Ísafold - 28.11.1900, Side 1

Ísafold - 28.11.1900, Side 1
Kemur ut ýmist einu sinni eða tvisv. í viku. Verft árg. (30 ark. tninnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða l’/s doll.; borgist fyrir miðjan júli (erlendis fyrir fram). ISAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslustofa blaðsins er • Austurstrœti 8. XXVII. árg Heykjavík miövikudafíinn 28. nóv. 1900 73. blað. 1. 0. 0. F. 82II308'/:- Forngripasafnið opið mvd. og ld. I i —12 Landsbankinn opinn livern virkan dag ki 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1. Lanasbókasafn opið hvern virkan dag kl. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3) md., mvd. og ld. til útlána. Ókeypis lœkning á spitalanum á þriðjud. og föstud. kl. 11 — 1 • Ókeypis angnlækning á spitalanum fyrsta og þriðja þriðjud. hvers mánaðar kl. 11—1. Ókeypis tannlækning í búsi Jóns Sveins- sonar bjá kirkjunni 1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1. Nýjar helgidagaprédikanir, Guðspjallamál. — Prédikanir á sunnu- dögum og hátíðum kirkjuársins, eftir Jón Bjarnason. — Kostn- aðarmaður Sigurður Kristjánsson, Reykja- vik 1900. VIII+ 750 blB., með mynd höf. framan við. Eigi verður því neitað, að ýma á- hrif eru farin að berast hingað til lands vestan um haf, frá löndum vor- um í Vesturheimi. Einna Bterkust eru hin andlegu áhrif, áhrifin í kriat- indómsáttina. Margir hér á Iandi hafa nú um allmörg ár lesið >Sameining- una« og *Aldamót«; en, eins og allir vita, vinna bæði ritin að einu og sama málefni, að efla kristilegan áhuga með- al íslendinga. Og áhrifin munu vaxa fyrir þeasa nýju bók, sem nú er ný- prentuð á kostnað Sigurðar Kristjána sonar, helgidagaprédikanir eftir síra Jón Bjarnason, prest í Winnipeg. f>eir, aem unna starfsemi síra J. B., hafa beðið útkomn bókarinnar með mikilli eftirvænting; svo mikið orð hefir af honum farið eem ræðumanni. |>að er meiri vandi en margur hygg ur, að standa í prédikunarstólnum sunnudag eftir sunnudag, ár út og ár inn, og flytja mönnum boðskapinn um guðs ríki, og gera það þannig, að fólk- inu, jafn-mismunandi og það er bæði að greind og ment og kristilegum á- huga, verði Ijúft að koma og á að hlýða. f>að er vandaverk, ef vel á að gera. Kennimaðurinn verður að hafa mikinn andans auð af að miðla, eiga miklar vistir í forðabúri BÍnu, ef til- heyrendurnir eiga að fara heim auðg- ftri en þeir komu. Prédikunarstarfið hefir verið erfitt á öllum tímum, en aldrei örðugra en nú. Kröfurnar fsra BÍvaxandi í þessu sem öðru; mentun fólks er ávalt að fara fram; og með mentuninni vaxa kröfurnar, einnig kröfurnar, sem gerðar eru til prest- anna. þarf meira til þess að öðlast nafnið »góður kennimaður« nú en í byrjun þessarar aldar eða um aldamótin 1700, þú or meistari Jón var uppi. Góðar gáfur, mikla mentun og ein- lægan kristilegan áhuga — þetta þrent má engan kennimann skorta nú i lok 19. aldar, eigi hann að verða kirkju Krists til eflingar og varanlegrar bless- unar. ' Dm það finst mér eg hafa sannfærst enn betur en áður einmitt á því, að lesa þessar 63 prédikanir, sem bókin hefir að geyma. Allar bera prédikanirnar vott um það, að síra J. B. er miklum gáfum gæddur og á djúpsæjan anda; og eigi síður um hút, hversu vfðtæk mentun hans er og hve frjóvandi áhrif hið lesna hefir haft á huga hans. En öllum er áður kunn- ugt, hve brennandi áhuga hann hefir á málefnum kirkjunnar og kristin- dómsins. En það er fleira en þetta þrent, sem gert hefir hann svo mik- inn og frábæran kennimann, sem hann nú er orðinn. f>að 6r bersýnilegt á ræðunum, að þjáningar og etríð hans eigin lífs hafa átt mikinn og góðan þátt í þessu. Oll hin persónulega lífsreynsla hans hefir dýpkað farveg sálar hans. Eg skal segja það nú þegar, að mér finst mjög mikið til bókarinnar koma. Ræðurnar eru flestar mjög huglaðandi og svo hrífandi, að maður les þær með áfergju. Hugsanirnar eru veigamiklar, og mælskan þrótt- mikil; og það er frábær myndarskap- ur yfir allri framsetningunni. f>ó býst eg við þvf, að ymsir menn hér á landi kunni miður vel við sumt í bókiuni. Síra J. B. hefir lengi verið »tákn, sem móti hefir verið mælt«, og svo mun óg verða um prédikanir hans; sumir munu ekki kunna alls kostar við þær. Bókin var naumast fullprentuð, er aá orðrómur barst út, að hún væri alt of veraldleg; í ræð- unum væru sögð æfintýri og þjóðsög- ur og vitnað í ýms kvæði veraldlegs efnis; fyrir þessa sök átti svo bókin að vera hálf-vanheilög og með öllu ó- hæf til afnota við húslestra, með öðr- um orðum: ekki reglulegt »guðs orð«, f sama skilningi og aðrar postillur vorar. f>að leynir sér eigi, að síra J. B. prédikar að sumu leyti á annan hátt en vérerum vanastir að heyra hér á landi. Maðurinn er eitthvað einkenni- lega blátt áfram og tilgerðarlaus. Hann gerir sór ekkert far um að varpa neinum tilgerðar-helgiblæ yfir orð sín; en hann reynir að fá fólkið til þess að hlusta á eða taka eftir því, er hann ritar eða fer með. Og einmitt þess vegna segir hann æfin- týrasögur, vitnar i veraldarsöguna og náttúrusöguna, og tilfærir ljóð ogljóða- brot eftir helztu skáld þjóðarinnar. En ljóðin og sögurnar eru þannig valdar, að f þeim felst einhver djúp- eóttur og mikilvægur sannleíki — sannleiki, sem varpar skærri birtu á það, sem hann er einmitt þá að tala um. f>essi Ijóð og þessar »veraldlegu« eögur verða nú einmitt til þess, að festa aðalhugBun ræðunnar — og síra J. B. hefir alt af einhverja mikilvæga hugsun fram að bera í hverri ræðu — í huga áheyrandans eða lesandans, neglir hana þar fasta, ef egmætti svo að orði komast. Og þetta er mikill kostur. f>vf að vafalaust verður það eitt hið fyrsta hlutverk kennimanns- ins, að íá fólkið til þess að hlustft, hlusta þannig, að það, sem sagt hefir verið í kirkjunni, gleymist ekki óðara en heim er komið. f>að er ekki nóg að sá; það verður að annaat um, að sáðkornin festist f jarðveginum. Eg fyrir mitt leyti ætla að gera þá játn- ingu, að mér þykir vænna um bókina fyrir þetta. f>ó hefði vísan á bls. 452 eftir Kristjáh Jónsaon (*Yfir kaldan eyðisand«) að minni hyggju mátt missa sig. Hún nær hvort sem er hvergi nærri hugsunum hins glataða sonar; enda mun það, að hún er ort á Kalda- dal, hafa orðið þess valdandi, fremur en efni hennar, að henni var þessi sómi sýndur. Viðfeldnara hefði og verið, að mér finst, að nefna eigi nöfn kvæðahöfundanna inni í sjálfum prédik- ununum, heldur vísa til þeirra neðan- máls, líkt og gjört er á bls. 148, eða þá öllu heldur aftan við bókina. En auðvitað er það eitt engan veg- inn nóg, að fá fólk til þess að hlusta á eða, lesa. Mest er undir því kom- ið, hvers efnis það er, Bem fólkinu er boðið. Og það er nú líka mesta gleði- efnið, að bókin flytur mönnum hrein- an og heilbrigðan kristindóm. Ef nokkuð sameiginlegt verður sagt um allar prédikanirnar, þá er það þetta: f>ær prédika allar »Krist og hann krossfestan«. Hvað sem umtalsefnið er, þá felst þetta ætíð á bak við; að- altilgangurinn er ætíð sá, að vekja lif- andi trú á frelsaranum. Höf. er eigi ávalt að berjft inn í fólk þungri og torskilinni trúfræði, en hann stendur bjargfastur á grundvelli hinnar lút- ersku trúar. Oghannberst jafn-ósleiti- lega gegn árásum vantrúarinnar sem þröngsýnum öfgakenningum sumra bindindismanna, sabbatista og annara bókstafsþræla. En ofstækismaður er hann enginn; það verður nú ilt úr þessu fyrir óvinveitta menn honum, að fá fólk til þess að trúa slíkum vitn- isburði um hann lengur. Eg skal eigi fara út í neinn. sam- anburð á þessum prédikunum og eldri postilluir vorum; til þess er eg þess- ari bók og þeim of ókunnugur enn. En það fullyrði eg: engin þeirra held- ur kristindóminum að mönnum með meiri alvöru en þessi; engin þeirra leiðir eins rök að því, hvílík blessun það er, að eiga sanna, lifandi trú í hjarta sfnu; engin þeirra bendir eins glögt á það, hvilíka blessun kristin- dóminn flytur inn í þjóðlífið, og eng- in þeirra er eins hrífandi, en jafnframt huggandi, eins og þessi — »veraldlega«- postilla. Lesendur mega ekki láta aðrar eins yfirskriftir og þetta fæla sig: »Bjarðræðismál almennings*, »Bétt og rangt samband stjórnmála og trú- mála«, »Æskan — undirbúningur und- ir æfistarfið«. fótt veraldlegar kunni að þykja á svipinn, þá eru allar þess- ar prédikanir ágætar, allar andlegftr í fylsta skilningi, allar guðrækilegar mjög; en þær sýna það ljóst, að höf. tekur meira tillit til hins daglega og veraldlega lífs en alment gerist meðal presta vorra; og það er til góðs. Hann man betur eftir því en alment gerist meðal vor, að Kristur líkti guðs ríki við aúrdeig, er gagnsýra á mannlífið. Bitháttur síra J. B. er mjög ein- bennilegur; maður þarf að venjast honum til þess að kunna alls kostar vel við hann. |>að er eitthvað stór- karlalegt við hann stundum; en ó- sjálfrœtt læsa orðin sig inn í huga lesandans; og orðgnóttin er mikil. Hann lýsir viðburðunum, Bem frú er Bftgt 1 guðspjöllunum, einkarnákvæm- lega; og bókin er full af kristilegum fróðleik. En fyrir þá sök eru inn- gangarnir stundum i lengra lagi. Höf er oft lengi að undirbúa aðalhugBun- inft, og draga að efniviðinn; hann er stundum lengi að búast heiman, og ríður jafnan hægt og gætilega ur hlaði; en sprettirnir eru þvf snarpari, þegar á líður. A stöku stað ber setningaskipunin keim af útlendu máli, enda er það eigi nema eðlilegt, þar sem höfundur- inn hefir lifað mibinn hluta æfi sinnar í Vesturheimi, og talar og ritar jöfn- um höndum 3 tungumál: ensku, norsku og íslenzku. Til dæmis skal eg nefna nefna: bls. 391 sælar eins og aldrei áður (e. as never before), í stað: sælli en nokkuru sinni áður; bls. 335: Brút- us tók af sér lífið, í stað: réð sér bana, sbr. og bls. 391, 8. 1. n.; bls. 513 og 514: á undan öllu öðru, í stað: framar öllu öðru. En þetta er að eins í örfáum stöðum, og gætir þess mjög lítið. Prentvillur eru fremur fáar í bókinni og engar stórvægilegar, svo að eg hafi var við orðið. Einna lakastar eru þessar tvær: bls. 5172 bús f. hún, Og 524 18 sfækka f. smækka. Eg þykist sannfærður um það, að eftir skamma hríð verður bókin svo metin, sem hún á skilið og ávinnur sér hylli almennings. En þá má líka búast við því, að bún verði til þess, að söfnuðir hér á landi yfirleitt geri meiri kröfur til presta BÍnna eftir en áður. Svo mun hún og verða mörg- um prestinum kærkominn gestur og verður efalaust til þess að beina sum* um þeirra inn á nýjar brautir. Bókin er prýðisvel prentuð, með glöggu og skýru letri, en þó drjúgu, og því einkar-notaleg aflestrar. Hún fæst og keypt í mjög smekklegu, en látlausu bandi. Herra bóksali Sigurð- ur Kristjánsson, sem kostað hefir út- gáfuna, á miklar þakkir skilið fyrir það, hve vel er frá bókinni gengið. 0g að gefa út slíka bók var eitt af því allra-bezta, sem unt var að gera til að hlynna að kristinni kirkju með- al vor og henni til blessunar. |>að er oft svo erfitt að komast til kirkju hér á íslandi. Fyrir því fá prentaðar ræður meira gildi hjá oss en nokkurri annari þjóð. — Og vonandi seljast þessar helgidaga-prédikanir vel, því að það mun reynast satt, sem haft er eftir einum mikilsvirtum manni andlegrar stéttar hér í bænum: bókin þessi er framtíðarinnar bók. H. N. Póstskip Ceres kapt. Jakobsen, kom í fyrra kveld. Farþegar: alþm. og kaupm. Björn Kristjánsson, konsúll Th. Thorsteins- son, landsbókavörður Hallgr. Melsted, faktor Guðm. Olsen, verzlm. Carl Finsen, o. fl. Kapt. P. Christiansen, sem verið hefir póstskipBtjóri um 20 ár, er nú hættur þeim ferðum og tekinn við for- menska á öðru akipi Gufuskipafélags- ins sameinaða, milli Englands og Prúss- lands. fessi nýi skipstjóri á Ceres, Jakob- sen, kvað hafa verið Btýrimaður á Laura hingað fyrstu ferð hennar, haustið 1882-

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.