Ísafold - 08.06.1901, Síða 4
148
The Edinburgh Roperie &
Sailclóth Company
Lisnited, stofnað 1760.
Verksmiðjur í Leith og Glasgow.
Búa til færi, strengi, kaðla og segl-
dúka. Vörur verksmiðjauna fást hjá
kaupmönnum um a!t land.
Umboðsmenn fyrir Island og Pæreyja
Hjort & Co. Kaupmh. K.
Þvert o f a n í
gamla vanann.
Nú í haust og á vetri komanda bý
eg til hurðir og glugga, fyrir hvern
sem hafa vill, hvar á landinu sem er.
Menn fá þessa muni ódýrari hjá mér
en hjá öðrum þjóðum, og engu lakari.
Menn munu komast að raun um, að
engir prettir verða í tafli, hvorki hvað
snertir efnið né vinnuna. Hvergi hér
á landi og óvíða erlendis er efnið
þurkað við gufu, og sízt eins vel.
Engin hurð mun gaoga úr sínum
fyrstu skorðum, þó við hita sé. Svip-
urinn laglegur og stærðirnar mátuleg-
ar. Allar hurðir og gluggagrindur
þml. á þykt, valin sænsk fura.
þeír, sem mundu vilja panta muni
þessa hjá mér, sendi mér skeyti í
haust eða fyrri part vetrar. Sömuleið-
is lauslegan uppdrátt (Bids) af grunn-
fleti stafgólfanna; skrifi flatarmál hvers
herbergis á uppdráttinn, í hlutfalli við
sena það á að vera, og hæðina undir
loftið (með því fæ eg stærðina mátu-
lega). Salji merki á þá staði, þar
sem gluggar og hurðir eiga að koma,
t. d. gl. og d. (við það fæ eg fjöldann).
Ennfremur geri eg uppdrætti af
stærri og smærri húsum og áætlanir
í eins góðu lagi og tízka er erlendis,
hvort þau heldur eru úr timbri eða
steini; veggirnir hlaðnir eða steyptir
og í hvaða stíl sem er. J>ar á meðal
eru skólar, kirkjur, sjúkrahús, banka-
hús, gestgjafahús, safnahús, íbúðarhús,
fénaðarhús, geymsluhús o. s. frv.;
ennfremur skraut utan húss oginnan,
blómreiti, leikreiti, stræti, brýr o. s. frv.
alt verklegt og haganlegt, og í sam-
ráði með þeim tnönnum, sem að vinn-
unni standa. Eg tek að mér umsjón
á allri vinnu víð ofangreind hús, brýr,
reiti o. s. frv., leysi það vel af hendi,
fljótt og ódýrt.
Yerð á hurðunum og gluggunum
auglýsi eg síðar, þá efnið er komið
(sem ætti að vera í ágústmán.); en
það veit eg nú þegar, að það borgar
sig að panta hjá mér.
Beykjavík 25. maí 1901.
Jón Sveinsson.
Gufubáturinn
,Reykjavík‘
kemur við á Straumfirði e r v e ð-
ur leyfir á leið frá Borgarnesi
til Reykjavík U- júní, 16. júlí og
27. september, og frá Reykjavík til
Borgarness 18. júní, 19. júlí og 2.
október.
Beykjavík, 31. maí 1901.
B. Guðmundsson.
Eldsvoðaábyrgðarfélagið
Nederlandene
stofnað 1845
tekur að sér ábyrgð á húsum og alle
konar munum, með sama taxta og
önnur félög hér á landi.
Stofnfé 6,000,000 kr.
varas.jóður 2,916,149 kr.
fætta er eitt af félögum þeim sem
Landsbankinn tekur gild.
Aðalumboðsmaður fyrir Beykjavík
og Suðurland er
Jes Zimsen.
Góðar vörur gott verð!
Hvergi jafn ódýrt eftir g:æðam
Ennfremur borðbúnaður úr prófsilfri og silfurpletti.
Að eins fínustu sortir.
EDINBORG
í Reykjavík
Með gufuskipunum »Vestu« »Lauru« og »Kronprinsessa Viktoria« hafa kom-
ið miklar birgðir af alls konar vörum svo sem :
í Vefnaðarvörudeildina
Reiðfataefni. Tvististauin frægu, Nankin, Oxford, Skyrtur tilbúnar, Kven-
Regnkápur, Tvinni alls konar, Garn ails kon. o. m. m. fl.
t Nýlenduvörudeildina
Meðal annars: L a u k u r, Rúsínur Kaffibrauð rnargar teg. Quaker oats. Sukat
Chocolade ceams. Fægipúlverið alþekta o. m. fl.
t Pakkhúsinu
Alls konar matvara, kaffi og sykur. Gaddavír, Korkur o. m. fl. Þá eru
og altaf nægar birgðir af Þakjárninu alþekta.
Reykjavík 4. júní 1901.
Ásgeir Sigurðsson,
Verzlunin ,NÝHÖFN‘
Mestu birgðir og flestar tegundir af Niðursoðnu.
Lágt verð!
___________________________t..................
Liandakot-Kirken.
Söndag Kl. 9 Höjmesse. Kl. 6 Prædiken.
Vatnsleysustrandar- og sunn-
anmenn eru beðnir að vitja ísa-
foldar í afgreiðslu hennar (Austur-
stræti 8).
Vín og Vindlar
fæst ódýrast í verzluninni NÝHÖFN,
sérstaklega skal mælt með frönsku
rauðvíni, sem selst fyrir 80 aura flaskan.
Barnaskóli
Stykkishólmshrepps.
J>eir sem kynnu að hafa hug á að
sækja um aðalkenslustarfið við Barna-
skóla Stykkishólmshrepps, snúi sér
skriflega til oddvita hreppsins, fyrir
lok júlímánaðar næstkomandi, og
gefur hann nánari upplýsingar um
kennarakaup o. fl.
Stykkishólmi 4. júní 1901.
Fyrir hönd hreppsnefndarinnar í
Stykkishólmi.
Björn Steinþórsson
(oddviti).
Undirskrifaður gerir hér með vitan-
legt, að hann bannar harðlega öllum ferða-
mönnum að heita eða á hestum eða öðr-
um fénaði í landi ábúðarjarðar sinnar án
síns leyfis. Arbæ 3. júní 1901.
Eyleijtir Einarsson.
i Að algúðum guði hafi þóknast, hinn
3. þ. m., að burtkalla til hinztu hvíldar frá
þessa jarðneska lífs þjáningum mina elsk-
uðu, góðu, eiginkonu tTuðlaugu Grimsdótt-
ur, tilkynnist hér með vinum okkar og
vandamönnum nær og fjær.
Jarðarför hennar fer fram miðvikudag-
inn 12. þ m., og byrjar á heimili mínu,
Skólavörðustíg 3, kl. 12 á hádegi.
Kvik, 6 júní 1901. Árni Gfslason.
Til sölu 2 Chaiselonger mjög ódýrir.
Kitstjóri visar á.
16. júní þ. á. byrja eg útsölu á
mjólk úr Viðey. Útsalan fer fram á
Laugavegi nr. 7 í bakaríinu á hverjum
degi eftir kl. 9 árdegis.
Verð: 15 — fimtán — aurar
fyrir nýmjólkurpottinn.
Listi er lagður fram í bakaríinu, svo
að þeir, sem kynnu að vilja kaupa hjá
mér mjólk, geta skrifað sig á hann, og
hve mikla mjólk þeir vilja fá.
Ben. 8. Þórarinsson.
Flensborgarskólinn.
Umsóknir um skóla næsta ár verða
að vera komnar til undirskrifaðs f y r-
ir ágústmánaðarlok í sumar.
— þeir, sem óska aðfá heimavist
(0: bústað í skólahúsinn) verða að
taka það fram í umsóknarbréfum sín-
um. — þeim, sem þess óska, verður
vei:t ókeypis kensla til miðs maímán-
aðar næsta ár.
Flensborg 3. júní 1901.
Jón Þórarinsson,
forstöðumaður skólans.
Proclama.
Samkvæmt opnu bréfi 4. jan. 1861
og skiftalögum 12. apríl 1878 innkall-
ast hér með allir þeir, er til skulda
eiga að telja í dánarbúi Einars heit.
Ásgeirssonar á Firði í Múlasveit inn-
an Barðastrandasýslu, sem andaðist
30. október f. á., til þess innan 6
mánaða frá síðustu birtingu þessarar
auglýsingar að Iýsa kröfum sínum og
sanna þær fyrir undirritaðri ekkju
hins látna, sem fengið hefir leyfi til
að sitja í óskiftu búi.
Firði 12. maí 1901.
Jensína Jónsdóttir.
Taugaveiklun-
Eg hefi mörg ár þjáðst af tauga-
veiklun og slæmri meltingu og hefi eg
reynt ýms ráð við því, en ekki komið
að notum. En eftir að eg hefi nú í
eitt ár brúkað hinn heimsfræga Kína-
lífselixír, sem hr. Walderaar Petersen
í Friðrikshöfn býr til, er mér ánægja
að geta vottað, að Kínalífselixír er hið
bezta og öruggasta meðal við alls kon-
ar taugaveiklun og við slæmri meltingu,
og tek eg því eftirleiðía þenna fyrir-
taksbitter framyfir alla aðra bittera.
Bósa Stefánsdóttir
Beykjum.
Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flest-
um kaupmónnum á íslandi, áu toll-
hækkunar, svo að verðið er eins og
áður að eins 1 kr. 50 a. flaskan.
Til þess að vera viss um, að fá
hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupend-
ur beðnir að líta vel eftir því, að
standi á flöskunni í grænu lakki, og
eins eftir hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas í
hendi. og firmanafnið Waldemar Pet-
ersen, Frederikshavn, Danmark.
í verzlun
B. H. Bjarnason
eru þessar húsbyggingarvörnr ódýrast-
ar: stofuskrár, kamersskrár, amerísk.
skrár, hurðarklinkur, úti- og innidyra
Iamir, hurðarrílar, hurðarhúnar, amerík.
lásar, hurðarfjaðrir, stiftasaumur
pappasaumur, alls konar skrúfur úr
járni og látúni o. fl.
Ennfremur alls konar málaravörur,
kítti, gluggagler, cement, m. m.
Afsláttur í stórkaupum
Samkvæmt skýrslu sýslumannsins í
jþingeyjarsýslu rak sumarið 1900 bát
á svonefndum Hroll-laugsstaðarreka á
Langanesi. Bátur þessi er með gafli
og 4 þóftum, 12 ál. á lengd og 23/4 al.
á breidd. Hann er málaður dökkrauð-
ur að innan, en hvítur að utan.
Á eiganda vogreks þessa er hér með
skorað að segja til sín innan árs og
dags frá síðustu birtingu þessarar
auglýsíngar og sanna fyrir undirrituð-
um heimildir sínar til andvirðis vog-
reks þessa að frádregnum kostnaði og
bjarglaunum.
íslands Norður- og Austuramt.
Akureyri 15. maí 1901.
Páll Briem.
Ritstjórar: Björn Jónssonþítg.og áhm.)og
Einar Hjörleifsson.
Isaf ol darprentsmiðj a