Ísafold - 04.01.1902, Qupperneq 1

Ísafold - 04.01.1902, Qupperneq 1
ISAFOLD Uppsögn (ski-ifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sé til átgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslustofa blaðsins er Austurstrceti 8. Reykjavík laugaudaginn 4. jan. 1902. 1. blað. Kemur fit ýrnist einu sinni eða tvisv, í liiixu Yerð 4rg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða 1 */* doli.; borgist fyrir miðjan júii (erlemiis íyrir fram.) XXIX. árg. !. 0. 0. F. 83ll08'/2. Forngripasafn, opið mvd. ogld 11—12 Lanasbokctsafh opið livern virkan dag ki. 12—2 og einni •etundu lengur (til kl. 3) rad., mvd. og Id. til útlána. Okeypis lækning á spítals.num á þriðjud. og föstud. kl. 11 -1. ókeypis augnlækning á spítalannm fyrsta og þriðja þriðjud. hvers mánaðar k. 11-1. Ókev]>is tannlækning i húsi Jóns Svems- gonar hjá kirkjunni !. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1. Landsbanlcinn opinn hvern virkan dag ki 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1. Góð stjórn og ill. Ósjaldan má heyra menn eins og hálí-ama8t við því, að verið sé mikið að hugsa og tala’um landsstjórnarmál. jpykir sem margt annað sé þarfara og hyggilegra. Eða þú hitt, að þeir telja sér jafnvel til gildis, að þeir beri ekk- ert skyn á slíka hluti; en láta alt um það í Ijósi afdráttarlaust mjög ákveðn- ar skoðanir um mikilsverðusfcu lands- stjórnaratriði, fylla eindregið ákveðinn stjórnmálaflokk í orði, en vitanlega þá af þvi samsvaranda viti. Hafa sem sé aldrei garfc sér neitt far um að kynna sér og íhuga slík mál svo, að haft geti neina rökstudda sannfæringu. Yerða svo að bráð óhlutvöndum þjóð. málaskúmum, sem sjá sér og sínum vinum hag í því að afvegaleiða lýð- inn, tæla hann út á ýmsar villigötur, í stað þess að leiðbeina honum sem bezt og veita holla fræðslu í mestu1 velferðarmálum hans. Og þó er fátt áþreifanlegra en það, hve mikið er komið undir hagfeldri, viturlegri, réttvísri og skörulegri stjórn. Ejöldi tnanna hefir fyrir augura sér dagleg dæmi þess, hver munur er á heimilum með góðri stjórn eða lólegri, hversu velgengni og hvers konar þrifn- aður, atorka, árvekni og ánægja drotn- ar þar og dafnar, sem heimilisstjórn er með fyrirmyndarsniði, en alt geng- ur á tréfótum, draínar niður og dott- ar þar sem hún er í ólagi. Eigi er hitt síður almenningi kunn- ugt, hver munur er á, hver á heldur sveifcar-stjórntaumum vor á meðal. — Margir kunna frá því að segja, að í tíð þess og þess hreppstjóra eða odd- vita hafi sveitarstjórn þeirrar sveitar farið prýðilega lir hendi, sveitin safn_ að töluverðum sjóði o. s. frv., en síð- an fcekið við klaufar og amlóðar, er hafi ekki einungis e'tið upp sjóðinn, heldur og safnað stórskuldum á sveit- arinnar bak, tekið hallærislán og eytt því svo; og svo óráðvíslega; og þar fram efór götunum. Svona mætti til tína hvert dæmið á fætur öðru. Og svo halda menn, að á minstu standi um það, hvort 3tjórn heillar þjóðar, ríkisstjórn eða landsstjórn, er í viturra manna höndum, réttvísra og röggsamra, eða þar ræður vanhyggja, ranglæti og dáðlevsi. Hvort fyrir- komulag á stjórninui er þannig vaxið, að heill og hagsmunum almenningS sé svo vejl borgið að því leyti til, er mann- legt hpggjuvit fær við ráðið, eða þar ræður* geðþófcti einstakra drotnunar- gjarn/a valdsmanna og misjafnlega vandaðra. Hvort allir þegnar þjóð- félagsins njóta jafnréttis lögum sam- lcvæmt og fullrar réttarverndar, eða þeir eiuir ná löguni og réttindum í málum sínum, er völd hafa eða auð; en öreigar og lítilmagaar lögum rænd ir, er svo ræður við að horfa. Hvort verkamenn þjóðfélagsins, embættis- mennirnir, eru nýtir menn og valin- kunnir, er standa dyggilega í stöðu sinni, eða þeir eru ótrúir þjónar, latir og hirðulausir, gjörspiltir af óreglu, svo að almenningi standi voði af, heimskir og volaðir, eða þá ráðríkir um skör fram og hlutdrægir. Hvort yfirboðarar gera þeím öllum jafnt und- ir höfði og lífca á það eitt, hvernig þeir rækja sitt embætti, eða vinátta og flokksfylgi er ærið þeim til líknar og friðþægingar, hvernig sem þeir haga sér, en aðrir verða fyrir ofsóknum fyr_ ir engar sakir eða mjög smávægilegar, ef eigi nýtur slíks við. Auk alls. þess ills, sem ranglát stjórn, dáðlítil og óhlutvönd af sér get- ur beinlínis, þá er hinir óbeinu ávext- ir af henni enn skaðvænni. Hennar dæmi örvar og glæðir samkynja vamm- ir meðal þegnanna, elur upp í þeim annars vegar margvíslegan skaðræðis- óvanda, ranglæti og ójöfnuð, en hins vegár vantraust á sigri þess, sem gott er og göfugt, og um leið áhuga- og at- burðaleysi til að beita sór fyrir það af öllum mætti; en slíkt er eitt hið mesta ólán, er nokkurt þjóðfélag getur í ratað. Hins vegar gefcur varla göfuglegra hlutverk og mikilsverðara en að berj- ast fyrir hollu og viturlegu landsstjórn- arfyrirkomulagi, og röggsamlegri, vand- aðri og réttvíslegri framkvæmd þess. Mentun, Effcir síra Friðrik J. Bergmann. II. (Niðurl.), |>á, er stefna manns í lífinu. |>að stendur ekki alveg á sama, hver hún verður. Líf allra manna er undir henni komið. Sé hún öfug, þá er maðurinu öfugur og alt starf hans og strit öf- ugt. En þeim manni, er rétta stefnu hefir í aðalatriðunum — honum verð- ur mikið fyrirgefið. Góðum mönnum þykir ávalt vænt um hann, af því hann ljær góðu málefni ávalfc fylgi sitt. Hann lendír ekki með líf sitfc út í ó- færur. Hann vaDdar ráð sitt og fylgir því, sem rétt er og satt, eins vel og hann hefir vit á. Hann hvarflar ekki frá einu til annars. Vill ekki eitt í dag og annað á morgun. Hefir ekki þessa skoðun, þegar hann er að tala við þennan, og alt aðra skoðun, þegar hann er að tala við einhvern annan. Hann er ekki allur á víð og dreif. Skelfing hringla mennirnir framogaft- ur, og fara alveg með líf sitt á þeim hringlanda. Vér Islendingar eigum mikið af góð- um gáfum, Vér erum fljótir að skilja og fljótir að nema. |>að hefir líka á- valt verið fjöldi af námfúsum ungling- um á meðal vor, hvort sem það er nú eða ekki. En það verður oft svo lít- ið úr vorum andans auð. Vér þekkj- um allir marga stór-gáfaða menn af þjóð vorri, er leika sér fram og affcur með hugsanir og hugmyndir, sem oft eru bæði báleitar, göfugar og fagrar. En svo situr við leikinn. Alvöruna vanfcar. jpessar hugsanir hafa engin áhrif á líf og lífsstefnu þessara manna. J>að 9r oftast ekki unt að sjá neina meginreglu fyrir orðum þeirra- og at- höfnum. Hina siðferðislegu þunga- miðju vantar, — viljann, er stöðugt heldur í sömu áttina og smáryður sér braut að takmarkinu. Stefnulaust lff er ónýtt líf, — sfcefnulaus maður, hve gáfaður sem hann er, gagnslaus mað- ur sjálfnm sér og öðrum. Sannmentaður maður vill það eitt, sem vit og farsæld er í. Sönn ment- un le'itast líka við að gera manninn svo einbeittan, að hann fylgi vilja sín- um fram með einurð og atorku og láti ekki heimskuna né hégómann glepja sjónir fyrir sér. Hún dregur hæfileika mannsins saman og safnar þeim á einp brennipunkt. jþeir hætta þá að vera allir á dreifing hihgað og þangað, eins og alvörulausir drengir að fánýtum leik. þess vegna þurfum vér svo bráð- nauðsynlega á mentun að halda, til þess að lífið vort lendi ekki í stefnúlausu flakki fram og aftur bæði andlega og líkamlega. þ>að þarf að brýna vilja íslenzkra unglinga, svo þeir fái not- ið hinna góðu hæfileika, er þeir hafa þegið. |>að þarf að sýna þeim fram á, hvernig ógæfan eltir sfcefnuleysið og hringlaudann á hælum. Stefnulaus maður, sem ekki veit hvað hann vill, er Iíka ávalt skoðana,- laus maður. Honum er eiginlega sama um alt; hann álítur, að hér um bil alt geti svona nokkum veginn ver- ið jafngotfc. Hann fylgir ekki neinu fram. Til þess þykir honum ekki nógu vænt um neitt. Hann gerir oft gys að því, er öðrum er mest áhuga- mál. Hann rífur það offcast nær niður, er aðrir vilja framkvæma. Ein- hverju sinni kann hann að verða heit- ur fyrir einhverju, og hamast þá í bili. En það er þá oftast nær einhver fá- nýt, óframkvæmanleg hugmynd. Enda er hann óðara hættur, því endingin er engin. |>að er mikið til af þessu með- al vor Islendinga. Vér verðum þess dagsdaglega varir. |>að lamar þjóðlíf vort og varpar einhverjum vonleysis- blæ yfir framfarabaráttu vora alla. íslenzk ungmenni! Langar yður inn í hóp hinna skoðanalausu manna? Er hann ekki nógu stór áður? Hví er hann svo voveiflega stór? Af því mentunarleysið er svo mikið. |>ví sönn mentun er meðal aDnars í því fólgin, að koma auga á eitthvert and- legt mál, sem maður elskar af öllu hjarta. Utan um það mál myndast sannfæring manns, — traust og hald- góð eftir því, hve mikið maður elskar málefnið. Unglingur, sem ekkert elsk- ar, fær aldrei neina sannfæring. Um að gera, að opna augu hans og sýna honum eitthvað, sem er svo gott og göfugt, að það veki kærleikann, er sef- ur eins og barn á beði í brjósti hans. J>að er til annar kærleikur en sá, sem bundinn er við þennan líkamlega heim. f>að er til sá kærleikur, ar seil- ist inn í andans heim. Að opna aug- un, svo þau fái séð þangað, og láta hitann þaðan leggja inn að hjörtun- um, — það er hlutverk mentunarinn- ar. Viljið þér ekki öll eignast eitt- hvað til að eLka, — eitthvað, sem væri svo gott og göfugt, að þér gætuð hugsað um það alla æfi og varið öll- um kröftum yðar til að hlúa að því og friða um það? f>ér vitið öll, hve mikil mannleg við- kvæmni er. Mannssálin er eins og rafmagnsvél. Ef maður hróflar við henni, hrjóta neistar; það leiftrar fyrir augum vorum. Tilfinningar vorar ráða athöfnum vorum ekki síður en vitið og skynsemin. f>ær eru svo sterkar, að þær spyrna offc af sér öll- um böndum og gjörast sinvaldar. Eer þá vanalega ekki vel. f>að er eins og þegar villimaður brýzt til valda hjá þjóð, þar sem siðmenningin stóð í blóma. í instu afkimum eðlis vors situr eitfchvað raeð glóandi augu í myrkrinu, sem vér höfum beyg í oss við. f>að eru ástríður vorar. f>ær gefca stokkið fram lir myrkrinu, þegar sízt eigum vér von á. f>ær geta lagt í eyði hið fegursta og göfugasta lífs- starf, — lagt það x svartar, rjúkandi rústir. f>essi hætta vofir yfir lífi allra manna. Hvernig verður henni af- stýrt? Með því einu, að kenna hinu vilta og óstýriláta mannshjarta að slá upp að hjarta drottins. Trúin á hann er hið eina, er temur hið vilta í mann- eðlinu. Hin sanna mentun leiðir manninn því fram fyrir hann og inn í samfélagið við hann. f>að er hið há- leitasta hlutverk heDnar. Takist henni það ekki, verður öll fyrirhöfn hennar að eins hálfverk, sem ekki nær til- gangi sínum. Maðurinn verður ekki að manni nema sem kristinn maður. Hugmyndin mentun er í órjúfanlegu bandalagi við kristindóminn. Enginn er mentaður maður, í orðsins í eigin- legum skilningi, nema sá, sem um leið er herra yfir sjálfum sér. En enginn er herra yfir sjálfum sér, svo hann sé óhultur, nema annar æðri hafi vald yfir honum. Hinn almátt- ugi kærleikskraftur af hæðum þarf að hafa náð traustum tökum á tilfinn- ingaiífi voru áður en vér eigum það skilið, að kallast mentaðir menn. f>egar eg hugsa um mentaðan mann, hugsa eg fyrst og fremst um góðan og göfugan mann, með trausta og ein- læga lund, sem ætíð er óhætt að treysta. Eg hugsa þá líka um mann, er agað hefir hugsun sína og kann að beifca henni rétt; hann talar skipulega og sannfærandi, og er fær um að leið- beina öðrum. Eg hugsa um stefnu- fastan mann, er fylgir föstum megin- reglum í lífi sínu, keppir stöðugt að einhverju ákveðnu miði til heilla fyrir það mannfélag, er hann býr í. Eg hugsa um vitran mann, sem stöðugt er að reyna að greiða úr þeirri hugs- anaflækju og stýra réfcta leið gegnum það öfugstreymi hugsananna, er hann ávalt verður var við kringum sig. Eg hugsa að lokum um truaðan mann, sem elskar af hjarta alt gott og göf- ugt og hefir brennanda áhuga á að ljá sig allan í þjónustu þess, ef verða mætti, að sá kraftur, er honum hefir léður verið, gæti orðið til þess, að fram~ kvæma vilja hans, sem mannkynssög- unni stýrir. L.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.