Ísafold - 18.10.1902, Side 3
271
Fyrir oss íslendinga eru það eink-
um fornbókmentirnHr, sem hafa mest
mentunargildi. Um ókomnar aldir
getur allur hinn germanski kynstofn
ausið af þeim mentabrunni, sem nefn-
ist forn-íslenzkar, forn-norskar og forn-
enskar bókmentir. Einkum eru það
vér íslendingar og Norðmenn, sem
höfum þeiria full not. þær eru vor
eign. |>ær eru hold af \oru holdi og
blóð af voru blóði. þær eru sannur
spegill af andlegu lífi og hugsjónum
forfeðra vorra. Í þeim þekkjum vér
hin frumlegu eðliseinkenni vor.
Frumeðli þjóðar breytist ekki, þótt
aldir líði. Á hörmungarinnar og neyðar-
innar tímum liggur það máske í dái.
Og þótt það taki á sig útlent gerfi og
meðvitundin um hið sérstaka þjóð-
erni sé sofandi, þá Idir þó alt af frum-
eðli hennar; það gttur ekki dáið. En
það getur vaknað, þegar þjóðirnar risa á
fætur, þegar þær fara að kannast við
sjálfar sig sem þjóð fyrir sig, með
eðliseinkennum fyrir sig.
Kristindómurínn og menning sú,
sem houum er ávalt samfara, breytir
ekki þessu frumeðli þjóðanna; hann
bætir það og þroskar.
Hin göfuga, fagra og skáldlega mynd
af því hugsjónalífi og framkvæmdalífi,
sem fornbókmentirnar sýna oss, er
sönn mynd af frumeðliseinkennum
Norðurlandabúa, einkum vor íslend-
inga. |>að er sá spegill, sem vér eig-
um að þekkja sjálfa oss í, svo vér
lærum að kannast við þann sérstak-
lega þjóðernisanda, sem vér eigum að
halda fast við, svo vér náum því mark-
miði, sem oss hefir verið sett frá upp-
hafi.
Grundtvig hefir í sinni miklu og
merkilegu bók, Nordens Mytho-
1 o g i, safnað í eina heild úr Eddukvæð-
unum þeim undirstöðuhugmyndum og
lífsskoðunum, sem hann telur vakað
hafa frá upphafi fyrir Norðurlandabú-
um. Honum tekst meistaralega að
færa sennileg rök fyrir því. Ásatrúin
hyggur hann að geymi í sér sumar há-
leitustu og fegurstu hugsjónir, sem
fæðst hafi í brjósti nokkurs manns.
Víst er um það, að í goðasögunum
felst hið dýpsta og fegursta hugsjóna-
líf forfeðranna, mynd af hinu sterkasta
afli, er þeir þektu og var lífakkeri
þeirra.
Grundtvigs hugsjónir, sem er þunga-
miðjan í lýðháskólastarfinu, eru þær,
að Norðurlandabúar sameini kristilega
lífsskoðun við hið forna frumeðli sítt
eða eðliseinkenni.
Og þetta er sú hugsjón, sem vér
viljum óska að gæti orðið þungamiðj-
an í lýðháskólastarfi voru hér á landi.
Hún, ogekkert annað, getur til
fulls vakið oss, vakið þjóðernistilfinn-
ing vora, sem nú virðist köld og á-
vaxtarlaus og hjá alt of mörgum stein-
sofandi. -
Ein grein af fornbókmentum vorum
eru æfintýrin. I mörgum þeirra felst
fagur skáldskapur, fagrar hugsjónir.
|>ykjast ýmsir fornvísindamenn geta
sannað, að mörg hin beztu þeirra hafi
fyrir ómuna-tíð verið sameign flestra
Evrópuþjóða, sem nú eru; þau séu
æskudraumar og æskuhugsjónir þeirra,
en hafi breyzt og lagast eftir lifnaðar-
háttum og menningu þeirra, eftir að
þær skiftust í ýmsa þjóðflokka.
Á meðan að Hómer og önnur hin
elztu Ijóð hafa legið í gleymsku, hefir
æfintýra-skáldskapurinn Iifað á vörum
ungra manna svo miljónum skiftir, og
glatt og göfgað hjörtu þeirra. f>að
sem þann veg lifir þúsundir ára, þótt
annað gleymist, getur varla fánýtt ver-
ið. jpað eru dýrar, hreinar perlur,
runnar frá hjartarótum þjóðanna. j?að
er ósvikið gullforðabúr, sem að vísu er
oft erfitt að finna lykil að.
Engar þjóðir munu eiga meira að
tiltölu af slíkum mentunarmeðulum en
vér Islendingar. — En hvernig notum
vér þau? --------
Mankynssagan hefir nokkuð líkt
mentunargildi og fornbókmentirnar
fyrir lýðháskólaua. Lifandi frásögn um
mikilmenni sögunnar veitir æskumann-
inurn hugnæma og hrífandi sjón á
mannlifinu. Og sagan kveður niður
þá röngu skoðun, að þaðeigi eingöngu
við æskuna, við hugsjóna- og drauma-
lífi hennar og skáldanna, að vera
hrifinn og hugfanginn. J>að sé jafn-
vel skaðlegt fullorðnum. Stillingin og
alvörugefnin sé hið eina, sem geti
vakið traust og virðingu.
Sagan sýnir nú einmitt, að margar
göfugustu hetjurnar og mestu mennirnir
hafa alt sitt Hf verið hrifnir, hafa bar-
ist með þróttmiklu innra afli, eldleg-
qdi áhnga og guðmóði fyrir hugsjón-
um sínum, þar til' þær hafa komist
til framkæmdai,— f>að er ekki að eins
vegna einstakra sögulrægra manna, að
sagan hefir mikið meutunargildi fyrir
skólana. |>að er einnig sambandið milli
viðburðanna í lífi mankynsins frá fyrstu
tímum, sem á að veita eftirtekt. |>að
vekur sjálfstæðari dómgreind ungra
manna um mannlífið.
Og enn vil eg taka eitt fram. Vér
viljum halda grundtvigska merkinu
hátt, halda því hreinu. Að hafa það
í miðju tré þýðir dauða.
Grundvigssinnar eru bjartsýnir menn
og elska frjálslegan kristindóm, sem
leiðir til atorku og lífsgleði. Lífsgleð-
in eykur táp og lífsþrek. Bölsýnis-
mennirnir eiga ekkert slíkt til. Tílveran
er í þeirra augum öll full af óvættum,
sársauka og vondum manneskjum.
Grundvigsmerkiðboðar I j ó s og 1 í f,
æsku og gleði. f>að er of mikið
af einkennum ellinnar á æskulýð vor-
um. Drauma og hugsjónalíf, þessi
fögru æsku einkenni, eiga að lifa og
þróast, koma fram í lífinu.
Margur gráhærður öldungur á meira
til af æsku en þeir, sem sálnaregistrið
segir vera á æskuskeiði. f>víaðá tvítugs-
aldri er margur á meðal vor orðinn
svo gamall, andlega gamall, hætt-
ur að hugsa um nokkurn skap-
aðan hlut, sem er göfugt og nytsamt,
að vel mætti ímynda sér, að þeir væri
afi eða amma sjálfra sín.
Gi óörarstööin.
í Gróðrarstöðinni við Reykjavík hef-
ir til þessa mest verið unnið að því
að girða landið, ryðja burt grjóti,
þurka og viðra jarðveginn. En nú
eru komnar nær 3 dagsláttur 1 rækt
og í viðbót eru plægðar rúmar tvær,
sem takast til ræktunar næsta sum-
ar.
Tilraunir eru aðallega gerðar með
matjurtir og fóðurjurtir, svo að hægt
verði sem fyrst að komast að raun
um, hvaða tegundir og afbrigði vér
eigum að rækta og á hvern hátt.
f>egar nokkur reynsla er fengin í því
efni, verður séð um, að hér fáist fræ
af þeim tegundum.
í fyrra vor var sáð 12 tegundum
af útlendu grasfræi og innleudu fræi
af ýmsum túngrösum. í vetur sem
leið kulnuðu ýmsar tegundirnar, en af
nokkrum þeirra hefir sprottið þétt og
góð rót, einkum íslenzka fræinu og
sömuleiðis phleum pratense, poa pra-
tensis og festuca duriuscula. Hafrar
og bygg hafa gefið mjög góða upp-
skeru sem hey til fóðurs.
í sumar voru ræktuð. 15 afbrigði af
fóðurrófum, 6 afbrigði af gulrófum og
8 afbrigði af matarnæpum (maírófum).
Öll þessi afbrigði voru til sýnis fyrir
nokkrum dögum. Mesta uppskeru,
38,800 pd. af dagsláttu, gaf whité
globe green top. f>yngsta rófan vó
9 pd. (white tankard green top). Af
gulrófnaafbrigðunum reyndust f>ránd-
heimsgulrófurnar, einna arðsamastar
og þar næst önnur tvö: champion og
edina.
Sjötíu kartöfluafbrigði voru reynd í
sumar; af þeim hafa þessi reynst
bezt: gul skozk, Boðinjarkartöflur,
dukker-kartöflur og Richters imperator.
Uppskerumunur á þeim er lítiil. f>ær
tvær, sú fyrst nefnda og síðastnefnda,
eru frá Danmörku, en hinar tvær frá
Noregi. Ýmsar aðrar matjurtir voru
ræktaðar; blómkál (Erfurter-dværg)
var brúklegt í byrjun ágústmánaðar
og núna mn þeanan tíma er rauðkál
orðið gott.
í Gróðrarstöðinni hafa ýmsar tré-
tegundir verið gróðursettar, sem fengn-
ar hafa verið frá Danmörku og Sví-
þjóð; þar er líka sáð trjáfræi. Skóg-
rækt verður þar ekki reynd, heldur
að eins trjárækt, sem einn liður garð-
yrkjunnar.
Síðastliðið vor voru 7 nemendur í
Gróðrarstöðinni, svo vonandi fer þekk-
ing manna á garðyrkjunni að færast
út. E.
Veðurathuganir
í Reykjavik, eftir aðjnnkt Björn Jensson.
1902 okt. Loftvog millim. Hiti (C.) >- trr c+ <1 ct> cx p >1 æ -2L Skjmagnl Urkoma millim. Minstur hiti (C.)
Ld. 11.8 747,2 6,1 E 1 9 0,2 2,2
2 748,1 8,3 E 2 8
9 750.1 7,6 SE3 1 8
Sd. 12.8 745,1 8,7 E 3 10 1,1 5,7
2 743,5 8,2 E 2 9
9 747,3 6,5 8E 1 10
Md. 13.8 749,0 6,4 E 1 5 7,9 3,9
2 749,5 8,6 E8E 1 5
9 748,8 6,8 E i 7
I>d. 14.8 747,6 7,5 E 1 7 0,3 5,2
2 747,0 8,6 E 2 7
9 747,5 1,7 E 1 2
Md. 15.8 749,9 3,3 E 1 8 0,8
2 752,5 6,9 NW 1 5
9 755,3 3,3 NNW 1 7
Fd. 16.8 758,4 0,6 E 1 1 -1,0
2 759,0 3,5 E8E 1 2
9 756,1 0,9 E8E 1 5
Fsd.17.8 750,5 3,5 ESE 1 9 -0,3
2 747,9 4,6 88E 2 10
9 748,6 4,3 88E 2 8
Síðdegismessa i dómkirkjunni á inorg-
nn kl. 5. (J. H.).
Handa Eyfellingum, þ. e. ekkjnm
og munaðarleysingjnm eftir þá sem drnkn-
uðu í fyrra vor undan Eyjafjöllum, hefir
K o 1 b e i n n nokkur Á r n a s o n, sunn-
lenzkur maður á Akureyri, safnað gjöfum
þeim, er hér segir, 100 kr. alls, og sent
nýlega ritstj. Iiafoldar, er lagt hefir féð i
sparisjóð til bráðahirgða og nánari ráðstöf-
nnar forstöðunefndar Eyfellingasamskotanna
innan héraðs. — Kolbeinn Árnason gaf 10
kr., Jón Norðmann 5, Snorri Jónsson 2,
Flóvent Jóhannsson 1, Gruðmundur Helga-
son 1, N. N. 1, Einar Jónsson 1, Ingibjörg
Jakohsdóttir ’/2, Benedikt Einarssou 1,
Halldór Halldórsson 1, Jakob Stefánsson 1,
Hvitahandið á Akureyri 10, Bergsteinn
Björnsson 2, Chr. Havsteen 2, Kapt. Velde
pr. s/s. »Leif« ö, Kapt. 0. Haagenvig 1,
H. Larsen 2, Jakob Glesnes 1, Helgi Ey-
ólfsson 2, Eggert Davíðsson 1, J. Osten 1,
Metusalem Jóhannsson 2, Pétur Þorgrims-
son 3, síra Greir Sæmundsson 2, sira Björn
Bjarnarson 2, Jón J. Dalmann 1, Eiríkur
Halldórsson 2, Eggert Einarsson 1, Helgi
Hafliðason ll.2, Friðrik Clausen ’/st Jóh.
Christensen verzlunarstj. ’/2, Kristján Sig-
urðsson ’/2, Ingibjörg Torfadóttir 2, Hólm-
fríður Árnadóttir 1, Námsmeyjar kvenna-
skólans 9, Stefán Stefánsson 1, Guðmundur
Bildal ’/2, sira Matth. Jochumsson 10, Egg-
ert Laxdal 2, J. V. Havsten 2, Anna Tóm-
asdóttir 4, Kristin Eggertsd. ’/2, IsakJóns-
son 1, Jón Steingrímsson ’/2.
St. Jósefs-spítaliíLandakoti
er nú opnaður. Hver læknir getur komið
þangað sjúklingum. Heimsóknartimi er kl.
10’/2—12 og 4—6.
Ólafsdalsskólinn heldur á-
íram. Bókleg kensla verður svipuð
því sem verið hefir. Verkleg kensla
í plægingu og öðrum jarðabótastörf-
um verða aukin. Plógar, kerrur og
önnur jarðyrkjuverkfæri verða smíðuð
á skólanum eins og áður. Lærisvein-
ar verða teknir með sömu kjörum
og að undanförnu. Þeir sem vilja
komast í skólann á næsta vori, geri
mér viðvart um það fyrir lok febrú-
armánaðar.
Ólafsdal 7. okt. 1902.
T. Bjarnasoii
A Banðni' hestur,
aljárnaður, mark: sneitt
aft. h., beilrifað vinstra,
/-—vel vakur, með siðutökum,
tapaðist fyrir 3 vikum á Mosfellsheiði. —
Ficnandi er beðinn að skila tiestinum að
Bæ í Bæjarsveit eða í Reykjavík til Ás-
bjarnar Óiafssonar, Þinghoitsstræti 22.
Málfundafélagið.
Fundur á morgun kl. 4'/2 í Báru-
búð. Ymislegt á dagskrá.
UppboösauglyBÍug.
Mánudaginn 20. þ. m. kl. 11 f. hád.
verður opinbert uppboð haldið í Há-
koti hjer í bænum og þar selt hús-
gögn, íverufatnaður, sængurfatnaður
o. fl. tilheyrandi dánarbúi Jóns Þórð-
arsonar.
Bæjarfógetinn í Rvik, 18. okt. 1902.
Halldór Daníelsson.
HOTEL VICTORIA
Sí. SiranéstrccÓQ 20.
Alkunnugt fyrir sína notalegu Café og
Restaurant, og vel útbuin ódýr gestaher-
bergi, nærri Kongens Nytorv, er nú komið
í minar hendur og er heiðraður almenn-
ingur beðinn að minnast þess góðgjarn-
lega. Herbergi með og án fæðis fást I
vetur fyrir mjög vægt verð. Bezti matur,
fyrirtaks-vín, kurteist viðmót.
B. Sch0ning\
áður portier i Hotel National og Grand
Hotel Nilsson.
„ALDAN“
Fnndur næstkomandi miðvikudag á vana‘
legum stað og stundu.
Allir félagsmenn beðnir að mæta.
S t j ó r n i n.
2 brúnir hestar og blágrá hryssa (öll
aljárnuð) bafa tapast út úr húsi við Lauga-
veg nóttina milli 16. og 17. þ. m. Hver
sem hitta kynni þessi hross, er vinsamlega
beðinn að koma þeim annaðhvort til Árna
rakara Nikulássonar í Reykjavík, eða til
Guðna Þorbergssonar á Kolviðarhól.
Sá sem nóttina milli 10. og 11. þ. m.
tók reiðjakkann minn í salnum i Hjálp-
ræðiskastalanum, er vinsamlega beðinn að
skila mér honum aftur.
H. Chr. Bojsen.
Rauður hestur, litill, vakur,
6 vetra, mark: sýlt h. og
andfjaðrað, tapaðist frá
Esjuhergi, um miðjan sept-
ember. Sá er hitta kynni hest þennan,
geri svo vel að koma honum til undirrit-
aðs eða að Yestri-Geldingalæk á Rangár-
völlum.
Guðjón Sigurðsson
úrsmiður.
Búnaðarfélag íslands.
Annað mjaltakensluskeið fer fram
í Reykjavík frá ý.—9. nóveinber.
Kenslan ókeypis.
Þeir, sem vilja læra þessa nýju
mjalta-aðferð, sæki um það til Sig.
Þórólfssonar kennara, Vesturgötu 18.
Grásleppa
Riklingur
Harðfiskur (undan jökli)
Saltfiskur nr. 2.
Steinbítur
Upsi
Gelgjur og kinnar
Isl. smjör o. fl.
fæst í verzlun Leiýs Þorleiýssonar
5 Laugaveg 5.