Ísafold - 11.10.1902, Blaðsíða 3

Ísafold - 11.10.1902, Blaðsíða 3
búa á því að selja þeim eitur okur- Verði, en borgarbúar verja allmiklu fé til þess að v e r n d a veitingamennina, svo að þeir megi reka þessa sómasam- legu(M) atvinnu í góðu næði. f>að er 8Vo sem ekki nema sjálfsagt, að lög- íegluþjónarnir losi veitingamennina við ryskingarnar og óhljóðin, þegar þeir fyrir »góðan bítaling* eru búnir að gera ffiennina að óarga dýrum. f>á er og talið sjálfsagt og eðlilogt, að láta hegn- ingarhúsin taka við. Og ef mannræfi- arnir hafa mist ráð og rænu og allan þrótt, þá er ekki annað en að fleygja þeim í Hjálpræöisherinn eða einhver slík miskunnarfélög, sem enn eru svo góðsöm að kenna í brjóst um þann, »er fallið hefir í hendur ræningjanna«. En ef einhver vildi ráðast í það, að varna mönnum að ræna sjálfan sig vitinu og sólunda fé sínu í ölæði, þá má búast við, að hann verði dreginn fyrir lög og dóm fyrir tiltækið. Slíkt er að skerða hinn dýrmæta rétt á fengissalanna. f>að stendur raunar ein- hversstaðar í biblíunni eitthvað um það, að menn eigi að g æ t a bróður síns. Já, það gerum vér líka, því að vér verndum veitingamanninn, g æ t u m réttar hans; hann er bróðir vor öllum öðrum fremur ! I skrúðgöngunni voru alls um 30,000 manna. Voru merki borin fyrir hverj- um flokk, fagurskreytt ýmis konar lit- um. Auk þeirra sáust hér og hvar hyítar blæjur bornar í fylkingunni og á þær letrað stórum stöfum þessi orð: >Bort med ruadryc karnai (þ. e. burt með á'fengisdrykkina). Svo taldist mönnum til, að um 300 fánar eða merki hefðu borin verið í fylkingunni. Svo var og hljóðfæraflokkum skipað inn í fylkinguna. f>eir voru 45 alls. Má af þessu ráða, hve afarstórkost- leg þessi skrúðganga var, enda er hún hin tilkomumesta, sem nokkuru sinni hefir til verið stofnað til þess að vekja athygli manna á bindindismálinu. Skrúðgangan fór um nokkrar helztu götur borgarinnar, en allar gangstéttir og allir gluggar voru þéttskipaðir á- horfendum hvarvetna þar, er þossi mikla fylking fór um. Fell eitt merkilegt er þar í borginni; það nefnist »Skansen«. f>að er aðal- skemtistaður borgarmanna; þar er dýra- garður og ýmisleg söfn, er sýna þjóð- menningu Svía á ýmsum tímum. þar eru og ýmislegar þjóðlegar skemtanir um hönd hafðar; t. d. að taka eru þar sýndir hinir fornu þjóðdansar, og er alt fólkið, er dansinn stígur, klætt í einkennilega þjóðbúnínga. í feJli þessu leystist fylkingin sundur. En að því búnu tóku við mikil ræðuhöld og söng- ur. Var þetta jafnframt nokkurs kon- ar þjóðhátíð fyrir fólkið, og mannfjöld- inn svo mikill, að engri tölu varð á komið. Af fellinu sér yfir alla borg- ina. þó er reistur afarmikill turn uppi á því, þar sem það er hæst. Sá turn heitir »Bréiðablik« og er útsýni þaðan mikið og fagurt. því miður var veður ekki eins fag- urt í Svíþjóð í sumar og á íslandi. Til þe8S fundum vér og þennan dag. Skömmu eftir að skrúðgöngunni var lokið, tók að rigna, og hélzt rigningin mestalt kveldið. þó hélt fólkið áfram að skemta sér fram að miðnætti. Svíar þóttust raunar hafa sent sím- rit norður í höf til .lágnættissólarinn- ar« og pantað gott veður hjá henni. En annaðhvort hefir hún aldrei fengið það skeyti eða hún hefir eigi viljað bænheyra Svía; henni þykir þeir lík- legft svtpa um of á enn. þetta var síðasta hátíðarhaldið, með- an heimsstúkuþingið stóð yfir. Síð- ustu dagana var starfað af miklu kappi; stóðu fundir þá stundum yfir fram yfir miðnætti. B. N. Erlead tíðindi. Búahershöfðingjarnir þrír, Botha, Delarey og de Wet, hafa ritað áskor- un »til hins mentaða heims* um að hlaupa undir bagga með löndum sín- um með fégjöfum. þeir eigi, Búar, við mestu örbirgð að búa eftir ófrið- inn. þeir segja, að eytt hafi verið ekki færri en 30,000 bændabýlum(hús- um) fyrir þeim, meðan á ófriðinum stóð, flestum með eldi, og önnur spell eftir því. Fjárstyrkurinn frá Bretum eftir friðarsáttmálanum hrökkvi ekki til að bæta skaðann að VlO hluta. þeir leituðu fyrst hófanna við stjórn- ina í Lundúnum (Chamberlain) um einhverja rífkun á fjárframlögum, en fengu enga áheyrn. Fóru síðan til Hollands og gáfu þar út áskorunina. þeir ætla að sækja heim Vilhjálm keisara og ef til vill fleiri þjóðhöfð- ingja. Bretum líkar sú málaleitun afarilla og segja þá fara með mestu ýkjur og ósannindi. Einn auðmaður amerískur var búinn að gefa til sam- skotanna 100,000 dollara. Emile Zola, einhver frægastur skáld- sagnasmiður nú á tímum og mikil- virkastur, franskur, andaðist í París 28. f. mán. Hann kafnaði um nótt af kolsýru, vegna ógætilegs reykrásar. Kona hans var og nærri dauð. Hann varð rúmlega sextugur, f. 2. apríl 1840. Hann græddi of fjár, svo milj- ónum skifti, á ritum sínum. Hafði lif- að við sult og seyru framan af æfinni. Voðatjón varð á Sikiley af fellibyl í lok f. mán.: húsahrun mikíð m. m. Meir en 500 lík fundin, er síðast fréttist; en 10,000 manna húsnæðis- lausir. þá varð og fellibylur 500 manna að bana í Yokohama í Japan 29. f. mán. og skipatjón mikið. Fjárhagsáætlun Reykjavikur 1 9 0 3. Gjöldin eru áætluð 56,700 kr. þar upp í eru tekjur aukaútsvör 38,300 og lóðargjöld um 7,500. Helztu útgjöldin eru: Fátækrasjóður 151 /2 þús. kr.; barnaskóliun rúm 10 þús.; vegabætur 8,300; vextir og af- borganir af lánum 6,700; löggæzlu 3,500. Bæjarstjórn Beykjavíkur. Hún fól á fundi 2. þ. m. brunamálanefnd að koma með tillögu um liaganlegt fyrirkomu- lag á sliikkviliöi og slökkviliðsstjórn. Nefnd (bfg., Þ. B., J. J.) falið að stinga upp á kjördæmaskifting í Rvik, eftir áskor- un amtmanns. Samþykt að leggja veg frá Barnaskóla- stéttinni suður að Fríkirkjunni, fyrir 550 kr., gegn þvi, að Frikirkjan láti ókeypis lóð frá sér undir framhald þess vegar lengra suður eftir á sinum tima. Ýmsar erfðafestulandsútmælingar og, ýms- um málum vísað til veganefnda, Alþýðustyrktarsjóðsskamti úthlutað 22 persónum (1 karlm., 21 kvenm.), þar af 12 fimtán kr. hverri, og 10 tiu kr. hv. Samþyktar hrunahótavirðingar: Landa- kotsspitali 64,125 kr.; Frakkastígsspitali 39,395; Magnúsar Árnasonar hús (Aðalstr. 18) 26,805; hús G. Gunnarssonar kaupm. (Hafnarstr.) 20,024; hús Guðm. Ámunda- sonar við Laugaveg 7,818; hús þeirra Kol- beins og Einars Þorsteins sona við Lindarg. 6,945; hús Bergs Jónssonar við Laugaveg 5,125; hús Sveins Árnasonarvið Barónsstig 5050; hús Guðj. Kr. Jónssonar við Berg- staðastr. 4955; hús Björns Gislasonar við Nýlendugötu 2570; hús Eihars Guðmunds- sonar við Grettisg. 2045. Heidurssainsæti allfjölment var kommandör R. Ham- mer, yfirmanni á Heklu, haldið í Iðn- aðarmannahúsinu 6. þ. m. Hans er eigi von hingað framar. Nýtt alheimsmál. Landi vor Páll Þorkelsson gullsmiður, nú í Khöfn, hefir fengist við mörg ár að hugsa upp og setja saman nýrtt alheimstungumál, samið stóra orðabók um það og málmyndalýsing, og sækir um styrk úr ýmsum sjóðum dönsk- um til að koma þeim ritum á prent. Fræg- ur málfræðingur einn i Khöfn, Yald. Schmith háskólakennari, lætur vel yfir þessari til- raun og mælir með síyrkbeiðninni. Sömu- leiðis próf. Finnur Jónsson. Oft hafa gerðar verið áður þess kyns tilraunir og vel látið yfir fyrst i stað, en aldrei lánast þó til hlítar. Þetta nýja mál er ekki ætlast til að sé talað, heldur sé að eins að það skiljist á bók eða ritað. Höf. segir hljóðið svo miklnm breytingum undir orpið, að ekki sé hægt að byggja á því alheimsmál. Þessu er sagt frá nokkuð greinilega í Politilcen 18. f. mán. Póstgufuskip Laura (Aasberg) kom tí. þ. m. um kveldið seint frá Khöfn og Skotlandi. Farþegar cand. med. & chir. Þórður Pálsson, stud. jur. Bjarni Þorláks- aon, og nýr Hjálpræðisherstjóri, Petersen, með konu og 2 börnum. Póstgufuskip Ceres (Kiær) lagði á stað í gær vestur um land og norður með strjáling af farþegum. Herskip Hekla lagði á stað alfarið héðan 8. þ. m. um kveldið heimleiðis; ætl- aði að koma við á Seyðisfirði. Með henni sigldi M. Lund lyfsali. Veðurathuganir i Reykjavík, eftir aðjunkt Björn Jensson. 1902 okt. Loftvog millim. Hiti (C.) í>- <rf et- <1 <T> CX e cr æ ox Skýmagn Urkoma millim. I Minstur 1 hiti (C.) Ld. 4.8 759,5 10,5 s 2 1 9 1,6 8,7 2 760,2 10,2 8E 1 10 9 760,4 7,4 88E 1 4 Sd. 5.8 761,3 8,3 8 1 9 1,7 5,5 2 762,0 10,6 88E 1 9 9 761,0 8,5 8 l 5 Md. 6.8 757,9 9,1 S8E 1 5 0,4 7,3 2 758,0 10,6 8E 2 9 9 758,4 9,7 S 3 7 Þd. 7.8 760,3 9,6 E 2 9 8,5 2 761,9 11.4 E 1 9 9 762,4 9,5 8E 1 8 Mvd 8.8 761,7 7,9 88E 1 7 0,2 8,3 2 760,7 10,5 S8E 1 9 9 760,5 7,7 SE 1 10 Fd. 9.8 759,0 6,7 0 9 7,3 6,1 2 758,6 8,4 NW 1 3 9 756,9 6,6 0 3 Fsd.10.8 753,1 2,8 0 3 1,9 2 750,8 7,2 ENE 1 7 9 749,3 5,6 E 1 7 Perur V ínber Epli og Laukur kom með s/s »Laura« í verzlun ^Jalóimars (Bfíascn 6 Ingólfsstræti 6. Hvitt geldingslamb, með mínu marki: stýft bæði, sem eg á ekki, hefir verið dregið mér í réttum í haust. Réttur eigandi vitji þess til mín og borgi á- fallinn kostnað. Eyrarbakka 2. okt. 1902. Ólafur Teitsson. Saltede faareskind kjöbes i partier af Gustav O. Abrahamson Aðalstræti 18. Herbergi til leigu. fyrir einhleypa menn. Ritstj. visar á. Kl E R T I stór og smá S P I L I N eftirspurðu eru nú nýkomin til C. Zimsen. Til þeirra sem neyta liins ekta Kína-lífs-elixirs. Með því að eg liefi komist að því, að það eru margir, sem efast um, að Kínalífselixír sé eins góður og hann var áður, er hér með leidd athygli að því, að hann er alveg eins, og látinn fyrir sama verð sem fyr, sem er 1 kr. 50 a. glasið, og fæst alstaðar á íslandi hjá kaupmönnum. Ástæðan fyrir því, að hægt er að selja hann svona ódýrt, er sú, að flutt var býsna-mikið af hon- um til íslands áður en tollurinn gekk í gildi. Þeir sem Kínalífselixíriun kaupa, eru beðnir rækilega fyrir, að líta eftir því sjálfs sín vegna, að þeir fái hinn egta Kínalífselixír með einkennunum á miðanum, Kínverja með glas í hendi og firmanafnið Waldemar Petersen, Fredrikshavn, og ofan á stútnum F í grænu lakki. Fáist ekki elixírinn hjá kaupmanni þeim, er þér skiftið við, eða sé setl upp á hann meira eu 1 kr. 50 a., eruð þér beðnir að skrifa mér um það á skrifstofu mína, Nyvei 16, Kobenhavn. W aldemar Petersen Fredrikshavn. Hallgrímur Jónsson kennari frá Breiða- bólstöðum á Alftanesi er flutturað Búðardal við Hvammsfjörð. Blöð og bréf til bans sendist því þangað. S A LT mjög hreint — ágætt til kjötsölt- unar, nýkomið til Th. Thorsteinsson. Góði osturinn Jrá (Bóóa fæst í verzlun Valdimars Ottesen 6 Ingólfsstræti 6. IMiMir panta eg eftirleiðis — eins og fyr — bæði fyrir rjómabú og skilvísa bændur. Af þvi eg borga fyrirfram og tek ekki ómakslaun af kaupendum, sel eg Þyrilskilv. 15—20kr. ódýrari en »Perfekt«. Borga verður við afhending i Reykjavik. Þyrilskilv. brúka 15 : 1 á Asabúinu i Gnúpverjahr., o. fl. bú með »P«. Hægara er að snúa Þyrilskilv. en »P«. Hún skilur jafn vel og jafnfljctt, hefr mik- ið stærra mjólkurilát og ber vel á sig þó kalt sé, sem »P« gerir ekki. Skoðið sjálf- ir. Reynslan sannar meira en auglýsingar eða hlutdræg meðmæli. Haga í Arnessýslu 6. okt. ’02. Vigfús Guðmundsson. Jólbær kýr JS. T;i Ironuc °g ábúðar fæst á næst- 11 Ka ips komandi fardögum, jörð- in Tunga i Flóa. Semja má við eiganda og ábúanda jarðarinnar Guftmund Hannesson. Sa, som birti vatnsstigvél undir Blika- staðaásum mánudagin 29. f. )ii.. skili þeim hið bráðasta í afgreiðslu ísafoldar. FASTEIGNIR, t>æði bús 0g jaröir, tekur undirritaður að sér að selja fyrir sanngjarna borgun. Kristján Þorgrímsson.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.