Ísafold - 09.08.1902, Qupperneq 3
ekki sízt nú á tínmin sýnist ætla að skað-
skemma alla þjóðina.
Seyðisfirði 1. júlí 1902.
St. Th. Jónsson.
Aths.: í sambandi við framanritaða
grein skal þess getið, að 2 merkir menn
úr Austur-Skaftafellssýslu er hér voru á
ferð nýlega og báðir voru hluthafar í skil-
vindupöntun læknisins þar eystra, sögðu
mér, að mjólkurfatið, er þeim vélum til-
heyrir vanalega, hefði eklci fylgt þeim
vélum, er þeir fengu.
En það fat hefir verið metið á 6 kr.
sér á parti, eu fylgir nú vélunum að
sjálfsögðu með þvi verði, sem við seljum
þær.
I hvaða tilgungi lætur læknirinn þessa
ógetið ?
Reykjavík 15. júlí 1902.
S. B. Jónsson.
Nýr blaðamaður.
Hinn þjóðkunni gáfumaSur og nyt-
semdar, síra Ólafur Ólafsson í Arnar-
bæli, hefir sagt af sér prestskap vegna
heilsubilunar til ferSalaga (í fótum: gam-
alt kal), og tekur í haust viS ritstjórn
Fjallkonunnar, sem hann hefir keypt
fyrir nokkru.
Síra Ólafur er svo miklum kostum
búinn og líklegur til nytsemdar í hinni
nýju fyrirhuguðu stöðu sinni, að þaSer
mikiS gleðiefni, að vita slíks verkamanns
von i þann víngarS.
Sakamálskœra
á hendur sýslumanni,
Kæra hefir send verið amtmanni
fyrir nokkrum vikum frá Dalamönn»
um á hendur yfirvaldi þejrra og al-
þiugismanni, B. B. frá Sauðfelli, fyrir
að hann hafi gert sig sekan í röngum
reikningum fyrir brúargerðinni á Laxá,
er hann stóð fyrir. Er þar tekið fram
sérstaklega eitt atriði, er alveg sé víst
um : að hann hefir reiknað sér 2—3
kr. meira fyrir hverja tunnu af sementi,
er í brúarstöplana fór og keypt hafði
verið í Búðardal, 50—60 tunnur, held-
ur en þær höfðu kostað hann. Hann
hafði fengið tunnuna á 11 kr., þar
heimflutta í Búðardal, en reiknað hana
á 13 kr. í reikniugi til sýslunofndar
(nú hjá amtmanni) og á 14 krónur i
skilagrein þeirri, er hann sendi lands-
höfðingja til heimildar fyrir greiðslu
fyrirheitins landssjóðsstyrks. En flutn-
ingskostnaður frá Búðardal upp að
brúarstæðinu, nokkur hundruð faðma,
kvað falinn vera í öðrum reikningi,
sem sé fyrir vinnunni við stóplahleðsl-
una, svo að ekki gat framfærslan
stafað af því.
Auk þess segir svo í kærunni,—sem
er undirskrifuð af héraðsprófasti síra
Kjartani Helgasyni í Hvammi, en
meiri hluti sýslunefndar stendur á bak
við, að skilríkra manna sögn,—að megn
grunur sé um, að brúarreikningarnir séu
allir meira og minna rangir, og er
beðið um, að það sé alt rannsakað.
En ekki er enn þá farið að bóla á
neinum ráðstöfunum til slíkrar rann-
sóknar, nema hvað amtmaður á að
hafa spurt sýslumann sjálfan bréflega,
hvort kæraþessi sé á rökum bygð, og
fengið það ekki mjög óeðlilega svar,
að svo væri ekki, — ekki óeðlilegt,
hvort sem hanu er saklaus eða ekki
saklaus; og fylgir það sögunni, að
þar við muni eiga að lenda. En sízt
skyldi trúnað á slíkt leggja að svo
stöddu. Enda liggur í augum uppi,
að sýslumanni sjálfum hlýtur að vera
ekki minna áhugamál, að rækileg
rannsókn og óhlutdræg fari fram, sér
til hreinsunar, ekki síður en kærend-
unum, sem almenningur fæst aldrei
til að trúa að fari með fleipur, fyr
en gagngerð rannsókn sannar, að svo
sé.
Skrifið eftir sýnishornum. 5 áln. egtablátt, svart og brúnt chev- iot í föt 6lls, 8, 12‘/a, 15, 16‘/a og 19‘/2 kr. 5 áln. Buckskin þykt, alull 8‘/2 11, 12, 15, 16‘/2 kr. 5 áln. kam- garn, alull, í mörgum litum, 18‘/2 og 25V2 kr. Allar vörur, sem kaupendum líkar ekki að öllu leyti, eru helzt teknar aftur, 0 g burðargjald borgað aftur. Öll fataefnin eru meir en 2 álna breið. Sýnishorn send undir eins og borgað undir. Joh. Love Osterbye. Sæby.
TAÐA keypt í Laufási.
L. 6. LúðYigssonar.
skóverzlnn
hefir fengið með »Ceres« alls konar
sRófatnad
Verkmannastígvél sterk og ódýr, ný
tegund.
Reimuð stígvél úr vatnsleðri handa
börnum og unglingum mjög
vönduð og ódýr o. m. fl.
I s 1 e n z k t
SMJÖR
er keypt hjá
C. Zimsen.
Búnaðaríélag Islands.
Mjaltakensla fyrir almenning, jafnt
karla sem konur, hefst á Hvanneyri
i. október næstk. Kenslan stendur
yfir 6—8 daga fyrir hvern hóp, og
veitist ókeypis; en Hvanneyrarskólinn
lætur i té hús og fæði fyrir sann-
gjarna borgun. Þeir, sem þessu boði
vilja sæta, snúi sér til skólastjóra
Hjartar Snorrasonar á Hvanneyri.
Reykjavík 9. ágúst 1902.
I»órh. Bjarnarson.
í verzlun
nýkomid:
Herðasjöl, Kjólatau, Svuntutau,
Tvisttau, Flonelett, Hvíttléreft,
Strigi, Ensktvaðmál, Fatatau,
og tilbúinn Karlmannsfatnaður,
Nærfatnaður, Skófatnaður
o- m- fl.
NB. Alt mjög ödýrt
eftir gæðum,
alls konar, fallegir og ódýrir, eru
nýkomnir í
svo sem:
Ballanee-lampar.
Hengi-lampar.
Borð-lampar.
Blitz-lampar.
Eldhús-lampar.
Nátt-lampar.
Ennfremur: '
Amplar. Luktir.
Lampaglös. Kveikir. Glasakústar.
Brennarar o. m. fl.
(búnir til í Noregi)
eru nú eingöngu notaðir við fiskiveiðar með fram ströndum Noregs, einnig
við New-Foundland og að öðru leyti um allan heim.
Þelr eru hinir beztu og ódýrnstu önglar,
sem fást í verzlunum. Önglarnir fást nú keyptir hjá verzlunarmönnum alstað-
ar á Islandi og
fiskimennirnir verða að reyna þá.
W «%1I.» M H'
hefur ætíð nægar birgðir af alls konar
niðursoQnu kjötmeti, fiskmeti, ávöxtum og grænmeti.
Mikið úrval!
Lág-t verð!
Uppboðsaugiýsiug.
Þriðjudagana 26. ágúst, 9. og 23.
sept. þ. á. verður jörðin Varir í
Rosnihvalaneshreppi, 13,9 hndr. að
dýrleika, tilheyrandi dánarbúi Páls
Jónassonar frá Vörum, boðin upp á
opinberum uppboðum og seld, eý
viðunanlegt boð fœst. Asamt jörðinni
verða boðnar upp allar byggingar þær,
sem á jörðunni eru. Tvö hin fyrstu
uppboðin fara fram á skrifstcfu sýsl-
unnar á hádegi, en hið siðasta á eign-
inni sjálfri kl. 2 e. h.
Söluskilmálar verða fram iagðir á
fyrsta uppboðinu.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu,
29. júlí 1902.
Páll Einarsson.
Uppboðsauglýsing.
Þriðjudagana 26. ágúst, 9. og 23.
september þ. á. verður jörðin Litli-
Hólmur í Rosmhvalaneshreppi, til-
heyrandi dánarbúi Páls Jónassonar
frá Vörum, boðin upp á opinberum
uppboðum og seld, eý viðunanlegt boð
ýæst. Tvö hin fyrstu uppboðin fara
fram á skrifstofu sýslunnar, en hið
þriðja á eigninni sjálfri.
Öll uppboðin byrja kl. 12 á hád.
Söluskilmálar verða til sýnis í upp-
boðsbyrjun.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu,
29. júlí 1902.
Páll Einarsson.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878
og opnu bréfi 4. jan. 1861 er hér
með skorað á alla þá, er til skulda
telja í dánarbúi Björns Ólafssonar í
Traðarkoti í Vatnsleysustrandarhreppi,
að lýsa kröfum sínum og sanna þær
fyrir undirrituðum skiftaráðanda, áður
en .liðnir eru 6 mánuðir frá síðustu
(3.) birtingar þessarar auglýsingar.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu,
29. júlí 1902.
Páll Einarsson.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1078
og opnu bréfi 4. jan. 1861 er hér
með skorað á alla þá, er telja til skuld-
ar í dánarbúi Páls Jónassonar í Vör-
um í Garði, að lýsa kröfum sínum
og sanna þær fyrir undirrituðum
skiftaráðanda áður en sex mánuðir
eru liðnir frá síðustu (3.) birtingu
þessarar auglýsingar.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu,
29. júlí 1902.
Páll Einarsson.
Proclama
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878
og opnu bréfi 4. jan. 1861 er hér
með skorað á alla þá, er til skuldar
telja í dánarbúi Sigurðar Gestssonar
í Rosmhvalaneshreppi, er andaðist 31.
marz þ. á., að lýsa kröfum sínum og
sanna þær fyrir undirrituðum skifta-
ráðanda, áður en liðnir eru sex mán-
uðir frá síðustu birtingu þessarar aug-
lýsingar.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu,
29. júlí 1902.
Páll Einarsson.
Uppboð.
Á 3 opinberum uppboðum, sem
haldin verða mánudagana 25. ágúst
og 8. og 22. septbr. n. k., verður
boðin upp til sölu eign dánarbús
Árna hreppstjóra Þorvaldssonar, jörð-
in Innrihólmur á Akranesi með hjá-
leigunum Tyrfingsstöðum, Nýjabæ,
(Móakofi), Kirkjubóli og Þaravöllum,
alls 69 hndr. að dýrleika, ásamt kirkj-
unni á Innrahólmi og öllu öðru, er
eigninni fylgir. 1. og 2. uppboð fer
fram hér á skrifstofunni, en hið síð-
asta að Innrahólmi, og byrja þau á
hádegi. Söluskilmálar verða birtir á
uppboðunum.
Skrifstofu Mýra- og Borgarfjarðarsýsiu,
29. júlí 1902.
Sigurður i>órðarson.
Bogskabe og Skriveborde sælges
til Fabrikationspris, Korsg. 91, Kbhvn.
Prisliste: Skriveborde med Skabe pole-
rede i Mahogni og N0d fra 70 Kr.
do. malede fra 45 Kr.
do. polerede uden Skahe med 4 Skuffer
fra 32 Kr.
Enkelte Bogskabe fra 45 Kr.
Dobbelte do fra 65 Kr.
Alt godt forarbeidet.
Torre Materialier.
Jul. Petersen.
CRAWFORDS
ljúffenga BISCUITS (Smákökur) tilbúið
af CRAWFORDS & Son
Edinborg og London
StofnaS 1813.
Einkasali fyrir ísland og Færeyjar
P. Hjorth & Co.
Kjöbenhavn.
Ágœtt
HAFRAMJOL
í verzlun
V. Fischers.
Ritstjóri Björn Jónsson.
iBafoldarprentsmið ja.