Ísafold - 18.03.1903, Side 2
60
og nefnist Thore. f>að kaupir í við-
bót 2 fyrsta flokks gufuskip, 600—900
smálesta, og færir það út kvíarnar,
að halda uppi ferðum til Suður- og
Vesturlands, umfram hina landsfjórð-
ungana. Félagið hefir x/2 milj. króna
til umráða að svo stöddu, en ráðgerir
að bæta við það bráðlega.
Meiri slys.
Laugardagskveld 14. þ. m. kom inn
hingað fiskiskútan Karólína, eign Kun-
ólfs Ólafssonar frá Mýrarhúsum, með
merki í miðri stöng, og reyndist hafa
mist af sér 5 menn í rokinu mikla 8-
þ. m. Hún var þá 10 milur undan
landi út af Grindavík. Skipverjar, sem
uppi voru, 10 að tölu — skipshöfn alls
24 — voru að lúka við að rifa segl, er
brotsjór skall á mitt skipið framanhalt
og fleygði því á hliðina, en fcók út
mennina 7. Tveim þeirra tókst að
bjarga sér eða skolaði inn aftur; en
5 druknuðu. f>eirra á meðal var skip-
stjórinn, Sigurjón Jónsson,
héðan úr bæ, uppeldissonur Kunólfs
á Bakka, hálfþrítugur að aldri, kvænt-
ur, en barnlaus, bezti sjómaður og
aflasæll mjög; hafði á sér almennings-
orð. Hinir voru: Ólafur Pétursson,
Ingimundssonar, frá Keynistað hér í
bæ, 23 ára; Björn Magnússon, vinnu-
maður Böðvars kaupmanns á Akra-
nesi; Helgi Árnason frá Hömrum í
Grímsnesi; og Bjarni Gissurarson frá
Litla-Hrauni í Flóa, 18 vetra piltur,
elzta barn foreldra sinna. Hinir milli
tvítugs og þrítugs. Alt efnilegir menn.
Skipið lá á hliðinni á aðra kl.stund.
f>á reis það við, er búið var að rista
sundur stórseglið og bylta við í lest-
inni. Eftir það var það rúma 6 sólar-
hringa að berjast við að komast hing-
að inn, fyrir seglaleysi. Laugardags-
kveldið, eftir að það hafði loks hafnað
sig hér, sleit það upp og rak á Örfiriseyj-
argranda, en losnaói aftur með flóði;
hafði þó orðið lekt á því. Er annars
sagt bezta skip.
Enn er óspurt til nokkurs af þil-
skipaflotanum héðan eftir rokið, og því
óvíst nema fleiri hafi slysin orðið enn.
Aths. Skipstjóri á Valdimar frá Engey
er MagDÓs Brynjólfsson, en ekki B.jarni
Magnússon, sbr. síðasta bl.
Ura hlutabankarin
er náunginn ekki uppgefinn enn að
smíða það og láta berast sem víðast
um land, að ekkert eigi að verða eða
muni verða úr stofnun hans.
f>að eru til þingmannaefni, sem litla
von þykja eiga um sigur í vor í þing-
kosningum öðru vísi en með svo feldu
móti, að almenningur trúi á einveldi
Landsbankans áfram.
Ekki eru margar vikur síðan, að
merkismaður einn á Vestfjörðum las upp
úr bréfi héðan úr höfuðstaðnum eða
þóttist lesa, að nú væri séð fyrir end-
ann á hlutabankanum; það yrði ekk-
ert úr honum.
Sá, sem hann átti tal við, minti
hann þá á, að þetta væri í þriðja skift-
ið, sem hann færi með sömu söguna
eftir bréfi úr Reykjavík, en 9 eða
10 sinnum áður hefði hann þózt hafa
frétt það hins vegar, á skotspónum;
en alt af reynst sama fleiprið.
Núna á póstskipinu hingað síðast
var eon lácið sama í veðri vaka, og
eins fyrst í stað eftir að það var komið.
En þá mun hafa sljákkað í þeim,
sem því héldu fram.
f>að fór þá að vitnast, meðal annars,
að bankamennirnir í Khöfn, hluta-
baukastofnendurnir, höfðu skrifað um-
boðsmanni sínum hér og beðið hann
að gera ráðstafanir til húsnæðisútveg-
unar fyrir bankann.
Sjálfra þeirra kvað vera von hingað
í vor eða snemma sumars.
f>eir munu bíða þess um verulegan
undirbúning undir, að bankinn sé sett-
ur á laggir, að liðinn sé lögboðinn
frestur til að skrifa sig fyrir hlutum
hér á landi,—ekki þó raunar af því, að
þeir búist við miklu héðan, né hinu,
að þeim standi það á miklu, með því
að þeir eiga fyrir löngu víst stofnféð
eins óg það er eða á að vera eftir
hlutabankalögunum. f>að er tekið hér
fram vegna þess, að ymprað hefir ver-
ið á því líka hér fyrir skemstu, að svo
muni ekki vera,—svona í kyrþey þó og
trúnaði, en í því trausti, að sama gagn
gerði það eins og ef fullyrt væri þetta
afdráttarlaust og í heyrandi hljóði.
Gufuskip Perwie frá gnfuskipafélag-
inu Thore, kapt. Sehiöth, kom hér í fyrrn
dag, frá Khöfn og Leith, og fer í dag
áleiðis til Vestfjarða.
Af páfanum segja nú ensk blöð frá
9. þ. m., að hann sé við beztu heilsu.
Vestur-Íslendinííar
í Argyle-bygð í Manitoba hafa kjör-
ið og kallað til sóknarprests síra Frið-
rik Hallgrímsson á TJtskálum, sem fer
væntanlega vestur þangaðívor. Tveir
voru í kjöri, — hitt vestur-íslenzkur
prestur,—og var síra Friðrik kosinn í
einu hljóði.
Konungsbréf,
er stefnir saman alþingi 1. júlí þ. á.,
hefir verið útgefið 13. f. mán.
Um löggræzlu á sjó
við fi8kiveiðar hér við Iand og Fær-
eyjar utan laudhelgi hefir konungur
gefió itt 2. þ. m. langa og rækilega
tilskipun fyrir ísland, samkvæmt heim-
ildarlögum frá 8. júlí f. á. og sáttmála
milli Englands og Danmerkur frá 24.
júlí 1901.
GufusUip Napoli (358, A. Mowinkel)
kom i morgun frá Friðriksstað með timb-
urfarm til Godthaabs-verziunar (Thor .Jens-
sen).
Marinalát. Dáin hér i bæ 3. þ. mán.,
eftir langa og þunga legu frú .1 ó h a n n a
Friðriksdóttir, kona tjunnars kaup-
tnanns Einarssonar, mesta valkvendi.
Ennfremur 13. þ. mán. H i n r i k J ó n s-
son verzlunarmaður, sonur Jóns A. Thor-
steinsen, bókbindara á Griusstöðum, kvænt-
nr maður, hálfþrítugur.
Loks lézt hér 1 gærmorgun gamalmennið
Einar Eyólfsson, er verið hafði langa
lengi nokkurs konar aukapóstur milli
Keykjavíkur og Eyrarbakaa, með blöð og
bréf, göngugarpur hinn mesti og einstak-
lega skilvis og áreiðanlegur. Hann var
kominn á áttræðisaldur, en furðufrár enn,
og nýkominn úr ferð að austan. Var á
fótum daginn fyrir andlátið.
Vestmanneyjum 12. marz. Mestur
hiti í janúarrnán. 14. 8,3°; minstur aðfara-
nótt Febrúar var mestur hiti 16.
og 1". 8,4°, minstur aðfaranótt 8.-c-8,7°.
í janúar var úrkoman 153, i fehrúar 139
millimetrar. Siðari hluta janúarmán. og
allan febrúar var veðurátta ákaflega storma-
og umhleypingasöm. Þrumur voru tvisvar
í hvirum mánuði.
G-æftir hafa verið mjög stirðar og
sjaldgæfar, enda engin veruleg fiskiganga
enn komin. Alls er buið að roa 12 roðra
á vertiðarskipum síðan 12. febrúar, og eru
hæstu hlntir um 100 af þorski og 20 af
ýsu. Landsmenn komu hingað ut til sjó-
róðra í fyrra kvöld og gærmorgun.
V erð á saltfiski nr. 1 hækkaði Gisli
kaupmaður Johnsen upp í 60 kr. við ára-
mót; var þá hin verzlunin neydd til að
fylgjast með. Gísli kaupmaður hefir bætt
hér mjög verðlag á ýmsum útlendum vör-
um, pantað fyrir menn gegn sárlítilli þókn-
un, og reynst mjög greiðvikinn, enda hefir
verzlun hans blómgast fljótt. Hefir hann
komið sér upp skrautlegri söluhúð, og flyt-
ur sig þaugað í þessum mánuði.
Eitt af skipum Asgeirs Sigurðssonar,
Greta, er komið hér inn á höfn með brotið
stýri o. fl.; hafði laskast í norðanveðrinu
9. þ. m. Austanrokið 8. þ. m. er eitt hið
mesta austanveður, sem hér hefir komið.
Eg hefi haft loítvog nær 60 ár, en aldrei
hefir hún fallið eins mikið og kvöldin 20.
og 24. febrúar. Bæði kvöldin komst hún
niður á 698,0.
Fataefni
frá
„Silkeborgs Klædefabrif
sem senb var í, fyrir nýár, er nú alt
komið. Menn gjöri svo vel að vitja
þess hið fyrsta, svo eg neyðisfc ekki
til að selja fataefnin.
Virðingarfylst
V aldim.Ottesen
Stranduppboð.
Á opinberu uppboði, sem haldið
verður föstudaginn 20. þ. m. hjá timb-
ursöluhúsi Björns kaupm. Guðmunds-
sonar hjer í bænum, verður hið strand-
aða skip »Lock Fyne« frá Seyðisfirði
selt ásamt öllu tilheyrandi, svo sem :
seglum, köðlum, akkerum, keðjum,
vistaforða, kolum o. m. fl.
Uppboðið byrjar kl. 11 f. hád. og
verða söluskilmálar birtir á uppboðs-
staðnum.
Bæjarfógetinn í Kvík, 13. marz 1903.
Halldór Daníelsson.
dffaupið Joéurmjölié
goéa i verzíun
I Kristjánssonar.
Klæöi<sva,t)
6 teg., og mikið af fataefnum
Stumpasirz Tvisttau
ásamt fl., er nú komið í verzlun mína.
Gjörið svo vel að koma og líta á
Kramvöruna, því þá er eg viss um
að þið gjörið verzlun við mig.
Valdim. Ottesen,
Islenzk frímerki
Frímerki með »í gildi 02—03«, brúk-
uð, með mynd konuDgs og sérstak-
lega 20 aur. prentvillu, óskast til
kaups. Fyrir hin síðast nefndu er
gefið alt að 5 kr. fyrir hvert. Tekið
á móti tilboðum eða sendingum til
sýnis meö verði. Svar eða reiknings-
skil með ferðinni til baka.
F. V. Riegels ritstjóri
Amicivej 4, Kjöbenhavn V,
Ref. Landmandsbanken
N.ýkoinið með Lanra
í v e r 7.1 u n
B. Kristjánss.
mikið af vefnaðarvörum og von á
miklu meira síðar.
T"1 • og að undanförnu geta
y iTin menn fengið fyrir mína
1 j | | I kl milligöngu alls konar
vörur pantaðar á þessu
ári, án þess að vörurnar séu borgað-
ar fyrirfram. Bg get útvegað mönn-
um hvort heldur er matvörur, vefn-
aðarvörur eða járnvörur; en borg-
ast verða þær um leið og vörurnar
eru teknar.
Bakka í Arnarfirði 3. febr. 1903.
Jón Hallgrímsson.
Allskonar
Stumpasirzið
eftirspurða og margs konar álnavara
kom nú með Laura í verzlun
Jóns Þórðarsonar
1 þingboltsstræti 1
Föstudaginn þ. 20. þ. m. verð-
ur kaffikvöld í stúkunni »Bifröst« 43.
Upplestur, söngur o. fl.
íSsr” Allir meðlimir mæti.
Cement
Stettiner Portland bezta tegund getur
fengist hjá undirrituðum fyrir
8 kr. 35 a. pr. tn
ef pantað er áður en Laura fer, helzt
ekki seinna en 19. marz.
B. H. Bj arnason,
Til þeirra sem neyta hins ekta
Kína-lífs-elixírs.
Með því að eg liel'i komist að því,.
að það eru margir, sem efast um, að
Kínalífselixír só eins góður og hann
var áður, er hór með leidd athygli aS
því, að hann er alveg eins, og látinn
fyrir sama verð sem fyr, sem er 1 kr„
50 a. glasið, og frest alstaðar á íslandi
hjá kaupmounum. Ástæðan fyrir því,
að hægt er að selja hann svona ódyrt,
er sú, að flutt var býsna-mikið af hon-
um til íslands áður eu tollurinu gekk
í gildi.
Þeir sem Kínalífselixírinu kaupa, eru
beðnir rækilega fyrir, að líta eftir því
sjálfs sín vegna, að þeir fái hinn egta
Kínalífselixír meö einkennunum á
miðanum, Kínverja með glas i hendi
og firmanafnið Waldemar Petersen,.
v. P.
Fredrikshavn, og ofan á stútnum —f—
í grænu lakki. Fáist ekki elixírinn hjá
kaupnm'nni þeim, er þér skiftið við,,
eða só setl upp á hann meira en 1 kr.
50 a., eruð þér beðnir að skrifa mér
um það á skrifstofu mína, Nyvei 16,.
Kabeuhavn.
W a L d e m ar Petersen
Fredrikshavn.
Áíísk. nauðsynjavörur
komu nii með s/s Laura í verzlun
Valdiraars Oítesens
Reykjavík,
sem seljast eins og vant er með mjög
lágu verði.
Proclama.
Samkvæmt iögum 12. apríl 1878 og
opnu bréfi 4. janúar 1861 er hér með
skorað á alla þá, sem telja til skuld-
ar i dánarbúi Guðna skósmiðs Guð-
mundssonar frá Eskifirði, er andaðist
2. septbr. f. á., að lýsa kröfum sínum
og sanna þær fyrir skiftaráðandanum
í Suður-Múlasýslu áður en liðnir eru
6 mánuðir frá síðustu (3.) birtiugu
þessarar innköllunar.
HÚ8eign búsins á Eskifirði verður
seld við opinber uppboð laugardagana
16., 23. og 30. maí næstkomandi kl.
10 f. h. Tvö fyrstu uppboðin verða
haldin á skrifstofu sýslunnar, en hið
síðasta við húseignina.
Uppboðsskilmálar verða til sýnis
á uppboðunum.
Skiftaráðandinn í Suður-Múlasýslu,
Eskifirði, 11. febr. 1903.
A. V. Tulinius.
leðurvörur
og annað, er að söðlasmíði og
skósmíði lýtor, fæst
í verzlun Björns Kristjáns-
sonar.
| ^jj^kransar og Slaufur
Stórt úrval, fæst hjá
Síuérunu Qlausan.
Félagsbakaríinu.