmundsson, Blöndnósi, hr. kaupm. R. P. Riis á Borð- eyri. Islandsk Handels & Fiskerikompagni á Patreksfirði, Flatey, Skarðstöð, Hvamms- firði, Olafsvik og Búðam. Frá Pfttreksfirði geta kaup- menn, að jafnaði, fengið þær til út- sölu naeð lægsta verði, þar fást og ýmsir vara-hlutar skilvindunnar. Smásöluverð gegn peningum er þannig: Nr. 0 skilur 25 pt. á kltíma kr. 80.00 — 00 — 50 - - — 100.00 — l _ 75 - . _ - 120.00 Skilvindurnar fást a ð a 11 e g a til útsölu hjá Islandsk Handels & Fiskeri- kompagni, Kjöbenhavn G. Ritstjórar: Bjðrn Jónsson(útg.og ábm.)og Einar Hjörleifsson. ísaf ol darprentsmið j a.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.