Ísafold - 20.05.1903, Side 1
Kemur út ýmist einu sinni eða
'tvisv. í viku. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
l‘/2 doll.; borgist fyrir miðjan
júlí (erlendis fyrir fram).
Uppsögn (skrifleg) bundin við
áramót, ógild nema komin sú til
útgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslustofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
XXX. árar.
Reykjavík miðvikudaginn 20. mai 1903.
28. blað.
I. 0. 0. F. 855299____________________
AugnlœJcning ókeypis 1. og 3. þrd. á
hverjum mán. kl. 11—1 i spltalanum.
Forngripasafn opið md., mvd. og ld
11—12.
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa op-
4n á hverjum degi kl. 8 árd. til kl. 10 siðd.
Almennir fundir á bverju föstudags- og
■sunnudagskveldi kl. 8'/2 siðd.
Landakotskirkja. Guðsþjónusta kl. 9
og kl. ti á hverjum helgum degi.
Landsbankinn opinn hvern virkan dag
kl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
Landsbókasafn opið hvern virkan dag
41.12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3)
md., mvd. og ld. til útlána.
Ndttúrugripasafn, í Doktorshúsi, opið
á sd. kl. 2—3.
Tannlœkning ókeypis í Pósthússtræti 14b
1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1.
íslands banki.
Hlutabréfin uppseld.
|>að fréttist frá Kaupmannahöfn
með síðustu ferð, að Islands-banka-
hlutabréfin yæri ekki einungis öll út-
•gengin, heldur hefði verið ferfalt fleiri
um boðið en þurfti.
^að er með öðrum orðum, að selja
hefði mátt ef vildi hlutabréf í bank
anum fyrir 12 miljónir, í stað 3 miljóna.
f>að fylgir og sögunni, að bréfin hafi
selst töluvert yfir ákvæðisverð.
Svo er að heyra, sem hlutabréfin
hafi selst sum í Danmörku, og sum,
jafnvel meiri hlutinn, í Lundúnum.
Landabankaliðs-rógurinn um hluta-
bankann hefir e k ki náð þangað.
Einkennilegu ljósi varpar þetta yfir
margítrekaðar frásögur landsbankahöfð-
ingjanna hér um, að stofnendur hluta-
bankans, þeir Arntzen og Warburg,
hafi verið í standandi ráðaleysi að
koma honum á legg, sakir féleysis.
|>egar það vitnaðist hér, sem ekki
á 11 i að vitnast, að þeir forstöðumað
ur Landraandsbankans í Kaupmanna-
höfn og landsbankastjórinri okkar hefðu
gert tilraun til að fá keyptan seðlaút-
gáfuréttinn hjá þeim Arntzen ogWar-
burg íyrir nokkra tugi þúsunda, en
fengið eindregið afsvar, þá var jafnvel
því skotið út í kyrþey af sumum skó-
sveinum bankastjórans — e k k i átt
undir að láta það sjást á prenti samt
— að þ e i r, hlutabankastofnendurnir,
hefðu falast eftir, að h i n i r keyptu af
sér seðlaútgáfuréttinn, til þess að koma
8ér úr kröggum!
Með öðrum orðum: fangaráðið þetta
vanda, að snúa öllu öfugt, hafa
hausavíxl á réttu og röngu, sönnu
°g ósönnu.
Alt i nafni föðurlandsins og föður-
Iandsástarinnar, vitaskuld.
Markmiðið helgar meðalið.
Líklegast fer nú að verða heldur
torsótt að fá almenning til að trúa
því, að hlutabankamönnunum ríði líf-
ið á að fá hjá þinginu í sumar einhver
frekari hlunnindi en lögin frá í fyrra
veita þeim, eða að þeir hugsi sér
jafnvel að fresta alveg bankastofnun-
inni fram yfir þanD tíma.
Úr því að svona vel er tekið í að
leggja fram fé til bankastofnunarinnar,
hlutafé, en ekki lánsfé, með þeim kjör-
um, sem lögin þau heimila, hvers
þarfnast þeir þá framar?
Kunnugir vita auðvitað, að ekki
hefir komið til mála, hvorki af þeirra
hendi né þingmanna, að gera neina
hina minstu breyting á ámiustum
lögum.
Allur ávæningur og aðdróttanir f
þá átt er ekkert annað en kosninga-
blekking af hálfu afturhalds- og lands-
bankaliðshöfðingjanna.
það kemur sjálfsagt mörgum ó-
vart, ekki sízt þeim, er litla hafa
trúna á öllum framförum hér á landi,
að aðrar þjóðir skuli vera svonaóveil-
ar að leggja fram fé til bankastofn-
unar hér.
En næsta auðskilið er það þeim, '
er til þess þekkja, að þvf meira sem
ógert er til hagnýtingar auðsuppsprett-
um í einhverju landi, því meira vita
siðaðar þjóðir að þar er að vinna fyr-
ir »afl þeirra hluta, sem gera skal«.
þangað streymir því fjármagnið, und-
ir eins og fengin er trygging fyrir, að
því muni beitt verða með atorku og
ráðdeild. Alveg eins og lifandi vinnu-
afl, mannsaflið, streymir þangað, sem
mest býðst atvinnan.
Eklci til að beita okri og ánauðar-
ofurefli. það vita skynbærir inenn að
er sama sem að brenna fyrir sér það,
sem veita á þeitn arðinn. Heldur til
þess, að efla og glæða sérhvern vísi
vaxtar og viðgangs lands og þjóðar.
Gufusbip Tordenskjold, aukaskip
frá Thore-félagina, kom hingað frá útlönd-
urn 7. þ. rn. og fór til Vestfjarða, daginn
eftir. Farþegar hingað meðal Innarra
kaupmennirnir Páll Torfason frá Flateyri
og Árni Riis frá Isafirði, Hermann Thor-
steinsson verzlunarmaður frá Bíldudal, og
Möller nokkur, danskur verlunarfulltrúi, á
leið til Vesturlands.
Kosuinsaleiðangrur
sinn eru nú mörg þiugmannaefni
vor að byrja.
Jón Jakobsson forngripavörður lagði
á stað í morgun að herja á Hún-
vetninga.
Samferða honum upp í Borgarnes
var Einar Benediktsson málfærslu-
maður, áleiðis vestur á Snæfellsnes,
og segja sumir að ætli sér hvorki
meira né minna en að ganga á hólm
viS »þingsins herra«, en aðrir, að
hann eigi mál að reka þar.
Landritarinn farinn til Vestmann-
eyja.
þeir dr. Valtýr Guðmundsson og
Björn Kristjánsson hafa hvatt til þings
þessa dagana á 3 stöðum í Gullbringu-
sýalu, til viðtals við kjósendur, og
andstæðingar þeirra í hámót á eftir
þeim, ásamt 3—4 atkvæðasmölum héð-
an af afturhaldshöfðingjanna hálfu.
Hvernig stendur á því,
að Aug. kaupmaður Elygenring býður
sig fram til þings, að heita má um
elleftu stund?
Svo spyrja kunningjarnir hver ann-
an þessa dagana.
Ollum kemur þetta framboð svo ó-
venju óvænt.
Allir kunnugir vita, að maður þessi
hefir aldrei fengist neitt við þingmál,
aldrei látið neitt af því tægi til sín
taka, aldrei látið uppi við nokkurn
mann, að hann léti sér detta í hug
að komast á þing. Hann hefir þvert
á móti spottast að þess kyns tilraun-
um af annarra hálfu.
þetta og fleira í þá áttina vita
kunnugir; hitt er enn á færra manna
vitorði, hvernig á framboðinu stendur,
þótt flestir sjái undir niðri, hvernig í
öllu liggur.
Allir vita sem sé, að eftir að héraðs-
læknir |>. J. Thoroddsen hætti við að
bjóða sig fram, hefir dr. Valtýr Guð-
mundsson gefið kost á sér til þing-
mensku fyrir kjördæmi þetta, ásamt
fyrverandi þingmanni þess, Birni
kaupmanni Kristjánssyni.
Ekkert gat þeim komið ver, aftur-
haldshöfðingjunum í Reykjavik, en
framboð dr. V. G. J>að er alveg eins
og þeim þyki sem velferð sín sé í
veði, ef hann kemst á þing. Áður
voru höfðingjar þessir búnir að tryggja
oss kjósendum kjördæmisins, að vér
gætum fengið H. J. bankagjaldkera,
ef oss langaði tiJ. Hann átti að
leggja einn út í bardagann við þá B.
Kr. og þ. J. Th. En þegar dr. Val-
týr kemur til sögunnar, þá þurfti að
færast í aukana og draga ekki af sér.
Og með því að þeir félagar, afturhalds-
höfðingjarnir, höfðu ekki fulla vissu
fyrir, að oss iangaði jafnmikið í Hall-
dór, eins og þá að hann hlyti hér
kosningu, þurfti að tryggja sig betur
gagnvart tómlæti voru og einfeldni.
þá var það fangaráð tekið, að ljá
Halldóri meðhjálpara. Var þá farið að
svipast eftir honum. Nokkrir kjós-
endur, fyrir víst 2 eða 3, mjög hand-
gengnir afturhaldshöfðingjunum, brugðu
sér á fund herra Aug. Flygenrings,
gerðir út af þeim gagngert. Ilann
gegndi kallinu(!) og er nú sandur út
af örkinni. Honum er ætlað að draga
atkvæði frá þeim dr. V. G. og B. Kr.
það veikir þá, en styður H. J.
Annarhvor þeirra dr. V. G. eða B.
Kr. eiga að falla, allra helzt doktor-
inn auðvitað. það er innilegasta ósk-
in, eigulegasta vonin, sem þeir ala,
afturhaldshöfðingjarnir. Og þar með
á líka þingmanns- og meðhjálpara-
starfi hr. Aug. Flugenrings að vera lok-
ið. Svo ætlast þeir.
J>að kemur mörgum á óvart, sem
þ y k j a s t þekkja Aug. Flygenring, að
hann skuli láta senda síg í þann-
ig lagaðan leiðangur, ekki drengilegri
eða virðulegri en tilgangurinn er, —
láta leika sér fram eins og peði;
og einhvern tíma hefði það þótt fyrir-
sögn, að ötuli skipstjórinn fyrverandi
vildi gerast kapteinn á afturhaldsfleyt-
unni, og ef til vill eiga í vændum að
verða beitt til þess, er Iftt þykir hæfa
»yfirmönnum«.
Kent kvað hoDum hafa verið það
ráð, að tjá sig utan flokka, jafnvel
með þeim formála, að nú væri engir
flokkar til framar. |>eir hafa líka
sýnt það með framkomu sinni, aftur-
haldshöfðingjarnir og þeirra máltól,
eða hitt heldur. Flokks-æsingur af
þeirra hálfu hefir aldrei magnaðri ver-
ið en nú. Og úr því að svo mörgum
er kunnugt um upptökin að framboði
hr. Aug. Fl., þá eru fremur litlar lík-
ur til, að sú heimildarvilla beri tilætl-
aðan ávöxt. Enda bæri þá eitthvað
nýrra við, ef afturhaldshöfðingjarnir
færu að magna til þingfarar mann,
sem þeir ættu ekki alveg vísan fyrir-
fram í sinn flokk á sínum tíma, þegar
búið væri að hremma kosningu handa
honum.
Sá sem ritar línur þessar veit með
fullri vissu, að annar innanhéraðs-
maður átti kost á því á undan hr.
Aug. Fl., að ganga í leikinn; en hann
bað sig undanþeginn, og mun hafa
fundist fátt um. H a n n lætur ekki
skjalla sig og gullhamra til annars en
hann ætlar sér eða veit sig vera vax-
iun.
Hvort það sé af umhyggjusemi
fyrir velferð kjördæmisins, föðurlands-
ást eða ef til vill einhverju öðru ó-
nefndu, að afturhaldsflokkurinn brugg-
ar öll þessi ráð gegn kjörfylgi og
kosningu Framsóknarflokksmanna, því
svarar hver og einn eftir því, sem
skynsemi hans bendir honum til.
En lengi mun það í minnum haft,
ef kjósendur Kjósar- og Gullbringu-
sýslu ganga í þessa gildru afturhalds-
flokksins.
Eg vil segja, að þá fyrst og með
því einu móti hefðum vér unnið til
lítilmensku-vottorðs þess, er Reykja-
víkurmáltól þeirra afturhaldshöfðingj-
anna hefir að oss rétt hvað eftir ann-
að, kjósendum þessa kjördæmis. þá
hefðum vér til þess unuið, að heita
»svartasti bletturinn*, svo sem það
hefir að orði komist.
Kjósandi í G.-K.-sýslu.
Skógræktarfélag Reykjavikur
hélt fyrsta aðalfund síun laugardag 16.
þ. m. í Iðnaðarmannahúsinu. Formaður
félagsins, yfirkennari Steingrímur Thor-
steinsson, setti fundinn og skýrði frá
framkvæmdum félagsins, mintist stutt
lega á, hver tildrögin hefðu verið til
þess, að félagið var stofnað, og gat
þess, að alls hefðu fengist 85 hluthaf-
ar (hluturinn 25 kr.). Síðastliðið sum-
ar var skógræktarteigurinn (við Rauða-
vatn) girtur, græðireiturinn undirbúinn
og 8600 holur grafnar í skógræktar-
teignum, og hefir áður verið skýrt frá
því hér í blaðinu (sbr. ísafold 56. tbl.
f. á.). í vor, í þessum mánuði, hefir
hr. forstkandidat Flensborg gróðursett
8600 plöntur í holurnar, er grafnar
voru í fyrra sumar. Trjátegundirnar
eru þessar:
3000 pl. af almennum reyni, eins árs
500 — — tveggja ára
4000 — — amerískum, eins árs
500 — — tveggja ára
200 — — cembra-furu, tveggja ára
200 — — fjallfuru, fjögra ára
200 — — hvítgrön, —
Svæðið, sem plöntur þessar eru
gróðursettar á, er um 4 dagsláttur.