Ísafold - 15.05.1901, Page 1

Ísafold - 15.05.1901, Page 1
Kemur út ýmist einu sinni eða tvisv. í viku. Yerð árg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða 1’/» doll.; lborgist fyrir miðjan júlí (erlendis fyrir fram). ISAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslustofa blaðsins er Austurstrœti 8. XXYHI. árs. Keykjavík miðvikudaginn 15. maí 1901. 80. blað. Biðjið ætíð um OTTO M0NSTBD S DANSKA SMJ0RLIKI, sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott eins og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað hina beztu vöru og ódýrustu í samanburði við gæðin. Fæst hjá kaupmönnum. I. 0. 0. F. 835249 III. Forngripasafnið opið mvd. og ld. 11—12 Lanasbókasafit opið hvern virkan dag kl. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3) irjd., mvd. og ld. til útlána. Okeypis lækning á spítale num á þriðjud. og föstud. kl. 11 —1. Ókeypis augnlækning á spítalanum fyrsta og þriðja þriðjud. hvers mánaðar kl. 11-1. Ókeypis tannlækning i húsi Jóns Sveins- sonar hjá kirkjunni 1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1. Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1. Með og móti. Hvað mælir m e ð því, að öílugri peningastofnun með nægu fjármagni verði komið upp hér á landi? Með því mælii brýnasta, óhjákvæmi- lega3ta nauðsyn þjóðarinnar. Landið er óræktað. Að því leyti, sem auðurinn umhverfis strendur þess er hirtur, fer hann langmestur í hend- ur útiendinga. Verzlun landsins er afaróhagstæð, svo að allur þorri lands- manna verður að kaupa nauðsynjar sínar við miklu hærra verði- en sann- gjarnt er og fær miklu minna fyrir sumar afurðir sínar að minsta kosti en sanngjarnt er. Iðnaður er enginn í landinu, þó að það sé að mörgu leyti aðdáanlega vel til þess fallið að vera iðnaðarland. Af þessum orsökum eru landsmenn í fátækt, eiga við menningarminni lífs- kjör að búa en aðrar þjóðir, geta ekki veitt börnum sínum jafn-mikla ment- un og aðrar þjóðir, eiga að berjast við sífelt vonleysi um framtíðina, og hyggja, hve nær sem með meira móti blæs á móti, afarmargir á brottflutning af ætt- jörðinni, sem þeir þó unna heitt inst í hjarta sínu. Eitt aðalskilyrðið fyrir því að úr þessu verði bætt, er það, að naagir peningar komi inn í landið. Og með öllu er óhugsandi, að úr því verði bætt, nema þeir peningar komi. þetta, sem nú hefir verið sagt, mæl- ir f stuttu máli með því, að öflugri peningastofnun verði komið á fót í landinu. Hvað mælir á m ó t i því? Móti þvf mælir það, að þá hafa lík- lagast ekki lengur sömu menn og nú einir ráð yfir Landsbankanum og þar af leiðandi yfir megninu af lánspen- ingum þjóðarinnar. Vér höfum aldrei orðið neinnar annarrar ástæðu varir gegn því, að þessi þjóð megi fá pen- inga milli handa eins og aðrarsiðaðar þjóðir. Og alkunnugt er það, að öll mót spyrnan gegn því, að öflug peninga- stofnun komi upp í landinu, er frá Landsbankanum runnin. Hvort á nú að meta meira,—brýn- ustu, sárustu þörf þjóðarinnar, eða löngun eins manns og nokkurra kunn- ingja hanB til þess að drotna yfir pen- ingamálum hennar? Rjómabú. í ísafold 12.—14. tbl. þ. á. hefir hr. alþm. Sig. Sigurðsson ritað grein með yfirskriftinni: Mjólkurbú oq rjóma- bú. Eg er höf. að öllu leyti sam- dóma í því, er hann segir; en það voru að eins fáeinar athugasemdir til viðbótar viðvíkjandi rjómabúum, er eg vildi leyfa mér að gera. Mjólkurbú eru sjálfsögð alstaðar þar, sem þeim verður við komið vegna erfiðleikanna á flutningi mjólkurinnar, því þau hafa ýmsa kosti fram yfir rjómabú, eins og tekið er fram í áður- nefndri grein. Bjómabúin þarfnast meiri nákvæmni, þar sem rjóminn er svo mismunandi að gæðum frá heim- ilunum, og ríður því á, að bústýran sé vel vaxin starfinu. Bústýran á rjómabúinu þarf því að gefa góðan gaum að rjómanum, er hún tekur á móti honum, og aðgæta, hvernig hann lítur út o. s. frv. það er vandfarn- ara með rjómann en mjólkina, og því er áríðandi, að alls þrifnaðar sé gætt bæði á heimilunum og sjálfu búinu, í meðferð hans. þar sem nú er í ráði að setja á stofn nokkur rjómabú með vorinu, vil eg vekja eftirtekt á nokkurum atriðum, er standa 1 sambandi við meðferð rjómans á búunum. 1. Til þess að unt sé að búa tjl gott smjör, er boðlegt þyki á mörk- uðum erlendis, er nauðsynlegt að hita rjómann upp í 85° C., og síðan kæla hann svo fljótt sem verður ofan í 9— 10° C. Með þessu móti tortímast gerlar þeir, sem eru í rjómanum, og smjörið verður betra og samkynja að gæðum. 2. það er áríðandi, að mjólkur- skálinn aé vel gjörður, og þannig út- búinn, að loftið í honum verði endur- nýjað og að birtan sé hæfileg. Sér- staklega ríður á að gólfið sé vatns- helt, og sama ei um mjólkurbú. 3. Á rjómabúum ríður á að mæla fitumagn rjómans, og borga hann eða smjörið samkvæmt því. Að öðrum kosti verða allir þeir, er senda rjóma til búsins, að skuldbinda sig til að skilja mjólkiua jafnt, eða að rjóminn sé jafn-mörg °f frá öllum, að réttu hlutfalli. 4. Bústýran verður að kunna að meðhöndla rjómann og búa til smjör, og sömuleiðis verður hún að þekkja á fitumælinn, og þvernig á að nota hann. 5. Bústýran þarf að geta fengið tíma til að heimsækja þá, er senda rjóma eða mjólk til búsins, til þess að líta eftir meðferð mjólkurinnar og gefa leiðbeiningar í þn' efni. Yerði eigi þessu komið við, sem hér er talið, þá er það mín skoðun, að betra sé að fresta stofnun búsins um eitt ár, meðan verið er að búa sig undir, svo alt geti verið í lagi. það er betra, heldur en að setja búið upp af miklum vanafnum, og eiga það á hættu, að smjörið verði illa verkað og seljist því ekki. En við það bíða hlutaðeigendur skaða, og fyrirtækið missir traust og álit. Hvanneyri í apríl 1901. H. Grónfeldt. I fjórða lagi —? Hr. ritstjóri! — Eg hefi lesið með mikilli athygli grein yðar í síðustu Isafold: »Yinstrimenn og stjórnarmál vort«, og eg get algerlega fallist á hana — það sem hún nær. þér gerið ráð fyrir þrennu, sem að geti borið. Pyrst því, að hægrimenn sitji enn að völdum svo lengi, að undir þeirra stjórn verði unt að koma á breyting- um á stjórnarskránni. Með það fyrir augum viljið þér, að þingið gangi að þeim umbótum, sem fáanlegar eru hjá hægrimönnum, þó að þær verði ófull- komnar, samkvæmt þeirri reglu, að vér eigum a 1 d r e i að sitja oss úr færi, þegar oss bjóðast einhverjar um- bætur á stjórnarfaiinu, I öðru lagði gerið þór ráð fyrir því, að vinstrimenn komist til valda eftir að næsta þing hefir samþykt breyt- ingar á stjórnarskránni, en áður en hægrimanna-stjórnin hefir staðfest þær breytingar. Pari svo, viljið þér, að stjórnarbótarvinir tjái hinni nýju stjórn, að gengið hafi verið að tilboði hinnar fyrri stjórnar eingöngu vegna þess, að þá hafi verið vonlaust um betri rétt- arbætur, en alls ekki af því, að allir stjórnarbótarvinir geri sig ánægðameð þær breytingar, og að skorað verði á hina nýju stjórn að leggja fyrir auka- þingið 1902 stjórnarskrárbreytingar- frumvarp, sem fullnægi óskum þeirra íslendinga, sem í raun og veru vilja nokkura stjórnarbót. í þriðja lagi gerið þér ráð fyrir því, að vinstrimenn komist til valda eftir að stjórnarskrárbreytingar þær, er hægrimenn bjóða oss, eru orðnar að lögum. þá viljið þér láta skora á hina nýju stjórn, að semja við alþingi um að breyta stjórnarskránni af nýju, samkvæmt þeim óskum, er fyrir lands- mönnum vaka, þeim er af einlægni þrá að komast út úr ógöngunum. Alt þetta felst eg á. Mór finst það ekai að eins skynsamlegt, heldur og sjálfsagt. En eitt getur fyrir komið — í fjórða lagi — sem þér hafið ekki gert ráð fyrir. Svo g e t u r farið, þó að mér só ókunnugt um, hve miklar líkur séu til þess, að annaðhvort verði vinstrimenn teknir við völdunum, þeg- ar alþingi verður sett, e ð a að á því leiki enginn efi um það leyti, að þeir taki við stjórninni í haust. Hvað á alþingi þá að gera í sumar? Eg spyr reyndar ekki af þeirri á- stæðu, að eg só sjálfur í míklum vafa um, hverju ísafold muni svara. Eg þykist skilja gvo vel hennar afscöðu til mál’sins, að eg geng að því vísu, hverju þér munið svara. En mér þætti vænt um að fá svar af því að eg hefi orðið þess var, að sumum öðrum er ekki jafn-ljóst og mér, hvernig ísafold vill láta þingið snúa Bér, ef svona kynni að fara. S tj órnarbótarvinur. * * * Aths. ritst. Oss er ánægja aS svara hinum hátt- virta spyrjanda. Svo framarlega, sem svo fer, er hann gerir ráð fyrir, getur ekki verið um neitt að villast. þá eiga allir stjórnarbótarvinir á þingi að taka höndum saman í snmar um a 11 a r þær breytingar á stjórnar skránni, sem meiri hluti þeirra kem- ur sér saman um að mundi verða til bóta fyrir þjóðina og ekki eru líkindi til að verði málinu að falli hjá frjáls- lyndri, sanngjarni og hleypidómalausri stjórn. Yrðum vér svo lánsamir, að svona færi, sem spyrjandinn gerir ráð fyrir — lánsamir, segjum vér, þó að vér auðvitað rennum blint í sjóinn, af því að óhugsandi virðist, að ekki yrði breytt til batnaðar frá þeirri stjórnar- ómynd, sem nú höfum vér, — þá yrði málið vafalaust mjög auðvelt viðfangs á næsta þingi. Mönnum er kunnugt um allar verulegar breytingar á stjórn- artilboðinu, sem fyrir hinum og öðrum stjórnarbótarvinum vaka. jj>ær eru frá- leitt allar sérlega mikils verðar. En allar g e t a þær þó verið til bóta, ef svo ber undir, og lítt hugsanlegt að nokkur þeirra geti orðið til verulegs ógagns. þess vegna eru engin líkindi til annars en að samningar um þau at- riði gengi greiðlega á þinginu, ef þing- ið ætti vísa von vinstrimannastjórnar í sumar. Flensborgarskólinn. Síðastliðinn vetur voru í skólan- um 43 nemendur alls, 7 stúlkur og 36 piltar (6 af nemendum gagnfræða- skólans tóku eigi þátt í öllum náms- greinum). í kennaradeild skólans voru 7 nem- endur, 1 stúlka og 6 piltar, er allir tóku próf; en af eldri deildar nemend- um gagnfræðaskólans tóku 9 burtfar- arpróf, sem hér segir. Kennaradeild. 1. Guðmundur Davíðsson frá Kötlu- stöðum í Vatnsdal hlaut aðaleinkunn vel +, vel. 2. Hallgrímur Jónsson frá Óspaks- eyri í Bitru hlaut aðaleinkunnina dá- vel-h, dável. 3. Kristján Kristjánsson frá Hvestú í Arnarfirði hlaut aðaleinkunn dável-L, vel +. 4. Sigurður Jónsson frá Álfhólum í Bangárvallasýslu hlaut aðaleinkunn dável 4-, dável 4-. 5. Stefán Hannesson frá Hnausum í Skaftafellssýslu hlaut aðaleinkunn dável, vel. 6. þorgerður Jónsdóttir frá Efri- Hlíð í Snæfellsnessýslu blaut aðalein- kunn dável -5-, dável. 7. þorsteinn þorsteinsson frá Neðra- dal í Vestur-Skaftafellssýslu hlaut aðaleinkunn dável, dável -r.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.