Ísafold - 21.11.1900, Page 4
284
•Ammóníakið — fljótt!«
f>egar Enid fer út, horfir Barnes á
eftir henni og segir við sjálfan sig:
»Be7.t verður að stía henni frá þessu.
Guð má vita, hvort ekki bíður systur
Anstruthers svipuð hörmung eins og
sú, er konan hans hefir orðið fyrir«.
Hann lítur á Marínu. Hún liggur
fyrir framan hann hreyfingarlaus og
náföl. þjáningarsvipur er um munn-
inn á henni og varirnar titra við og
við veiklulega. Skelfingarsvipur kemur
á andlitið á honum ; því að á hvíta
brúðarkjólnum hennar sér hann blóð-
rauðan blett, og þegar hann fer að
gæta betur að, finnur hann annan
blettinn. Frá kjólnum verður honum
Iitið á gólfið og hann tautar fyrir
munni sér: »Blóð! Hún hefir blóð-
bletti á hálsinum og er þó ekki sár.
Hvaðan er þetta blóð þá? f>að hlýt-
ur að koma frá einhverju, sem er bak
við þessi dyratjöld!«
Hann stekkur upp til þess að fá að
vita vissu sína um þetta, en Enid
kemur aftur í sama bili, og hann þor-
ir ekki að byrja á rannsókninni með-
an hún er inni í herberginu; því að
hann óttast, að árangurinn af þeirri
rannsókn muni verða alt of raunaleg-
ur fyrir systur Edvins Anstruthers.
Jafnframt því sem hann brýtur heil-
ann um, hvernig hann eigi helet að
haga sér, reynir hann að vekja Mar-
ínu af óvitinu með þeim fáu ráðum,
sem hann hefir fyrir hendi.
Nokkurum mínútum síðar sjást á
andliti hennar metki þess, að hún só
að fá meðvitundina aftur. Hann rís
þá upp og segir við Enid:
•Enid mín góða, viltu gera mér
stóran greiða. Eg vil síður, að Mar-
ína fái að sjá þig strax eftir að hún
hefir fengið meðvitundina. Gerðu nú
svo vel að fara inn í herbergið þitt;
þér er óhætt að reiða þig á það, að
eg muni ekkert láta ógert, sem gert
verður, eins og nú stendur á«.
»f>ú ert hræddur við eitthvað?«
»Já, eg er hræddur við — vió áhrif-
in, sem það kunni að hafa á hana, ef
hún fær að sjá þig svona alt í einu«.
»Nei, nei, Burton, þér er órótt mfn
vegna. f>ig grunar, að eitthvað ilt
hafi hent bróður minn. Heldurðu þá,
að óvissan verði mér léttbærari en
vissan ? Hvers vegna stendurðu alt
af milli mín og þessara dyratjalda?
Eitthvað voðalegt hefir gerst bak við
þau! Eitthvað, sem þú hefir komist
að, meðan eg veik mér frá — eitthvað,
sem þú þorir ekki að — —«
Alt í einu rekur Enid í vörðurnar
og hljóðar upp yfir sig ; því að Mar-
ína er sezt upp og tautar fyrir munni
sér eins og óráð sé á henni: »Brúður
og ekkja! Brúður og ekkja!* og slær
saman höndum í örvænting sinni.
Enid ætlar að hlaupa til hennar,
en Barnes aftrar henni, og nú stara
þau bæði á Marínu. Hún skimar
kring um sig í herberginu, og fer svo
rétt á eftir á fætur, þó að hún sé enn
svo máttvana, að hún getur naumast;
staðið á fótunum.
Nú kemur hún auga á Vesturheims-
manninn og honum verður felmt við
óeðlilegu stillinguna, sem á henni er.
»f>ér eruð þá kominn?* segir hún.
»f>ér hafið sjálfsagt komið til þess að
bjarga okkur, en hafið ekki komið
nógu snemma. Hvað hafið þér gert
við lík hans ?«
•Jjfk hans?« tekur Barnes upp eftir
henni.
En Enid slítur sig af honum og
æpir til Marínu: »Lík hvers? Guð
minn almáttugur — það er þó ekki
lík Edvins, sem þú átt við?«
,JÚ, EdvinB — mannsins míns!«
svarar Marína. »Maðurinn minn, sem
eg unni svo heitt — myrtur rétt fyr-
ir augunum á mér! f>arna heyri eg
fótatakið hans. Heyrið þið .heyrið þið!
f>etta er fótatakið hans! f>að hljóm-
ar alt af í eyrum mér — það færist
nær — alt af að færast nær!« Hún
stígur áfram eitt spor að Barnes og
spyr: »Heyrið þið ekki fótatakið
líka?«
»Guð minn góður ! Jú — eg heyri
— fótatak í forsalnum!« segir Barnes.
»Eg þekki fótatakið ! það er Edvin,
sem er þarna á ferðinni!« hrópar Enid.
»Já, það er fótatak hans látins«,
tautar Marína fyrir munni sér.
»Nei, það er fótatak hans lifandi!«
segir Enid og stekkur að dyrunum út
að forsalnum — beint í fangið á Edvin
Anstruther. Hann kemur inn í brúð-
arherbergið hröðum skrtfum og fagn-
andi.
Munið eítir
auglýsingum mínum
í síðasta tbl. ísafoldar.
Yalderaar Ottesen.
TAPAST hefir brúnn hestur, mark:
hvatrifað hægra, blaðstýft fr. vinstra.
Járnaður á vinstri fótum með skaflask.
Finnandi skili til Guðm. Halldórssonar
í Keykjavík.
Oskilahross- Þessi hross eru í ó-
skilum á Hólmi 18. nóvember:
1. Jörp hryssa, 3 vetra, boðbílt fr. h.
2. Brún ---- — — sneiðrifað og
biti fr. hægra, sneitt fr. v.
3. Blágrá hryssa 2 vetra, blaðstýft og
biti fr. h., tvístýft fr. v.
4. Móbrún hryssa 4 vetra, stýft eða
sneitt aft. h., tvístýft fr., biti a. v.
5. Bauðgrár foli 3 vetra, geltur, biti
aftan hægra.
Á hrossin er fallinn kostnaður og
verða bráðum seld.
Eggert Guðmundsson,
Að minn kæri eiginmaður
Þórður Markússon andaðist að heimili
sínu 17. þ. m. eftir 9 ára veikindi.
txlkynnist hjer með fjarverandi ætt-
ingju m (. j, i i i r
Hólabrekku við Reykjavík, 21/n 1900.
Oddbjörg Sigurðardóttir.
GIJLTIÓFIJR fást keyptar á Rauðará.
jSfæstliðið haust var mér dregið svart
hrútlamb með mínu marki, heilrifað
hægra, blaðstýft aftan vinstra. Þetta
lamb á eg ekki. Skora eg því á þann,
sem á sammerkt við mig, að sanna eignar-
rétt sinn á téðu lambi, og semja við
mig um markið.
Reykjakoti í Ölfusi 13. nóvember 1900.
Ólöf Gunnarsdóttir.
Reglusamur Og duglegur maður
óskar eftir vist. Ritstjóri vísar á.
TOMBÓLA
Kristilegs félags ungra stúlkna til ágóða
fyrir sjóð þess, er verjast á til menn-
ingar ungri, blindfæddri stúlku verður
haldinn á laugardaginn 24 og sunnu
daginn 25 þ.m. kl. 5—7 og 8—9 e. m. f
Iðnaðarmannahúsinu. Inngangur 15
aurar, dráttur 25 aur.
Fr- Friðriksson-
Jarðir í Grímsnesi til
sölu.
Jörðin KRINGLA í GrímsDesi 19,8
hdr. að dýrleika, ogj hluti MINNI-
BÆJAR í sömu sveit (öll að dýr-
I.eika 19,8 hdr.) eru til sölu nú þegar.
Borgunarskilmálar ágætir. Lysthaf-
endur semji við undirritaðan, sem hef-
ir umboð til að selja jarðirnar.
Stórahrauni við Eyrarbakka 5. nóv-
ember 1900.
Ólafur Helgason-
Öllum þeim er með návist sinni heiðruðu
jarðarför míns elskulega eiginmanns, kaup-
mans M. Johannessens þ 6. þ. m. og á ann-
an hátt, sýndu mér hluttekníngu í sorg
minni, votta eg hér með mitt innilegasta
þakklæti.
Rvík 9. okt. 1900.
Magnea Johannessen.
Brúkið ætíð :
Skandinav. Exportkaffe-Surrogat
Kjöbenhavn F. Hjort.
Bpunabótafélag
fyrir hús, varning og aðra lausafjár-
muni, búpening og hey o. s. frv., var
stofnað í Kaupmannahöfn 1798. Fyrir
það félag tekur bæði undirskrifaður beina
leið og þeir herrar Jón Laxdal faktor á
Isafirði, Ármann Bjarnason faktor í Stykk-
ishólmi og Jóh. Ólafsson faktor á Dýra-
firði við brunaábyrgðarbeiðnum úr Isa-
fjarðarsýslu, Barðastrandarsýslu, Dala-
sýslu, og Snæfellsn,-og Hnappadalssýslu,
og veita vitneskju um iðgjöld o. s. frv.
Bæir eru einnig teknir í ábyrgð.
Khöfn, Havneg. 35. Leonh. Tang.
I. Paul Liebes Sagradavín og
Maltextrakt með kínín og járni
hefi eg nú haft tækifæri til að reyna með
ágætutn árangri. Lyf þessi ern engin
leyndarlyf (arcana), þurfa þau því ekki acV
hrúkast í blindni, þar sem samsetning þess-
ara lyfja er ákveðin og vitanleg. Sagrada-
vínið hefir reynst mér ágætlega við ýms-
um magasjúkdómum og taugaveiklun, og er
það hið eina hægðalyf, sem eg þekki, er
verkar án allra óþæginda, og er líka eitt-
hvað hið óskaðlegasta lyf.
Maltextraktin með kina og járni er hið
hezta styrkingarlyf, eins og efnin henda á,
hið bezta lyf gegn hvers konar veiklun, sem
er, sérstaklega taugaveiklun, þreytu og a
afleiðingum af taugaveiki, þróttleysi mag-
ans o. s. frv. — Lyf þessi hefi eg ráðlagt
mörgum með bezta árangri og sjálfur hefi
eg brúkað Sagradavínið til heilsubóta, og
er mér það ómissandi lyf.
Reykjavik 28. nóv. 1899. L. Pdlsson.
Einkasölu á I. Paul Liebes Sag-
radavíni og Maltextrakt með
kínín og járni fyrir Islaud hefir
undirskrifaður. Utsölumenn eru vin-
samlega beðnir að gefa sig fram.
Reykjavík í nóvember 1899.
Björn Kristjánsson-
Laus til ábúðar Í næstkomandi
fardögum (1901) er jörðin Seljatunga
í Gaulverjabæjarhreppi. Um leiguskil-
mála má semja við hreppstjóra herra
Guðmund ísleifsson á Háeyri eða við
Guðm. Guðmundsson í Landakoti á
V atnsleysuströnd.
Eg hefi síðustu 6 ár verið þungt
haldinn af geðveiki og brúkað við því
ýmisleg meðul, en árangurslaust, þar
til eg fyrir 5 vikum fór að brúka
Kínalífselixír Waldemars Petersen í
Friðrikshöfn. j?á fekk eg undir eins
reglulegan svefn; og þegar eg var bú-
inn með 3 glös af elixírnum, kom
verulegur bati, og vona eg, að mér
batni alveg, ef eg held áfram með
hann.
Staddur í Reykjavík
Pétur Bjarnason frá Landakoti.
Að framanskráð yfirlýsing sé af frjáls-
um vilja gefin og að hlutaðeigandi sé
með fullri skynsemi, vottar
L. Pálsson, prakt. læknir.
Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flest-
um kaupmönnum á Islandi.
Til þess að vera viss um, að fá
hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupend-
ur beðnir að líta vel eftir því, að
standi á flöskunni í grænu lakki, og
eins eftir hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas f
hendi og firmanafnið Waldemar Pet-
ersen, Frederikshavn, Danmark.
THE
NORTH BRITISH ROPEWORK
C o m p a n y
Kirkcaldy á Skotlandi
Contractors to H. M. Government
búa til
rússneskar og ttalskar
fiskilínur og færi,
Manilla-og rússneska kaðla, alt sérlega
vandað og ódýrt eftir gæðum.
Einkaumboðsmaður fyrir Danmörk, Is-
land og Færeyar:
Jakob Gunnlögsson.
Kobenhavn K.
UMBOÐ.
Undirskrifaðir taka að sér að selja ísl.
vörur og kaupa útlendar vörur gegn
sanngjörnum umboðslaunum.
P. J. Thorsteinsson & Co.
Tordenskjoldsgade 34. Kjöbenhavn K
Nýprentuð:
fjórrödduð
Söngbók Glood-Templara
Kostar innbundin 60 aura og fæst
hjá
Borgþói' Jósepssyni.
TAKIÐ EFTIRI
Islendingar
TAKIÐ EFTIR!
Eg undirritaður er hinn eini Norð-
urlandamaður í Liverpool, sem verzla
á eigin hönd, og hef ódýrari og betri
vörur en nokkur annar. íslendingar,
sem koma til Liverpool, ættu þess
vegna að snúa sér til mín.
Komið inn, sjáið og sannfærist.
Búðin er máluð blá og rauð og nafn
mitt stendur yfir dyrunum.
Virðingarfylst
Friðrik Christiansen
beint á móti veitingahúsi »Hvítu
stjörnunnar*
Nr. 4 Cumming Street, Liverpool.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og
opnubrjefié. janúar 1861 er hjer með
skorað á alla þá, sem telja til skuld-
ar í dánarbúi M. Johannessens kaup-
manns, sem andaðist hjer í bænum 30.
f.m., að lýsa kröfum sínum og sanna þær
fyrir skiptaráðandanum í Reykjavík áð-
ur en 12 mánuðir eru liðnir frá síð-
ustu birtingu þessarar auglýsingar.
Bæjarfógetinn í Rvfb 9. nóvbr. 1900..
Halldór Daníelsson.
Á fundi Trésmiðafélags Reykjavík-
ur 17. nóv. þ. i. var samþykt, að lög
og verðskrá félagsins skyldi koma í
fult gildi 1. desbr. þ. á.
Stjórnin.
Rjúpur
10 aura stykkið hjá
C- Zimsen-
Sauðskinn
hjá
C- Zimsen.
Saltíiskur
10 aura pundið
hjá
C- Zimsen-
Suðuvökvimi
(Kogevædske)
hjá
C Zimsen-
Er ágætur.
Mysuostur
fæst í verzlun
Jóns pórðarson-
Skilvindusmjör
frá Ó 1 a f s d a 1 og fleiri stöðum fæst
í verzlun
Jóns pórðarsonar-
Tilboð óskast:
um stétt meðfram sunnanverðu G.-T.-
húsinu, um steintröppur við suðurdyr
hússíns, um vandaðar hurðir í suður-
dyrnar, um laglega grind í hliðið.
Sigurður Jónason langavörður leið-
beinir og tekur við tilboðum.
Ritstjórar: Björn Jónsson(útg.og ábm.)(jg
Einar Hjörleifsson.
ísafol darprentsmiðja.