Ísafold - 27.09.1902, Page 1

Ísafold - 27.09.1902, Page 1
Kemur út ýmiat einu sinni eða tvisv. i viku. Verð árg. (80 ark. niinnst) 4 kr., erlenðis 5 kr. eða l'/a doll.; borgist fyrir miðjan júli (erlendis fyrir fram). tSAFOLD. Uppsögn (skiifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslustofa blaðsins er Austurstræti 8. KXIX. árar. Reykjavík laugardaginn 27. september 1902. 64. blað. Biðjiö ætíð um OTTO MONSTBD’S DANSKA SMJ0RLIKI, sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgtt eins og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað hina beztu vöru og ódýrustu í samanhurði við gæðin. Fæst hjá kaupmönnum. SKBIFSTOFA ÍSAFOLDAB er »pin kl. 12—2; en afgreiðslan allan daginn (7 árd.—8 síðd.). Þar, i afgreiðslunni, er tekið við borgun fyrir blaðið, auglýsingum, bókapöntunum og blaða, handritum til prent- unar i ísafoldarprentsmiðju, m. m.; þar er og bóka- og pappírsverzlun. Nýprentað: Úr lieimahögum kvæði efír Guðmund Friðjónsson. Rvík (ísafoldarprentsm.) 1902. Með mynd höf. framan við. 264 bls. Fást í bókverzlun Isafoldarprentsm. og hjá öðiurn bóksölum landsins. Kostar t kápu 1 kr. 80 a. — i skrautbandi 3 kr. c^QrmingargJöf fyrirtaksgóð er sálmabókin, nýjasta út- gáfa, i skrautbandi, logagylt í sniðum. Verð 7 kr. Fangamark ókeypis. Landsbankinn. Frá 29. sept. til 4. oktbr. næstkomandi, að báðum dögum meðtöldum, verður tekið á móti greiðslum í veðdeild landsbankaus frá kl. 5—7 e. h. dag hvern. Eigi verður öðrum banka- störfum sint þennan tíma dagsins. Xiandsbankinn i Bvík, 27.sept ’02. Tryggvi Gunnarss. Sköla- og kenslubækur þessar frá ísafoldarprentsmiðju þurfa nemendur að fá sér fyrir haustið: Balslevs Biblíusögur ib. . . . 0,75 Barnaskóla einkunnabók . . 0,20 Danska lesbók Svb. Hallgr. ib. 1,30 Danska lestrarbók Þorleifs Bjarna- sona og Bjarna Jónssonar ib. 2,00 Danska orðabók nýja (I. J.) tb. 6,00 — . . . ýoo Hvernig er oss stjórnað (J. A. H.) ib..............0,60 Kirkjusögu H. Hálfd. ib. . . 4,00 Landafr. Erslevs, 3. útg. ib. . 1,50 Leiðarvísi í íslenzkukenslu (B. J.) 0,40 Málsgreinafræði (B. J.) . . . 0,50 Mannkynssögu P. Melsteds. ib. 3,00 Prédikunarfræði H. Hálfd. . . 0,60 Reikningsbók Ögm.Sigurðss. ib. 0,75 Ritreglur Vald." Ásm., nýjasta átg. ib................0,60 Siðfræði (kristil.) eftir H. Hálfd.ib. 4,00 Stafsetningarorðbók (B. J.) ib. 0,80 Bækur þessar fást hjá bóksölum víðsvegar um land. I. 0. 0. F. 841038'/.,. I. Forugripasafn opið rod., xinvd. og ld. 11—12. Landsbankinn opinn hvern virkan dag ki. 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1. Landsbókasafn opið hvern virkan dag k).l‘2—2 og einni stundu lengur (til kl. 3) rrid., mvd. og ld. tii útlána. Náttúrugripasafn, í Doktorshúsi, opið á sd. kl. 2—3. Tannlœlming ókeypis í Pósthússtræti 14 b. 1. og 3. mánnd. hvers mán. kl. 11—1. Undirstaða búnaðarframfara Eftir adjunkt Bj'órn Jensson. I. Litið um réttnefndar jarðabætur. Hér á landi hafa nú um aldamótin ýmsir ritað nokkura konar yfirlit yfir hina nýliðnu öld, eins og við var að búast; því að á tímamótum vill mönn- um venjulega verða það, að horfa yfir liðna tímann, eins og til að átta sig, rifja upp fyrir sér hvernig, vér höfum notað liðna tímann, og með hvaða vonum vér byrjum hið nýja tímabil. Flest þessí yfirlit hafa verið fremur bjartsýn. Munurinn á íslandi árið 1800 og ár- ið 1900 gengur of mjög í augun til þess, að vér finnum ekki heldur til á- nægju en hins, er vér berum saman þessi tvö tímamót. jþó kveður auðvitað við hjá öllum, að mörgu sé enn ábótavant, margt standi enn til bóta og mörgu nýju þurfi að koma á etað til þess, að vel megí við una. En vonirnar eru talsverðar um, að vér séum á þeirri braut, sem leiða muni til sigurs, og að hún verði slétt- ari og mýkri undir fæti niðjum vorum en féðrum. Eitt atriði er það í þessum yfirlit- um, sem ekki er að öllu leyti ánægju- legt að lesa, og höfundarnir hafa ekki heldur dregið dul á. það eru framfarirnar í búnaði. þótt þær hafi verið nokkrar, þá fara þær seint, svo nauða-seint og hægt, að nú um hálfa öld hefir þeim ekki fjölgað hér á landi, sem lifa á land- búnaði, heldur fækkað að tiltölu, og það að miklum mun. Um 1850 voru þeir 82 af hundraði, en ekki nema 64 árið 1890. Sjálfsagt verður að telja landbúnað- inn aðalatvinnuveg í hverju landi, sem er annars byggilegt. það náttúruafl, sem hann grund- vallast á, hinn kemiski kraftur, er sjálfsagt margfalt meiri í hverju landi en öll hÍD náttúruöflin saman lögð, þau er mennirnir geta hagnýtt sér. Pyrir því hlýtur það að vera mörg- um manni alvarlegt umhugsunarefni, að Iandbúnaðinum hér á landi fer svo nauðalítið fram, uudirstöðunni uDdir öllum öðrum framförum landsins; því »bú er Iandsstólpi*. Enda má sjá, að mikið er um þetta hugsað. þing, búnaðarfélög, blöðin og ein- stakir menn hafa tekið málið til um- hugsunar og umræðu, og má heita að það standi sífelt á dagskrá. En alt kemur fyrir ekki; búnaðinum fer ekki fram samt sem áður. Margt er reynt. Verðlaun eru veitt fyrir jarðabætur, búnaðarskólar stofnaðir og kostaðir af landsfé.. búfræðingar sendir um landið til að vekja með bændum áhuga á jarðabótum og leiðbeina þeim í verk- legri framkvæmd þeirra. En búnaðurinu stendur í stað þrátt fyrir alt. Bændastéttin er hvarvetna í heim- inum glögg að finna, hverju hún hefir hag af, og eins hér sem annarsstaðar. Hún er kannske sein til að taka breyt- ingum; peningarnir renna dræmt út og inn hjá bændum; en af því kemur að þeir hugsa sig vel um, hvort þeir eigi að breyta til; en þegar þeir sjá að breytingin er til batnaðar, þá eru þeir fljótir til. Tökum til dæmis skilvindurnar, sem nú eru að komast inn á hvert einasta heimili. Ekki fá þeir verðlaun fyrir þær; en þeir sjá að þeir hafa hag af þeim, og klífa því þrítugan hamarinn til að eignast þær. En jarðabæturnar ganga seint; þó að öll áherzla hafi verið lögð einmitt á jarðabæturnar, þá miðar þeim nauða- lítið áfram, — rétt nefndum jarðabót- um eða verulegum. það eru orsakir til alls, og svo hlýt- ur að vera um þetta. |>að stendur einhvern veginn á því, að ekki er hægt að fá bændur til að gera jarðabætur. jþví ekki geturþað heitið því nafni, þó að eitt dagsverk komi á hvert jarð- arhundrað á landinu á ári, og þó tæp- lega það. Indriða Einarssyni taldist til hór um árið, að með því áframhaldi á þúfna- sléttum, sem nú er, mundi túnin áís- landi verða sléttuð á 160 árum. Eu það er sama sem að túnin á ís- landi verði a 1 d r e i sléttuð. því þúfurnar koma upp aftur á skemmri tíma eu það; og þó er þúfna- sléttunin sú jarðabót, sem mest er fengist við og mest er haldið að bæud- um. II. Hver er fyrirstaðan? Alstaðar þar, sem einhverju afli er beitt, en verður þó ekki ágengt, kem- ur oss þegar í hug, að þar muni vera einhver fyrirstaða. þegar steinsmiðurinn er að bisa við að ná stóru bjargi upp úr jörðinni, en það bifast hvergi, þá lítur hann í kring- um steininn til að sjá, hvað standi fyrir, og beitir svo járnkarlinum eftir því, hvers hann verðurvísari um fyrir- stöðuna. f>etta langar mig til að reyna að gera: að skygnast eftir, hvort sjá megi fyrirstöðnna, sem bændur verða varir við og óhætt má fullyrða að ríða muni landbúnaðinum íslenzka að fullu ÍDn- an skamms, ef hún finst ekki og ekkert er við hana átt. Bændur geta auðsjáanlega ekki unn- ið til muna meira að jarðabótum en þeir gera. J>eir hafa yfirleitt mikinn hug á að bjarga sér; en þeir segjast ekki hafa mannafla né fé til þess að gera meira, og þeim er trúandi til að segja þetta satt. En eftir þvf sem framfarirnar aukast í öðrum löndum, eftir því verða þeir æ lengra á eftir, og því meir sem bilið vex, þess erfiðara verður að komast yfir það. Eg ætla þá að skoða þéssar jarða- bætur, sem bændur eru taldir á að gera og örvaðir til með verðlaunum. fað mætti skifta þeim í tvent: 1. bætur til tryggingar því, að þeir fái arðinn af eign síddí, t. d. girðing- ar, peningshúsabætur og þess konar; og 2. eiginlegar bætur á jörðinni til að auka framleiðsluna, t. d. þúfnasléttur, vatnsveitingar og þurkunarskurðir. Um fyrri flokkinn skal eg ekki orð- lengja; þær umbætur eru eðlilega nauð- synlegar. Um síðari flokkinn skal eg geta þess, að þurkunarskurðir eru ekki telj- andi hér enn; vatnsveitingar eru mjög vinsæl jarðabót meðal bænda, að mér skilst, og eiga það skilið, jafnvel þótt þeir, sem vit hafa á, telji þær oft tví- eggjað vopn. En þærgefa oft mikinn arð af sér, allra-helzt fyrst í stað. En þær eru ekki jarðabót, sem allir geta fært sér í nyt; það eru nokkurs konar hlunnindi, ef svo hagar til, að þeim verður komið við. |>á ér eftir almennasta jarðabótin, þúfnaslétturnar, sem alstaðar má koma við og langmest er unnið að af öllutíl jarðabótum hér á landi. III. Vísindaleg undirstaða allrar jarðræktar. Til þess að sjá, hvaða gagn er að þessari jarðabót, verðum vér að rifja upp þau vísindaleg undirstöðuatriði, sem aðrar þjóðir hafa fundið og byggja á sínar framfarir í jarðrækt. Flestum mun kunnugt vera, að það náttúruafl, sem bæudur reyna að gera sér arðsamt, þegar þeir rækta jörð sína, er kemiskur kraftur, eða með öðrum orðum: að hagnýta sér efna- breytingarnar í jörðinni. því örari sem þær eru, því meiri er krafturinn. Efnafræðin kennir, að til þess að efnabreytingarnar verði örar, þarf hæfilegan hita og hæfilegan raka. Efnabreytingunum er svo farið, að hver þeirra um sig hefst á tilteknu' hitastigi, eykst svo um hríð eftir því, sem hitinn vex, hægir síðan á sér aftur og hættir loks, þegar hitinn er orðinn um of. Lík áhrif befir rakinn á efnabreyt- ingarnar. Bóndi verður því að reyna að gera jarðveg sinn hæfilega heitan og hæfi- lega rakan. J>á skal eg nefua þriðja atriðið, sem stuðlar að efnabreytingum, en það er, að efnin, sem eiga að taka þátt í

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.