Ísafold - 04.01.1902, Side 4

Ísafold - 04.01.1902, Side 4
4 ur einn ráðherrann upp með það, að reynandi sé að heyra áður, hvað þýzki sendiherrann segir. Var einn vildar- maður soldáns óðara sendur á hans fund, og gekk »drottinn r'étttrúaðra manna« ura gólf á meðan lafhræddur. þ>á kemur vildissvar frá sendiherranum, að soldán muní rnega reiða sig á það, að Vilhjálmur keisari muni ekki láta vin sinn(!) Tyrkjasoldán einan; og þar með leið hríðin fram hjá í það sinn. Skariatssóttin i Skagaf. Frétta- pistill héðan úr Skagafirði í 69. tbl., lsa- foldar þ. á. herniir svo t'rá, að eg hafi í sumar einangrað skarlatsveika menn, en að álitið sé að þetta hafi eigi skarlats- sótt verið, og Magnús læknir i Hofsós bor- inn fyrir því meðal annara. Hér veiktnst í júlimán. 2 manneskjnr, með öllnm einkennnm skarlatssóttar, og af því eg var eigi í vafa um, að skarlatsveiki væri á ferðinni, einangraði eg sjúklingana þegar. Veikin barst að Reynistað frá húsi því, er hún kom npp i hér, og var þvi heimilið sett 1 sóttvarnarbald. Veikin gjörði nú ekki vart við sig i 3 mánnði, en er þvi miðnr komin upp aftur; þó er von um, að takist að hefta útbreiðslu hennar. Magnús læknir kom hingað ekki fyr en sjúklingarnir voru komnir á fætur og þan einkenni þvi horfin, er honum voru nauðsynleg til að geta lagt nokkurn dóm á, hver veikin hefði verið. Mér þykir því mjög ósennilegt, að Magnús hafi gjört það; minsta kosti hafði hann alt önnnr orð við' mig, hvað sem hann hefir sagt öðrum. Ilitt er satt, að þegar veiki þessi kom hingað, heyrðust nokkrar raddir meðal fólksins um, að þetta mundi ekki skarlats- sótt vera og var einn af borgurum þessa hæjar aðallega upphafsmaður og forkólfur þessarar skoðunar, sem auðvitað hafði ekki og gat ekki haft neitt við að styðj- ast, heldur sagt út í biáinn, i þeirri von, að einhver mundi trúa. Maðurinn hafði lítilfjörleg óþægindi af sóttvörninni og féll það víst mjög þungt. Það er óneitanlega einkennilegt, að sjá margra barna feður rísa öndverða móti lögmætum sóttvörnum, sem gjörðar eru í þeim tilgangi, að verja Iíf og heilsu barna þeirra. Sauðárkrók 2. deshr. 1901. Sig. Pálsson. • Yfirlýsing. í síðasta tölubl. »Fjallk.« (30. des. f. á.) hefir hr. S. B. Jónsson í auglýs- ÍDgú *til bœndannau kveðið svo að orði, að hann hafi með »ráði mínu og sam- þykki tekist á hendur að útvega bænd- um hér á landi skilvindur og önnur áhöld til smjörgerðar*. Jafnframt læt- ur hann þess getið, að svo hafi og verið til ætlast, að hann »leiðbeindi bændum eftir föngum í bygging smjör- gerðarhúsa, meðhöndlun áhalda o. s. frv«. Ut af þessu leyfi eg mér að lýsa yfir því, að eg hef aldrei samið neitt við S. B. Jónsson um útvegun áhalda til smjörgerðar fyrir bændur alment, og enn síður, að mér hafi komið til hugar að fela honum að leiðbeina þeim í byggingu »smjörgerðarhúsa«, enda skorti mig umboð til þess og allan myndugleika. Pantanir þær eða, útveganir á áhöldum, sem hann hefir tekist á hendur eða ætlar sér að hafa á hendi framvegis, standa ekki í neinu sambandi við mig og eru mér að 'óllu leyti óviðkomandi. það er því í algerðu heimildarleysi, að S. B. Jóns- son notar nafn mitt í áðurnefndri aug- lýsingu á þann hátt, er hann gerir þar. Beykjavík 2. jan. 1902. Sigurður Sigurðsson (ráðunautur Búnaðarfélags tslands), Um Iiunrl í Borgarfirði gækja þeirsira .Tónmnndur Halldórsson aðstoðarpregtur í Ólafsvík, og síra Sigurður Jónsson, prest- ur á Þönglahakka. I heljar greipum. Frh- f>au höfðu þjáðst af hitanum um daginn, en þó amaði næturkuldinn þeim enn meir. Arabar vöfðu að sér kyrtlum sínum og hjúpuðu höfuðin. Bandingjarnir börðu sér af kulda og .bríðskulfu. þyngBt lagðist kuldinn á frk. Adams ; hún var holdgrönn og blóðrásin hægfara, eins og títt er um gamalt fólk. Stephens fór úr síðtreyju sinni og snaraði yfir herðar henni. Hann reið við hliðina á Sadie og fór að reyna að gera henm skiljanlegt með skringi- legum fettum og brettum, að sér væri þægð í að frænka hennar létti á sér að bera treyjuna, svo þykk og þung sem hún væri. En uppgerðin varð heldur ber hjá honum. En hitt var satt reyndar, að hann fann miklu minna til kuidans en nokkur annar í hópnum; því loginn regin-forni hafði læst sig um hjartarætur hans og und- ursamlegur fögnuður samtvinnast óför- unum hjá honum, og mundi honum hafa orðið óhægt um svar, ef úr því skyldi skera, hvort æfintýri þetta væri hið mesta ólán hans eða mesta lán á æfinni. Meðan þau Sadie voru samferða á gufuskipinu, hafði honum þótt sem þess gæti hann framast hugsað til, að hún hefði ekki beint ímugust á sér; svo mikið fanst honum um æskufjör hennar, fegurð, greind og glaðlyndi. En nú fann hann, að hann var henni að nokkuru liði og að hún vandist á smámsaman að leita þar athvarfs, sem hann var. Hitt var þó meira, að það var eins og nú færi hann að fá vitneskju um sjálfan sig — að honum færi að skiljast, að bak við vanabjúp- inn og tilgerðarhmbúnaðinn, sem hann hafði smíðað um sjálfan sig\ og jafn- vel tælt sjálfan sig á, leyndist óveilt og áreiðanlegt þrekmenni. það var eins og dálítill neisti af virðingu fyrir sjálfum sér tæki til að ylja brjóst hans. Hann hafði af engri æsku vit- að, meðan hann var ungur; en núna á fullorðinsárunum spratt hún upp, eins og fagurt, seinþroska blóm. »Mér er nær að halda, að yður sé þetta alt saman ánægjuefni, hr. Steph- ens«, segir Sadie, dálítið ömurleg. »Ekki vil eg taka svo djúpt í ár- inni«, anzaði hann. »En hitt veit eg fyrir víst, að ekki mundi eg fara að yfir- gefa yður hérna, þótt þess væri kostur«. þetta voru hin mestu alúðaratlot, er honum böfðu nokkurn tíma af munni liðið, og hin uuga mær leit forviða framan í hann. Hún þagði við stundarkorn, en mælti síðan: »Eg held, að eg hafi verið mjög slæm manneskja alla mína æfi. Af því að eg hefi átt svo góða daga sjálf, þá hefi eg aldrei hugsað um þá, sem eiga bágt. þetta hefir tyftað mig til alvöru. Ef mér verður heimkomu auðið, skal eg verða betri stúlka — alvarlegri kvenmaður — eftirleiðis«. »Og eg betri maður«, anzaði Steph- ens. »f>að mun og vera þess vegna, sem vér rötum í þessar raunir. Lítið þér á, hversu þær hafa vakið það sem gott er i brjósti vina okkar allra. Veslings síra Stuart t. d. Vér mund- um naumast hafa orðið þess áskynja að öðrum kosti, hve göfuglyndur hann var og öruggur. Og lítið þér á þau hjónin, hann Belmont og konuna hans hérna á undan okkur, hve örugg þau haldast í höndur og hugsa að eins hvort um annað. Og hann Cochrane, sem var jafnan að sjá þurlegur og þóttafullur þar úti á skipinu. Nú stenzt hann ekki reið- ari en ef hann sér öðrum raisþyrmt; þá hefir hann engar gætur á sjálfum sér. Hann Fardet er líka ljónhraustur orðinn. Eg held að ólánið hafi gert okkur öll að góðum manneskjums. Sadie varpaði öndinni. «Já, það getur verið, ef því væri lokið nú þógar; en haldi þessum ó- sköpum áfram jafnt og þétt vikum og mánuðum saman, og síðan taki dauð- inn við, þá skil eg ekki, hvar við eig- um að þurfa á að halda því umbætta hugarfari, sem ólánið hefir skapað í oss. Gerum ráð fyrir, að þér fáið forðað yður; hvað ætlið þór þá að gera?« Hann hugsaði sig um; en lagamensk- an var þá svo rík í honum enn, að hann svaraði og sagði: »Eg mundi rannsaka, hvort hér væri kæruefni, og þá gegn hverjum. þ>að verður annaðhvort að vera á hendur þeim, sem búið hafa þessa Nílarför vora, af því þeir hafi farið með okkur upp að Abúsírhömrum eða á hendur stjórninni egipzku, af þvíað hún gætir ekki landamæra sinna. |>að yrði fróðlegt lagamál. Og hvað mund- uð þér gera, Sadie?* f>að var fyrsta skifti, sem hann slepti því, að kalla hana f r k. Sadie. En hin unga mær var alls annars hug- ar en svo, að hún færi að veita því eftirtekt. »Eg' mundi verða betri við aðra«, anzaði hún. »Eg mundi reyna að gera einhverja manneskju glaða og á- nægða, til minja um raunir þær, er eg hefi í ratað«. »f>ér hafið ekki annað gert alla yðar æfi en að gera aðra glaða og ánægða« mælti Stephens. »Yður er ekki annað lagið«. Myrkrið gerði honum hægra að vera ódulari en hann átti að sér. »f>ór þörfnuðust þessa snarpa reynslu- skóla miklu síður en nokkurt okkar hinna. Hvernig eigið þér að geta orðið betri manneskja en þér eruð?« »f>arna sjáið þér, hvað þér þekkið mig mikið, eða hitt heldur. Eg hefi verið mjög sjálfelsk og hugsunarlaus*. »þér þarfnist þó að minsta kosti ekki allra þessara miklu geðshrær- inga. f>ér voruð nægilega vakandi án þeirra. f>ví var öðruvfsi háttað um mig«. »Hver8 vegna þörfnuðust þér geðs- hræringa, hr. Stephens?« Síðdeg;isr'n©‘ÍSfl Í dómkirkjunni á morg- kl. 5. (Sigurbj. G.). er 80 arkir árgangurinn og kostar 4 kr. Onnur blöð kallast vera með gjafverði, þóct fvillum fjórða part séu minni (árg.) og þó með sama verði. gefur nýjum kaupendum skilvísum fra 5-til 10-falt stærri kaupbæti og eigu- legri en önnur blöð innl., nú t. d. a I 1 a söguna V endettu og alla söguna I hel j argreipu m, þegar hún er fullprentuð, 2 all-stórar b æ k u r, samtals nær 60 arkir eða 1000 bls. En sögur þessar eru hvor annari eigulegri, meðal hinna fegurstu, skemtilegustu og vönduðustu, sem til eru á íslenzku. Brún hryssa 3—4 vetra mark hnifs- bragð illa gjört aft. vinstra, var seld á uppboði í Seltjarnarneshreppi 31. des. 1901. Réttnr eigandi getnr fengið hana útleysta ef hann gefur sig fram fyrir 1. febrúar þ. á. og borgar áfallinn kostnað, en upp frá þvi verðið að frádregnum kostnaði fyrir næstu fardaga. Hreppstjórinn i Seltjarnarneshr. 3. jan. 1902 Ingjaldur Sigurðsson. Exportkaffi-Surrogat F. Hjort & Co. Kjöbenhavn K. Frá lii í dai og framvegis verða allar vörur seldar með mjög lágu verði gegu peningum í verzlun Th. Thorsteinsson. Hús initt. nr. 5 í Tjarnargötu með pakkhnsi og litlum kálgarði fæst til leign frá 14. mai cða 1. sept. G. T Zoegn Undirskrifaður kaupir mikið af góð- um mulning, möl og sandi Magnús Arnason. Uppboðsaugiýsing. Miðvikudag 8. þ. m. kl. 11 f. h. verð- ur opinbert uppboð sett og haldið hér á Prönskuhúsalóðinni og þar selt nokk- uð af stórum trjám, borðum, múrsteini, múrsteinstöflum og þakskífu. Upp- boðsskilmálar verða birtir á undan uppboðinu. Aðalfundur »01dufélagsins« verður haldinn mið- vikudagskvöldið 8. jan. næstk. kl. 8 í Iðnaðarmannahúsinu. Stjórnin. Óskilabréf á þóststofunni frá l/io til 31/i2 1901. 1. Búfr. Jóbannes Gruðmundsson, Rvik. 2. sami. 3. Stúlkan Hansina H. Guðmundsdóttir, Hverfisgata nr. 2 Rvik. 4. Mrs. Ásdis J. Olafsdóttir, Þingholtsstr. 8, Rvík. 5. Elín Þorsteinsdóttir, Rvík. 6. Ungfrú Gunnfríður Rögnvaldsdóttir Rvík. 7. Ekkjan Ingibjörg Arnadóttir, Rvík. 8. Monsieur Kristiansen, Kr. E., verzlm. Rvík. 9. Stúlkan Guðlaug Jónsdóttir Bergstaða- stræti, Rvík. 1Ö. Herra Kristófer Jónsson, Rvík. 11. Fröken Guðlang H. Hafliðadóttir. Rvík. 12. Ekkja Þóidis Bjarnadóttir, Rvik. 18. Ungfrú lugigerðnr Sigurðardóttir, Rvík. 14. Erk. Aðalbjörg A1 bertsdóttir, Rvik. 15. Herra Indriði Benediktsson, Rvik. 16. Herra Kristleifur Jónatansson, Rvík 17. Ungfrú Sigurborg Þórarinsdóttir, Rvik. 18. Snedker Jón Jónsson, Rvik. 19. Skomagermester Benedikt Kristiansson, Rvík. 20. Herra Vigfús Jónsson, Rvik. 21. Herra Þórðnr Þórðarson, Rvík. Póststofan í Reykjavík 2/, 1902. Sigurðnr Briem. Yinnukona (ræstingarkona). getur fengið vist á Laugarnesspít- alanum 14. maí n. k. Yeðurathugíinir i Reykjavík, eftir aðjunkt Björn Jensson. 1901-02 des. jan. Loftvog millim. Hiti (C.) í»- e-r et- ct> c* >“5 cr » o>: œ 3 p CQ Urkoma millim. Minstur hiti (C.) Ld.28. 8 746,7 -1,5 E i 1 -6,7 2 747,9 -1,4 E i 2 9 749,3 -3,0 0 i Sd. 29. 8 749,3 -2,5 NE 1 i -6,4 2 750,2 -0,8 N 1 2 9 750,9 -1,0 N 1 i Md.30. 8 750,3 -2,8 NE 1 i -5,2 2 750,1 -1,4 N 2 3 9 750,2 -0,7 N 2 3 Þd. 31.8 749,6 -1,6 0 3 -5,5 2 749,4 -2,6 NE 1 3 9 748,6 -2,3 ENE 1 7 Mvd 1.8 744,2 -2,9 E 1 4 -4,0 2 743,5 -3,3 E 1 3 9 745,7 -5,0 ENE 1 2 Fd. 2. 8 747,0 -6,8 E 1 3 -8,7 2 746,5 -5,4 ENE 2 5 9 744,6 -3,3 NE 2 8 Fsd 3. 8 724,4 1,8 E 2 10 -8,6 2 720,0 -0,1 E 2 9 9 728,2 -0,2 NNE 2 10 Ritstjóri B.jörn Jónsson. í safol darprentsmiðja

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.