Ísafold - 17.11.1900, Blaðsíða 3
279
svo enda á hugleiðingar BÍnar með
þessu eina, kuldalega orði: tafir.
Eu með því að það getur ekki ver-
ið, að öll veröldin sé á ringulreið,
þar sem framfarir vísindanna, vits-
munanna og iðnaðarins hrúgast stöð-
ugt saman, færast út og itukast við
áhrifin, sem þær verða fyrir hverjar
af öðrum, með því að þrátt fyrir alt,
þrátt fyrir þjóðakúgun og stéttakúgun
og trúarbragðaofsóknir og þaulpynd-
ingar allra sjálfstæðra afburðamanna,
jafnvel þrátt fyrir það, að menn eru
drepnir hundruðum þúsunda saman
hjá umkomulau8ti þjóð — með því
að ekki getur samt hjá því farið, að
veröldinni þoki eitthvað áfram, þá
hljóta manni að renna mjög sárt til
rifja hin voðalegu tímaspjöll, hinar
óhemjulegu tafir i framfararás mann-
kynsins, er trúarkreddum háðir ein-
valdshöfðingjar og illa að sér koma
til leiðar, hvort sern þar 4 hlut að
máli morðinginn rauði suður frá, eða
keisarinn hvíti norður frá, eða kon-
ungar á ofurlitlum veldisstólum, eða
mannvæflur í enn smág^rðari ráðherra
sætum«.
Dr. Hans Kaarsberg sá, er dr. G.
Br. vitnar til í grein þessari, hefir
ferðast nýlega austur um Rússland
eunnanvert og Litlu-Asíu. Hann seg-
ist hafa fengið áreiðanlega vitneskju
um það, er hann dvaldist í Kákasíu í
fyrra haust, að mergðarvígin tyrk-
nesku í Armeníu nemi miklu meiru
en 300,000; þau séu löngu komin á
aðra miljón! Tyrkir séu langt
komnir að uppræt.a þjóðina alveg.
Hann segir, að eftir því sem hann
hafi komist næst, þá stafi þessar ó-
hemju ofsóknir ekki eingöngu eða ekki
nánast af trúarhatri. |>ar eru, segir
hann, þ. e. í Armeníu, margir kristn-
ir menn aðrir en af ermsku kyni; en
þeim er ekkert mein gert, heldur Arm-
eningum einum. Hann heldur, að að-
alundirrót ofsóknanna sé aí hálfu
Tyrkjasoldáns sú, að hann sé hálfbrjál-
aður af hræðslu við ermska hefnend-
ur, — samfara ágirnd Tyrkja og Kúrda
í eigur Armena. Og sömu dagana,
sem fréttir bárust a£ nýjum mergðar-
vígum í Armeníu, fekk þessi uýi Cara-
calla, Abdul Hamid Tyrkjasoldán, af-
mælishamingjuóskir frá ýmsum þjóð-
höfðingjum álfu vorrar!
Bæjarstjórn Reykjavíkur.
Gerst hefir á síðustu fundum það
helzt, er hér segir:
Bæjarstjórnin afsalar sér forkaups-
rétti á túni ekkju Einars heit. snikk-
ara, Ingibjargar Jóhannsdóttur, er
hún hafði Belt C. Frederiksen bakara
mestalt eða 6000 ferh. álnir fyrir
1000 kr., en þeim Hirti Hjartarsyni,
Jóni G. Sigurðssyni og Helga Jóns-
syni 6—700 ferh.álnir hverjum fyrir 25
a. hverja ferh.alin
Nefnd í málinu um raflýsing bæjar-
ins lagði til, að útvegaðar væri ýmsar
frekari skýringar þar að lútandi frá
hinu þýzka félagi, er E. þorkelsson
úrsmiður hefir milligöngu fyrir og fá
frá því nánari áætlun um kostnaðinn;
sömul. skyldi grenslast eftir, hvort
Elliðaárnar eða Varmá mundu fást til
afnota í þessu skym og með hverjum
kostum. Bæjarstjórnin félst á þetta
og fól nefndinni að gera það, sem hún
lagði til.
Bæjarstjórnin samþykti á síðasta
fundi tillögu frá nefnd í málinu um
breyting á lögreglusamþykt bæjarins
viðvíkjandi loftrúmi í kenslustofum
privatbarnakennara og áhöldum, er
kenslunni skuli fylgja fylgja m. m.,
alt undir eftirliti skólauefndarinnar.
Eftir uppástungu skólanefndar sam*
þykti bæjarstjórnin að greiða tíma*
kennurum við barnaskólann uppbót.
fyrir kaupmissi vegna þess, að kensla
byrjaði eigi fyr eu 1. nóvbr.
Landshöfð. getur eigi lánað bæjar-
stjórninni landsvegfræéinginn um
tíma að sumri, eins og hún hafði farið
fram á.
Samkvæmt fjárhagsáœtlun bæjar-
stjórnarinnar hefir bæjarsjóður 46,900
kr. kostnað Dæsta á.r (1901). þar af
fara ómagar og þurfamenn með lá1/^
þús., barnaskóhnn með 9 þirs., vextir og
afborganir af láninu 6J/2 þús., vega-
bætur 4 þús., löggæzla uær þús.
Aðaltekjuliðurinn eru aukaútsvörin
rúm 30 þús.; þá lóðargjald 61/;, þús.
þessar brunabótavirðingar á nýjum
íbúð&rhúsum hefir bæjarstj. samþ. frá
því í sumar, er síðast segir frá í ísa
fold — húsin kend við eigendurna:
1. Jóns Sveinssonar húsa- kr.
smiðs, sunnan við kirkjuna
með skúrum og geymsluhúsi 32,860
2. Jóns Jakobssonar forn-
gripavarðar í þingholtsræti 12,920
3. Einars Helgasonar garð-
fræðings og kand. Einars
Gunnarssonar við Laufásveg 10,635
4. Ekkjufrú L. Pinnbogason
hjá Doktorshúsi, ásamt
geymsiuhúsi ................ 10,163
5. Jóns Eyólfssonar kaup-
manns við Laugaveg ........... 7,830
6. þórðar Péturssonar við
Framnesveg ................... 4,315
7. Guðmundar Magnússon-
ar í Bergstaðastræti.......... 3,880
8. Samúels Guðmundssonar
við Laugaveg.................. 3,590
9. Elínar Erlendsdóttur á
Vatnsstíg..................... 3,519
10. Sigurjóns Guðmunds-
sonar í Hverfisgötu .......... 3,450
11. Finnboga Árnasouar
við Laugaveg.................. 2,525
12. Guðna Egilssonar við
Framnesveg ................... 2,498
13. Runólfs og Kristins
Guðmundssoua við Hverfis-
götu.......................... 2,300
14. Sigurðar Guðmundsson-
ar við Bræðraborgarstíg ...... 1,885
Tveir nýir bæir hafa verið teknir 1
brunaábyrgð á þessu tímabili: Magn-
úsar Magnússonar í Hverfisg. 1075 kr.
bg Guðmundar Einarssonar í Skólabæ
745 kr.
Loks þessi geymsluhús:
1. Verzlunarinnar Nýhöfn í kr.
Hafnarstræti ................. 7,000
2. Th. Thorsteinssons kaup-
raauns á Kirkjusandi (fiskig.
hús) ......................... 4,900
3. Frederiksens (Mandal)
við Kalkofnsveg............... 4,000
4. Sturlu Jóussonar, kaupm.
Laugaveg ..................... 3,920
5. Matth. Matthíassonar,
Skólav.stíg .................. 3,200
6. Jóns þórðarsonar kaup-
manns, Móakotslóð ............ 3,150
7. Vilhjálms Bjarnarsonar,
Rauðará ...................... 2,480
8. Sigfúsar Eymundssonar,
Lækjarg......................... 500
Við ísafjarðardjúp, 20. okt.
Tíð rosasöm til lands og sjávar, skiftir
sjaldan nema i tvö horn, að annaðhvort er
stillilogn, eða ofsarok, af hvaöa átt sem
hlas. Hér i plássi hafa þó tiltölulega litl-
ir skaðar orðið i öllum þeim rokviðrum,
sem yfir hafa dunið.
Þá sjaldan er gefur a sjó, er fiskiafli hér
á Miðdjúpinu allgóður, á skelheitu, en ann-
ars ekki. Kolkrahbafengur í haust sama
sem enginn og sild ekki heldur, þar til nú
að hennar er orðið vart i net á Skötufirði.
Heilbrigðisústandið mun vera i hetra lagi.
Heyfengur fólks i góðu meðallagi, þó
vætusamt væri seinni hluta sumarsins.
Skurðarfé reynst betur á skrokk en mör.
Sláturverð á ísafirði i hærra lagi, þvi f júr-
rekstrar þangað hafa orðið minni en að
undanförnu. Fjárheimtur hafa vist orðið
viðunanlegar, og er þó sannast að segja,
að fjall- og fjárskil ern ekki i sem beztri
reglu í sýslunni á sumum stöðum.
Fremur háglega hefir viða tekist til
með alþingiskosningarnar i haust, þótt
tólfunum kasti i Snæfellsnessýslu og Ár-
nessýslu. Þær kosningar setja heldur mik-
inn blett á íbúa þeirra sýslna, meiri hlut-
ann, og sýna of ljóslega þroskaleysi kjós-
enda i stjórnmálum Svo er að sjá af
hinni snildarlegu lýsingu af kjörfundi þeirra
Snæfellinga, að ekki hafi »pardusinn breytt
sínum flekkjum eða Ijónið sinni húð«, þar
scm Lárus.á hlut að máli, við það er
menn þekkja hér frá l'yrri tíð. Það væri
annars óskandi, að þingið yrði leyst npp,
og efnt til nýrra kosninga, þvi }>á er von-
andi, að þjóðin í suroum stöðum á landi
voru sýni hetur, að húu væri því vaxivi,
að kjósa sér fulltrúa til þings, en hún
hefir gjört í haust. Vart munu menn hér,
sem kjörfund sóttu, vefengja míkið frásögn
Þjóðviljans um kosniugarnar. Sannast mun-
að Hornstranda-þjóðviljinn hafi ráðið úr-
slitnuum.
Mannalát-
Hinn 1. þ. mán. anduðist að Kiðja-
bergi í Grímsnesi J ó n bóndi E i r í k s-
s o d frá Ármóti, fæddur 19. marz
1829 að Kampholti í Flóa. Foreldrar
hans voru Eiríkur dbrm. Helgason og
kona ha.ns Kristín Jónsdóttir í Kamp-
holti. Kvæntur var Jón heitinn Hólm-
fríði Árnadóttur, dbrm. Magnússonar
í Ármóti, sem hann bjó saman við
í ástúðlegu hjónabandi, en misti fyrir
14 árum. Kona Árna Magnússonar
var Helga Jónsdóttir, umboðsmanns á
Ármóti. Jón heitinn tók við búi á
Ármóti eftir tengdaföður sinn og bjó
þar bezta búi, þangað til hann fyrir
3 árum hætti búskap. Börn eignuð-
ust þau hjón sjö, mistu 3 þeirra
í æsku, en 4 eru á lífi : Kristján lækn-
ir í Clinton í Bandaríkjunum; Hall-
dór, prestur að Reynivöllum; Sigurjón,
verzlunarm. á Stokkseyri; og Helga,
kona G. Zoega, dbrm. og kaupm. í
Reykjavík.
Maður féll útbyrðis af gufubátnum
Hólum á leið milli Vestmanneyja og
Reykjavíkur aðfaranótt 2. þ. mán. og
druknaði: Árni Finnsson, béðan
úr bænum, bróðir Finns Pinnssonar
skipstjóra.
Þilskipaviðkoman.
Komnar um þessa dagana bingað
tvær fiskiskúturnar ensku, þær er get-
ið var um daginn að keyptar hefðu
verið a Englandi í haust. Aðra kom
Hjalti Jónsson skipstjórí með, við 4.
mann, og hina Kristinn Magnússon
skipstjóri; sömul. við 4. mann. J>eir
voru 14—16 daga á leiðinni.
Póstskipið Vesta,
kapt. Holm, komst loks á stað 12.
þ. m. að kveldi, með fáeina farþega.
Fjárskaðar
hafa orðið um daginn í norðanbyln-
um, um fyrri helgi. Hann skall svo
snögglega á, en fé ókomið á gjöf:
Höfðu fundist 20 dauðar eftir á 1 bæ
f Kjós (Hækingsdal), og 14 á öðrum
á Kjalarnesi (Móum).
Skarlatssótt
&ð stinga scr niður vfðar og víðar.
Komst upp fyrir skömmu, að hún er
búin að vera um tíma á Gufunesi í Mos-
fellssveit — hafði leynst þar. jpað er
meinið, hve dæmalau3t tómlátir menn
eru og sérhliínír að vitja læknis. Og
ekki kvað vera enn farið að skifta sér
neitt af yfirvalds hálfu af hneykslis-
aðförunum í Grindavík í haust, er
sóttin kom þar upp. Má búast við,
að það glæði ekki árvekni almennings
við sóttina, er annað eins og,það hef-
ir engin laga-ábyrgðareftirköBt.
Síðdegisguðsþjónusta
á morgun í dómkirkjunni kl. 5 (J. H.)
Leikíélag Reykjavíkur
tók aftur til starfa sunnud. 11. þ.
m. og lék Skríl (eftir Th. Ovnr-
gkou), sem þótti góð skemtun í vor
gem leið og þykir enn. Félagið hefir
orðið fyrir þeim stórbagalega hnekki,
að allar leikkonur þær frá í fyrra,
sem giftar eru (S. J., St. G., þ. S.)
hafa tjáð sér ófært að leika f vetur
heilsunnar vegna, og er raunar furða,
að félagið skuli sarot hafa getað klof-
ið fram úr að halda áfram; orðið að
yrkja upp á nýjan stofn með kvenlið-
ið alt hér um bil. Ein stúlkan, sem
fengin hefir verið í staðinn, er ný-
komin til bæjarins; hún kvað hafa
þótt leika vel fyrir norðan, en ræður
sýnilega ekki við hlutverk það, er hún
hefir að sér tekið í þessum leik. Ung
kaupmannsdóttir hér úr bænum (frk.
G. Kr.) kom nú í fyrsta sinni fram á
leiksviðið og fórst það mikið laglega,
svo að líkindi eru til, að félagið fái þar
góðan styrk með tímanum. Sú sem
þriðju leikkonuua leysti af hólmi (frk.
þ. S.), lék raunar mætavel, enda er
leikvön orðin. Virðist því ætla von-
um framar að rætast m þessum örð-
uglaikum fyrir félaginu. B. J.
ITfirlýsing
Að gefnu tilefDÍ lýsi eg hér með
yfir því, að utmnæli síra Magnúsar
Helgasonar í 66.. tbl. ísafoldar þ. á.
um kjörfundaryfirlýsing raína í stjórn-
arskrármálinu er alveg rétt, enda mun
reynslan sýna á sínum tíma, að eg
fylli 8tjórnarbótarflokkinn.
Reykjavík 14. nóv. 1900.
Sigurður Simrðsson
(frá Langholti).
Undirrituð tekur að sér að prjóna
alls konar prjónles fyrir lágt verð.
Sigríður Hafliðadóttir.
Lindargötu nr. 16.
B ö g g u 11 með óhreinu taui tap-
aðist á leið í laugar. Skila má í hús
Jóns kaupm. Magnússouar.
f>ann 8. nóvember næsthðinn tap-
aðist úr Fossvogi grár hestur 8 vetra
mark: blaðstýft aftan hægra, aljárnað-
ur með flatskeifum; hvern er hitta
kann hest þennan bið eg að gjöra mér
viðvart sem fyrst.
Einholti Biskupstungum 9. nóv. 1900.
Jón Diðriksson-
lTleð því eg hef heyrt víða utan
úr bæ, að eg ætti að vera veikur af
skarlatssótt, vil eg tilkynna heiðruð-
um almenningi, að það er tilhæfulauB
ósannindi eins og meðfylgjandi vottorð
sannar.
Reykjavík 16. nóv. 1900.
Reinh. Anderson.
Veiki sú sem skraddari Reinb. And-
ersen hefir verið lasinn af nú um
tíma er ekki skarlatssótt; það vottaat
hér með.
Reykjavík 10. nóv. 1900.
Guðtn. Magnússon
læknir.
Það er vinsamleg bón
til allra þeirra er talað hafa um að
senda Ull og Ullartuskur með næsta
póstskipi til að vinna úr Fatatau
eða Kjólatau- að gjöra svo vel og
koma sendingunum sem fyrst til und-
irskrifaðs.
Reykjavík þingholtsstræti 8.
Valdemar Ottesen-
Laugardaginn 23. nóv. fer fram
hrossasmölun á Seltjarnarnarnesi og
verður haldið áfram á hverjum laug-
ardegi í vetur.
Fyrirskurðar-hnífapar befir
tapast í Vesturgötu. Skila má í af-
greiðslu ísaf.
Kebenhayn.
Agentur í Tran og andre islandske,
gronlandBke og færaiske Produkter fer
Danmark seges af
Olaf Ibsen
Gothersgade 3 Kobenhavn K.