Ísafold - 12.09.1900, Síða 2

Ísafold - 12.09.1900, Síða 2
búin eftir aldri, að þau hlaupa yfir neðstu bekkina. Þau eru því oft eigi nema 11—12 ára, þegar þau eru búin meS 6. bekk, og þá hefir skólinn ekki meira að bjóSa þeim. Nú er í ráði, að bæta úr þessu. Bæjarstjórnin hefir ákveðið, að bæta 7. bekknum ofan við skólann, svo framar- lega sem nægilega mörg (20) borgunar- börn fást í hann. Námsgreinar þær, sem kendar verða í bekk þessum, éru allar hinar sömu og í 6. bekk, og enska að auki; verSur einkum lögð áherzla á kensluna í malunum (íslenzku, dönsku og ensku) og stærðfrreði. Piltar, sem síðar eiga að ganga í latínuskólann, munu geta fengiS þar nægan undirbún- ing í öllum námsgreinum, nema latínu. Kenslukraftarnir munu verða svo góðir, sem kostur er á, og er búist viS, að borgun fyrir tímakenslu muni verða hærri í þeim bekk en í öðrum bekkjum skólans, að minsta kosti í málunum. Þótt bekkurinn só einkum ætlaSur ófermdum börnum, er eigi ólíklegt, að ný-fermdir unglingar fái einnig að kom- ast aS, ef rúm leyfir. Viða erlendis er mjög mikiS starfað aS því, að koma upp framlialdsskólum, er taki við af barnaskólunum og veiti fullkomnari mentun heldur en barna- skólarnir geta veitt. Þessi fyrirhugaði bekkur í barnaskól- anum hér er lítill vísir til þess konar skóla, og ættu því menn aS hlynna aS honnm með því að senda börn í hann. Hér í bænum eru margir unglingar í kringum fermingaraldur, sem lítiö hafa við að viuna, og mundi þeira miklu hollara að njóta þeirrar mentunar, sem þeim gefst kostur á með tiltölulega vægum kjörum, heldur en að ganga iðjulausir um göturnar. Smáþættir um kaupmenn. Það er hálf-vandræðalegt svar Jóns Jónssonar til min i 24. töiubl. Fjallkon- nnnar, þetta svar, sem hann hefir verið svo lengi að hugsa sig um, og margir rounu álíta, að honum hefði verið betra að sleppa alveg. Bann fyrirverður sig auðsjáanlega fyrir hina fyrri grein sína, þvi hann fer alveg hjá, að minnast á það í henni, sem eingöngu gaf mér tilefni til að s»ara. — Það hefði vist hvorki mér né öðrum dottið i hug, að fara að þrasa við Jón út af þvi, þó hann hefði sagt, að við og við hefði orðið skortur á einhverjum nauðsynjavörum hjá kaupmönnum hér og hvar á landinu; þetta er alkunnugt og mun vilja til alstaðar, þar sem verzlun er rekin, og einnig í þeim löndum, sem greiðari aðflutning hafa en Island hefir haft. En orð hans, þau er eg vitnaði til, verða eigi hugsanrétt Skilin á annan veg, en að hann hafi með þeim viljað segja, að hinir útlendu kaupmenn hafi af hreinni og beinni varmensku flutt til landsins gnægð af þvi, sem þeir vissu, að þjóðinni var skaðvænlegt, en sem minst af því, sem henni gat til gagns orðið. — Og fyrirætlun þeirra með þessu gat þá eigi önnur verið, en að eyðileggja þjóðina, enda jafnar Jón verzlunaraðferð þeirra saman við nýlenduverzlun Norðurálfu- þjóðanna, sem allir vita, af hvaða toga er spunnin. Hafi hugsun Jóns eigi verið þessi, þá vil eg gjarna játa, að eg hafi verið um of harðorður; en þá verð eg jafnframt að ráða honum ti), að hætta að rita fyrir al- menning, því hann brestur þá kunnáttu til að orða svo hugsanir sínar, að aðrir geti lagt þann skilning í orðin, sem hann ætlast til. Jón vill kannast við, að hann hefði eigi átt að láta allar útlendar verzlanir eiga ó- gkilið mál, eins og hann gerði. Hann hefði heidur átt að kannast við, að ummæli hans um kanpmennina yfir höfuð hafi verið ó- sæmileg. Þetta er hann sjálfur farinn að sjá nú, og hefði þá verið karlmannlegra, að gangast við því hreint og beint. Mér er ekkert strið i þvi, þó Jón sé ánægður með fyndni sina um »rang« kaup- manna (og faktora); hann nýtur liklega einsamall þeirrar ánægju. En um það þori eg að fullvissa hann, að »rang« hans sjálfs muni ekki hækka í áliti góðra manna við það, að rita sorpgreinar í blöð, hvort sem er um kauproenn eða aðra. Eg trúi því mjög vel, að Jón sleppi því, að fara í meiðyrðamál við mig, þótt honum hafi fundist eg koma við kaun sin. Eg er mjög hræddur um, að honnm mundi ganga illa, að sanna rétt sinn til að vera sakar- aðili, úr því hann vill eigi annað en eiga að öllu sammerkt við tuttugasta eða þrí- tugasta hvern karlmann á landinu. Yfir rithætti mínum hefir hann engan rétt til að kvarta, því »som man raaber i Skoven, faar man Svar«. Yopnafirði, 18. júli 1900. 0. F. Daviðsson. Stjórnfræðileg vísindamenska Yísmdarit þeirra síra Jóns Bjarna- sonar (og þorbjargar Sveinsdóttur) um stjórnarmál vort e r komið út, þrátt fyrir mótmæli nánustu aðstandenda hinna helztu. Ekki er það neinar ýkjur, þó að sagt sé, að það sé einstakt í sinni sinni röð. Alveg einstök vitleysa, jafnt efnið sem orðalagið. Fyrri hlutinn er »um ríkisráðssetu Islandsráðgjafans«. Alt á að vera undir því komið, að ná ráðgjafanum úr ríkisráðinu. Eitthvað grillir höf. í það, að það kunní nú að verða örð- ugt. En svo kann hann eitt óbrigð- ult ráð: að leggja málið undir utan- ríkis-stjórnfræðinga! Hann hefir auð- sjáanlega heyrt, að einstaka sinnum takist að fá deilumál meðal sjálfstæðra ríkja lögð í gerð. Og þess vegna getur honum ekki hugkvæmst, að nein fyrirstaða verði á því, að fá lögð undir úrskurð utanríkismanna vafa-at- riði í stjórnarskrá íslands, þessa »ó- aðskiljanlega hluta Danaveldis* — veit auðvitað ekki það, að annað eins hefir aldrei komið fyrir í mannkyns- sögunni, og að Bretar þvertóku jafn- vel fyrir að leggja deilu sína við Búa undir gerðardóm utanríkismanna, af því að Transvaal var að örlitlu leyti inni á valdsviði þeirra samkvæmt samningum, en Transvaal annars að öllu leyti sjálfstætt r/ki. Auðvitað getur ekki komið til nokk- urra mála að eltast við allar vitleys- urnar í þessum ritlingi, því hann er ein allsherjar-vitleysa frá upphafi til enda. En rétt til smekkbætis skal á það bent, að þegar höf. fer að skrifa um »valtýskuna«, heldur hann, að aðalat- riði hennar, sé það, að nema burtu 1. gr. stjórnarskrárinnar, sem engum lifandi manni hefir dottið í hug að hreyfa við að minsta leyti. Gegn þeirri óhæfu, sem hvergi er til nema í ímyndun sjálfs hans, ritar h'ann langt mál. Ósagt skal látið, hvort hér gegnir meiri furðu: jafn-botnlaus f á f r æ ð i, eftir að hann hefir verið að gaspra um málið árum saman af hinni mestu ofstæki í ræðum og ritum, eða bí- r æ f n i n, að vera að rita um málið og þykjast fræða almenning, án þess að láta sér hugkvæmast að afla sér minstu hugmyndar um það, sem hann er að dæma. Baunalega mikið er til af þessum galla hjá þjóð vorri, þessum taum- lausa ótrauðleik til að dæma um alla skapaða hluti, án minstu viðleitni við að gera sér ljósa grein fyrir málavöxt- um. En ekki minnumst vér þess, að hafa nokkurstaðar séð þetta koma fram jafn-ófrýnilega eins og hjá þess- um aldurhnigna sálnahirði, sem hefir Iátið fylla sig af allriþessari heimsku. J>ó eru 1 j ó ð i n í ritlingnum átak- anlegust af öllu. |>ví að svo mikið er höf. niðri fyrir, að hann kemst ekki af með sundurlaust mál, og kyrj- ar upp lofsálm um Ben. heitinn Sveins- son, innan um stjórnmála-röksemda- færsluna. Vesalings Benedikt — að verða fyrir slíkum leiraustri í gröfinni! Ekki er syni hans láandi, þó að hann hryllí við ósköpunum. þetta er niðurlagið á sálminum: •Sending mögnuð í Svarins hangi úr ormagarði ills valdandi, myrkra anda ámátligstu myndum ófrœgðu mærings andlát. Á hjarðauðgum mörkum hungur- morða, refir og úlfar ýlfra líksöng og hlakka yfir hirðisvana, sauðablóði og sætum mörvum.« Lengra hefir leirburðurinn fráleitt komÍ8t á þessu landi. Efnið í ljóð- unum annars það, að bera saman Benedikt heitinn og Epaminondas þebukappa! Alt er sameiginlegt með þeim Benedikt og Epaminondas, eftir því sem skáldinu segist frá — nema hvað vafi leikur á því, hvort Epamin- ondas hafi átt nokkura systur, nokk- ura þorbjörgu fyrir systur! Eftirmæli. Merkisbóndinn Ásbjörn Ólafs- s o n í Innri-Njarðvík andaðist þann 5. f. m. (ágúst), Hann var fæddur 30. ágúst 1832. Faðir hans bjó búi sínu í Innri-Njarð- vík, en gegndi á sumrum bókhaldara- störfum í Keflavík. Móðir Ásbjarnar sál., Helga Árnadóttir, var ættuð vest- an frá Reykhólum, var í ætt við Árna biskup Helgason. þegar Ásbjörn var 6 ára gamall, misti hann föður sinn; ólst hann þá upp hjá móður sinni í Innri-Njarðvík, unz hanu tók þar við búi, og keypti hann smásaman jörð þá, er hann bjó á alla ævi sína og gerði að höf- uðbóli með dugnaði sínum og fram- sýni; hélt þar rausnarbúi til dauðadags. Skömmu.eftir að hann hafði sezt að búi í Njarðvík reif hann niður torfkirkju þá, sem þar var, og reisti í hennar stað veglega steinkirkju. Voru þá örfáar timburkirkjur í pró- fastsdæminu, og þótti þetta mikið í ráðið af honum, ungum frumbýling. Seinna, um 1886, er honum þótti sú timburkirkja fornfáleg orðin, réðst hann í að rífa hana og gera þar stein- kirkju í staðinn. Lét þá illa í ári, og var erfitt að fá fé til láns, og lá við sjálft, að hætta yrðí við verkið hálfbúið, en þá kom það fram sem oftar, að eftir því sem erfiðleikarnir uxu, óx Ásbirni dugur og kjarkur, og fyrir ótrauða acorku hans komst kirkjan upp, sterk og vönduð, úr höggnu grjóti með helluþaki. f>ótt sveitungar hans legðu einnig lið sitt til kirkjugerðar þessarar, þá var það atorku Ásbjarnar að þakka, að hún komst upp, og hið langmesta fjárfram- lag kirkjunni til handa kom frá Ás- bjarnar hendi, og seinna meir gaf hann henni stórfé úr sínum vasa. Barnaskólahús lét hann einnig reisa x hreppnum, og er hið sama um það að segja og kirkjuna. Ásbjörn var frumkvöðull að því, og hinn lang- drýgsti í fjárframlögum til þess. f>egar hann var 22 ára gamall, var hann fyrst settur hreppstjóri, og að undanteknum fáum árum gegndi hann síðan hreppstjórastörfum öll sín ævi- ár til dauðadags. Sýslunefndarmaður var hann lð ár. Síðan er Njarðvík- urhreppur varð sáttaumdæmi fyrir sig, var hann þar sáttasemjari. Ollum þessum störfum gegndi hann með frá- bærum dugnaði og lipurleik. En auk þessa lögðust á herðar Ás- bjarnar ótal önnur störf í þarfir hrepps- búa hans, þvf í hvert skifti og eitt- hvert vandamál bar að höndum, eða ef þeir komust í einhverjar kröggur^ þá var sjálfsagt að leita Ásbjarnar; þar var skjólið, og aldrei bar nokkur þeirra svo upp vandkvæði sín við hann, að hann hjálpaði ekki, anuaðhvort með ráði eða dáð, og oft með hvoru- tveggja. Og nú undanfarin ár, þegar ellin hefir farið að heimsækja Ásbjörn hefir það verið alment að heyra Njarð- víkinga segja: »Ekki veit eg, hvernig fer um okkar hrepp þegar Ásbjörn fellur frá«. Nú er það orðið; og horfur hrepps- ins eru ekki vænlegar. Máttartréð er brotið. Á jörð sinni reisti hann stórt og vandað íbúðarhús, og var hann og kona hans samhent 1 því, að taka rausnarlega við gestum þeim, sem að garði þeirra bar, og voru þeir margir. Fjárhöld þau fyrir ekkjur og ónxynd- uga, sem Ásbjörn hafði á hendi, voru 24 að tölu. Tvö munaðarlaus börn ólu þau hjón upp. Hinn 1. nóvember 1862 gekk hanu að eiga eftirlifandi konu sína, Ingveldi Jafetsdóttur,Einarssonar Johnsen, bróð- urdóttur þeirra Guðmundar heit. próf. Johnsen í Arnarbæli og Olafs heit. próf. Johnsen á Stað á Reykjanesi; eignuðust þau 11 börn, og lifa aðeins 4 þeirra, tveir synir og tvær dætur. Konu sinni var hann hinn ástríkasti maki, og börnum sínum hinn um- hyggjusamasti faðir. þótt harmurinn sé því sárari, sem nær er skorið, og söknuður ekkjunnar og barna hans sé því næmastur, þá syrgir hann einn- ig öll hans sveit, og allir, sem þektu hann. Hans sess er ekki auðfyltur. Lítil útsjón til að hann fyllist í bráð. f>rátt fyrir sín mörgu störf hlaut Ásbjörn sál. aldrei nein heiðursmerki. En það rýrði ekki hans veg. það vis8u allir, sem þektu hann, að hann átti slíkt skilið tífalt fremur en marg- ir aðrir, sem það hlutu. Hans ævi- starf og minning þess lifir lengur, og er honum meiri sómi en þótt honum um nokkur ár hefði verið léður kross til að bera, er að honum látnum hefði átt að skila aftur til þess að hengjast á einhvern annan. Hinn 18. júli þ. á lézt sómakonan Elsa Dóróthea þórðardóttir í Vik í Mýrdal, 75 ára gömul, fædd 6. júlí 1825 á Felli þar í sveit. Foreldr- ar hennar voru merkishjónin jpórður Brynjólfsson prófastur í Vestur-Skafta- fellssýslu og prestur Sólheima- og Reynisþinga, og Solveig Sveinsdóttir* síðasta kona hans. Nálægt 28 ára gömul giftist Elsa sál. atorkumannmum Gunnlaugi Arn- oddssyni. þau bvrjuðu þegar búskap í Vík og bjuggu þar rausnarbúi miklu 30 ár, til þess er Gunnl. dó, 1883; lét hún þá af búskap og var síðan hjá dóttur sinni Ragnhildi til dauða- dags Fimm barna varð þeim hjónum auð- ið; þar af dóu 4 í æsku, en eitt lifir.. Ragnhildur kona f>orsteins hreppstjóra Jónssonar í Vík, ágæt kona og líkleg til þess, að ganga í spor móður sinn- ar. Elsa sál. mun hafa tekið flestum samtíðarkonum sínum hér fram, og ber margt til þess. Húu var af góðum ættum komin og mun hafa hlotið allmikinn siðmenn- ingaranda að erfð frá foreldrunum, enda kunnað sjálf mjög vel með að fara. Hún var ágætlega greind og hyggin vel; stjórnaði búinu fyrirmyndarlega, að almanna rómi. Hún var einbeitt og frjáls í skoð- unum; mun því hafa valið sér leiðina sjálf fremur en að hlíta nokkuru handa-

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.