Ísafold - 09.11.1901, Blaðsíða 2

Ísafold - 09.11.1901, Blaðsíða 2
286 að setja gæzluatjóra við hlið houum, 2 menn, sem eru valdir þar á staðnurn, og þekkja vel tii þar. f>essir gæzlustjórar gætu endurskoðað reikn- inga útibúsins og haft eftirlit með sjóðnum og svo frv., og þeirn væri greidd S00 króna þóknun hvorum. — |>á eru úigjöldin orðin 7000 kr., og 1000 kr., sem eftir eru, ganga í húsa- leigu, eldivið, ljós, ræstingu og frí- merki o. s. frv. — Útgjöldin við úti- búin verða þess vegna að mínu úliti 8000 kr. fyrir hvert að meðaltali, og vegna þess, að hvert þeirra verður að vera sjálfstæður smábanki, sem verð- ur að geta stjórnað sér sjálfur lengst- um. Ef þau eru sett á fót með þeim hætti, sem hér er bont á, er ómögulegt að koma upp nema einu útibúi á ári, og líklegast væri aðal-bankinn alt að sex árum að koma því í verk. f>að er misskilningur að ætla, að seðlabanki á íslandi" gefi t. d. fyrstu 20 árin hluthöfum sínum háa vexti, eða að það svaraði kostnaði, að taka lán, sem greiða verður 6°/0 af í vexti og afborgun árlega til að setja hann á fót. Ef svo væri, ættu hluta- bréfin í hlutafélagsbanka hér á landi að gefa af sér 6% í vexti. — f>au| gæfu þvert á móti, þegar alt væri í fullum gangi, hér um bil 4 og 4^/2 og allra hæst ð°/0» alt eftir því, hvort rentan væri 4, 4:/2 eða 5%. — f>etta kemur af því, að seðlafúlgan, sem ekki þarf að tryggja með gulli, er eftir áliti þjóðbankans í Danmörku í hæsta lagi 1250 þúsund krónur, en vextir af því fé samsvara hér um bil kostnaðinum við bankahaldið. Hér á landi er ffólk fátækt, og safnar ekki m i k I u m auð fyrst um sinn, þótt góð- ur banki kæmist á; getur því enginn banki hér grætt verulega á geymslufé.— Langflestir seðlabankarnir erlendis, sem nú svara háum vöxtum til hlut- hafa einna, hafa framan af svarað miklu lægri vöxtum. Aths.: Það er athugavert við útreikn- inginn í síðasta bl., að þar hefir fallið burt athugasemd um kostnaðinn við bankahald- ið. Alment gildir sú regla, að skuld við önnur lönd verður ekki greidd nema með vörum eða peningum (gulli). Bankinn hér hefir engar vörur til. Þess vegna var gert ráð fyrir, að hann yrði að greiða skuld sína með hinu lánaða gulli. En það er rangt. Því bankinn getur keypt skuld, t. d. víxil, hér á landi fyrir seðia og fengið hana borgaða í gulli erlendis. Kaþólskup spítali í Reykjavík. f>að er nú fullráðið, að kaþólska trúboðsstofnunin hér í Reykjavík, Landakoti, reisir spítala þar að sumri, og hann miklu stærri en landsspítal- anum var ætlað að vera, þessum, sem þingið lét sér sséma að koma fyrir kattarnef í sumar. Hann átti að vera handa 24 sjúk- lingum, en þessi handa 40. f>að verður stórhýsi, 60 álna langt og 15 á breidd og 2 lofthæðir. Út- búnaður allur viðlíka og gerist á vönd- uðum smáspítölum erlendis. Vænt má Reykjavík um þykja í sjálfu sér, að fá almennilegan spítala og fullstóran fyrir sig, í stað þessarar vandræðaholu, sem nú er hér í bæn- um. Og þeim þykir sjálfsagt vænt um líka, sparnaðarmönnunum á þinginu, að landssjóður komst hjá að leggja á sig þá byrði í bráðina — og líklegast til langframa. f>að má búast við, að lengi þyki á- kjósanlegra að leggja þessum spítala heldur einhvern ársstyrk, í notun þeirra afnota, er læknaskólinn og landið alt kynni af honum að hafa, en að fara að leggja í að koma upp landsspítala. f>að má búast við, að þess verði enn langt að bíða, að þingi og þjóð vaxi svo mannlund og drengilegur metnaður; að hún uui ekki ölmusu- mensku að því er kemur til bráð- nauðsynlegustu þjóðfélagsstofnana. Hún hefir látið gefa sér holdsveikra- spítala. Hún er að láta gefa sér geðveikra hæli. Nú ætlar hún að láta sama sem gefa sér landsspítala. Lætur meir að segja annarlegt trúarfélag gera það, — trúarfélag, sem hefir sjálfsagt strengt þess heit með sjálfu sér, að helga sér landið aftur, gera það alkaþólskt, eins og það var fyrir mörgum öldum, og veit það af gamalli reynslu og óyggj- andi, að engin ráð eru vænlegri til þess en skólar og spítalar. Vafalaust er þetta hinn eini höfuð- staður utan hins kaþólska heims, sem lætur kaþólsku kirkjuna sjá sér fyrir sjúkrahæli, í stað þess að gera það sjálfur eða í samlögum við ríkið, landið. Vitaskuld er verkið ekki nema þakkarvert fyrir því í sjálfu sér, og úr því sem gera er. f>að væri mjögrangt og ætti ílla við, að kunna frumkvöðl- um þess, Jósefssystrum, óþökk fyrir. Stofnunin e r nytsemdarstofnun og guðsþakka, hver svo sem er höfundur hennar, og kemur að tilætluðum not- um að aðalatriðinu til, hjúkrun sjúkra og læknishjálp yfirleitt, þó að sá hængur sé á, að læknarnir hafi ekk- ert vald yfir stofnuninni og eigendur hennar ráði einir endurgjaldinu fyrir spítalavistina, sem búast má við að verði fátækum ærið þungbært, en í fá- tækra tölu er og verður meiri hluti þeirra, er sjúkrahús þurfa að nota. Seðlíiútgáfurétturinn dýrinæti. í hvert skifti, sem andstæðingar stofnunarhlutafélagsbanka, bankamenn- irnir og afturhaldsmálgagnið, hafa lát- ið til sín heyra um bankamálið, hafa þeir haft það fyrir aðalástæðu gegn stofnun hlutafélagsbankans, hvað hróp- legt það sé, »að fleygja frá scr hinum dýrmceta seðlaútgáfuréttú. f>essu hafa þeir jafnan varpað fram, án þess að gera lesendum sínum eða áheyrendum neina grein fyrir, hvers virði seðlaút- gáfurótturinn er oss nú í raun og veru. f>að er sjaldan vandi að finna ein- hver orð máli sínu til stuðnings, sem láta vel í eyrum þeirra, er lítið eða ekkert skyn bera á málefnið, sem um er rætt. f>að lætur ekki illa í eyrum orðið »heimastjórn, þegar verið er að, tala um breytingu á stjórnarskránni. A slíkum orðatiltækjum má fljóta æði- lengi, þegar málefnin eru vandasam- ari en svo, að mönnum sé alment ætlandi að geta dæmt um þau af eig- in skynsemi eða þekkingu. »Að fleygja frá sér þessum dýrmæta seðlaútgáfurétti« kitlar ekki lítið eyr- un á þeim, sem ekki þekkja, hvað seðlaútgáfuréttur er, eða hversu mikið gagn má hafa af honum. Eg vil því leitast við að skýra, hvers virði hann er nú sem stendur hér á landi, fyrir landið og bankann, og hvers virði lánstraust landsins er, ef það væri róttilega notað. Eins og sést af reikningi lands- bankans árið 1900 er bankahaldskostn- aðurinn................ kr. 22876 15 fyrir utan »Yms gjöld« kr. 11336 30, sem reikn- ingurinn greinir ekki frá, hor séu. Bankareikningurinn telur húsaleigu, eldi- við, Ijós og rœsting að eins kr. 1165 68, sem vitanlega nær engri átt; þar sem bankahúsið kostar 85,800 kr., gæti bankinn hæglega haft 5°/o hag af þessu fé, ef það væri laust, og mun þá ekki of í lagt, að á- ætla leiguna af húsinu 6% þegar tekið er tillit til viðhalds og fyrningar, er leigan þá kr. 5140 00 þar við bæt- ist kol og ljósmeti um — 500 00 og umsjón hitavélar og ræsting um — 338 00 Samtals: kr. 5978 00 Erá þessu dregst svo: a. Leiga frá forngripa- safninu kr. 200000; h. f>að sem bankinn telur fyr- ir húsnæði eldivið, ljós og ræsting kr.1165.68, verður alls — 3165 68 er húsaleigan þannig vanreiknuð um.......... — 2812 32 Sá sanni bankakostnað- ur er þá .............. kr. 25688 47 Af þessum kostnaði er sennilegt að áætla, að sparisjóðurinn og þetta brot af veðdeildinni, sem til var síðasta ár, ætti að bera ............... — 6000 00 að minsta kosti ætti að vera hægt að fá það starf unnið fyrir það fé í samhandi við banka- eða önnur samstæð störf. Verður þá eftir af kostn- aðinum ....... ........ kr. 19688 47 sem hvílir á seðlunum sjálfum. Seðlafúlgan er nú 750 þús. kr., og só samkvæmt venju áætlað, að 20°/» séu að jafnaði arðlausir, eða því sem svarar í peningum, en 600 þús. gefi 4£°/» vexti, þá nema vextirnir á ári — 27000 00 þegar kostnaður er dreg- inn frá ................ — 19688 47 verður hinn reiknings- legi hagur af seðlaút- gáfunni um ............ kr. 7311 00 þegar ekki er tekið tillit til hins ó- beina taps af seðlunum. Hagurinn af hinum »dýrmæta« seðla- útgáfurétti nemur þá tæplega því, sem landsbankinn á að svara lands- sjóði, 7500 kr. á ári, fyrir þennan »dýrmæta« rétt, að mega nota banka- seðla sem veltufé í stað peninga, bankaseðla, sem enginn gullforði er fyrir, sem alstaðar hafa gefist illa, og gjörspilla því lánstrausti landsins í útlöndura. Björn Krristjánsson. Eftirbreytnisyert dæmi. »Norðurland« skýrir frá því, fyrir munn Guðm. læknis Hannessonar, að skarlatssótt hafi stungið sér niður á stöku stað norðanlands, en læknum tekist að bæla hana þar niður hvar- vetna. Meðal annara segir þar frá, að 2 börn hafi sýkst í sumar á Húsavík, og voru bæði einangruð, annað heima, en hitt í skólahúsinu. »Nokkuru áð- ur en sóttnæmishættan var afstaðin á síðara barninu, skipaði landlæknir svo fyrir í umburðarbréfi, að hætta skyldi einangruninni; en þá bauðst móðir barnsins til pess að hosta sótt- vörnina sjálf, til þess að öll hætta vceri úti. Veikin mun því hafa verið algjörlega bæld niður þar. Hefðu all- ir sama hugsunarhátt og þessi kona á Húsavík, þá mundu eigi margar sóttir leika lausum hala á ári hverju«. Lánstraust landssjóðs. þegar einhver þarf á miklu láns- trausti að halda — og ísland þarf sannarlega að geta fullnotað lánstraust sitt —, þá þarf hann að fara sem sparlegast með það, og láta sér verða sem mest úr þvi þar, sem lánið þarf að taka. En, eins og hér á stendur, er það í útlöndum, sem Island þarf að hafa lánstraust. Svo er lánstraust Islands lítið í út- löndum, að þrátt fyrir kostnaðarsama ferð, sem bankastjórinn tók sér á hendur, auðvitað á kostnað bankans, þá gat hann ekki komið út nema ein- um 200 þúsund krónum af banka- vaxtabrófunum á danskan markað, fyrir mikið lægra verð en jafn-vel trygð verðbréf seldust í Danmörku um það leyti. Hér verður að taka til greina, að veðdeildarbréfin ættu að seljast með sama verði og konungleg skulda- bréf, ef tryggingin væri álitin jöfn: ef landssjóður hér vceri í Danmörku skoðaður jafn-tryggur til ábyrgðar eius og ríkissjóðurinn danski. Slíka ábyrgð er ekki hægt að bera saman við ábyrgðprímí-félaga, eins og banka- stjórinn gerir; hann sýnir óvitaskap sinn í því, eins og öðru í bankamálinu, að leggja þessar ábyrgðir að jöfnu. — Eða því skyldu msnn vera að kaupa konungleg ríkisskuldabréf, sem gefa að eins 3—31/2°/0 vexti, fremur en skuldabréf eða verðbréf prívat-lélaga, til dæmis Kjöbenh. Frihavns Obligat- ioner, sem gefa il/2°/0,el — markaðurinn álitur tryggingu slíkra félaga jafn- stöðuga og landssjóðs- eða ríkissjóðs- tryggingu? Svo mikið ætti banlSstjórinn að vita, að menn leggja ekki slíkar tryggingar að jöfnu, og þess vegna er verð verðbréfa mismunandi á sama tíma. Landssjóður hefir sýnilega ekki það traust í Danmörku, að honum só full- komlega treyst til, að ábyrgjast hina árlegu vexti af veðdeildarbréfunum, 54 þús. krónur, þó 200 þúsund krónur f konunglegum skuldabréfum séu auk þess að veði og jarðarveð og húsveð þau, sem veðdeildin hefir fyrir lánun- um, og loksins 5000 króna gjöf á ári til veðdeildarinnar frá laudssjóði í 5 ár. þetta er alveg ónáttúrlegt lánstrausts- leysi, þegar tekið er tillit til þess, að landið skuldar engum neitt, en á að jafnaði eina miljón króna í vara- sjóði. Bankastjórinn hefir, eftir að bank- inn auðvitað hefir þraut-reynt áður að selja bankavaxtabréfin, tekið sér þessa dýru ferð á hendur til þess, að selja bankavaxtabréfin, og komið út einum 200 þús. krónum — og eftir

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.