Ísafold


Ísafold - 09.04.1902, Qupperneq 2

Ísafold - 09.04.1902, Qupperneq 2
70 J>eir þurfa að vera nýtir og alúðar- miklir atorkunaenn við þingstörf, ekki 8Ízt í nefndum, sem jafnan lendir á aðalstarfið í helztu þingmálum, en eyða ekki tímanum í gagnslítið og staðlaust fordildarhjal, hvort heldur er ó þingfundum eða utan þeirra, eða fiokkadráttarundirróður, oft helzt til hagsmuna sjálfum sér eða vinum sín- um og kunningjum, eða af hégómlegri kappgirni eða hefndargirni við mót- stöðumenn sína. Tungumýkt og orðfimi er mikiðgott að þeir hafi til að bera með öðru góðu, með fyrtöldum kostum, en mest undir því komið, í hvers þjónustu þeim hæfileikuni er beitt; án annarra hinna meiri háttar þingannskosta geta þeir orðið skaðræði. f>á er vel, ef kjósendur hafa þenn- an mælikvarða, er þeir hagnýta kosn- ingarrétt sinn, hvort heldur í þetta sinn (í vor) eða endranær. þá gera þeir skyldu sína og eru hollir þegnar sinnar þjóðar, en eigi ella. ,,Stjórnarmálsfuud“ auglýsti hr. Jón Ólafsson hér laugar- daginn 5. þ. m. og var þar frummæl- andi, um kveldið, í Iðnaðarmanuahús- inu, — lagði út í það án aðfengiunar hjálpar, og tókst sæmilega. Hann var að vanda margar mann- hæðir eða tugi mannhæða fyrir ofan alla flokka, og þurfti margt þeim til foráttu að finna, þingmálaflokkum vorum nú, og gerði heyrum kunnugt, að hanu byði sig fram til þingmensku hér í vor (steinhættur við Suðurmúla- sýslu). Bnginn rómur var að þeim boðskap gerður. Hann vildi að öðru leyti láta spyrja þingmannaefnin um stefnu þeirra eða afstöðu í ýmsum áríðandi málum, hvernig ráðgjafavaldinu skyldi hagað og þingræði trygt, .hvað þeir segðu um launalög embættismanna, um kviðdóma o. m. fl. Ekki vildi hann koma sjálfur að sinni fram með á- kveðna stefnuskrá, heldur að fl o k k- a r n i r gerðu það. Eitthvað töluðu þeir Halldór Jóns- son, Walg. Ó. Br., Sighv. Árnason, Tr. G., svo og Jón Jensson (sjá síð- ar). Samþykt var að lokum svofeld tillaga, með rúmum 40 atkv: •Fundurinn skorar á þá menn, sem ætla að bjóða sig til þings fyrir kjör- dæmið, að birta stefnuskrá sína«. Jón Jensson'kvað það valda flokka- drætti nú, að öðrum megin væri mál- efnið sjálft, stjórnarbótin, látin ráða stefnuskránni, en hinir, afturhalds- menn, hugsuðu ekki um annað en að halda uppi ófriði, af því þeir hygðu það vera ráðið til að koma sínum flokksmönnum til valda. En um völd væri annars heldur snemt að hugsa nú; aukaþingið í sumar hefði alls eng- in áhrif á það, hverir þau hlytu; lítill vegur, að kosningar vorið 1903 gætu orðið undirstaða þess; þá fyrst, eftir þingið 1903 og staðfesting hinnar nýju stjórnarskrár haustið eftir, kæmi til greina, hverir valdasætin skyldu hljóta. Sýndi fram á, að hann hefði efnt dyggilega öll heit við kjósendur hér í stjórnarskrármálinu: fylgt fram *benedizkunni« þingin 1894 og 1895, og síðan samkomulagsviðleitni víð stjórnina hin þingin 2, er útséð var um, að »benedizkan« fengist fram, en þeirri viðleitni hefði kjósendur tjáð sig alveg samþykka á þingmálafundi. Lýsti því sem væntanlegt þingmanns- efni hér, að hann ætlaði sér að greiða atkvæði með hinu fyrirhugaða stjórn- arfrumv., er konungsboðsk. frá 10. jan. til tæki nákvæmlega, hvers inni- halds yrði: frv. síðasta þings alveg ó- breytt, að viðbættri búsetu ráðgjafans hér, er hann taldi til mikilla bóta ekki sízt að því leyti til, hvað slíkt væri miklu mannalegra og sjálfsstæð- islegra. Áður hefði ekki verið nærri því komandi. Benti á, að banka- 8tjórinn hefði sýnilega enga hugmynd um, hvað stæði 1 kouungsboðskapnum frá 10. jan., þar sem hann hefði verið að tala um, að enginn vissi, hvernig stjórnarfrumv. kynni að verða. Kvaðst ekki þurfa að taka það fram, að þingræðí vildi hann efla sem mest; eða hvað annað mundi hafa fyrir stjórnbótarmönnum vakað í allri baráttunni? Ekki hefðu þ e i r bar- ist fyrir, að fá einvaldan ráðgjafa; hefði svo verið, mundi emfaldast að biðja Dani að setja einvald yfir oss. Sterkasti þáttur í þingræðinu væri fjárráðin. En launurn ráðgjafans fengi ekki þingið að ráða nema með frekari stjórnarskrárbreyting (»fleyg«), meðþví að til væri tekið í stjórnarskráuni, bæði þeirri frá 1874 og hinni fynr- huguðu, að útgjöld til hinnar æðstu innlendu stjórnar skyldi greiða af ríkissjóðstillaginu, þ. e. eftir konungs- úrskurði. Og óvíst taldi hann, að það mundi efla þingræði, að ráðgjafaem- bættið væri látið vera eftirlaunalaust; hætt við, að það yrði til þess, að ráð- gjafinn hefði þá í fyrirrúmi fyrir öllu öðru, að halda embættinu, hvað sem liði vilja og hagsmunum þings og þjóðar. En hitt væri sjálfsagt, að láta ráðgjafaembættinu því að eins fylgja eftirlaun, að það yrði talið horfa þjóðinni til hagsmuna. Hlyntur haganlegri breyting á dómaskipun og eflingu verklegrar kunnáttu í landinu með fjárframlögum til atvinnumála; en alt slíkt mundi raunar lítið koma til greina á aukaþinginu f sumar, er meðal annars ætti ekkart við fjármál. Minti loks á hringsnúning þann, er afturhaldsliðið hefði tekið á skömmum tíma. það hefði viljað gera það að landráðum fyrir nokkrum árum (1897), að láta Ísland3ráðherrann eiga sæti í ríkisráðinu; en nú heimtaði það ríkis- ráðssetuna einum munni. Onnur land- ráð af hálfu Valtýinga hefir það átt að vera, að vilja samþykkja 1899 stjórnarbót með þeim skildaga, að hún væri endalok baráttunuar; nú væri sami fyrirvari hafður í konungsboð- skapnum frá í vetur um hið væntan- lega stjórnbótarfrumv., er ætti að verða alveg samhljóða frumvarpi Val- týinga frá þingínu í fyrra, að búset- unni að eins viðbættri, í samræmi við kröfu þeirra í konungsávarpinu m. m., en það frumvarp vildi nú afturhalds- liðíð láta samþykkja óskorað eða svo léti það á sér heyra. Hverjum væri þessar framfarir að þakka, þessi æðri og betri þekking? Hverjum, nema Valtýingum. Utan fundardagskrár eða fundar- boðs var tekið síðan fyrir um nóttina bankamálið; og bíður skýrsla um það næsta blaðs. Árnessýsiu (neðanv.) 29. marz: Fátt tiðinda. Tíðin má góð heita, þó storma- samt sé. Alt til þe6sa mjög aflatregt í öllum veiðistöðunum hér eystra, enda stirðar gæftir. i->að mun fara nærri sanni, að nú sé hæst 250 fiska hlntur á Stokkseyri, en meðalhlutur kringum 150. Nokkuru minni afli á Eyrarbakka og Loftstöðum; i Þorlákshöfn hefir enginn náð 200 fiska hlut enn þá. Eyrbekkingar og Stokkseyringar hafa skemt nokkurum sinnum í vetur með sjón- leilcum. Þótti langmest komatil »Skugga- Sveins«, enda prýðilega leikinn (af Eyr- bekkingum). Bindindismálinu hér í sýslu miðar drjúgum fetum í áttina til sigurs. Ekki er rétt að halda því fram, að við hér hugsum ekkert um »póiitik«. Alment er einmitt vaknaður töluverður áhugi í þá áttina, að hlynna sem bezt að stjórnartil- boðinu. En svo eru margir hér skyni skropnir, að þeir geta ekki gert sér það ljóst, hvers vegna afturhaldsmálgögnin þurfa sí og æ að vera að malda eitthvað í móinn. Vér þráum orðið friðinn í þessu máli. Þarf annars nokkur stjórnmálarimma að eiga sér stað, eins og nú standa sakir? Árnesingar r.mnu reyna að fara skyn- samlega að ráði sinu við næstu kosningar, og kjósa þá eina á þing, sem hafa bæði vit og vilja á því, að leiða þetta velferð armál til íarsællegra lykta. Sem betur fer, getur við likl. átt von á því, að 2 mikils metnir héraðsbúar verði hér í kjöri. Væri dálitið myndarlegra fyrir Árnesinga að kjósa þá — sina eigin sýslubúa —, en ef til vill einhverja utanveltubesefa, sem hafa kynnu fátt af þeim hyggindum, sem í hag koma, en dálítið af hinu, sem sumir kalla þjóðólfslcan þverhöfðaskap Amtsbúíræöing'ar. Eftir Jóh. Magnússon búfr. II. (Niðurl.) Vera má, að þetta fyrirkomulag geti engan veginn líkst umgangskenslu í vanalegri merkingu, þar sem búfræðing- um þessum er að eins ætlað að ferð- ast um, en hafa engan sérstakan dval- artíma, þar sem þeir koma. Enda ríður það á minstu, hvað fyrirkomulag þetta er kallað; hitt er meira um vert, að það gefist vel, verði landi voru til engu minna gagns en sams konar til- raunir liafa orðið öðrum þjóðum. Enda hafa þær margar komið líkri bú- fræðslu á fastan fót hjá sér, og er hún mjög vel látin. Skiftar skoðanir geta verið um, hvernig launa eigi þessum amtsbú- fræðingum, og hvar sá kostuaður ætti að koma niður, sem því yrði samfara. Væri þeim ekki ætlað að hafa atvinnu af öðru en þessu brúfræðingsstarfi sínu, þá er eðlilegt, að þeir verði að hafa sæmilega há laun, bæði til þess að þeir geti lifað nokkurn veginnáþeim, og hægra sé að tryggja sérnýta menn í þá stöðu. Laun þeirra ætti að greiða af landsfé, en ferðakostnað af amts- sjóðurr; þó mætti haga þessu eftir því, sem bezt þætti fara. En sneiða ætti hjá, að þessi kostnaður kæmi beinlínis niður á bændum, og æski- legt væri, að þeir gætu notið leiðbein- inga og aðstoðar búfræðingsins, án nokkurs endurgjalds. f>að væri hvöt fyrir þá að leita hans. Naumast mundi hagfelt að amts- búfræðingurinn hefði stöðuga atvinnu af öðru en þessu sem í bans umboði er, og fyr er tekið fram hér; það get- ur mælt margt á móti því. Ef hann t. d. hefði bú að annast, væri honum hættara við að slá slöku við skyldu- verk sín, eða þá hins vegar, að hann veitti ekki húi sínu svo fullkomna for- stöðu, sem heimtað mundi af þeim, er settur væri leiðtogi annarra í bú- skap. Væri vafalaust hollara að synda fyrir bæði þessi sker. Mest hefði búfræðingurinn að starfa þann tíma árs, sem hægast er að ferðast um, nefnilega vor, sumar og haust, en minna á vetrum; þó þyrfti það ekki að vera. Hefði hann t. d. lagt stund á einhverja greiu búnaðar- ins annarí fremur, þá gæti farið mjög vel á því, að hann veitti tilsögn í henni um tíma í búnaðarskólunum. Slíkir sérfræðendur kenna oft stutta tíma við búnaðarskóla í Noregi, og hefir gefist vel. Ekki væri heldur óhugsandi, að amtsbúfræðingur gæti á vetrum hald- ið skóia með nokkrum styrk, er verið gœti bæði undirbúningsskóli undir al- menna búnaðarskóla, eða þá góð leið- beining fyrir þá, er ekki hugsuðu að halda lengra. f>etta yrði þó undir at- vikum komið, og verður víst dagur til stefnu, að ræða um slíkt. f>ó engin ástæða væri til a.ð segja, að bændur séu alment fáfróðir eða á- hugalausir um skör fram, þá er þó skiljanlegt, að þeir þurfi alt af að- stoð þeirra manna, sem notið hafa meiri þekkingar en þeir, í hverju einu, sem ekki getur verið á allra færi að afla sér þekkingar á. Búnaðarvísind- in eru svo margbrotin og umfangs- mikil vísindagrein, að ekki er hverjum einum í lófa lagið, að afla sér þeirrar fræði. f>ó eru búvísindin nauðsynleg fyrir hvern búandi mann, í margfalt stærra mæli en búendum veitist nú. f>au eru jafnan undirstöðuatriði allrar framleiðslu, og þurfa því framleiðend- ur að vita meginatriði þeirra, og kunna að hagnýta sér þau. Bænda- efni þau, sem eigi hafa ástæður til að kosta sig á búnaðarskóla, ættu ekki að þurfa að fara á mis við þau fræði, sem búskapurinn er bygður á, jafn- tilfinnanlega og nú. Til að ráða nokkra bót á því, hygg eg þetta fyrirkomulag, sem eg hefi nú bent á, vera líklegt til að bæta mikið úr þörfinni. Bændur hefðu þá menn sér við hönd, sem legðu beinlínis stund á að fræða þá, svipað því er kennari Iegg- ur stund á að kenna sínum lærisvein- um. f>etta mál er svo mikilsvert fyrir framtíð landbúnaðarins og framfarir hans, að ekki ætti að láta það af- skiftalaust. f>að er svo mikil þörf á slfkum bændafræðara, að vel getur verið álitamál, hvort einmitt þetta er ekki ein af þeim umbótum, sem gjöra þyrfti sem allra fyrst á búnaðarmál um landRÍns. Oskandi vséri, að »Búnaðarfélag ís- lands« vildi taka þetta mál til íhug- unar, og ef það sæi hér nauðsyn á, þá að það hfutaðist til um að efni- legir ungir menn byggju sig undir slíkan starfa, í von um, að sá tími sé í nánd, að þeir þurfi að taka hann sér á hendur. Auöíærð ill danska. Getið hefir verið áður í þessu blaði um lymskubragð það, er beitt var við Vestmanneyinga í haust, suraa þá er trygð vildu halda við dr. Valtý, til að gera þá honum fráhverfa. f>ví var logið í þá, að hann ætlaði sér alls eígi að gefa kost á sér þar í eyjunum framar, heldur halla sér að einhverju öðru kjördæmi. Mætum mönnum mun nú ekki hafa þótt bragð þetta eftirbreytnisvert. En ekki skortir hina, sem fátt láta sér fyrir brjósti brenna til að koma sínum vilja fram og er ósárt um mis- indisráð til þess. Markmiðið helgar meðalið segja þeir; og í staö þess að láta sér ófögur dæmi að varnaði verða, þá verða þeir beint fegnir að hagnýta þau. f>eir eru á engan hlut næmari en þau. »Auðlærð er ill danska*. f>að var á laugardagsfundinum hér, 8em yfirdómari Jóu Jensson lét í ljósi greinilega, þótt óbeinlínis væri, að hann ætlaði að gefa kost á sér til þing- mensku hér í vor, auk þess sem það var fjölda manna kunnugt áður. Hann lýsti því að vísu ekki yfir hátt og hátíðlega — sagði ekki t. d.: »Hér með geri eg heyrum kunnugt, að eg býð mig fram til þings í vor«. Maðurinn er ekki mikið fyrir að tylla

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.