Ísafold - 30.08.1902, Side 3
223
8ungið eftir Guðm. Magnússon, sem
hér fer á eftir.
J>egar bæst stóð hátíðarhaldið, gaus
Geysir mjög fögru gosi. Svo hittist á,
að verið var að syngja síðasta erind-
ið í kvæðinu »Ó. fögur er vor fóstur-
]örð« (Ó blessuð sértu, fagra fold o. s.
frv.), þegar dynkir fóru að heyrast í
hvernum, og var sem hann tæki undir
niðurlag kvæðisins.
Sem spámannleg bendiug, sem óskeik-
ul orð,
sem ómur frá dularheimsins sölum,
með himinsins blævind nú berast yfir
storð
og bylgjast eítir þröngum fjalladölum.
f>au glóa í skýjanna glitofna dúk
og glitra um meitilhvössu fellin,
og hnoðrinn, sem léttfleygur líður yfir
hnúk,
hann letrar þau á bláu jökulsvellin.
f>au skína í fjallanna rambundnu rún,
sem rist var af heimsins forna eldi,
er stóð hann sem Kerúb á Heklu brattri
brún
og brá um landið mildum roðafeldi.
J>au berast frá djúpinu dimt, þessi orð,
er dunar í Geysis leyndu æðum.
|>á sprotanum bjarta hann bregðuryf-
ir storð
og bendir þér að ljóssins tignarhæðum.
f>au orð eru guðdómsins öfluga mál,
sem áheyrn í sálu þinni finna,
því þau vekja ættjarðarást í þinni sál
og anda þínum benda til að vinna.
Guð gaf oss það land, sem hann lætur
í dag
með Ijómandi undraverkum skína. —
Hvar hljómar jafn-máttugt og marg-
raddað lag,
ó móðir, eins og gegnurn strengi þína?
Ó ísland, þú bera mátt höfuð þitt hátt
og hreykja upp jökulfaldi björtum,
því mikil og dýrðleg er myudin sem
þú átt,
ó móðir vor, í barna þinna hjörtum.
Já, vinur minn, náttúran boð til þín ber,
það boð, sem hún ætlar þér að skilja:
guðs heilaga fjall þessi ey er orðin þér,
hér opinberar hann sinn dýra vilja.
Sem spámannleg bending, sem óskeik-
ult orð,
sem eilífrar guðdómsvizku-bandið,
fer boðið með himinsins blæ yfir storð,
sem býður þér að elska og treysta á
landið.
Hann akrafar mikiO
um ósannindi m. m., ísfirzka yfir-
valdið, er ísafold hafi flutt um sig í
grein hr. Skúl Thoroddsen i 46. tbl.
þ. á. f>eir tveir um það að vísu; blað-
ið ber enga ábyrgð á því, þó svo væri,
sem ósannað er alveg, þó að hr. H.
H. s e g i þ&ð. Hér skal að eins á það
bent, að ummæli hans um, að hann
hafi ekki neitt fé borgað eða borga
látið í þóknunarskyni til kjósenda eða
til kjörfylgis sér, ná fráleitc til endur-
gjalds fyrir ferðakostnað, sem hr. H.
H. hefir því getað varið til miklu fé
þrátt fyrir þessi »mótmæli«; og Bömu-
leiðis liggur það í augum uppi, að hin
óskaplegu ferðalög hans sem þing-
mannsefnis f vetur og vor um alt kjör-
dæmið hafa kostað allmikið fó.
Póstgufuskipið Laura (Aasberg),
lagði á stað i gærkveldi vestur um land
og norður. Með henni fórn alþingismenn-
irnir Hermann Jónasson, Klemens Jónsson,
Lárus H. Bjarnason, Sigurður Jensson,
Sigurður Stefánsson, Skúli Thoroddsen (til
ísafjarðar), og Stefán Stefánsson kennari.
Ennfremur Sigurður prófastur Gunnarsson
i Stykkishólmi og dóttir hans, síra Geir
Sæmundsson á Akureyri og kona bans, síra
Bjarni I>orsteinsson á Siglufirði, Magnús
.Tóhannsson læknir af Hofsós og hans kona,
P. J. Thorsteinsson kaupm. frá Bíldudal,
Hannes Hafstein bæjarfógeti og kona hans,
og Samson Eyólfsson kaupm. frá Isafirði,
Halldór Jónsson hankagjaldkeri (til Akur-
eyrar); Jón Egilssen verzlunarm. frá Sauð-
árkrók, Bjarni Pétursson kennari t'rá Dýra-
firði, og margt manna fleira. Loks til út-
landa heim á leið þauhjón harón v. Jaden
frá Austurríki og hans kona, barónessa
Asta.
Gufuskip Mercur (335, H. B. Thomle)
kom í morgun frá Leith með gamlar vör-
ur, er Laura hafði orðið að skilja þar
eft-ir — leiguskip frá Sameinaða fél.
Skögræktarfélagið.
jE’cs og getið hefir verið um í blaði
þessu, var stofnað skógræktarfélag hér
í Beykjavík í fyrra sumar (25. ágúst).
Stjórn sú, er kosin var (form. Stgr.
Thorsteinsson yfirkennari), þá er félag-
ið var stofnað, gekst fyrir því í vetur,
að fá bæjarbúa til þess, að gjörast
hluthafar í félaginu, og urðu að lok-
um yfir 80 menn, sem tóku 25 kr.
hlut hver; borgast tillagið á tveim
árum (12 kr. 50 aur. á ári).
Herra skógfræðingur Flensborg valdi
til svæðið, og er það suðaustan við
Bauðavatn, í Grafarlandi. Hann ann-
aðist og um kaup á efni í girðinguna
í vetur, og kom það hingað til Beykja-
víkur í vor frá Englandi.
Fyrst af öllu varð að hugsa um, að
girða svæðið. Var byrjað á því 9. júlí.
Skógræktarteigurinn allur mun vera
um 40 dagsláttur, og eru 2 dagsláttur
af honum ætlaðar fyrir græðireit. —
Girðingarstólparnir eru úr járni, en
vír á milli stólpanna, 7 þræðir, annar
hvor sléttur, og hinn gaddavír. Tólf
álnir eru milli stólpanna, sem reknir
eru í jörðu, og hver stólpi skorðaður
með járnplötu; en 3 járnspennur eru
milli bverra tveggja stólpa, til þess
að halda þráðunum og styðja girðing-
una. Hornstólparnir eru sérstaklega
vandaðir, með skástoðum og sterkum
jarðplötum; auk þess eru tvöfaldar
vindur á hverju horni, til þess að
strengja þræðina, og enn fremur
nokkurar á sórstökum hliðarstólpum.
Eitt hlið er á girðingunni með vand-
aðri járnhurð og járnlás fyrir. Alls
gengu hér um bil 50 dagsverk til þess,
að koma girðingunni upp, og það mun
láta nærri, að hver faðmur í henni
uppkominni kosti 1 kr. 88 aur.
J>egar girðingunni var lokið, var
tekið að undirbúa græðireitinn. —
Voru í þetta sinn að eins teknar fyrir
3000 ferhyrningsálnir af honum. Var
það alt djúpgrafið, 2 skóflustungur
niður, þó að hollenzkum sið: moldin
úr efri skóflustungunni jafnan látin
vera ofan á, en ekki blandað saman
moldinni úr báðum skóflustungunum.
Norðan og austan við græðireitinn var
grafinn skurður og hlaðinn garður
innan við skurðinn ; er garðurinn um
3 fet á hæð og gjörður til skjóls fyrir
græðireitinn. Jarðvegurinn var hér
mjög grýttur, og því afar-mikið verk,
að taka alt grjót upp úr honum og
koma því frá; en að öðru leyti er
jarðvegurinn djúpur og góður. Cm
60 dagsverk gengu að þessu sinni f
græðireitinn; næsta vor á að sá trjá-
fræi í hann.
|>á voru grafnar um 8600 holur i
skógræktarteignum, og er ætlast til,
að í þær verði gróðursettar trjáplönt-
ur næsta vor. Talið er bezt að láta
holurnar standa opnar nokkurn tíma,
áður en gróðursett er. Til þessa gengu
alt að 50 dagsverkum.
Fyrir verkinu stóð Stefán Kristjáns-
son frá Hallgilsstöðum í Fnjóakadal,
og hafði hann 3 til 8 menn með sér.
Lokið var því 19. ágúst. Stefán ferð-
aðist í vor og framan af sumri með
hr. Flensborg og starfaði að gróður-
setningu með honum.
Frá útlönduin
fréttir til 16. þ. m. |>ar er getið um
ákafan uppreistarófrið í Mið-Ameríku-
ríkjunum Venezuela og Columbia, svo
og eynni Haiti þar. Borg ein í Vene-
zuela, Barcelona ,tekiu herskildi af upp-
reistarliði og bæjarmenn saxaðir niður
sem hráviðri. Talað um, að Banda-
ríkin muni skerast í leikinn ogjafnvel
einhver Norðarálfustórveldin.
Banatilræði veitr borgarstjóra ein-
um á Bússlandi, í Karkov, Obolenski
fursta; skotið á hann 4 margleypuskot-
um og særður til muna. Tilræðismað-
ur ungur maður, er var höndlaður þeg-
ar, en fekst eigi til að segja til nafns
síns.
Uppskeruborfur óvenjugóðar í Banda-
ríkjum.
Jatvarður konungur hélt flotasýning
mikla og veglega í Ermarsundi 16. þ.
m. Kennir sér nú varla neins meins.
Búahershöfðingjarnir komu til Eng-
lands sama dag.
Veðurathuganir
íReykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson,
1902 ágúst Loftvog millim. Hiti (C.) c+- <2 CD CX c cr ok œ 7T B Qj§ Urkoma millim. Minstur hiti (C.)
Ld. 23.8 738,1 12,0 0 9 6,0 10,1
2 739,2 12,7 0 9
9 741,3 10,4 NW 1 9
Sd. 24.8 744,7 7,0 NW 2 9 5,5
2 745,4 7,6 W 2 9
9 745,4 6,7 8W 1 7
Md. 25.8 742,7 8,0 E 1 9 2,2 4,0
2 741,6 12,4 8E 1 7
9 742,2 8,6 0 8
Þd. 26.8 743,7 7,5 0 4 0,3 4,0
2 744,4 11,1 NW 1 4
9 747,0 7,7 N 2 3
Mvd27.8 753,1 7,6 N 2 2 5,0
2 755,1 10,5 NNW 2 3
9 757,2 7,5 NW 1 1
Fd. 28.8 759,5 7,5 0 1 2,5
2 760,0 11,6 NNW 1 1
9 760,5 9,3 NW 1 2
Fsd.29.8 760,2 7,8 0 2 3,2
2 758,9 11,6 NW 1 2
9 758,3 8,5 0 5
Nokkur herbergi til leigu. Semja
má við Hjörleif Þúrðarson snikkara.
2kýr snetnmhærar til sölu. Ritstj.
vísar á.
»SAMEININGIN«, mánaðarrit til stuðnings
kirkju og kristindúmi Islendinga, gefið út
af hinu ev.-lút. kirkjufjelagi í Vesturheimi
og prentað í Winnipeg. Ritstjúri Jún Bjarna-
son. Verð i Vesturheimi 1 doll. árg., áls-
landi nærri þvi helmingi lægra: 2 kr. Mjög
vandað að prentun og allri útgerð. Seytt-
jándi árg. hyrjaði i marz 1902. Fæst i búk-
verzl. Sigurðar Kristjánssonar i Reykjavik
og hjá ýmsum húksölum viðsvegar um land
alt.
CRAWFORDS
ljúffenga BISCUITS (smákökur) tilbúið
af CRAWFORDS £ Son
Edinborg og London
Stofnað 1813.
Einkasali fyrir ísland og Færeyjar
F. Hjorth & Co.
Kjöbenhavn.
Sunnanfari
kostar 2'/2 kr. árg.. 12 arkir, auk titilbl.
og yfirlits. Aðalútsala i Búkverzlun ísa-
foldarprentsm., og má panta hann auk þess
hjá öllum búksölnm landsins, svo og öllum
útsölumönnum Isafoldar.
eö eg hefi keypt
verzhitiina Nýhöfn með öll-
um vörubirgðum, verður
verzlun þessi upphafin og
húsin notuð fyrir deildir
verzlunar minnar.
Aðalbúðin i Nýhöfn
verður frá 1. sept. höfð ein-
göngu fyrir nýlenduvöru-
deildina (Urtekram, tóbak
o. s. frv.).
Gamla búð Thomsens
niðri verður liöfð fyrir eld-
húsgögn, lampa, ræstingar-
áhöld, borðbúnað, glervarn-
ing etc., en allar þær vör-
ur, sem vigt er brúkuð við,
verða fluttar yfir í fyrver-
andi Nýhafnarbúð.
Annars verða litlar breyt-
ingar fyrst um sinn, nema
hvað hver deild stækkar
og vörubirgðir verða fjöl-
breyttari.
Viðvíkjandi nánara fyr-
irkomulagi á verzluninni
framvegis, leyfi eg mór að
skírskota til sérstaks aug-
lýsingarblaðs, sem borið
verður í hús bæjarins á
morgun.
Vlrðingarfýlst
I.TUTI0M.
Barnaskólinn.
Þeir, sem ætla sér að láta börnsín
ganga í barnaskóla Reykjavíknr næsta
vetur og greiða fyrir þau fult skóla-
gjald, eru beðnir að gefa sig sem
fyrst fram við skólastjórann. Þeir
sem ætla sér að beiðast eftirgjafar á
kenslueyri, verða að hafa sótt um
það til bæjarstjórnarinnar fyrir 17.
sept. Þurfamannabörn fá kauplausa
kenslu, en þeir, sem að þeim standa,
verða að gefa sig fram við bæjarfó-
getann innan nefnds dags.
Athygli manna leiðist að því, að í
efstu deild skólans, framhaldsbekk,
eru íslenzka, danska, enska og reikn-
ingur helztu námsgreinar. Þar er og
kend handavinna og teikning bæði
stúlkum og drengjum, eins og i fleiri
bekkjum skólans.
Reykjavík 30. ágúst 1902.
Sfiólanofnóin.
Raffi og kökur.
Kaffisalan í Aðalstræti 9 (hús Erl.
kaupm. Erlendssonar) uppi á lofti verð-
ur opnuð eftir miðja næstu viku. Þar
verður selt kaffi, kökur, sjókolade,
gosdrykkir o. s. frv.
Hólmfr. Rosenkranz.
Þórunn Finnsdóttir.