Ísafold - 19.05.1901, Síða 1

Ísafold - 19.05.1901, Síða 1
ISAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslust.ofa blaðsins er Austurstrceti 8. Keykjavík laugardaginn 19. maí 1901. 31. blað. Kemur út ýmist einu sinni eða tvisv. i viku. Verð árg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða l'/s doll.; borgist fyrir miðjan júlí (erlendis fyrir fram). XXVIII. árg. I. 0 0. F. 835249 III. Forngripasaf nið opið mvd. og ld. 11—12 Lanasbókasafn opið hvern virkau dag ki. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3) md., mvd. og ld. til útlána. Okeypis lækning á spitalf num á þriðjud. og föstud. kl. 11 —1. Okeypis augnlækning á spítalanum fyrsta og þriðja þriðjud. hvers mánaðar kl. 11—1. Okeypis tannlækning i húsi Jóns Sveins- sonar hjá kirkjunni l. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1. Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1. Þilskipa-afii í Reykjavík á vetrarvertíð 1901. Skip Fiskafli tals. G. Zoega kaupm. . . 9, um 118,200 Th. Thorsteinss. konsúll 7 — 117,500 Asg. Sigurðss. kaupm. 6 — 66,400 Helgi Helgason — 3 — 25,000 Sturla Jónsaon — 3 — 26,000 Bj. Guðmundss. —o.fl. 3 — 51,700 Engeyingar .... 3 — 38,200 Jón fórðarsson kaupm. 2 — 24,000 J. P. T. Bryde - 1 — 18,000 |>orst. jborsteinsson o. fl. 1 — 31,000 Eilippus Filippusson . 1 — 19,000 Jóhannes Jósepsson . 1 — 16,500 Kristinn Magnúss. o. fl. 1 — 35,500 Sig. Jónsson o. fl. .1 — 25,000 Gísli Jónsson o. fl. .1 — 11,000 43, um 623,000 Mest hafa þessir 8 skipstjórar afl- að á skip: Kristinn Magnússon (»Björg- vin«) um 35,500; j>orst. j>orsteinsson (»Georg«) um 31,000; Finnur Finnsson (»Margrsthe«) um 30,200; Stefán Daní- elsson (»Hildur«) um 26,000; Hjalti Jónsson (»Swiít«) um 25,000; Sigurður Jónsson (»Svanur«) um 25,000; Sigur- jón Jónsson (#Emilie«) um 23,000; Páll Hafliðason (#Guðrún Zoega«) um 23,000. Af Seltirningaskipum, 8 alls, er afl- inn sagður um 128,000 alls. j>ar hvað »Kristofer« (Jóhannes Hjartarson) hafa verið hæst, með 22£ þús. Verður því aflinn í Reykjavík og á nesinu samtals hér um bil 751 þús. Til samanburðar skal þess getið, að vetrarvertíðarafli f Reykjavfk var árið 1898 á 31 skip alls um 430 þús., ár- ið 1899 á 30 skip alls um 304 þús., árið 1900 á 34 skip alls um 488 þús. og nú á 43 skip hér um bil 623 þúsund. Fiskurinn var mjög misstór þessa vertíð, vænn á sum skipin, en býsna- smár hjá sumum, og er því örðugt að gizka á, hvað mikið úr honum verður að vigt. j>ó var hann yfirleitt vænni en í fyrra framan af. Geri maður 7 skpd. úr 1000 fiskum, verða þessi 751 þús. sama sem 5257 skpd. Reykjavík- urskipin voru 9 fleiri nú en í fyrra, og verður því aflinn minni nú á skip en þá, eða 50,000 minnaá skipatöluna, sem þá var. Flest lögðu skipin út um mánaða- mót febr.—marz, og veiðitíminn hér talinn fram f miðjan þ. mán. En eitt Swift, lagði þó út 13. febr., og annað, Björgvin, um 20 febr. Alls eitt skip héðan stundaðí há- karlaveiðar og það að eins framan af vertíð: Mathildur (Th. Th.) og fekk 30£ tn. lifrar. j>ar með mun hákarla- veiðum á þilskip hætt hér algerlega. Af hrognum og þorsklifur hefir auð- vitað fengist til muna á vertíðinni; en það er alt ótalið hér. — Aflaskýrsluna sjálfa eigum vér nú sem fyr að þakka konsúl Th. Thor- steinsson. Eftir að þessi skýrsla var samin og sett, höfum vér fengið þetta að vita um þilskipa-afla í Hafnarfirði sama tímann: Skip Fiskatala P. J. ThorsteinBson &Co 4 46,500 Einar j>orgilsson . . 2 31,000 Augúst Flygenrig . . 1 14,500 Me3tur afli á annað skip Einars, »Surprise«, um 20,000 þús. Stefnufesta? Á alþingi 1895 var samþykt af báð- um deildum þingsins áskorun til stjórn- arinnar um þær breytingar á stjórn- arskránni: að sérmál íslands yrðu ekki #eftir- leiðis lögð undir atkvæði hins danska ríkisráðs eða borin upp í því«; nað neðri deild alþingis geti ávalt, er ástæða þykir til, og fyrir sérhverja stjórnarathöfn, er til þess gefur til- efni, komið fram ábyrgð beinleiðis á hendur hér búsettum, innlendum manni er mæti á alþingi#; og nað stofnaður verði sérstakur dóm- stóll hér á landi, skipaður innleudum mönnum (landsdómur), er dæmi í málum þeim, er neðri deild alþingis eða konungur lætur höfða gegn hinum æðsta stjórnanda hér á landi«. Jafnframt lýsti þingið yfir því í sama skjalinu, að það héldi fast við sjálfstjórnarkröfur Iandsins, eins og þær hafa komið fram á undanförnum þingum, og skoraði á stjórnina að taka þær til greina. j>essa þingsályktun lýsti ritstjóri afturhaldsmálgagnsins, núverandi Ár- nesinga-þingmaður, nalgerða uppgjöf á öllum 8tjórnarbótarkröfum íslands«. Auðvitað lýstí hann jafnframt miður fagurlega þeim mönnum, er svo hefði leiðst afvega, að styðja á einhvern hátt að slíkum landráðum sem þessi »al- gerða uppgjöf« væri. Nú flytur hann sjálfur tillögu um stjórnarskrárbreyting á þingmálafund- um Árnesinga í nokkuð líka átt! Mönnum hefir víst ávalt verið nokk- uð óljóst, í hverju laudráðin hafi eig- inlega verið fólgin 1895, eða hvernig önnur eins þingsályktun og sú, er þá var samþykt, geti verið »algerð upp- gjöf«. j>essi stjórnarbótartillaga þing- mannsins ætti að skýra það mál til fulls. Tvö atriðin eru sameiginleg í þings- ályktunmni og þingmannstillögunni: að ráðgjafinn só hór búsettur, og að hann mæti á alþingi. Ekki hefir upp- gjöfin getað verið í þeim fólgin. j>ar á móti vantar í þingmannstil- löguna ákvæðin um að sórmál íslands skuli ekki borin upp i ríkisráðinu og að landsdómur skuli skipaður. I þessu ættu þá landráð alþingis 1895 að vera fólgin — að það fór fram á þessi tvö atriði! Eða þá í hinu, að það ákvæði vant- ar í þingsályktunina, sem er í þing- mann8tillögunni, að ráðgjafinn skuli mæta á alþingi við hlið landshöfð- ingja. Hv r veit, nema þingið 1895 hafi gert sig sekt í #algerðri uppgjöf* á þann hátt, að því láðist að taka þetta viturlega ákvæði fram! Hver veit, nema landsréttindi vor, velferð þjóðar vorrar sé einmitt kom- iu undir þessu mikilsverða atriði, að ráðgjafinn hafi landshöfóingja að full- trúa á alþingi, þó að hann sé þar sjálfur viðstaddur! Jæja, mikil er stefnufestan! j>etta hefir hann séð, karlinn, síðan 1895, og nú kemur hann með það. Loks- ins er hann með stefnufestunni búinn að vísa mönnum á rétta leið út úr stjórnarógöngunum. j>ví að hins mun fráleitt til getandi, að dómar haus um þingsályktunina 1895 hafi verið einber vaðall og vit- leysa, og að nú sé grunnhygnin svo mikil, að maðurinn hafi enga hug- mynd um, að nú sé hann að fara fram á miklu minna en það, sem hann taldi áður #algerða uppgjöf«, auk þess sem hann sé að fara fram á hina fá- ránlegustu vitleysu, eins og hann væri Dýkominn út úr alfhólum — að hann sé með öðrum orðum nú þegar farinn að færa möunum heim sanninn um það, áþreifanlegar en andstæðingar hans hefðu getað gert, hve gjörsneidd- ur hann er þeim vitsmunum, sem til þess þarf að geta verið nokkurn veginn sómasamlegur þingmaður. Próf í stýrimannafræði Dagana 6.—9. maí var hið meira stýrimannapróf haldið við stýrimanna- skólann. í prófnefnd voru, auk hins setta forstöðumanns skólans, Páls Halldórs- sonar, prsmierlautinantarnir T. A. Topsöe-Jensen og H. C. Gad, fyrir- liðar á strandvarnarskipinu »HeimdaI«, skipaðir af hinu íslenzka ráðaneyti í Kaupmannahöfn, ogvar Topsöe-Jensen af landshöfðingja jafnframt skipaður oddviti nefndarinnar. Sem prófdómendur í hinum grein- unum voru af landshöfðingja skip- aðir docent síra Eiríkur Briem og cand. jur. Jón j>orkelsson. Prófsveinar þeir, er prófið stóðust, f^pgu þessar einkunnir: Jón Theodor Hansson, Rvík 86 stig Ólafur Ólafsson, Rvík ... 81 — Kolbeinn j>orsteinsson, Rvík 75 — Einn lærisveinn stóðst eigi prófið. Hæsta einkunn við próf þetta er 112 stig; til þess að standast það þarf 48 stig. Skólanum var sagt upp að afloknu prófi (9. þ. m.) fyrir þetta skólaár. Þingmálafmidir. Það er frekara að segja af þingmála- fundum Árnesinga en gert var í síðasta blaði, að þar voru á þeim öllum þrem- ur samþyktar því nrer samhljóða fund- arályktanir í flestum málum, er þar voru upp borin, einna fylstar þó á hinum síðasta, að Selfos8Í, 14. þ. mán. Um landbúnað voru samþ. á Self. ní-liðuð ályktun eða áskorun til al- þingis: a ð auka styrk til búnaðarfólaga og taka eftirleiðis upp í skyrslur um jarðabætur, er veiti tilkall til styrks úr landssjóði, fleiri jarðabætur en hingað til, t. d. haughús, safnforir, upphleypta vegi um tún, vírgirðingar og heyhlöð- ur; a ð þingið veiti verulega fjárhæð til verðlauna handa þeim, er öðrum fremur skara fram úr í jarðabótuhi og búnað- arframkvæmdum; að haldið sé áfram kenslu í mjólkurmeðferð og sú kensla fullkomnuð sem bezt; a ð veittur só kostur á lánum til mjólkurbúa með vægum kjörum; að samin séu lög um merki á smjöri og greitt fyrir sölu þess erlendis, meðal annars sóð fyrir frysti- klefum í póstskipum og að þau gangi beina leið til Skotlands að minsta kosti 4 ferðir á ári; að þingið leggi fram fó til hóraðasýninga og kynbóta á búpen- ingi; a ð búnaðarmálunum öllum sé kom- ið undir umsjón Búnaðarfélags Íslands; að ábúðarlögin frá 1884 séu endurskoð- uð; a ð þingið leggi 25—50000 kr. á ári til framræslu og vatnsveitinga í stórum stíl eftir tillögum Búnaðarfélags íslands. Um önnur atvinnumál var samþykt, a ð botnvörpúbannslög séu hert þannig, að skipstjórar sæti fangelsi fyr- ir landhelgisbrot; a ð laxveiðilög sóu endurbætt — heimildarlög fyrir héraða- samþyktum um veiði og friðunartíma; a ð selur só ófriðaður samkv. frv. neðri- deildar 1897; að Stokkseyrarhöfn só endurbætt. Þar næst var um samgöngumál samþykt, að biðja um fé úr landssjóði til brúar á Sogið; a ð haft verði betra eftirlit með brúkun vegafjár; a ð syslan telji sór ofvaxið viðhald á landsjóðsveg- um í sýslunni; að gefin séu upp lánin til brúnna á Þjórsá og Olfusá; a ð lagð- ur verði sem fyrst akvegur frá Köguð- arhól að Olfusárbrúnni; a ð greitt verði fyrir samgöngum á sjó samkvæmt til- lögum sýslunefnda. Þá vildu Árnesingar láta setja milli- þinganefnd til að íhuga og undirbúa endurbætur á látækralöggjöfinni; sam- þykkja aftur eftirlaunafrv. frá síðustu þingum; lögleiða fjölgun kjörstaða til alþingis — helzt kjörstað í hverjum hreppi — og heimullegár kosningar; koma á stofn innlendri brunabóta-ábyrgð og lífsábyrgð; afnema lausafjárframtal og verðlagskrár; auka styrk til um- gangskenslu og herða styrkveitingaskil- yrðin. Mannalát. Pétur Guðjohnsen, stúdent, á Vopna- firði, fyrrum verzlunarstj. Órum&Wulfls verzlunar þar, andaðist 9. f. m. eftir langa og þunga legu, kominn hátt á sextugsaldur, fæddur í Rvík 2. júní 1843, sonur Péturs Guðjohnaens organ- leikara (|1877) og konu hans, frú Guð-

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.