Ísafold - 09.08.1902, Side 1
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bnndin við
áramót, ógild nema komin sé til
átgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslnstofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
Keykjavík laugardaginn 9. á«úst 1902
50. blað.
Biðjið ætíð um
OTTO M0NSTBD S
DANSKA SMJ0RLIKI, sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott eins og
smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað
hina beztu vöru og ódýrustu í samanhurði við gæðin.
Fæst hjá kaupmönnum.
Kemur út ýmist einu sinni eða
tvisv. í viku. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
l'/j doll.; borgist fyrir miðjan
júlí (erlendis fyrir fram).
XXIX. árg.
cy Muna ber,
að gjalddagi fjrir
ísalold var 15. f. ni.
I. 0. 0 F. 84822._______________
Forngripasafn opið md., mvd. og ld.
11—12.
Landsbókasafn opið hvern virkan dag
kl. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3)
nad., mvd. og ld. til ótlána.
Ókeypis augnlækning á spitalanum
fyrsta og þriðja þriðjud. hvers mánaðar
kl. 11—1.
Ókeypis tannlækning í Pósthússtræti 14,
b. 1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1.
Landsbankinn opinn hvern virkan dag
kl, 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
SKRIFSTOFA ÍSAFOLDAR er
opin kl. 12—2; en afgreiðslan allan daginn
(7 árd,—8 siðd.). Þar, i afgreiðslunni, er
tekið við borgun fyrir blaðið, auglýsingum,
bókapöntunum og blaða, handritum til prent-
unar í ísafoldarprentsmiðju, m. m.; þar er
og bóka- og pappírsverzlun.
S t j órnar skr áin.
Afgreidd frá neðri deild.
Frumvarpið var til 3 umr. og vænt-
anlega allra-síðustu í neðri deild í
gær.
Breytingartill. frá mpiri hluta nefnd-
arinnar, um að skíra landritarann
heldur annaðhvort höfuðsmann eða
atjórnhöfðingja, var tekin aftur, og
var svo að sjá, sem enginn ætlaði að
taka til máls.
En þá reis upp Sighvatur gamli og
kvað óviðfeldið að hleypa rnálinu frá
deildinni án þess að tala.
»Talið« varð þó ekki langt, til allrar
hamingju, og fáum mun ljóst, hvert
það stefndi.
Og enginn svaraði því, annað en að
Guðl. Guðmundsson tók það fram, að
það, sem þingmaðurinn hefði verið að
segja, væri alveg þýðingarlau8t fyrir
málið. Kvaðst að öðru leyti árna
málinu alls góðs að skilnaði.
því næst var til atkvæða gengið
með nafnakalli og sögðu allir já.
Er nú frumvarpið með öllu óbreytt,
eins og það var lagt fyrir þingið af
stjórnarinnar hendi, að öðru en því,
að samþykt var við 2. umr. orðabreyt-
ingin »ráðherra íslands* f. »ráögjafinn
yfir íslandi«, og að feld voru burtu
orðin »í kaupstöðum og hreppum* eftir
»karlmenn« í 6. gr. b. (alveg óþörf).
Efri deild ætlaði að hafa málið á
dagskrá í dag, en hætti við það vegna
veikinda eins þingmanns (Sk. Th.).
Hún hefir það sjálfsagt á dagskrá á
mánudaginn. Nefnd verður auðvitað
sett í það þar, fyrir siða sakir að
minsta kosti. En gengið er að því
vísu, að ekki verði gerðar neinar breyt-
ingar á frv. í efri deild; og verður það
þá væntanlega búið frá þinginu um
næstu helgi.
Ný uppgötvun.
Ný peningalind.
Að tilhlutun Búnaðarfélags íslands
hefi eg gert tilraun til á einum bæ
(Helgafelli í Mosfellssveit) með mjaltir
á ásauðum, eftir hinu alþekta, fræga
Hegelundsmjalta-lagi.
Er þetta fyrsta tilraunin, sem mér
vitanlega hefir verið gerð, til að end-
urbæta mjaltir á ásauðum.
Um Norðurlönd, þar sem Hegelunds-
mjalta-lagið hefir rutt sér til rúms
tvö síðastliðin ár, eru ásauðir ekki
mjólkaðir.
En hr. konsulent J. Hegelund hefir
talið það ekkert efunarmál, að mjalta-
lag sittmundi mega hafa við ær, eins
og við kýr, með þeim einum afbrigð-
um, að haga handtökunum eftir þeim
mismun, sem er á júgurstærð og speu-
um á mjólkurám á móts við það, sem
er á kúnum. Grundvallarreglan fyrir
mjöltunum yrði auðvitað að vera hin
sama.
Hr. Hegelund hvatti mig til að
gera tilraun í þessa átt hér heima og
taldi mikla þörf á slíku, þar sem
sauðfjárræktin eí aðal-atvinnugrein
landsmanna, og landið frá náttúrunn-
ar hendi mjög vel lagað fyrir mjólkur-
ásauðarækt, og hefir sú atvÍDna verið
stunduð frá landnámstíð.
Eg vil þegar taka það fram, að til-
raunir mínar á mjöltum á ánum
hepnuðust miklu betur en eg hafði
gert mér von um. Eftir að eg hafði
mjólkað fyrstu ána, var eg sannfærð-
nr um, að hér væri um mikla endur-
bót að tefla.
Og þetta nýja mjaltalag á m i k 1 u
betur við ær en kýr. Hvernig
á þessu stendur að líkindum, vil eg
ekki minnast neitt á að sinni. Enda
skiftir það minstu eitt fyrir sig.
Eg gerði tilraunir þessar á marga
vegu, svo lengi sem mór þurfa þótti.
Hætti ekki fyr en eg hafði fengið vissu
fyrir, hve mikluþað nemur, aðmjólkaær
með þessu lagi, og hver handtök henta
bezt, eða í hverju þar verður að fara
út fyrir það lag, sem Hegelund hefir,
þó svo, að grundvöllurinn haggist ekki,
því hann styðst við margra ára vís-
indalegar athuganir um skapnað júg-
ursins.
Eg hafði stöðugt 6 ær til þess, að
gera tilraunir á, og að öðru hvoru
reyndi eg mjaltir á fleirum, bæði þeim
sem voru í góðri nyt og lítilli o. s.frv,
þegar mjaltakonan var búin að
mjólka með venjulegum hætti og eftir
minni beiðni að þurtotta hverja á
betur en hún var vön að gera, fór eg
undir hverja á um leið og hún slepti
höndum af júgrinu, til þess að vera
viss um, að engin mjólk hefði sigið
niður í júgrið, sem venja er til, þegar
frá líður rajöltum.
Undir eins eftir fyrstu handtökin,
þá streymdi mjólkin úr júgrinu, sem
mjaltakonan gat ekki náð með sínu
lagi.
Mælt var á hverju máli úr ánum,
það sem mjaltákonan fekk, og svo
það, sem eg fekk á eftir, og venju-
legast var það J/6 af mjólkinni, sem
eg fekk, og stundum Yj.
því betri, sem ærin var til mjólkur,
þess meiri var þessi hreytu-mjólk. —
Að meðaltali mjólkuðu ærnar á Helga-
felli ekki nema 1 pela í mál, því að
hagbeit er rýr og ær farnar að geld-
ast lítið eitt þar.
Sú mjólk, sem eg fekk á eftir, var
oftast rúmur peli úr 5 ám, og þessi
mjólk er margfalt smjörmeiri en venju-
leg mjólk.
Hvað er nú áunnið með þessu
mjaltalagi’
það fyrst, að ærnar verða nythærri
eftirleiðis, betri mjólkurær.
|>að annað, að hver ær gefur miklu
meiri arð þegar í stað með því, sem
fæst, þegar þær eru hreyttar með
þessu lagi.
þar sem ær mjólka vel, fæst úr
hverri á um 50 pt. af mjólk sumar-
langt; þá ætti eftir mínum athugun-
um, að fást 60 pt. á þessum jörðum
úr hverri á að meðaltali, mjólkaðri með
nýja laginu.
þessir 10 pt. eru nú sjálfsagt
þriðjungi betri en venjuleg mjólk. —
Ef kúamjólkurpottur er metinn á 10
a., þá má ekki meta venjulega sauða-
mjólk minna en 14 aura virði (hún
hefir nálega hálfu meira í sér af feiti
og ostaefni) og það reiknar Torfi
Bjarnason hana. Eftir því ætti hver
pt. af hreytumjólk úr ánum að vera
21 eyris virði. — Mér þykir það ekki
sérlega hátt metið, því það má fremur
kallast rjómi en mjólk.
Eg set pt. á 20 aura og þessi 10
pt. eru þá 2 króna virði.
Til eru margar jarðir, þar aem ekki
fæst að meðaltali meira en 30 pt. af
mjólk sumarlangt úr hverri á. þar er
ágóðinn vitanlega minni, — hreytu-
mjólkin hlutfallslega minni, en gæði
hennar geta verið fult eins mikil. —
þar er mismunurinn 6 pt. á 20 aura
eða 1 kr. og 20 aur.
Meðalærnyt er talin 40 pt. um
sumarið. — Meðalhagnaður af því, að
mjólka ær með þessari aðferð, verður
þá á hverja á 1 kr. 60 a., auk þess,
sem ær eftir 1—2 ár eru orðnar að
öðru leyti nythærri.
pað mun nú láta nærri, að á öllu
landinu séu 200,000 mylkar ær. —
Sagt er að ekki muni koma öll kurl
til grafar, þegar framtalsskýrslur eru
samdar. En hvað sem nú því líður,
þá verður 200,000 margfaldað með
1 kr. 60 a. =- 320,000 kr.
Hve margar dagsláttur mætti slétta
fyrir þessar auknu tekjur landsmanna?
En svo eru nú kýrnar, sem eg
minnist ekki á í þessari grein.
Ef farið er í harðan reikning, þá
eru þessar fjárhæðir ekki hreinn ágóði.
pví rétt.er, að reikna tímann, sem
gengur til þess, að mjólka. í mesta
lagi, og einkum á meðan fólk er ekki
vel vant við að hreyta þannig, fer til
þess 1£ mínúta, að hreyta ána, sama
sem 1 kl.stund til að hreyta 40 ær.
Nú vinna stúlkur til jafnaðar að
sumrinu 14 st. á dag, þótt karlmenn
vinni ekki nema 12 st.; þær hafa
þjónustu á höndum o. s. frv.
Gerum nú ráð fyrir, að full-dýrar
kaupakonur séu teknar til að mjalta,
og að þeim sé ætlað 8 kr. um vikuna og
4 kr. í fæði eða 2 kr. á dag, kaup og
fæði. |>á er það hér um bil 15 aurar,
sem kvenmanninum ber um kl-stund
hverja, eða 30 aurar fyrir að hreyta í
tvö mál 40 ær. — Og gengur þá frá
tekjunum rúmlega einn þriðji í mjalta-
kostnað.
Eg fyrir mitt leyti geri ekki mikið
úr því, sem kvenfólkið afkastar meira
á dag, þótt þær séu á að gizka J stund
lengur að mjólka á málum en ella. —
þessir heimilis-snúningar og matarsýsl
yrði alveg eins gert fyrir því. En
rétt er þó að líta á þetta. Og vinnu-
tjónið verður ekki mikið á móts við
það, sem ærnar verða nythærri, og
kynstofninn breytist smátt og smátt í
mjólkurkyn.
f>að er á móti öllu náttúrlegu eðli,
ef þetta er ekki eitt bezta ráðið til,
að fá gott mjólkurkyn.
Ærnar mjólka af sér hold og þurfa
því meira fóður að vetrinum — mun
einhver segja.
»Veit eg það, Sveinki«, sagði Jón
Arason forðum.
Ef eg á vél, sem malar gull og
þarf að eins rafmagn eða kol fyrir 1
kr. á kl.stund til þess, að auka afl
sitt svo, að hún geti malað gull fyrir
9 krónur fram yfir það, sem hún
malar með venjulegum krafti; þá
mundi það þykja misráðið, að sjá eftir
1 kr. til þess, að græða 9 kr.
s. Þ■
Loftritunin.
Br í geysihraðri framför.
Mareoni hefir tekist nýlega að loft-
rita 1600 enskra mílna vegalengd ú
landi (mestalt), e'ða frá Cornwall, jv.r
sem hann hefir aðalstöð sína, og aus r
í Kronstadt á Rússlandi. Þar láítal-
herskip, Carlo Alberto, og hafði Mar-
coni búið þar út viðtökutól í svo góðu
lagi, að skeyti skildist þar glögt þann
óraveg, vestan af Cornwall á Englandi.
Nú ætlar hann sér að fara að eiga
við loftritun beint á milli Englands og
Ítalíu.
Fyrnefnd vegaleugd,' 1600 mílur
enskar, er sama sem rúmar 340 mílur
danskar eða 68 þingmannaleiðir.
Það er meira en 5 sinnum ísland alt
af enda og á.
Vid hámessu
(kl. 12) á morgun embættar síra
Jón Helgason í fjarveru dómkirkju-
prestsins.