Ísafold - 22.11.1902, Page 3
291
Amtmaður hefir nú lagt drög fyrir, að
fá vestan verðskrá og myndir af þessum
sláttuvélum.
»IIt er að gera úr engu tal«.
Ilt er að gera úr engu t»l.
og yrðast fyvir ríkisdal.
Dalixr þar og dalar hér.
.Herre Gnd og Fader bær«.
Eiriknr á Syðribrú hefði átt að læra
þessa högu, áður en hann setti saman hina
auvirðilegu ritsmið sina, sem birtist í
>Þjóðólfi« 15. ág. síðastl., með fyrirsögn-
inni »Oft má litið laglega fara«. Greinin
hans gat þó aldrei, þótt lítil sé, orðið lag-
leg; til þess er of mikið i henni af óná-
kvæmni og ósannindum. Mér kemur held-
ur ekki í hug að fara að hreyfa við slík-
um óþokka, sem grein þessi er. Eg ætla
að eins að segja krónu-sögu Eiríks rétta.
Haustið 1899 voru Eir. gerðar 2 kr. í
sveitarútsvar. Nokkru eftir niðurjöfnun
kvartaði Halldór bróðir hans við mig und-
an þessu háa útsvari og spurði mig, hvort
það gæti verið rétt. Eg sagði eins og
var að útsvörin kynni eg ekki utan bókar,
en væri hér um ritvillu að ræða í útdrætti
úr hreppshókinni, sem lá til sýnis á þing-
staðnum, yrði það sjálfsagt lagað. En
þetta var nú ekki svo. Eg fól þvi Jóni á
Búrfelli siðar að innheimta þessar 2 kr.;
en Eiríkur greiddi að eins aðra. Haustið
1900 beiddi eg um lögtak á ógoldnum
sveitargjöldum frá f. á. og þar með
á krónu Eiríks. Síðari hluta vetrar
1901, eg man ekki með vissu hve-
nær, gerði hreppstjóri mér grein fyrir öllu
því, sem taka átti lögtaki, nema krónu
Eiriks. Ur lögtaki hafði ekkert orðið;all-
ir greitt gjöld sín góðfúslega, þegar á átti
að herða. Mér kom þvi ekki annað i hug
en að hreppstjóri hefði samið við Eirík eins
og aðra, en að gjald hans væri óinnkomið,
og fann, eins og á stóð, ekkert athuga-
vert við það. Nú var þessarar lögtaks-
krónu lengi ekki minst. I reikningi
1900—1901 færði eg hana sem skuld hjá
Eiriki. Hreppstjóri var endurskoðari og
hafði ekkert við það að athuga. Þegar
svo þessi kr., sem eg taldi vist að hrepp-
stjóri hefði gengið vel frá, eins og eg tel
skyldu hans, ekki var greidd eftir nýár
190^ leyfði tg mér að ná henni með
skuldajöfnuði við Halldcr bróður og hús-
hónda Eiriks. Ut af þessu ritaði Eirikur
mér langt bréf, sem eg áleit ckki svara
vert, og gat ekki svarað fyr en hreppstjóri
hafði skýrt frá, hvernig á stóð. Honum
ritaði eg því og fekk það svar, að hann
(hreppstj.) helði ekki tekið lögtaki, af því
að f a ð i r Eiriks hefði sagt sér, að eg
eg hefði lofað s é r, að sleppa kröfunni.
En þetta er alveg tilhæfulaust. En eftir
þetta hefir hreppstjóri að líkindum eitt-
hvað farið að breyfa á ný þessu stórmáli!
Því um vorið 1902 sendi hann mér þessa
margnefndu krónu, þótt hann hlyti að
vita, að eg hafði náð henni eins og áður
er sagt. Hjá mér lá krónan lítinn tíma.
Eg flutti hana sjálfur að Efribrú og veit,
að Eirikur fekk hana, liklega áður en grein
hans er dagsett, og sjálfsagt æði-löngu áð-
ur en hún birtist i Þjóðólfi. Eiríkurhefir
sjálfur borið hreppstjóra fyrir því við
mig, að eg hafi heimtað lögtakið svo seint,
sem Eiríkur segir. Þetta er ótrúlegt, en
þeir um það, hreppstj. og Eiriki. — Ja,
ja, Eirikur minn: »llt er að gera úr engu
tal«. Rítað i septhr. 1902.
St. Stephensen.
Myndasýning.
Hér á að sýna í næstu viku (sbr.
augl.) töluvert íslenzkt olíumyndasafn,
eftir fórarinn B. f>orláksson, sem er
yfirleitt látið mjög vel af, af þeim ör-
fáu mönnum, hér sem skyn bera á
slíka hluti. Einna mest þykir koma
til myndar af Langjökli m. m. Enn-
fremur af Merkurjökli, Hafrafjalli þá
(Stafholti), Heklu, þríhyrningi o. fl.
Jarðbann
var um hríð fyrri hluta þ. mán.
norðanlands, alt austur í þingeyjar-
sýslu, með mestu fannkingi.
Skagafirdi 25. okt.: Veðrátta hefir í
haust verið framúrskarandi stilt og þur og
góð, og gæftir á sjó ágætar bæði í haust
og sumar, og hafa menn aflað dável.
Heyfengur varð i meðallagi fyrir á-
gæta nýting og nær stöðuga þurka.
Heilbrigði almenn, sem kemur sér vel,
þvi að Sigurður læknir Pálsson liggur
veikur á sjúkrahúsinu á Akureyri, og Magnús
læknir er einnig oft svo lasinn, að menn
hafa hans eigi not; er það illa farið.
í pöntunarfélagið hefir verið látið
mjög mikið kjöt, en engin kind hefir verið
flutt lifandi út. Vöruverð í félaginu hefir
verið miklu hetra en i búðum.
Kighósti og fleira hefir gengið í hörn-
um i Fljótum og Sléttuhlið seinni partinn
í sumar og í haust, og er farinn að færast
inn á Höfðaströnd, þar sem hann gengur
nú. Fá börn hafa dáið.
Um stjórnmál litið talað. Fjárveitingin
til að flytja út kjöt í kældu rúmi mælist
mjög vel fyrir.
Bæjai— t.jórn Reykjavíkur kaus á
fundi í fyrra dag nefnd. i málið um breyt-
ing á lóðargjöldum i Reykjavik (till. Þ.
Bjarnarsonar) og ef til kemur semja uppá-
stungur til frumvarps til þings um það:
Þórh. Bjarnarson, Guðm. Björnsson og
Sighv. Bjarnason.
Bæjarstjórnin afsalaði sér forkaupsrétti
að 2500 ferh.álna lóð í Norðurmýrarbl.
nr. 2, er eigendurnir Jes Zimsen o. fl.,
vilja selja, en áskildi sér rétt til lóðar-
náms undir Grettisgötu, er til kemur.
Yeganefnd falið að láta leggja veg frá
Landakotstúninu á Kaplaskjólsveg nú þeg-
ar, gegn því, að borgun verði greidd af
næsta árs vegafé og vegarspottinn því
tekinn á vegaáætlun næsta ár.
Til veganefndar visað erindi frá Kn.
Zimsen mannvirkjafræðing um að taka nú
þegar undir veg suður yfir tún Guðm.
Olsen, þar sem lokræsið er frá Landakots-
spítala, og 8Ömul. öðru um ræsting á Lauga-
húsunum og rennunum þar i kring.
Þórunni Björndóttur veitt yfirsetukonu-
sýslan sú, er Þorhjörg Sveinsdóttir hefir
þjónað, en fengið nú lausn frá.
Samþyktar þessar brunabótavirðingar.
Hús Hans Hannessonar við Laufásveg
10,271 kr.; Sv. Sveinssonar trésmiðs við
Bankastræti 9,234; Jóbannesar Lárussonar
við Laugaveg 5,535; Jóns Jóhannssonar við
Laugaveg 5,427; Kristins og Björns Jóns-
sona i Ánanaustum 4,538; Þórðar Magnús-
sonar (Framfarafélagshús) 4,296; Björns
Gislasonar við Nýlendugötu 3,178.
Sigling. Skonn. Yaldemar (S. N. Al-
bertsen) til W. Fischer kom hér 16. þ. m.
með saltfarm frá Englandi.
Þá kom í nótt gufuskip Scandia (Peter-
sen) frá Mandal með timhur og kol til
B. Guðmundssonar timhursala. — E n g a r
f r ét t i r.
Við hádegismessu á morgun stígur
i stólinn cand. theol. Bjarni Hjalteseð.
Mannalát
Bráðkvaddur varð 8. þ. m. Gísli bóa'di
Arnbjarnarson frá Veðmúlastaðahjáleigu
í Landeyjum á heimleið af Eyrarbakka. —
Hafði dottið af baki og fanst þar dauður.
Haldið að liðið liafi yfir hann.
Skrifað er ísafold úr Skagafirði seint i okt.:
Hinn 5. þ. m. (okt.) andaðist að Skriðu-
landi i Kolbeinsdal annar bóndinn þar,
Jóhann Sigurðsson, bróðir Jóns G. Sig-
urðssonar bæjarfógetaskrifara i Reykjavik,
35 ára, efnismaður mikill.
Hinn 12. þ. m. andaðist að Víðinesi i
Hjaltadal bóndinn Jón Guðmundsson,
13 ára. Hann var lengi bóndi í Hörgár-
dalnum (á Ásgerðarstöðum) og nú í 16 ár
i Víðinesi. Hann var dugnaðarbóndi,
vandaður og ráðdeildarsamur.
Hinn 23. f. m. andaðist að Káifsstöðum
i Hjaltadal konau þar, Margrét Þorfinns-
dóttir, kona bóndans Áfna Ásgrimssonar,
sem þar hefir búið allan sinn búskap. —
Hún var 65 éra og mesta sómakona fyr
og siðar: guðrækin og vönduð í orðum og
verkum, iðjusöm og ráðdeildarsöm. Hún
var sómi kvenna. Börn hennar þrjú lifa:
Hólmfriður, nú forstöðukona kvennaskólans
á Akureyri; Þórey ógift heima; og Árni
búfr., ókvæntur heima.
Skaðaveðrið
í fyrri viku, föstudagskveldið 14. þ.
mán., hefir valdið allmiklu tjóni víðs-
vegar hér nærlendis.
þrjár kirkjur hafa fokið, er til hefir
spurst: í Keflavík, í Saurbæ á Kjal-
arnesi og á Hvanneyri.
Keflavíkurkirkja færðist spölkorn af
grunni og bilaði svo, að rífa verður
að sögn. Hún var ekki fullger, en
miklu verið til hennar kostað, nokkr-
um þúsundum.
Saurbæjarkirkju tók alveg upp og
sendist í loftinu nokkra faðma, út
fyrir kirkjugarðsgrindur, kom þar rétt
niður að miklu leyti og lítið skemd.
Hvanneyrarkirkja hafði hrotnað
mjög.
Hlöður tvær fuku á Gelding&á í
Leirársveit og mörg fjárhús.
Sömuleiðis fauk hlaða og fjárhús á
Stóra-Botni við Hvalfjörð.
Víðar hafa hey fokið og heyhlöður,
og skemdir orðið á opnum bátum,
sumstaðar fokið alveg.
Kaupfarið, sem sást til hér fyrir
utan eyjar, var Valdemar, til W.
Fischers. það kom hér inn á þriðja
degi, sunnudag; hafði hrakið vestur
undir Jökul, en ekkert orðið að. Mis-
sögn, að mist hafi af sér báta sína
báða. Hafn8Ögumennirnir báðir héðan
voru í því; höfðu komist út, áður en
rokið skall á.
Sk iftafuiidiir
í dánarbúi Sigurðar Jóhannessonar í
Hvamtni verður haldinn hér á skrif-
stofunni miðvikudag 17. desbr. næst-
komandi á hádegi. Verður þá lögð
frarn skuldaskrá og búinu væntanlega
skift.
Skrifstofu Mýra- og Borgarfjarðarsýslu,
8. nóv. 1902.
SigurÓur Þórðarson.
Proclama.
Hér með er skorað á alla þá, er til
skulda telja í dánarbúi ekkjufrúar Elín-
borgar Kristjánsdóttur á Skarði, er
andaðist þann 14. marz s. 1., að koma
fram með skuldakröfur sínar og sanna
þær fyrir lögerfingjum hinna látnu,
innan 6 mánaða frá síðustu (3.) birt-
ingu auglýsingar þessarar.
Sömuleiðis er og skorað á alla þá,
er skulda dánarbúinu, að borga skuld-
ir sínar innan sama tíma.
Skarðstöð 11. nóv. 1902.
Fyrir hönd erfingjanna
* Guðiu. Jónassou.
Steam trawler
og Mekuttere!
Som repræsentant for herrer W. A.
Massey & Co., Hull, har jeg p a a u d-
mærkede betingelser til-
salgs:
Steam trawler »Herbert
Ingram*
bygget af staali Glasgow 1892, klasse
100 A 1.
Firmaet har videre disponible 5
fiskekuttere for salg.
Gusíav O Abrahamsen,
Aðalstræti 18.
VOTTORÐ.
Úndirskrifuð hefir um mörg ár
þjáðst af taugaveiklun, höfuð-
verk, svefnleysi og öðrum nær-
skyldum sjúkdómum; hefi eg leitað
margra lækna og notað ýms meðul, en
alt árangurslaust. Loksins fór eg að
reyna ekta Kína-lífs-elixír frá Valde-
mar Petersen í Priðriksshöfn og varð
ég þá þegar vör þess bata, að eg er
sannfærð um, að þetta er hið eina
lyf, sem á við þess konar sjúkleika.
Mýrarhúsi 27. janúar 1902.
Signý Ólafsdóttir
Skarlatssóttln
geisar í Dalasýslu um þessar mund-
ir og hefir valdið þar nokkrum barna-
dauða.
Veðurathuganir
í Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson.
1902 nóv. Loftvog millim. Hiti (C.) et- < 0 cx p »-í cr 8 Skjmagn| Urkoma millim. Minstur hiti (C.)
Ld. 15.8 739,0 1,9 ssw 2 4 22,5 -0,6
2 746,7 2,2 ssw 2 6
9 751,2 2,4 SE 1 7
Sd. 16. 8 750,1 0,7 E 1 4 U -0,1
2 753,4 1,7 ssw 1 7
9 755,7 2,4 ssw 1 8
Md. 17.8 760,2 2,0 s 1 6 3,3 0,1
2 761,4 3,7 SE 1 10
9 759,5 6,1 SE 1 10
Þd. 18.8 753,9 5,8 SE 1 9 1,9 0,9
2 755,9 8,4 SE 1 10
9 759,4 8,7 SE 1 7
Md. 19.8 760,2 7,2 SE 2 7 1,0 5,2
2 760,0 7,5 ESE 2 6
9 763,1 6,6 SE 2 10
Fd. 20.8 763,6 6,6 SE 1 9 5,6 5,5
2 763,4 6,1 SSE 2 10
9 763,8 5,7 SSE' 1 10
Fsd.21.8 759,9 3,6 ESE 2 6 4,9 2,6
2 757,3 5,5 EsE 1 9
9 755,5 5,3 E8E 1 10
Fisklþilskip
nýtt, kom hér á fyrri helgi, frá
Englandi, og fyrir því Indriði Gott-
sveinsson skipstjóri, er keypt hafði
það fyrir 13J þús. kr., til handa Sig-
urði Jónssyni í Görðunum. Hann
var 16 daga á leiðinni.
f^“ Eins og að
undanförnu, eru margs konar teikni-
áhöld til sölu í afgreiðslu ísa-
f'oldar.
Zeolinblekið góða.
í stórum og smáum byttum, aftur
komið í afgreiðslu ísafoldar.
Bókverzl. Isaf.
Málfundafélagið.
Fundur á morgun kl. 4‘/2 á samaj stað.
Kn. Zimsen mannvirkjafræðingur talar um
neyzluvatn í Reykjavík.
2 þilskip með allri útreiðslu,
mjög vönduð, og í ágætu standi eru
til sölu hjá
Kristjáni Þorgrímssyni.
Ofannefndur sjúklingur, sem að
minni vitund er mjög heilsutæp, hefir
að minní hyggju fengið þá heilsubót,
sem nú er farið að brydda áhjá henni,
að eÍDS með því að nota K í n a-1 í f s-
elixír hr. Valdemars Petersan. Öll
önnur læknishjálp og læknislyf hafa
reynst árangurslaus.
Reykjavík 28. janúar 1902.
Lárus Pálsson
prakt. læknir.
Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flest-
um kaupmönnum á íslandi, án toll-
álags á 1,50 (pr. fl.) glasið.
Til þess að vera viss um, að fá
hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupend-
ur beðnir að líta vel eftir því, að
standi á flöskunni í grænu. lakki, og
eins eftir hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas í
hendi og firmanafnið Waldemar Pet-
ersen, Frederikshavn Kontor og
Lager Nyvei 16, Kjöbenhavn.
Lesið þetta fiskimenn. Undirskrif-
aðnr ræður nokkra góða fiskimenn ttpp á
liðleg kjör. Sinnið þessn sem fyrst pilar.
Jóhannes Guðmundsson.
Nr. 3, milli Langavegs og Grettisgötu.