Ísafold - 27.10.1900, Page 3

Ísafold - 27.10.1900, Page 3
2U3 ert öðruvísi né meiri en við er að bú- ast, jafn-mikil og einangrunin er hér á landi, jafn-veik og þekkingarundir- staða sú er, sem lögð er hjá æskulýðn- um, og jafn-Iátlaus sem sú viðleitni sumra blaðanna er að Ieiða hana af vega. Hitt er furðanlegra, hve það sam- vizkuleysi bersýnilega er að færast út, verða almennara og almennara, að færa sér fáfræðina í nyt í hinum fylsta mæli og treysta á hanaeina til sigurs sínu máli. Hér er sýnilega um að ræða mikla spillingu, sem óðum er að færast í vöxt og þjóð vorri stendur hinn mesti voði af. |>ó að miklu meira verði að hafst en nokkur von er um, til þess að berjast gegn fáfræðinni, hlýtur út- rýming hennar að eiga langt í land. |>eir hafa þá góðan tíma fyrir sér, sem sjá sér hag í að leiða þjóðina af- vega. Eina ráðið, sem að haldi getur komið að sinni, virðist vera það, að góðviljaðir og vandaðir menn, sem á einhvern hátt hafa notið meiri ment- unar en hinn fáfróðari hluti þjóðar- innar hefir átt kost á, láti meira að sér kveða en að undanförnu, geri sér að skyldu að standa hvarvetna af fremsta megni á verði gegn blekking- unum, í hverri mynd sem þær koma fram. Um þingkosningru Snæfellinga er »f>jóðviljanum« skrif- að meðal annars: »Eg þarf eigi að taka það fram, hve afar-óánægðir menn eru hér með kosninguna, og það ekki sízt mjög margir þeirra, er Lárus k u s u. Að minsta kosti sá eg einn bóndann tárfellaútafþví, að hafave'riðneyddurtil þess að kjósa Lárus, eftir að hann á kjörfundinum hafði lýst því yfir, að hann væri mótfallinn öllum helztu framfaramálum landsinsi. Frá ræðu þeirri, er sýslumaður Snæfellinga flutti sem oddvíti kjör- stjórnarinnar, skýrir sami bréfritari á þessa leið: •Aðal-inntakið í fundarsetningarræðu kjörstjórans var þetta: Nú skiftist þjóðin í tvo flokku. í öðrum flokkn- um eru þeir, sem vilja eyðileggja landið, sóa fjármunum þess í fóglæfra- fyrirtæki og fieka menn af landi burt með Vesturheimsgyllingum. En í hin- um flokknum (skrifstofuvaldsþjónanna) eru þeir, sem vilja landinu alt hið bezta!« Frásögn þessa brófritara hefði ekki getað komið öllu betur heim við það, er sagt hefir verið í ísafold af þessari einstöku kjörstjóraræðu, þó að sögu- menn hefðu borið sig saman um, hvað skrifa skyldi. En því fer svo fjarri, að ísafold er með öllu ókunnugt, hver »|>jóðviljanum« hefir skrifað þessar fréttir. Um atvikin að því, að gufuskips- ferð sú brást, er kjósendur undan Jökli og í Eyrarsveit treystu á, skrif- ar hr.Björn Signrðsson ritstjóra »J>jóðv.« á þessa leið: »|>að tókst hrapallega til með kjós- endaflutninginn úr Olafsvík; hafði eg lofað að leigja þeim s.s. »Dania«; en svo kom þetta voðalega veður 20. sept. »Dama« lá þá bér (á Patreks- firði) og fór að hjálpa skipi, sem var að reka hér á land, en við það flækt- ist kaðall í skrúfu skipsins; lá við að skipið ræki á land; náðist hann ekki fyr en seinni part dags 21. sept. — með því að taka skipið á land —; var þá eftir að taka kol m. m., svo að ekki þótti viðlit að fara til Ólafs- víkur svo seint«. Lögtak oíí k.jörfylgri. Bkrifað er ísafold af Snæfellsnesi 9. þ. m.: •Getspakur hefir »þjóðviljinu orðið, þegar hann gat þess cil, að sýslumað- ur Snæfellinga »mundi líðanlegur með þinggjöld fram yfir kosningarnar«, því að ekki hafa lögtaksskipanir á þeim birzt — fyr en nú, er kosningin er um garð gengin*. Augniæknir Björn Óiafsson meiddi sig hér fyrir nokkurum dög- um — datt ofan af bæjarbryggjunni, fulla mannhæð, var að víkja sér und- an vagni, kom standandi niður, en hælbeinsbrotnaði. Búist við að hann verði 6 vikna tíma að gróa til fulls. Ölæðisslys. Maður druknaði hér í bænum fyrir skömmu í ölvunaróráði, Björn að nafni Jakobsson, roskinn að aldri, ættaður úr Selvogi. Hann var stadd- ur um kveld í geymsluhúsi einnar verzlunar hór í bænum, dauðadrukk- inn, og því fenginn piltur til að fylgja honum heim til sín. Piltur brá sér inn aftur, til að vitja einhvers bögguls, er hann hafði gleymt; en á meðan hvarf maðurinn, og var hans leitað 3 daga. Hatturinn af honum fanst á 2. degi nál. bæjarbryggjunni, en lík mannsins eftir 3 daga, 23. þ. m., sjórekið hjá Kríusteini. Um geðveikraspítalann fyrirhugaða, sem ónefnt fremdar- málgagn vissi ekkert um fyr en ísa- fold hafði frætt það um það mál, þylur það nú langa romsu til leiðréttingar frá- sögn vorri, að það svo kallar, og kveðst hafa hana eftir landlækni, ér fengið hafi bréf um það einhvern tíma snemma í sumar frá kand. Schierbeck, og vit- anlega er um þessar mundir einkar- ant um ísafold og öll hennar orð og gjörðir; þarf að koma því að um leið, að hann (landl.) eigi þessa hugmynd um geðveikraspítalastofnun hér! En að svo miklu leyti sem nokkuð veru- legt í milli ber frásagnar vorrar og áminsts málgagns, þá er óvísr að svo stöddu, hvors heimildir reynast betur; það mun vitnast á sínum tíma. Gufub. Reykjavlk, kapt. Waardahl, fór héðan heim leiðis til Norvegs 22. m. f>ví miður mjög óvíst talið, að hún komi aftur, til ferða hér um flóann næsta sumar, vegna þess, að styrkurinn til þeirra ferða var færður niður á siðasta þingi; og væri það illa farið. f>ví báturinn reyndist mæta-vel alla tíð, og eins þeir formaður hans og afgreiðslum. (B. Guðmund8son timbursali): mjög ólík- legt, að skift verði um til bóta, en hitt enn lakara þó, ef gufubátsferðir þessar leggjast alveg niður næsta sumar. Raflýsing JEleykjavíkur er komin á dagskrá hór aftur, eftir langa þögn síðan er Frím. B. Ander- son var að flytja það mál hér í blöð- unam m. m. f>að er þýzkt raf- magnsfélag 1 Kíl, er gert hefir fyrir milligöngu Eyólfs úrsmiðs f>orkelsson- ar áætlun um, að kosta mundi 20,000 kr. að ná raflýsingar-aflinu hingað ofan úr Varmá, að meðtöldum vólaútbúnaði þar. En þá er ótalin miðstöð hér og aflþræðirnir út um bæinn með öðrum útbúnaði hér. fætta er miðað við 100 hesta afl, er framleitt getur 14—1500 lampá ljós (16 kerta hvert). Hr. E. f>., gizkar á, að efnið í miðstöðvarútbúnaðinn hér mundi kosta um 10,000 kr., auk húsnæðis- ins, og 12,000 kr. hitt, að dreifa lýs- ingaraflinu út um bæinn. En um 175 hesta aíi telur hann þurfa mundi til að (ramleiða 2000 lampa ljós, sem eigi muni af veita fyrir bæ- inn, og hyggur hann þá allan kostn- aðinn ekki þurfa að fara fram úr 100,000 kr., — margt ótalið hér að framan sem sé. Með 15% af til- kostnaði í tskjur telur hann fyrirtæk- ið mundu geta staðist, og ætti eftir því straumurinn í hvern lampa að kosta að eins 1 eyri um klukkustund- ina. Málið kornið fyrir bæjarstjórn hér og nefnd sett þar að íhuga það. Um þingmálafundinn í Vík 26. ágúst, eða hvað sem á að kalla hana þá samkomu, hefir við- staddur maður mikið skilorður og merkur í alla staði skýrt oss ólíkt frá því, er »X« flutti í afturhaldsmálgagn- mu í haust og þeir tveir fylgifiskar dr. J. færkelssonar herma, er standa undir auglýsingu þar að lútandi hór í blað- inu. Hann kvað atkvæðagreiðslu hafa verið mjög ógreinilega, fjölda fundar- manna alls eigi hafa greitt atkvæði,og fortók alveg, að nein atkvæðagreiðsla hefði fram farið um það, hvorn þeirra kjósa skyldi heldur á þing, er fundar- menn vissu að f boði mundi vera, Guðl. sýslumann eða dr. J. f>. Mannslát. Hér lézt í gærmorgun eftir lang- vinn&n lasleík (brjóstveiki) E y þ ó r kaupmaður F e I i x s o n, rúml. sjötug- ur (f. 20. maí 1830). Hann var vest- firzkur að uppruna, var á yngri árum póstur vestra, orðlagður fyrir vaskleib, enda karlmenni að burðum og fylginn sér. Hiugað til bæjarins fluttist hann fyrir meira en 30 árum, var framan af nokkur ár við verzlun M. Smiths konsúls og þá í lausakaupaferðum fyr- ir hann á sumrum, en fór síðan að eiga með sig sjálfur, fyrir nál. 20 ár- um, gekk upp um hríð og rak hér töluverða verzlun síðari árin, auk þess sem hann hafði útibú uppi í Straum- firði, — þar til í fyrra, er hann varð gjaldþrota. Hann var ráðdeildarmað- ur og áreiðanlegur í viðskiftum, fastuiví lund, tryggur og vinfastur. Með fyrri konu sinni, Kristínu Pálsdóttur prests Grímssonar frá Helgafelli, átti hann nokkur börn, er upp komust, og er eitt þeirra Ásgeir kaupmaður í Straum- firði. — Jarðarför 2. nóv. Veðrátta. Veturinn byrjar í dag á fögru hrein- viðri og heiðskíru, með dálitlu f.rosti. En stormar og hrakviðristíð síðustu vikurnar af sumrinu. Póstgufuskip Laura, kapt. Christiansen, lagði á stað í morgun til Skotlands og Khafnar. Meðal örfárra farþega var Guðm. Ól- sen verzlunarstjóri. Gufuskip Vendsyssel kapt. Kiær, lagði af stað héðan til Englands og Spánar á helginni sem leið, með fullfermi af saltfiski héðan og af Vestfjörðum. Botnvörpungar nyrðra. Skrifað er ísafold úr Húnavatnssýslu 6. þ. mán.: »þ>að þykir okkur einkennilegt af- skiftaleysi af sýslumanni, að hann lætur botnvörpunga liggja í friði 4—5 saman og ausa upp aflanum lengst inn með Vatnsnesi, víst fáa faðma frá landi. þeir eru búnir að hafast þar við á aðra viku, ef ekki lengur, alveg óáreictir. En Blönduósmenn eru farnir að sækja afla til þeirra, hleðslu fyrir 2 flöskur af whisky. Heyrst hefir, að Vatnsnesingar hafi 3ent til sýslumanns, en hann engu skeytt því. f>ó þori eg ekki að fullyrða það«. Vendetta. Eftir Archibald Claveríng Gunter. »Eg tek drottinn til vitnis — —• • Segið þér satt! Segið þér satt!« »Gott og vel — eg skal gera það, fyrst þér neyðið mig til þess. Tómassó Mónalid, fóstri Antóníós heitins, hefir komist að því í kvöld, að maðurinn, sem drap bróður yðar, Antóníó Paoli, var núverandi eiginmaður yðar, Edvin Gerard Anstruther!* Hafi Danella verið þyrstur í hefnd, þá hefir hann nú fengið þeim þorsta svalað. Marfna líður ekki í öngvit — þftð hefði verið hepni fyrir hana, ef svo hefði farið, og þá hefði slegið í bak- Begl fyrir Danellu með fyrirætlanir hans — en óstyrkur kemur á hana, hún þrífur í borð, sem er nálægt henni, styður sig við það og segir stamandi: »Nei, nei! drottinn er miskunnsam- ur! Edvin, maðurinn minn — það getur ekki verið! Eg trúi yður ekki«. •Trúirðu því ekki, Marína? það er eins satt og guðspjöllin«, tautar Tó- massó fyrir munni sér. »Eg verð að fá að vita það, áður en hann kemur--------Sannið þér þetta greifi! Flýtið þér yður, áður en eg missi vitið og skil yður ekki lengur«. Brúðarherbergið verður nú að písla- klefa; þar heyrist ekki annað en hvísl, krampakendar stunur og sorgar- og kvalaóp. þjámngarnar, sem Danella veldur Marinu, meðan hann er að sanna henni, að hann hafi sagt satt, eru alveg hræðilegar. »Eg var hræddur um þetta«, segir hann, »og er við því búinn. »Lítið þér nú — hér er vottorð frá ensku sjóliðBStjórninni í Gibraltar, sem sýnir, að Anstruther var farþegi á »Erninum« þennan óhapp&morgun í Ajaceio*. »Já, það var hann«, segir hún með öndina í hálsinum, en bætír svo við með tortrygniskeim í röddinni: »En þar með er það ekki sannað, að hann hann hafi drepið Antóníó«. •Lítið þér þá á þessa muni, sem við tókum úr ferðapokanum hans, þegar hann datt á gólfið og bilaði«, svarar greifinn og yptir öxlum; jafnframt sýnir hann henni silfurpening; blýkúla er föst við hann og hefir orðið íflöt. • Skoðið þér, hérna er auðnupeningur- inn, sem bjargaði Gerard yðar«. »Og kúla bróður míns er enn föBt við hann«, segir Marína stamandi. »En hún getur líka verið frá einhverri annari deilu — og svo getur verið að þér hafið alls ekki fundið hana í poka Gerards. Haldið þér, að það verði hægðarleikur fyrir yður að telja mér trú um annað eins og þetta?« *Eg tók hana sjálfur úr poka morð- ingjans. Og þú, Marína, þú ert að verja þetta þrælmenni? |>ú — sem ert af Paoli-ættinni?« æpir Tómassó eins og æóisgenginn. Hún svarar engu. Hún veit, að þetta er satt — Tómassó lýgur aldrei. •Fleiri sannanir!« segir hún stynj- andi. »Hér er sandur af sönnunnm!«svar- ar Mússó hróðugur; nú fer meinfýsin að sjást gegnum hræsnisblæjuna. »Lít- ið þér á skammbyssuna þá arna — hún er alveg eins og skammbyssan, sem klofnaði í höndunum á bróður yðar á þeirri stund, sem hann fekk

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.