Ísafold - 08.11.1902, Blaðsíða 3

Ísafold - 08.11.1902, Blaðsíða 3
 legri jöfnuður yrði á þessum hlufca bæjargjalda en þeim hlutanum, sem lagt er á með niðurjöfnun, hversu vel sem til þess verks er vandað. Sau ðaþ j ó f n að u r komst upp í vetur semleið á Vopna- fiirði og sannaðist. Hafa nú þjófarn- ir fengið dóm sinn í héraði, sem hér segir. Fjórir dæmdir til betrunarhús- vinnu Júlíus |>orsteinsson 15 mánuði, Jónas Jónsson og Davíð Ólafsson 12 mánuði og Jón B. Jónasson 8 mánuði. Björg Davíðedóttir, kona Jónasar og móðir hinna þriggja, er dæmd til 8 daga, og Herdís Benediktsdóttir, kona Davíðs, til 5 daga fangelsis við vatn og brauð. Krindi um breyting á bæjargjöldum. Lög um bæjargjöld í Reykjavik frá 1 . október 1877 gefa bæjarsjóði i árstekjur 5000 kr. af bygðri lóð og fast að 2500 kr. af óbygðri, og er það sem næst % hluti af tekjum bæjarins. Tekjur af þessum stofnum vaxa hvergi nærri móts við þarfir; þrátt fyrir allar byggingarnar hafa lóðargjöldin 10 síðustu árin eigi stigið nema 50%) en aukaútsvörin tiátt upp í 120%. 1 meðferð bæjargjatdafrumvarpsins á al- þingi 1877 var því hreyft, að virðingarverð væri róttlátari gjaldstofn en flatarmál, og fróðasti maður þingsins i skattamálum, sira Arnljótur Olafsson, benti á, að »hússtæðis- skatturo væri að ganga úr gildi í öðrum löndum; en það hreif ekki; dönsku fyrir- myndinni var haldið, og ekki hefir þótt hér ástæða tii að taka upp ákvæðin dönsku, að láta flatarmálsgjaldið vera af feralin i hverju gólfi hæðarinnar, sem er til mikils jafnað- ar — ekki búist við marglyftum húsum — og um óbygðu lóðirnar stóð ómótmælt það álit landshöfðingja, »að eigi sé neinn veru- legur munur á verði lóðanna eftir því, hvar þær liggja og til hvers þær eru notaðar«, og því óþarfi að leggja gjald á þær eftir virðingarverði. Það mun nú enn betur viðurkent en var fyrir 25 árum, að flatarmálsgjaldstofninn er óheppilegur, og nú er kominn hér fram ákaflega mikill verðmunur á lóðum, og háu og dýru húsunum fjölgar nú stórum. Þetta væri nóg fyrir sig, til að fá laga- breyting til meiri jafnaðar: próeentugjald af virðingarverði i stað flatarmálsgjalds; en það skiftir þó enn meira, að bærinn þarf að koma árstekjum sínum mun betur en nú á sér stað yfir á íastan gjaldstofn, vanhaldalausan. Komi hér örðugir timar, er ekki skemtilegt að eiga rétt alt undír aukaútsvarinu. Beri rnaður Reykjavík sam- an við dönsku kaupstaðina, er niðurjöfnun- argjaldið hjá oss langtum stærri hluti af árs- tekjunum en þar á sér stað. Eg hygg, að svo langt mætti fara, að sem næst hálfar árstekjur bæjarins fengjust af þessum föstu gjaldstofnum. Setjum nú bæjarþarfirnar 00,000 kr. á ári. llúsavírð hér er um 4 miljónir króna; 5 af þúsundi gæfi þá af sér 20,000 kr. ffvað lóðir kunna að verða metnar, er ekki gott að segja, ekki fjarri sanni að setja feralin upp og ofan 40 a., og álnatalan er 1 miljón, verð allra lóða þá 400,000 kr.; til þess að fá 10,000 kr. af þeim gjaldstofni þyriti að taka 21/a°/o af virðingarverði. Hlutfallinu er i þessu dæmi haldið eins og það nú er, tekjur af húsum hálfu meiri en af lóðum; en auðvitað mætti breyta Jovi. Reyndar er 4 þaö að lita, finnist mönnum slíkt gjald af lóðum of hátt, aö þær eru upphaflega gefnar, 1 útjaðralóðum, sem fátækir menn eru að yrkja, yrði gjaldið að kalia hið sama og nú, verÖi ferfaÖmurinn ekki virtur yfir eina krónu. Að Bjálfsögðu þyrfti að vi»'ða lóðirnar npp á vissra ára fresti og setja reglur fyrir réttlátri virðingu. Slik breyting sem þessi lagast bezt í hendi með þvi, að gjörn ekki stökkið of stórt í einu, og það verður með þvi, að lögin heimili tilfærilegt prósentugjald, segi fyrir nm, hvað þaö megi vera minst og mest, og bæjarstjórnin færi sig til með gjaldið inn- an beirra takmarka, eftir reynslunni og þörfinni. Tilfærilegt lóðargjald á sér nú stað á ísafirði og Seyðisfirði, og i frum- varpinu, sem var fyrir þinginu 1901 um breyting á bæjargjöldum í Reykjavik, var farið fram á slikt, en þar var haldið flat- armálsgjaldinu gamla, enda var frumvarpið felt. Slíkt frumvarp, sem hér ræðir um, gæti vart sætt neinni mótspyrnu á þinginu. Eg tel heppilegt, að hreyfa nú þessari breyting bæjargjaldanna, þar sem timinn er nægur að ræða þetta mál vandlega fyr- ir næsta þing, bæði innan bæjarstjórnar og utan; og þar sem mikill meiri hluti bæjar- bæjarfulltrúa verður kosinn í bæjarstjórnina i byrjun næsta árs, hafa bæjarbúar einmitt nú hið bezta tækifæri til að koma skoðun- um sínum að i þessu máli. Reykjavík, 5. nóvember 1902. Þórlt. Bjarnarson. Til bæjarstjórnar Reykjavíkur. Aflabrögð góð á AuBtfjörðum, suðurfjörðunum, þar sem eigi skortir beitu, en hún var á þrotum eða alls ekki til sumstaðar. Síldarafli á þrotum við Eyjafjörð. Ura undirstöðuatriði búnaðar- framfara (sbr. ísafold 3. f. mán.) verður umræðufundur í Laudsbúnaðarfélaginu í kveld kl. 8l/2 í Iðnaðarmannahúsinu. Frummæl- andi adj. Björn Jensson. Bæjarstjórn Keyjavíkur veitti á fundi sinum í fyrra kveld Helga kaupm. Helgasyni lausn frá slökkviliðsstjórastarf- inu og setti í hans stað Gruðm. kaupm. Olsen slökkviliðsstjóra fyrst um sinn. Sömuleiðis var Þorbjörgu yfirsetukonu Sveinsdóttur veitt lausn frá ljósmóðurstörf- um og skyldi hafa laun sín óskert að eft- irlaunum. Beiðni frá Baldri Benediktssyni og nokkr- nm öðrum um erfðafestuútmæling var frestað til skoðunar á staðnum. Stefáni Pálssyni og Gruðmundi Egilssyni synjað um stakkstæði við Rauðarárlæk. Eigendum Frabifarafélagshúss synjað um leyfi til að mega hafa trétröppur norður af miðju húsinu út að götunni gegn því að þeir tæki tröppurnar burtu er kæmi til þess, að gangstétt yrði lögð með götunni, og jafnframt ályktað, að engum skyldi eftirleiðis leyft að setja tröppur út af húsi sínu út á gangstétt með götu. Guðmundur Guðmundsson bæjarfógeta- fulltrúi hafði sótt um að fá sér útvisað öllum óráðstöfuðum lóðum meðfram Njáls- götu, 16 að tölu, en byggingarnefnd skotið þvi máli til úrskurðar bæjarstjórnar, sem synjaði um það. Samþykt að hækka lánið til pipuræsis frá Landakotsspítala niður í sjó um 850 kr. og lánið til viðgerðar á Laugunum og Laugahúsinu um 835 kr. Lagt fram bréf frá bæjarfulltrúa Þórh. Bjarnarsyni um lagabreyting i þá átt, að afnumið verði lóðargjald til bæjarins, en lögleitt í þess stað hundraðsgjald af virð- ingarverði húsa og lóða i bænUm. Samþykt að leigja fundarsal Good-Templ- ara í Good-Templarabúsiuu frá næsta ný- ári til fundarhalda bæjarstjórnar fyrir 240 kr. um árið. Til að útvega og annast uauðsynlegan umbúnað, sem samfara er húsnæðisskiftingnnni, voru kosnir þeir G. B. og Tr. G. Samþyktar voru þessar brunabótavirð- ingar: hús Péturs Jónssonar blikksmiðs við Yesturgötu 15357 kr., Jóns Sveinssonar trésmiðs við Nýlendugötu 9728 kr., Jóns Ásmundssonar og Magnúsar Jónssonar Mjó- stræti 8582 kr., Runólfs Stefánssonar og Vigfúsar Jósefssonar við Skólavörðustig 7249 kr., Gunnþórunnar Halldórsdóttur við Amtmannsstig 6884 kr., Pals Óskars Lar- ussonar og Pálinu Lárusdóttur við Spitala- stig 6736 kr., Þorkels Óiafssonar Bergststr. 5704 kr., Bergs Jónssonar skipstj. við Laugaveg 5654 kr., Jóns Hannessonar við Austurkot (Kaplaskjóli) 2885 kr., Steinunn- ar Einarsdóttur við Nýlendugötu 2639 kr., Halldórs M. Ólafssonar við Nýlendugötu 2153 kr., geymsluhús Eiriks Bjarnasonar í Vonarstræti 720 kr. og skúr Jóns Jóns- sonar skipstj. i Lindargötu 240 kr. Strandferðaskipin Vesta og Skál- holt enn ókomin. Hólar mættu Vestu 27, f. mán. á leið milli Seyðisfjarðar og Vopna- fjarðar úti fyrir Borgarfirði. Veðurathuganir i Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson. 1902 nóv. Loftvog millim. Hiti (C.) C-r c-r <1 o o* -í rr 3 c* œ ?r s p °s Urkoma millim. Minstúr hiti (C.) Ld. 1. 8 751,8 1,9 w í 4 0,9 0,0 2 750.4 3,0 s í 9 9 749,4 3,8 sw i 10 / Sd. 2. 8 746.5 0,5 w 2 6 2,3 -1,2 2 748,9 -0,5 WNW 2 5 9 749,7 -0,3 WNW 1 4 Md. 3. 8 757,5 -3,5 S 1 3 0,2 -4,6 2 762,0 -4,6 E 1 2 9 762,9 -5,7 E 1 2 Þd. 4. 8 757,9 -1,2 E 2 10 -7,6 2 753,1 0,8 E 2 10 9 748,5 1,8 E 2 10 Md.5. 8 744,0 2,8 E 1 10 8,0 -2 2 2 744,3 4,3 NE 1 10 9 745,4 3,7 0 10 Fd. 6. 8 742,5 3,6 N 2 10 5,1 1,8 2 739,8 3,3 N 2 10 9 739,8 5,0 NE i 6 Fsd.7. 8 735,2 6,7 E 2 7 0,9 1,5 2 734,0 6,7 ENE 2 8 9 734,5 6,7 E 1 10 Eftirmæli. Hinn 20. ágúst andaðist að Kvígindisfelli i Tálknafjarðarhreppi merlsismaðurinn Arni Bjarnason. Hann er fæddur að Sveins- eyri i sama hreppi 23. ágúst 1830. For- eldrar hans voru Bjarni hreppstjóri Ingi- mundarson óðalsbóndi á Sveinseyri og kona hans Ingibjörg Sigurðardóttir. Þar ólst Árni upp og vandist við og tamdi sér frá barnæsku dugnað, ráðdeild og sparsemi. Hann varð snemma formaður fyrir skipi föður sins og reyndist heppinn aflamaður, ötull og útsjónarsamur jafnt á sjó og landi. Eigi var hann settur til menta, þó að hvorki vantaði föðurinn efni né soninn námsgáfur. Sjálfur aflaði hann sér á fullorðinsárum þeirrar mentunar, er nægði honum í lifinu. Árið 1863 hinn 10. október kvæntist hann ungfrú Guðrúnu Þorsteinsdóttur, seinast prests í Gufudal, föðursystur þeirra Th. Thorsteinson konsúls i Reykjavík og þeirra systkina, og er hún enn á lífi. Varð hjóna- band þeirra ástúðlegt og því farsælt. Þrjá sona eignuðust þau; dóu tveir þeirra korn- ungir, en hinn þriðji er Þorsteinn hrepps- nefndaroddviti, er nú býr á föðurleifð sinni Kvígindisfelli. Dóttur fátæks manns ólu þau hjón upp sem eigið barn væri, anðvit- að án nokkurs endurgjalds, og marga aðra hjálpsemi.létu þau af sér leiða um sam- verutímann, þó að lítt væri á Iofti haldið eða þakkað af þeim er nutu. Vorið 1865 flúttist Árni að Kvigindisfelli og byrjaði þar búskap, keypti þá 30 huudraða jörð í órækt og niðurnidda, af niðjum Jóns hins auðga Þórðarsonar, er þar bjó fyrir löngu. Hann jók túnið að mun, sléttaði stór svæði i því, nmgirti það alt, gerði lokræsi og bætti engjarnar með skurðum og vatnsveit- ingum. Siðari búskaparár sin átti hann góð- an þátt í þýi, að koma búnaðarfélagi á fót í Tálknafirði. Sjálfur var hann þar fyrsti og mesti jarðabótamaður, og þó að viðar væri leitað. Bæ sinn húsaði hann vel og vandlega, bjó jafnan góðu búi og mátti teljast með atorku- sömustu og nýtustu bændum ísveitsinni. Hann var um tima í hreppsnefud, en lengi sýslu- nefndarmaður. Þótti hann hvarvetnakoma vel fram, því maðurinn var úrræðagóðnr, greindur, gætinn og hreinskilinn. Fyrir nokkrum árum hætti hann búskap sökum vanheilsu, og að síðustu var þessi tápmikli, sistarfandi atorkumaður. orðinn svo þrotinn að heilsu, að hanu gat sjaldan baft fóta- vist, unz hann fekk þá hvíldina, er hann þráöi, þvi hann var guðhræddur og innri maður hans þroskaðist að sama skapi og hinn ytri hrörnaði. I hversdagsháttum var Arni sál. stiltur og alvörugefinn; gat þó verið skemtinn, orðheppinn og fyndinn i viðræðum. Hann hélt fast við skoðanir sinar, var allra manna orðvarastur um aðra af heyrn, — en sagði sína skoðun við hvern sem máli var að skifta með fullri einurð,af- dráttariaust, án þess að fara i nokkurt, manngreinarálit; orðheidinn og áreiðanleg- ur reyndist hann i öllum viðskiftum. »Hann var sannur ísraeliti, í livers mnnni eigi fundust svik«. L. Pórn Abrahams. (Frh.) •Eigum vér þá loks að hitta ósýni- lega fjendur vora"« |>að var eins og svarið lægi í loft- inu. |>eir voru örþrifráða. f>að fór með BÍðustu ögnina af viðnámsþrótt þeirra. f>að lá við að þeim væri hugg- un í að losna við að fálma út í loftið með bundið fyrir augu. Af illu til var betra að ganga að einhverju vísu, hve miskunnarleysÍ8legt og andstætt sem það væri. He9turinn hneggjaði aftur, og emn eða tveir þeirra félaga þóttist heyra annan taka undir langt í burtu. f>eir hvísluðu því að félögum sínum; og er þeir spurðu dræmt og dauflega, hvar það væri, þá gátu þeir ekki sagt, hvort það væri á hægri hönd eða vinstri, fram undan eða aftur undan. f>eir sátu allir hreyfingarlausir, og hleruðu svo sem eina mínútu. En ekkert heyrðist framar. Enda þorði nú enginn að staðhæfa, að ókunnur hestur hefði verið að hneggja einhvers- staðar. f>eir réðu því af nð halda á- fram. þeir fóru að fálma sig áfram gegn um myrkrið. Gekk svo fjórðung stund- ar. f>á stöðvuðu fyrirliðarnir tveir í broddi fylkiugar hesta sína, lögðust fram á makkann og hleruðu. •Heyrisfc yður ekki ....?« spyr annar í hálfum hljóðum. »Hvað þá? . . . Nei, eg beyri ekk- ert«. »f>að hefir kannske verið hugarburð- ur. Eg hefi verið lasinn alt af síðan í morgun. En . . . . « »Eruð þér veikur, Stephens?« »0, nei«. »Ekki hættulega vona eg?« f>eir hvísluðust á þessum spurning- um og svörum til þess að dátarnir heyrðu þau ekki. Loks segir sá fyrir- liðinn, sem hafði verið kallaður Step- hens, eins og honum hefði orðið bilt við: •Kennedy, það er eitthvað á ferð þarna«. f>eir gripu hvor til sinnar marg- hleypu og miðuðu þeim út í myrkrið fram undau sér. Síðan kallar eldri fyrirliðinn, ekki hátt þó: »Hver er þar?« Ekkert svar heyrðist. En er fyrir- liðinn ítrekar spurninguna og hótar að skjóta, heyrðist skjálfandi rödd úr runna öðru megin við veginn : »Góður hvítur bossi, ekki skjóta á Bvartan aumingja«. [Bossi er ávarp, er allir Kaffar hafa við hvíta menn]. •Komdu hingað, þorpari!« »Ekki skjóta«, heyrðist vælt aftur í eymdarróm, og virtist þeim fyrirliðun- um eins og nötraði í tveimur tann- görðum saman. •Komdu, annars verður smelt á þig«. f>á var eins og vofa sprytti upp úr jörðinni, svo nærri hestunum, að þeir hrukku aftur á bak fnasandi. »Ekki of nærri, ódráttur!« »Ekki skjóta á aumingja svartan mann, ekki skjóta«. Dátarnir voru nú búnir að ná fyrir- liðunum og sátu þar á hestbaki í hálf- um hvirfing utan um manngarminn. f>að var varla að þeir sægju hann fyr- ir myrkrinu. •Hvaðan kemur þú?« spyr sá fyrír- liðinn, er flokknum stýrði. HanD tal- aði enn í hálfum hljóðum og miðaði marghleypunni á hinn ókunna mann. Hann þóttist sjá, þótt dimt væri, að þetta væri þarlendur blámaður. •Bossi fyrirliði ekki reiður? — Nei, bossi góður, mikið góður«. Og blámaðurinn þokaðist nær og myndaði sig til að kyssa á fótinn á fyrirliðanum.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.