Ísafold - 17.01.1903, Side 3

Ísafold - 17.01.1903, Side 3
11 XV. Frá Sigurði Þórðarsyni til Auðuns Bjarnasonar á Hvoli. p. t. Reykjavík, 4. ág. 1909. Heiðraði yin. fórður á Vellanda er hér staddur, og gríp eg tækifærið til að hripa þér eina línu í snatri, bara til að láta þig vita, að alt gengur vel. Við greiðum alt af atkvæði með ráðgjafaflokknum. Við komumst undir eins upp á það, og hefir okkur aldrei fipast í því. Einu sinni var Arnljótur staðinn upp, og ætlaði að fara að tala; það var verið að tala um laun yfirsetukvenna; en eg náði í hann- og kipti honum niður, áður en hann var byrjaður. Arnljóti var nú lfka vorkunn þar. f>ú manst, að kona hans gengdi ljósmóður- störfum; eystra, áður en þau hjón ■fluttust suður, og var Arnljótur að vona, að hún fengi þann starfa aftur, þegar hún væri komin austur. f>að var því ekki að furða, þó að það mál snerti til- finningar hans. Annars höfum við hvorugur talað orð enn, nema sagt já eða nei, er haft hefir verið nafnakall. Á þingfundum hef eg sagt honum að hafa fyrir framan sig blað, og halda á blýanti, eins og hann væri að »nót- era« hitt og þetta úr ræðum þing- manna; einnig að vera sem fátalaðast- ur við þá utan funda. þeir halda að hann sé heldur íbygginn, og að sam- tali tveggja þeirra varð eg heyrnar- vottur hérna um daginn á lestrarsaln- um, og heyrði eg að annar sagði: »Hann er víst ekki allur þar sem hann er séður, þessí Arnljótur*. Hann kemur annars vel fram. þórður segir vera einmuna tíð eystra, og svo er líka hér. það er þvf engin furða, þótt hugur okkar Arnljóta dvelji oftast heima í heygörðunum okkar um þessar mundir, þótt »kerin« sitji hér. það er náttúrlega hirt af ljánum, eða því sem næst. þingtíminn er nú rúmlega hálfnaður, og sjáum við að við ætlum að kom- ast vel af með ferðakostnaðarpening- ana okkur til viðurværis. f>eir segja okkur, að við getum kannske komið ferðakostnaðinum upp f 70—80 kr. Við lifum spart, f>að sem af er hefir sýslan enga miukun haft af þingsetu okkar, og við vonum að það verði ekki heldur framvegis. Við hlökkum |til að komast heim aftur, og þá skulum við borga þér reiðilega það, sem þú hefir lánað okkur. f>inn skuldbundiun vin Siguröur pórðarson. P. S. f>að eru dálítil umbrot í mér með að halda eina ræðu, einhvern tíma fyrir þinglok, ef hentugt mál kæmi fyrir. f>að væri mér Bvolítið til æfing- ar, upp á framtíðina, sko! Af EiOaskólanum segir svo í »Norðurl.« í f. mán., eft- ir bréfi að austan, að þar séu nú 11 námssveinar og skólanum heldur að fara frara, kenslutækin betri og full- komnari, túnið þriðjungi stærra og gefi af sér helmingi meira af töðu en áður, útengi bætt með vatnsveitingum og framræslu og gefi af sér helmingi meira hey og miklu betra. »Að krónu- tali hefir skólabúið vaxið nærfelt um helming síðan 1888 um vorið, er Jónas Eiríksson tók við«. »Skólahúsið er nú fornt orðið og afarþröngt«. Sífeld fjárþröng kreppir mjög að skólanum. Rikisráösfleygs-málgagn er nýlega upp risið hér í höfuðstaðn- nm og heitir »L a n d v ö r n», en rit- stjórn hr. Einar Benediktsson yfirrétt- armálaflutningsmaður við þriðja mann. f>ví er vitaskuld ætlað að halda fram fians skoðun á ríkisráðs-setufyrirínæl- um stjórnarskrárfrumvarpsins frá síð. asta þingi, er -ísafold hefir minst á lauslega áður oftar en einu sinni og ekki þykir þörf á að sinna frekara að svo komnu. Blaðið er í sama broti og ísafold, en ótiltekið um tölublaðafjölda og út- komudaga; »verður hagað eins og hent- ast þykir, eftir því, hvernig umræður verða um stjórnarskrármálið*. Kosningakærumálln ísfirzku. Nú er alveg úr þeim dottinn botn- inn, með amtsúrskurði 3. f. mán., bæði þeim, er H. Hafstein sýslumað ur hóf, og eins gagnkærum þeirra Skúla Thoroddsen og síra Sigurðar Stefánssonar. Hefði átt til málshöfð- unar að koma, mundi hafa orðið að beina henni ekki síður gegn H. Haf- stein eða hans kosningaliðsmönnum en hi'num. En ýmislegt kátbroslegt (ef ekki grátbroslegt) kom fram í rannsókn málsins, og það heldur ó- skemtilegra í garð þeirra H. H. Frá því er mörgu sagt í »þjóðv.« 2. þ. mán. Myklestad kláðalæknir frá Noregi, sem er frægur maður fyrir útrýming fjárkláða þar og nú hingað ráðinn af amtmanninum fyrír norðan samkvæmt fjárveiting alþingis 1901, til þe38 að leggja á ráð um út- rýming fjárkláða hér og sérstaklega að kenna mönnum fjárkláðalækningar, kom tíl Akureyrar 12. f. mán. með Agli og tók þegar til starfa þar í Eyja- firðinum að skoða féð, — segir »Norð- url.« — ásamt 2 tilkvöddum mönnum, er læra skyldu af honum, Davíð Jóns- syni á Kroppi og Sigurgeir Daníels- syni á Núpufelli. þeir voru búnir að skoða fyrir jólin fé á 42 bæjum, hátt á 6. þús. alls, og reyndist kláði iiafa verið á 7—8 þeirra bæja í haust. »En þar hefir hvarvetna verið baðað í haust, án þess að trygging hafi fengist fyrir útrýming kláðans. Á sumum bæjun- um hefir verið við böfð steinolía og Bumstaðar kreólsápa eða kaibólsýra. Áhrifin af þeim lyfjum öllum líkjast svo kláða, með því þau brenna hör- undið, að ekki er auðvelt að segja, hvort þar hefir í raun og veru verið um kláða að tefla eða ekki. Einmitt þetta, að menn hafa verið að leitast við að lækna kláðann án fullkominnar þekkingar í Noregi, hefir valdið Mykle- stad örðugleika'þar. Fyrsta aðalatriðið er að fá fulla vissu um, hvort um kláða er að tefla eða ekki, og þessar lækn- ingatilraunir hafa tafið fyrir þeirri vissu. Sum útbrot hafa menn álitiðaðværi kláði, sem hr. Myklestad segir að hafi alls ekkert átt neitt skylt við þann kláða, er fjárkláðamaur veldur. Honum lízt prýðilega á fólkið frammi í firðinum. Hann varð þar var við mikinn áhuga á að fá kláðanum út- rýmt, og honum virtist svo, sem fólkið væri jafnfúst á að hlýða öllum reglum, er settar yrðu til að ná því markmiði, eins og bændur í Noregi. Fjárhúsin þykja honum víða mjög góð. Til dæm- is gat hann þess, að 2 fjárhús á Grund væru slíkt afbragð, að jafn-góð væru þau ekki tíl í Noregi. J>au eru svo hlý, súglaus og laus við leka. Hr. Myklestad virðist sem ástandið hér sé talsvert líkara því sem það var austanfjalls í Noregi en vestanfjalls; en austanfjalls var fjárkláðinn miklu auðveldari viðureignar, og á báðum stöðunum hefir hr. Myklestad útrýmt honum. Honum vírðistþví sem menn geti gert sér von um, að fjárkláðanum verði útrýmt hér, og það jafnvel með minni kostnaði en menn hafa áður gert sér í hugarlund. »Norðurland« spurði hann, hvort hann teldi fjárhús- in hér — úr torfi og grjóti — því til fyrirstöðu, að fullkomin útrýming feng- ist á fjárkláðanum. Hann kvað þau alls enga fyrirstöðu veita«. Kosnlnga-undirróðrl, undir alþingiskosningarnar í vor, er tekið til að brydda á í sumum kjör- dæmum. Mest gengur á með ísfirzka yfirvaldið, H. H., sem meiri hlutinn á síðasta þingi bjó til fyrir sérstakt kjör- dæmi, svo sem marga mun reka minni til, en því þykir nrí illa treystandi, eftir alt saman; svo er kosninga kærufarg- aninu þar vestra frá í sumar fyrir að þakka meðal annars. Vart hefir nú orðið við umleitan af hálfu þess mikla þingmannsefnis eða vina hans og vandamanna í ekki færri en 6—7 kjördæmum, og var undir- róður sumstaðar hafinn í sumar er leið, um þingtímann. Nú orðið ruun harðastri hríðinni honum til fylgis haldið uppi í Eyja- firði, hvort sem það er af því, að 8malarnir eru uppgefnir við hin kjör- dæmin, eða Eyfirðingar eru haldnir viðráðanlegastir og leiðitamastir. En nú eru þó bornar miklar brigður á, að sú muni raun á verða um þá. þar næst fara miklar sögur af ó- sleitilegum viðbúnaði og vasklegri framgöngu í einu kjördæmi, Rangár- vallasýslu, tíl stuðnings því nýstárlega tiltæki, að koma landshöfðingj- a n u m á þing. Frumkvöðull þess mun vera Sighvatur gamli sjálfur, og er nú hættur við að hugsa um þingsetu fyr- ir sjálfan sig, en hefir kviðið því, að þar kæmi köttur í ból bjarnar, ef við tæki af honum minni maður en sjálf- ur landshöfðinginn. Tiltæki þetta var komið á dagskrá með andstæðingum Framsóknarflokksins eða höfðingjum þeirra hér í höfuðstaðnum snemma í haust, en ekki haft í fullu tré um það fyr en fréttist um forlög kosninga- laganna. þ>á réðu þeir sér eigi fyrir fagnaðar sakir, og Sighv. gamli lék við hvern sinn fingur; þótti stórum mun sigurvænlegra án heimullegra kosninga er með þeim. Og upp úr því tók höfuðstaðarmálgagn þeirra til að logagylla hann (landsh.) hátt og lágt, og horfði þá að vanda ekki í að hafa gersamlega hausavíxl á réttu og röngu, sönnu og ósönnu. Um það fer tvennum sögum, hvort þetta muni gert með ráði eða vitorði landshöfðingja sjálfs eða ekki. Sumir fullyrða, að svo muni vera, en aðrir mæla þar í móti og segja hann hafa látið f Ijósi þrásinnis, að hann væri fullsaddur orðinn sinna stjórnsýslulíf- daga, og þráði það mest, að geta sezt sem fyrst í helgan stein; telja lík- legra, að hér eigi að hafa það bragð, að færa honum fornspurðum eða því sem næst mikla mergð undirskrifta undir þingmenskuáskoranir úr fyr- nefndu kjördæmi, og vita, hvort þá renna eigi á hann tvær grímur. í því skyni er nú unnið sem tíðast og vasklegast að undirskriftasmölun um sýsluna, og mælt, að það gangi greið- lega í austurhreppunum, einkum undir Eyjafjöllum og í Fljótshlíð, þar sem mest hefir verið ríki Sighvats gamla og ekki skortir bljúgan og innilegan undirgefnisanda; en miður, er vestar dregur; á Rangárvöllum t. d. ekki fengist nema 9 undirskriftir. Gufuskipid Hertha kom til Hafn- arfjarðar á þrettánda til P. J. Thorsteins- son & Co., eftir 24 daga ferð frá Skot- landi; var komið undir Dyrhólaey á jóla- dag, en hraktist frá landi aftnr og alla leið til Stornoway í Suðureyjnm, náði þangað nauðulega fyrir kolaleysi og misti á leiðinni allan þilfarsfarminn, steinolíu. Siðdegisguðsþjóuasta á morgun í dómkirkjunni kl. 5 (J. H.). Skipstrandið 4. þm. Botnvörpungur- inn enski sem rak upp á Garðskagaflúðir þann dag, nálægt vitanum, hét Spring Flower, en skipstjóri John Forester, frá Hull. Slys. Drengur frá Borgum i Þistilfirði druknaði i f. m.; hafði dottið út af brú á bæjarlæknum, en fest fótinn í brúöni og lá með höfuðið á kafi í vatninu. Úr Norðurþingeyjarsýslu er skrif- að rétt fyrir jólin (23. des.) um ágætis- tið, svo að gamlir menn muna varla betri. I norðursveitunum (Núpa- og Sléttusveit) hafði ekki snjóað að kalla mátti nema í fjöll, og ekki var farið þar að venja lömb á hey. Veðurathuganir i Reykjavík, eftir aðjunkt Björn Jensson. 19 0 3 C_i *—es. a e-h í>' <3 d> OX w pr B p <5 3 <3 — 5- jan. B 3 ag p <rt- sr 8 GX s 1 p Bp ’-t Ld.10.8 764,3 -12,0 E 1 i -13,0 2 766,1 -10,1 E 1 9 9 764,0 -5,4 E 1 3 Sd. 11.8 762,1 -2,3 E 1 7 -13,0 2 761,6 -2, E 1 10 9 760,3 2,1 E 1 9 Md 12.8 758,4 2,3 ESE l 8 1,6 -3,1 2 758,0 4,5 EsE 1 10 9 756,8 4,8 SE 2 10 Þd. 13.8 751,9 6,0 SSE 2 9 2,4 1,3 2 749,4 5,9 SSE 3 10 9 743,5 6,4 SSE 3 10 Mvdl48 735,5 6,5 SSE 3 10 19,1 4,7 2 730,5 6,8 SSE 3 10 9 732,8 5,7 s 2 10 Fd.15 8 740,5 3,5 8 2 4 27,0 2,1 2 744.5 748.6 4,7 S 2 10 9 5,2 S 2 10 Fsdl6.8 745,2 4,7 ESE 2 10 10,4 1,9 2 740,1 4,5 E 2 10 9 734,4 4,3 ESE 2 10 Til leigu í nýju og vönduðu húsi í miðjum bæn- um eru 3 samliggj- andi herbergi og eldhús ásamt góðu geymsluplássi. Einnig 3 lítil herbergi fyrir einhleypa, alt frá 14. maí. Ritstj. vísar á. Vantar af fjalli næstliðið haust brúna hryssu 3-vetra, mark: sneiðrifað fr. vinstra. Sá sem verður var við hana geri svo vel og gjöri viðvart * Sveini Ingimundarsyni Stóra-Seli. Reykjavík 13. jan. 1903. Síðastliðið haust var mér unáirrit- uðum dregið hvítt gimbrarlamb, sem er með mínu marki, miðhlutað í stúf hægra, sýlt og biti aftan vinstra. — En með þvi, að eg á ekki lamb þetta, þá getur réttur eigandi vitjað andvirðisins að frádregnum kostnaði til Bjarna Davíðssonar á Sveðju- stöðum í Miðfirði i Húnavatnssýslu, sem einnig semur um markið fyrir mina hönd. p. t. Reykjavik 13. jan. 1903. Markús Daníelsson frá Reynhólum. HÚSIÐ Dr. 9 í Vesturgötu er til sölu. Arni Zakaríasson- Fjármark Eyólfs Kristjánssonar á Langeyri við Hafnarfjörð er: hamarskorið hægra, stúfrifað vinstra. T v œ r vandaðar og þrifnar stúlkur geta fengið vist frá næstu krossmessu hjá docent Jóni Helgasyni. Þeir sem vilja eignast hús i Reykjavík tali við Guðm. Þórðarson frá Hálsi, áður en þeir festa kaup annarsstaðar; það mun borga sig. Eins og að undanförnu sel eg gadda- virsgirðingar með járnstólpum. Enn fremur galvaniseraða teina til girðinga 6 feta langa og ®/8 tomm. að gildleik, 6 kr. 45 a. st. og ódýrari ef styttri eru. — Menn geta pantað svo marga eða fáa sém þeim þóknast. Þorsteinn Tómasson, járnsmiður. Hér með tilkynnist vinum og vanda- mönnum, að dóttir okkar elskuleg Ingibjörg Guðrún, andaðist fimtudaginn 15. þ. m. úr heilabólgu. Reykjavik 17. jan. 1903. Þuriður Þórarinsdöttir Guðmundur Jakobsson.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.