Ísafold - 25.04.1903, Blaðsíða 3
83
hið lága varð er eigi smjörinu að
kenna, heldur heimsmarkaðinum.
Landsbúnaðarfélagið var beðió að
rannsaka að fullu, hvernig |>jórsá yrði
bezt »beizluð«.
Til sýninga voru veittar 50 kr., og
aðrar 50 til kynbótatilraunar. Mælst
til, að búnaðarfélög efri hreppanna leggi
einnig nokkuð til þess.
Heitið var, að ábyrgð sýslunnar á
Eeykjafossvélunum mætti haldast, þó
að eigandaskifti yrði, ef þær yrði samt
notaðar þar.
Eitt af verkefnum þingmanna er,
að losa sýslusjóðina við yfirsetukvenna-
lauuin. Og búast mega þeir við, að
á þingmálafundi verði þeim falið að
koma á allsherjar-hundalækningalög-
um fyrir land alt. Hcr, og líklega
víðar, þykir mjög áfátt í því efni, og
kent um óhentugum og ósamhljóða
reglum. Hér var nú sett millifunda-
nefnd til að undirbúa lagfæringu inn-
an sýslu. En menn vilja líka vera
Iausir við ormaveika hunda annarsstað-
ar að.
Við áfengismálinu hlífði nefndin þing-
mönnum. En hún skoraði á kaup-
menn að hætta við árslok að selja
áfengi.
þó er ekki alt búið enn, sem þing-
menn eiga að gera. jþeir eiga að sjá
um, ef 4 alþingismenn bætast við, að
Árnessýsla fái 1 þeirra og að henni
verði skift í 3 kjördæmi. (Tvö til vara).
Og þeir eiga að útvega héraðsfundar-
mönnum 3 kr. daglaun, og sýslunefnd-
armönnum samsvarandi launahækkun.
Og nvi eiga þeir að byrja á því í
vor, að halda 3 þingmálafundi fyrir
alþingi: að Skálholti, Húsatóttum og
Selfossi. |>ar mun þá verða heldur
bætt við verkefni þeirra en hitt.
Sjómannakensluna hér á að reyna
að lífga aftur. Umsækjendatalan, sem
er skilyrðið, er færð niður í 40, því
að sjómenn fara hér fækkandi. Veitt
ar til þess 60 kr.
Ýms voru smámál fyrir nefndinni,
sem hér eru ekki talin. j?au varða
eigi almenning út um landið, en voru
einstaklegs eðlis að mestu.
Sannast er það að segja um sýslu-
nefnd vora Árnesinga, að yfirleitt hefir
hún eindreginn framfarahug. En hún
hefir lítið »bein í hendi«, og því er
von, að 8kamtarnir hjá henni verði
smærri en ella mundi. það er og
ekki nema sjálfsagt að fara gætilega,
þegar skamta skal úr annarra vösum
og þeim ekki öllum sérlega fullum.
Br.
Trú sem flytur fjöll
þarf sá að hafa, sem trúnað á að
leggja á það, að baukastjórafrændi G.
Hafstein mundi ekki vilja líta við hluta-
bankastjóraembættinu, þótt kost ætti á
því, af — tómri »föðurlandsást«, Þetta
er piltur, sem hefir lítils háttar undir-
tyllustöðu við Landmandsbankann í
Khöfn og tneð mjög lágum launum að
sögn. Hlutabankastjóraembættinu hefir
nú verið sózt eftir af Landsbankanum
og bankastjóranum mjög- nákomnum
hér. Og só það samrymanlegt við »L
flokks« föðurlandsást, hví skyldi þá vera
alt öðru máli að gegna um 0. H. ?
Hvaö á »humbugið« að komast langt,
svo að mönnum ofbjóði ?
Hinir höndluðu botnvörpuiigar,
sem getið var í síðasta blaði, heita
City of London, frá Grimsby, og
Etruria, frá Boston (Engl.). City of
London tók Hekla þétt upp við land
fyrir framan Selvog, en hitt innan
landhelgi við Vestmanneyjar. •Farið
var með þau bæði til Vestmanneyja
og sektuð þar, eins og fyr segir, ann-
að um 60 pd., og hitt (Etruria) um
65 pd., o. s. frv.
þriðja enskt fiskigufuskip, er stund-
ar lóðarveiði, tók Hekla nýlega í land-
helgi þétt fyrir sunnan Eeykjanes og
fér náeð til Hafnarfjarðar. J>að var
sektað um 180 kr.
Göupáskar — sumarpáskar.
Með þessari yfirskrift er grein í 16.
tölublaði ísafoldar 28. marz 1900 bls.
62. Er þess þar getið, að góupáskar
séu sjaldan fleíri en þrír á hverri öld,
en sumarpáskar 6, stundum 7, fæstir
5; að bilin milli góupáska séu oftast í
röð þannig: 57, 27, 11 ár, en á milli
sumarpáska 27, 19, 11, 11, 16, 11 ár;
þó séu frá því margar undantekning-
ar um sumarpáska, en millibilin þó
ávalt einhver af téðum 4 áratölum
(27, 16, 19, 11). Á síðustu 2 öldum
voru góupáskar 1704, 61, 88, 99,
1818, 45 og 56; 19 ára bilið 1799—
1818 undantekning einu sinni áður
fyrir á 11 öldum (1364—83). Sumar-
páskar voru á síðustu 2 öldum 1707,
34, 53, 64, 91, 1810, 21, 32, 48, 69, 86.
Gera má ráð fyrir, að mönnum þyki
eigi ófióðlegt að vita, hversu margir
góupáskar og sumarpáskar verði á
þessari ö!d, og upp á hver ár þau beri.
Sumarpáskar verða 1906, 16, 43, 62,
73, 84, 2000; þarnæst 2011.
Góupáskar verða 1913 og 1940; en
svo eigi fyr en 2C08.
Eftir reglunni hefðu góupáskar átt
að vera 1951, en þá er sunnudagsbók-
stafur G, góulok 19. marz, páskar 25.
marz 1. sd. í einmánuði.
Góupáska getur ekki borið upp á
aðra mánaðardaga en 23. og 24. marz.
Hið langa bil 1940—2008 eða 68
ár er líklega eitt sér góupáskalaust
jafn-lengi; að minsta kosti hefir ekki
verið svo langt milli 2 góupáska síðan
árið 800.
í apríi 1903. Skeggi.
SkeiðarársíiHds-stnindið.
Af mönnum þeim, er týndust á sand-
inum í vetur, erunút/eir fundnir,—er
Isafold skrifað með pósti í gær. Vél-
stjórinn fanst í Hvalsíki, á eyrinni, þar
sem þeir liöfðu hafst við eina nóttina,
en hásetinn fanst á sandöldu vestan
við Nýjasíki svonefnt.
Stýrimaðurinn er ófundinn enn, nema
hvað 2 lík hafa borist á land í Oræf-
um, annað á Staðarfjöru, en hitt á
Tvískerjafjöru, og þykir líklegt, að ann-
aðhvort þeirra sé stýrimaðurinn af
Friedrick Albert.
jóeir 5 menn, er ekki eru ferðafær-
ir fyrir kali, eru hjá héraðslækni
Bjarna Jenssyni á Breiðabólsstað, og
er búið að taka af þeim alls 8 fætur;
einir 2 fætur, sem ekki hefir verið
tekið af neitt, er teljandi sé.
þorgrímur læknir þórðarson var
sóttur snemma í febrúar austur að
Borgum og fór héðan aftur 2. apríl.
Af einum manninum voru teknir
báðir fætur fyrir neðan hné, af 2 báð-
ir fætur framan við hælbein og af 2
annar fótur frarnan við hælbein.
þetta hefir alt hepnast prýðisvel og
mennirnir eru nær því algrónir þeirra
sára, en þeir höfðu sumir kalsár á hæl-
um og víðar. þau eru að mestu gró-
in nú, en þau verða seinni að gróa
heldur en stúfarnir. Bjarni læknir
8væfði, jporgrímur bútaði og til aðstoð-
ar sór höfðu þeir hvatt síra Magnús
Bjarnarson á Prestsbakka, síra Svein
Eiríksson í Ásum og sýslumann Guð-
laug Guðmundsson.
joessir sjúkiingar hafa verið alls
svæfðir 14 sinnum, gerðir 3 stærri
undirbúningsskurðir (allar tær teknar
af 3 fótum og hreinsuð upp kalsárin),
8 aflimanir og 1 enduraflimun, til þess
að komast að til að sága betur hyrnu
af beini (sköflungi).
Auk þessara 12 líkamsskurða hafa
læknar þeesir gert mjög marga smærri,
tekið stykki úr hælum, jörkum o. s. frv.
Ji>6tta héíir alt hepnast framúrskar-
andi vel, ekkert borið útaf og ekkert
slys viljað til, og má það teljast furð-
anlegt, þar sem hér vantar þó svo
margt, sem nauðsyulegt er talið, þeg-
ar svo ber undir.
Alveg; sama lag or nú Jón Ólafsson
teldnn til að syngja eins og hinir nýjn félag-
ar hans og húsbændur, þeir Þjóðóltsmaðnr
og Stykkishólms-Lárus, jafnvel enn hærra
og snjallara en þeir. Það er ekki nýtt, að
hann sé fjörugur á fyrsta sprettinum —,
fyrstu vikurnar í hverri vist.
Það er bragurinn nm svikræði af Fram-
sóknarflokksins liálfu við stefnuskrá hans
frá i fyrra, sérstaklega þó af hálfu Isafold-
ar, vegna þess, að yfirdómari Jón Jensson
á að verða hér i kjöri. Þetta er stutt með
hinum og þessum ósanninda-uppspuna, dylgj-
um og brigzlum, sem ekki tekur því að
eyða að orðum til andsvara.
Það eru nánustu vinir og fylgifiskar
bankastjórans, sem ætla alveg af göflum að
ganga út af tilnefning Jóns Jenssonar. Þeir
vita ekkert fangaráð annað en fyrnefnd
svikræðisbrigzl til að afstýra voða þeim
fyrir hann, bankastj., eða kosningu hans
hér i vor, er þeir óttast að standa muni
af samruna atkvæða frá Landvarnarmönn-
um við þau, er hr. J. J. á vis annars frá
Framsóknarflokknum hér nú sem fyr.
Hitt s j á þeir og aðrir mikið vel, að
væri gamlir og nýir fylgismenn Jóns Jens-
sonar svo grunnhygnir, að fara að yfirgefa
hann (vegna sérstöðu hans í stjórnbótar-
málinu, sein allir vita að ekki g e t u r stofn-
að því í nokkurn minsta háska), þá væri
það' sama sem að styðja kosningu bankastj.,
inanns, sem þ e i r lita svo á, að ekkert
erindi eigi á þing annað en að tvöfalda at-
kvæði Stykkishólms-Lárusar, eða þá »Hann-
esar frændac, ef bann yrði á þingi.
Þeir s j 4 mikið vel, að ekki muni vera
hægt öðru visi en með taumlausum blekk-
ingum að fá kjósendur hér til að hafna
manni, sem þeir hafa bezta traust á og þeim
líkar flestalt vel við, er til þingmensku
kemur, — nema eitt, sem engu skiftir, eftir
því sem á st.endur nú, — eu styðja fyrir það
beinlínis eða óbeinlinis annan, er gagn-
stæðu máli er urn að gegna að þeirra
dómi.
Þeir og aðrir v i t a mikið vel og hafa
séð þess óbrigðul og ótvíræð merki, fyr
og siðar, að Framsóknarflokksstjórnin og
heunar málgögn, þar á meðal ísafold, eru
jafn-fastheldin við stefnuskrá þess flokks í
stjórnbótarmálinu sem hinn flokkurinn, þótt
ekki hirði um að beita heimsku-brigzlyrð-
um og illindum í þeirra garð, sem ekki
eru sömu skoðunar, manna, sem eru jafn-
miklir ættjarðarvinir fyrir því.
Eina ráðið við fyrnefndum voða vita þeir
vera sjónhverfingar og blekkingar. Það
er eina bjargráðið fyrir þá. Og þá er svo
svo sem sjálfsagt í þeirra augum að beita
þvi, — beita því látlaust og hlífðarlaust.
Aflabröfíð.
Mikill fiskuv er nvi sagður í suður-
vfiiSistöSunum, kominn jafnvel inn und-
ir Vogastapa, eins og gerSist þegar bezt
lét fyrrum.
Sigllng'. Til kaupm. J. P. Bjarnesen
kom 19. þ. m. kutter Ruth (98, T. Bentsen)
frá Mandal með timbur.
Gufuskipið »Pervie« (330, Schiöth)
kom 23. þ. m. frá Khöfn með vörur til
H. Th. A. Thomsens og fór til Vestfjarða
daginn eftir.
Prestvígsla á fram að fara á morgun:
cand. theol. Bjarni Hjaltested til aðstoðar-
prests hjá dómkirkjuprestinum.
Síðdegismessa á morgun (kl. 5) í
dómkirkjunni (sira Friðrik Friðriksson).
Veðurathuganir
í Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson.
190 3 apríl Loftvog millim. Hiti (C.) t' et- ct> cx ff *-s D- æ cx œ pr 3 p 33 Urkoma millina. Minstur hiti (C.)
Ld,18.8Í764,8 2,8 E 2 9 ~6j" -1,1
2 764,4 4,8 E 2 9
9 764,5 3,7 E 1 9
Sd. 19.8 764,4 5,5 E 1 9 0,7 1,8
2 765,4 8,4 E 1 10
9 765,5 4,8 E 1 10
Md20.8 766,4 4,6 8SE 1 10 2,8 2,1
2 767,7 6,1 s 1 10
9 767,5 3,3 SE 1 10
Þd.21.8 762,4 2,4 NW 1 10 5,2 0,6
2 759,6 L5 NNW 1 8
9 760,0 -2,4 N 2 3
Mv22.8 759,7 -2,1 N 2 3 3,3 -3,8
2 761,6 0,4 N 1 4
9 760,9 -1,5 E 1 3
Fd.23.8 759,3 -1,3 E 1 4 -3,9
2 757,6 1,2 E 1 7
9 752,0 0,7 í B 2 10
Fsd24.8 742,0 1,5 I ESE 2 10 9,3 -2,0
2 740,3 3,3 BE i 9
9 740,3 2,1 1 E i 7
Glasgow-bruninn, samskot. Þetta
hefur safnast á skrifstofu Isafoldar frá því
siðast:
Albert Þórðarson bankaassistent •> kr.;
Andrés Bjarnason söðlasmiður 5 kr.; Bal-
schmidt, Vilh., rakari 5 kr.; Einar Sigvalda-
son (Melstað) 10 kr.; Elinborg Kristjánsson
frú 3 kr.; Finnbogason, L., ekkjufrú 20 kr.;
Guðmundur Björnsson læknir 10 kr.; Guðm.
Guðmundsson bæjarfóg.fm. 10 kr.; Guðm.
Jakobsson trésmiður 5 kr.; Guðrún Magnús-
dóttir ekkja frá Austurhlið 5 kr.; H. J. B.
6 kr.; Halldór Jónsson bankagjaldkeri 6 kr.;
Haraldur Níelsson cand. theol. 10 kr.; Helgi
Hannesson úrsm. 5 kr.; Helgi Jónsson banka-
assietent 5 kr.; Hertervig, C., kaupmaður
10 kr.; Jóhann Þorkelsson dómkirkjuprest-
ur 10 kr.; Jóhannes Hjartarson skipstjóri
5 kr.; Jón Jensson yfirdómari 10 kr.; Jón
•Tónsson verzlm. (frá Borgarnesi) 5 kr.; Jón
Lúðvigsson 2 kr.; Jón Magnússon landritari
iiO kr.; Jón Valdason 4 kr.; Kristín Thor-
laeius frk. 2 kr.'; Ludvig Hansen hankassi-
stent ð kr.; Morten Hansen skólastjóri 10 kr.;
Oddur Gíslason yfirréttarmálfærslumaður 10
kr.; Olafur Amundason faktor 5 kr.; Ólafur
Sveinsson gullsmiður 5 kr.; Páll Halldórs-
son stýrimannaskólastjóri 5 kr.; Pétur Pét-
ursson hæjargjaldueri 5 kr,; Raonl Labadie
sjóliðskapt. frá Paris 20 kr.; Sigfús Svein-
hjarnarson 2 kr.; Sighvatur Bjarnason banka-
bókari 5 kr.; Sigurður Ámundason (Lindar-
götu) 2 kr.; Signrður Kristjánsson bóksali
10 kr.; S. T. 5 kr.; Sölfi Víglundarson skip-
stjóri U/a kr.; dr. Valtýr Guðmundsson do-
cent 10 kr.; Victor de Valence spitalaskipa-
forstöðumaður frá París 20 kr.; Þórhallur
Bjarnarson lektor 10 kr.; Þórnnn A. Björns-
dóttir yfirsetukona 10 kr.
Ennfremur frá Leikfélagi prentara arður
af sjónleik 22. þ. m. 50 kr.
Sömuleiðis frá P. Hjaltested úrsmið enn-
fremnr 10 kr. (gaf 20 kr.; misletrað síð-
ast 10 kr.). Samtals með áður auglýstu
1213 kr. 50 a.
VOTTOEÐ.
Eg get ómögulega látið það ógert,
að senda yður þessi meðmæli:
Eg, sem skrifa nafn mitt hérundir,
hefi árum saman verið mjög lasin af
taugasjúkleik, sinateygjum og ýmsum
sjúkdómum, sem þar eru samfara.
Eftir er eg hafði leitað ýmsra lækna
og enga bót fengið, fór eg að taka
inn Kínalífselixír frá Valdemar Peter-
sen \ Friðrikshöfn og get eg með góðri
samvizku vottað, að þetta lyf hefir
bætt mig meira en frá verði sagt, og
eg finn að eg get ekki án þess verið.
Hafnarfirði, í marz 1899.
Agnes Bjarnadóttir, húsmóðir.
Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flest-
um kaupmönnum á Islandi, án toll-
álags á 1,50 (pr. fl.) glasið.
Til þess að vera viss um, að fá
hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupend-
ur beðnir að líta vel eftir því, að vÁ-‘
standi á flöskunni í grænu lakki, og
eins eftir hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kíuverji með glas í
hendi og firmauafuið Waldemar Pet-
ersen, Frederikshavn Kontor og
Lager Nyvei 16, Iíjöbenhavn.