Ísafold - 03.12.1902, Side 1
Kemur út ýmist einu sinm eða
tvisv. í viku. Yerð árg. (»0 ark,
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
l'/j doll.; borgist fyrir miðjan
júlí (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bundin við
iramót, ógild nema komin sé til
útgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslnstofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
XXIX. árg
R«ykjavík miðvikudaginn 3. desember 1902.
75. blað.
I. 0. 0. F, 841258'/.,._____________
Augrilœkning ókeypis 1. og 3. þrd. í
hverjum mán. kl. 11—1 í spitalanum.
Forugripasafn op'ð mvd. og ld. 11—12.
Landsbarikinn opinn hvern virkan dag
kl. 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
Landsbókasafn opið hvern virkan dag
kl. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3)
md., mvd. og ld. tii útiána.
Náttúrugripasafn, i Doktorsluísi, opið
i sd. kl. 2—3.
Tannlœkning ókeypisiPósthússtræti 14b
1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1.
Utflutningur á kældu kjöti.
Búfræðiskandídat Guðjón Guð-
mundsson kom því máli á dagskrá
með fyrirlestri sínum í fyrra vetur,
að reynandi væri, að koma kældu kjöti
héðan í verð á Englandi, og leitaði
Landsbúnaðarfélagið sér siðan fræðslu
um það mál hjá stórkaupmanni L.
Zöllner í Newcastle, er hann var hér
á ferðinni, og var það eftir bendingum
frá honum, að aukaþingið f sumar
sem leið tók upp í fjáraukalög 20,000
kr. veiting til tilrauna við slíkan út-
flutuing næsta liaust; og kemur að
eins til greiðslu á því fó úr landssjóði,
ef salan gengur eigi betur en svo, að
verðið verði minna en 20 a. pundið í
kroppum þyngri en 45 pd., og 18 a.
I léttari kroppum, og verður þá greitt
seljanda það sem á vantar í 20 eða
18 aura, þó ekki meira en 5 a. á
pundið.
Nefndin, sem bar þetta mál fram
á þinginu, lýsti því yfir, að framkvæmd
þessarar tilraunar yrði að vera í hönd-
um herra Zöllners, auðvitað í sam-
vinnu við eitt eða fleiri kaupfélög,
þar sem útflutníngurinn þætti líkleg-
astur, og var því helzt vikið að Aust-
urlandi, en Landsbúnaðarfélaginu var
falið að hafa eftirlit með því, að skil-
yrðunum væri fullnægt til að fá
greiddan styrkinn úr landssjóði, ef til
kæmi.
Landsbúnaðarfélagið tilkynti herra
Zöllner úrslit málsins á þinginu, og
það jafnframt, að framkvæmdin væri
nú öll undir honum komin, og hefir
félagið fengið það svar frá honum, að
hann vilji reyna að koma þessu í
íramkvæmd. Sjálfur mun hann ranu-
saka horfurnar fyrir sölunni og. hvað
annað, sem er að athuga við jafn-
dýran flutning, en hérlendis mun hann
væntanlega ætla aðalumboðsmanni
sínum, að ná samningum við kaupfé-
lögin um, að hafa nóg til í skipið, og
annast annan nauðsynlegan undirbún-
•ing hér á landi.
það yrðu mjög svo mikil vonbrigði,
ef þessi viðleitni færist nú fyrir, og
er helzt að óttast, að samtökin fáist
■ekki hér nógu traust og öflug. —
Haldist saltkjötsverðið áfram þetta
allgott eins og var í sumar, er skilj-
anlegt, að einhverir kunni að vilja
sneiða sig hjá því, að láta vöru sína
í nokkra tvísýnu; en bæði er það, að
saltkjötsverðið er mjög svo stopult,
og hefir verið margfalt minna en nú
BÍðast, og í annan stað verður að
treysta góðum útbúnaði hjá herra
Zöllner, er hann hefir jafnlangan tíma
fyrir sér og nú, svo að lítt hugsanlegt
ætti að vera, að svo illa færi, að
landssjóður bæri ekki blakið af bænd-
um.
Líklegasti útflutningsstaðurinn fyrir
allra hluta sakir er Seyðisfjörður, og
verður það væntanlega ekki fyr en
að Múlasýslum frágengnum, að reynt
verði fyrir sér annarsstaðar. Á Seyð-
isfirði mun kostur á að fá stór hús
til slátrunar, og frá Landsbúnaðar-
félaginu hefir Seyðfirðingum verið
gefin bending um það, að nota sér
hinn fyrirheitna styrk í fjárlögunum
til að koma sér upp slátrunarhúsi.
Brytt hefir á þeim skilningi, að
Landsbúnaðarfélagið ætti að taka að
sér forgöngu þes3a verks að meira
eða minna leyti; en bæði er það, að
þingið ætlaðist ekki til þess, og félag-
ið getur það ekki með neinu móti. —
Af hálfu félagsins getur eigi komið til
frekari aðgerða en eftirlits með til-
rauninni, og að gera atbuganir, sem
verið gætu síðar til leiðbeiningar. —
Eftir því, sem nú veit við, þá verður
að hlíta dómi herra Zöllners um það,
hvort ráðast eigi í fyrirtækið, og
honum verður að treysta til þess, að
framkvæma það með nægri fyrir-
hyggju.
Hiutabankiiiii.
Líklega léttir nú öllum andróðri
gegn hlutabankanum, er mótspyrnan
hefir reynst árangurslaus og að vísu
er að ganga um stofnun hans á uæsta
ári.
Meira að segja hefir margt ólíklegra
orðið en að nú fari þeir að láta vel
yfir, sem stækastir hafa verið á móti
honum.
Yfirleitt mun þó ekki þurfa að bú-
ast við miklum stofnfjárframlögum
handa honum hér á landi.
það fyrirmunar hið mikla, almenna
féleysi landsmanna.
þeir munu og vera enn getuminni
til þess en elia fyrir það, að þeir hafa
eigi allfáir varið peningum sínum til
þess að kaupa veðdeildarbréf í hinum
bankanum.
Hitt mun naumast standa fyrir, að
þorri landsmanna geri eigi bæði að
fagna stofnun hlutabankans með sjálf-
um sér og bera mikið gott traust til
þess, að hann verði gróðafyrirtæki.
þeir hafa kent sárara til peninga-
leysisins í landinu en svo, að jþeir
hugsi eigi gott til verulegrar breyting-
ar til batnaðar í því efni.
Hór hefir verið í raun réttri pen-
ingahallæri jafnvel öldum saman.
Og þjóðin er orðin því svo vön, að
allmikill hluti hennar veit varla ann-
að en að slíkt sé alveg eðlilegt ástand
eða að minsta kosti sjálfsögð afleiðing
af fátækt landsbúa. >Svo má illu
venjast að gott þyki«, eða þá að það
þyki ekki annað en nærri því sjálf-
sagt eða óhjákvæmilegt mótlæti.
þeim hefir raunar mörgum sviðið,
að verða að eiga inni hjá kaupmönn-
um, e£ þeir hafa lagt meira inn en
þeir þurfa að taka út á jafnóðum, eða
þá að fá það ekki öðru vísi en í vör-
um, sem þeir þarfnast ekki.
þeir kenna það tíðast ágengní kaup-
manns og óbilgirni, en gæta ekki þess,
að hann á tíðum ekki síður í vök að
verjast einmitt af sömu ástæðu: pen-
ingaskorti eða of dýrum peningum.
Hitt er og enn færri landsmanna
Ijóst, hver voða-þröskuldur þetta á-
stand er og hefir iöngum verið fyrir
efnahagsviðreisn landsbúa að því léyti
til, sem þetta viðskiftalag kæfir niður
í fjölda manna þann sparnaðar- og
samdráttarneista, er ella mundi glæð-
ast svo, að mjög miklu skifti um efna-
hag þjóðarinnar.
Eða þá hitt, hve lítið verður úr
vinnuarði þeirra, er lifa á handafla
sínum, er þeir verða að kaupa sumar
nauðsynjar sínar úr kaupstað alt að
því þriðjungi dýrara og stundum meir
heldur en ef þeir fengju peninga fyrir
vinnu sína og hefðu peninga að láta
fyrir það, sem þeir þurfa að kaupa. —
það eru auðvitað minni brögð að slík-
um ókjörum í helztu kaupstöðum lands-
ins en ella. En yfirleitt eruþauþung-
ar búsifjar fyrir þjóðina.
þá er verzlunarstéttin að hinu leyt-
inu, þeir kaupmenn, sem eru eigi sjálf-
ir svo fjáreigandi, að þeir geti verið
án aðfenginna peninga.
það var kallað ófagurt ánauðarok,
er mönnum var bannað með lögum að
verzla nema á tilteknum stað eða við
tiltekinn kaupmann, hvaða ókjör sem
hann bauð. En eru þau dæmin fegri
og fýsilegri, sem nú gerast, að kaup-
maður má ekki Iáta eyrisvirði af inn-
lendri vöru sinni í annarra hendur en
umboðsmanns sfas erlendis, er útveg-
að hefir honum útlendu vöruna gegn
ómældri þóknun, peningalánsvöxtura
og loks ósviknum ómakslaunum fyrir
sölu á hinní innlendu vöru, er honum
tekst þá ef til vill ekki betur að selja
en svo, að eigandi vörunnar bíður af
stórhalla við það sem ella mundi, ef
frjálst ætti að selja eins og haun vildi.
Og hver sýpur svo seyðið af þessum
búsifjum, sem innlendir kaupmenn
vorir verða fyrir?
Hverir nema landsmenn sjálfir, sem
hljóta að láta sér skiljast af þessu
dæmi, hvílfkir falsspámenn þeir þjóðar-
leiðtogar eru, er kenna það alþýðu,
að þjóðinni sé engiun fengur í banka,
sem hlynni einnig til hlítar að verzl-
unarstéttinni, — geri henni verulega
hægra fyrir að reka sína atvinnu. —
það er háska-misskilningur, að fá-
tækt og peningaleysi sé eitt og hið
sama.
Sé peningahagur lands í réttu lagi,
þá á fátæklingur og efnamaður jafnan
kost á peningum, með þeim einum
mun, að það verður ólfkt að vöxtum,
sem hvor um sig fær eða hefir handa
í milli.
Peningar eiga ekki að vera tor-
fengnari en aðrir fjármunir.
Hitt, að gildir efnamenn geta ekki
fengið peninga milli handa hér um
bil hvar sem er á landinu nema méð
mestu erfiðÍ8munum og af mjög skorn-
um skamti, það er raunar skrælingja-
þjóðar-ástand, en ekki siðaðrar. —
Traustið á góðum þrifum hluta-
bankans styðst eðlilega við það, að
almenningur gengur að því vísu, að
honum verði stjórnað af nægri kunn-
áttu, fræðilegri og verklegri, — þeirri
sérstaklegri kunnáttu, er til þess þarf
eigi síður ec annars, sem vandasamt
er, og enginn maður fæðist með, held-
ur verður að afla sér hennar þar sem
hana er að fá og með þeim hætti, er
bezt gegnir. Hérlendis er hún ekki
til, sem ekki er von. Eða hvernig
ætti það að vera? Hún þarf að vera
meiri og víðtækari en það, að kunna
að halda reikninga í lagi og veita al-
geng lán með aðgæzlu og óhreyfan-
legum vöxtum. Aðrar þjóðir láta svo
lítið að fá aðhverja þá kunnáttu, er þær
brestur. Mun oss það fremur óþarft
eða óvirðing?
Hitt er hégilja, að okurvextir séu
skilyrði fyrir því, að bankinn verði
gróðafyrirtæki. þeir væru leiðin til
þess, að hann yrði það e k k i. Heimsk-
ingjar einir mundu því vilja stjórna
honum með því lagi.
Vér höfum lengi þurft og þurfum
sjálfsagt enn langa hríð að fá fjár-
magn að, einhversstaðar utan endi-
marka landsins, til þess að geta rek-
ið kostnaðarsamar atvinnugreinar. Og
þess þurfa fleiri þjóðir en vér að meira
eða minna leyti, eða þá til að stand-
ast óvanalegan kostnað, t. d. af hern-
aði. Hvort er þá vænlegra og við-
feldnara, að afla sér þess hina afar-
kostnaðarsömu krókaleið, er hingað til
hefir farin verið, fyrir milligöngu um-
boðsmanna erlendis, er hafa nær alt
ráð lánþega í hendi sér,— eða hjá stofn-
un í landinu sjálfu og undir yfirráð-
um landsmanna, þ ó a ð veltuféð verði
enn um hríð aðfengið að meiri hlut?
þ a ð á fyrir sór að breytast með
tímanum. Sú er reynslan með öðrum
þjóðum.
Botnvðrpungar.
Herra ritstjóri! Af því að eg hefi
hvergi séð þeBs getið í blöðum, hvern-
ig botnvörpungar höguðu sér á Pat-
reksfirði í haust, þá vil eg leyfa mér
að skýra frá því; það var sannarlega
þess vert, að þess sé getið, því það
sýnir bíræfni þeirra í fylsta máta, og
að hinu leytinu, hve eftirlitið er ónógt.
Hinn 22. október var einn botn-
vörpungur kominn inn á fjörðinn og
var þar allan daginn, stundum rétt
utan við Vatneyrarkaupstað, ým-
ist dýpra eða þá þétt upp undir landi.
Næsta dag voru þeir 3eða4 og héldu
þessum leik 5 eða 6 daga, eða til 28.
s. m., er þeir fóru að hvarfla burtu.
En aldrei gerðu þeir það eins greini-
lega eins og nóttina milli 24.—25. okt.
þá dró einn botnvörpu þétt upp á