Ísafold - 24.06.1903, Blaðsíða 3

Ísafold - 24.06.1903, Blaðsíða 3
151 meðal annars af þessum ástæðum: a ð færra glepji þar íyrir nemendum, en í bæjunum, að nemendur sjái þar daglega fyrir sér myndarlegan búskap, og iæri þeir margt af því, þó verkleg kensla fari ekki bemlínia fram, og svo, aö kennaranum sé ómissandi að hafa bú samhliða skólanum til þess að geta kent búnaðarvísindin svo, að fullu gagni komi. Svo bafa Danir búnaðarháskóla í Kaupmannahöfn, eins og mörgum er kunnugt. Eru búnaðarvísindin kend þar til fullnustu. Skóla þennan sækja allmargir Danir, og jafnvel Norðmenn og Svíar. Fáeimr íslendingar hafa lika dvalið við skóla þennan lengri eða skemmri tíma. Danir hafa komið á njá sér sérstöku v e r k 1 6 gu búnaðarnámi, er þeir nefna «nemendastofnun« (Lærlinge-Institution). Var hún upp haflega stofnuð 1820. Fyrsta byrjun stofnunar þessarar var sú, að »hið konungiega danska landbún- aðarfélag« útvegaði hjá konungi undanþágu frá landvarnarskyldunni fyrir 12 bændasyni, sem vildu full- komna sig 1 búnaðarstörfum, með því að vinna 3 ár samfleytt á 3 stórbú- um í landinu, sitt ár á hverju — bú- um, sem skörúðu fram úr og væru til fyrirmyndar. jpeir áttu að vinna kaUp- laust. — Aðsókn varð þegar mikil að stofnuninni, máske meðfram af því, að margir vildu gjarnan kaupa sig undan landvarnarskyldunni. Seinna var þessi undanþága rýmkuð svo, að 50 nemend- ur urðu teknir á ári. Löngu seinna var þessi undanþága frá landvarnar- 8kyldunni aftur afnumin með lögum, og þá minkaði skyndilega aðsóknin. Lá þá við um tíma, að stofnunin legð- iat niður. En af því að þeir menn, sem út8krifast höfðu frá stofnuninni, reyndust jafnan dugandi menn, vildi félagið fyrir hvern mun haida henni áfram. Félagið fcauð þá að gjalda nemendum nokkurt kaup, og lifnaði svo aðsókniu við aftur. Stofnun þessi heldur enn áfram, og telja Danir hana mjög nytsama. |>eir sem ætla að nota kenslu þessa verða að vera full tíða menn, heizt af bændastétt, og vera hraustir og alvanir sveitavinnu. þeir eru látnir veia sitt árið á hverj- um stað hjá fyrirmyndarbændum. Ganga þeir þar í alla vinnu sem vinnumenn, og hafa sama fæði, en þeir fá betra húsnæði, og fá hita, og ljós til bókiðna í tómstundum. þ>eir élga að fá dálitla tómstundir til að skrifa dagbækur sínar, sem búnaðarfélagið heimtar af þeim. Dagbókin á að skýra frá öllu, sem eftirtektavert, er í búskaparefnum á heimilinu. Búnað- arfélagið lónar nemendum bækur um búnaðarefni, og eignast þeir bækurnar ef þeir afljúka náminu, en skila þeim annars aftur. Ymsar munnlegar leið- beiningar fá nemendur vanalega hjó húsbónda sinum, en ekki er hann 8kyldur til að kenna þeim neitt bóklega, Nú eru bændurnir farnir að gjalda nemendunum kaup, 1. ár 120 kr., 2. ár 150 kr. og 3. árið 180 kr., og geldur þá búnaðarfélagið ekkert kaup. Menn þessir verða mjög dug- andi verkamenu, og er mikið sótt eftir þeim fynr verkstjóra á stærri búum. — J>að eru samt ekki margir sem nota þessa kenslu í samanburði við mannfjölda Danmerkur. Stundum hafa nemendur verið um og yfir 150 alls, eða um 50 verið teknir á stofn- unina á ári, en oft haýa þeir verið færri, og núna seinustu árin sýnist aðsóknin hafa dofnað til mima. Sex næstliðin ár var nemendatalan avona: 1897 164; 1898 150; 1899 114; 1900 89; 1901 70; 1902 63. — þeir sem út enda hinn á- kveðna námstíma, og að öðru leyti hegða sér vel, fá skriflegan vitnisburð hjá Búnaðarfélaginu, sem saminn er eftir vitnisburðum húsbændanna, og eftir dagbókuuum. Oftast hafa all- margir af þeim, sem gengið hafa inn í stofnunina, farið burt aftur án þess að út enda tímann, stundum alt að helmingi þeirra. Eins og kunnugt er af ritgerð herra S. Sigurðssonar, hafa Norðmenn um 20 búnaðarskóla, og í þeim flestum er sameinað verklegt og bóklegt nám, Stofnuðu Norðmenn upphaflega sína búnaðarskóla á árunum 1847—’59. Á þeim árum stofnuðu þeir 18 búnaðar- skóla sinn í hverju amti, en margir af þeim lifðu að eins skamma hríð. Menn gerðu ósanngjarnar kröfur til skólanna, og þegar skólarnir gátu ekki gegnt kröfunum, urðu menn óánægðir, og vildu fcasta þeim sem fljótast fyrir borð. Um það leyti sem íslendingar fóru að stofna sína búnaðarskóla, voru ekki nema 6 eftir af norsku skólun- um, og höfðu þá um nokkur ár ekki verið fleiri. En um þetta leyti voru Norðmenn farnir að iðrast eftir rækt- arleysi sitt við skólana, og vildu fara að koma þeim upp aftur. En það gekk erfitt, og um 1890 fór fyrst að koma verulegt skrið á fjölgun skól- anna. Nú eru þeir orðnir yfir 20, eins og áður er sagt, allir mjög vel úr garði gerðir, og miklu til þeirra kost- að. Flestir skólarnir halda enn sama sniði í aðalatriðunum og þeir höfðu upphaflega — hafa nfl. verklegt og bóklegt nám sameinað. Lengi getur vont versnað. Mörgum þótti nóg komið af svivirðileg- um sorpblöðum, þegar »Yestri« hafði rægt menn, skammað og smánað heilt ár, og virtist því vera að hera i bakkafullan læk- inn, þegar saurblað það kom út á Akur- eyri, sem nefnir sig »Gjallarhorn«, þessi nautsstikill, sem konsúls-klikan þar »túðar« í af öllum mætti. Fyrir blaðinn stendur alkunnur leppalúði, Bernharð nokkur Lax- dal, og á að heita útgefandi þess, ásarnt einum af þjónum konsúlsins. I 17. tbl. Grjallarhorns þ. á. er grein með yfirskrift: »Óhróðri mótmælt«, og á hún að vera svar gegn grein minni í Isa- fold 24. tbl. þ. á., þó að fjarri fari þvi, að svo sé; greinin er eingöngu skammir og irtúrsnúningar, — ekkert svar á rökum bygt. Greinin er nafnlaus og marklaus og verður því að skoðast sem ritstjórnar- grein. Kitstjórinn, hr. Bernh. Laxdal, hefir brugðið sér þar í föt vændiskonu þeirrar, er Lygi heitir, og óþokkageplar einir leggja lag sitt við; fara þeir garmar fáum vel og sizt þeim, er siðaðir þykjast og mentaðir. En þrát.t fyrir það kemur hið sanna manneðli bezt i ljós í slikuru búningi, er bann virðist hæfa persónunni jafnvel og lýsir sér i ritsmíð þessari i G-j.horni. Ritstj. byrjar á þannig vöxnum óþokka brigzlum tii min, að ekki eru eftir hafandi í heiðvirðu blaði, og því siður að við eigi að svara þess kyns ósvifni. Hitt mundi mörgum kunnugum verða að orði, að sizt mundi sitja á honum, að koma með þess kyns brigzli. Eg hef aldrei vitt það, eins og Gj.horn segir, sð sýslum. H. Hafstein hafi gert skyldu sína, þegar hann svifti Jón Yedholm veitingaleyfi; eg lofaði hann einmitt fyrir það. En hitt þótti mér og þykir enn kynlegt, að hann sknli láta sama lögbrotið og bann hefir dæmt mann sekan fyrir, lög- brot, sem er á almanna vitorði bæði á ísafirði og víðar, stöðugt viðgangast óvitt áfram, þótt honum hljóti að vera kunnugt um það af afspurn að minsta kosti. Og fyrir það álit mitt ber eg engan kinn- roða. Bull Gjallarhorns um »vínsöluna. í bakar- íinu« er alls ekki svara vert, og sama er að segja um það, sem þar stendur um sauðaþjófnað Steindórs Sigurðgsonar og afskifti sýslumanns af því máli; eg hefi skýrt þar algerlega rétt frá. Enhlægilegt mætti það vera, ef satt væri, að landlæknir hafi gefið vottorð um, að Steindór væri vitskertur og amtið látið sakamálið niður falla þess vegna; landlœknir hafði tsem sé aldrei séð manninn, og hvernig átti hann þá að gefa slikt vottorð, sem unt væri að byggja nokkuð á? — En þessi saga Gj.horns um vottorð þetta er auðvit- að tilhæfulaus uppspuni. Lögskráningu og skiftum á fiskihlutum i Isafj.sýslu er mér kunnngra um en ritstjór- anum, eins og honum er kunnngra um norðlenzkt knæpu-lif en mér. Hann færir heldur alls engar ástæður gegn ummælum minum í ísafold um þessi mál, gerir sig að eins hlægilegan fyrir heimsku og slettireku- skap. — í>að væri íróðlegt að vita, hvaða »forn venja« það væri, sem veitti yfirvaldi rétt til að troða gildandi lög undir fótum og virða þau vettugi. Frásaga min um »skinnbrókamálin« er sönn, og Gjallarhorn reynir ekki einu sinni að »túða« neitt á móti henni. Hún cr ekki fremur húin til i veitingahúsi en sanna sagan um manninn, sem forðum daga fór í kvenmannsfot til þess að gabba einfaldan skólabróður sinn og varð að háði og spotti fyrir. Isafold þarf aldrei að blygðast sin fyrir það, þó að hún ljái rúm greinum, sem vilja verja rétt einstakliuga gegn ofriki yfirvaldanna; það er henni sómi. En Gjallarhorni og slíkum blaðsneplum er það smán og svivirðing, að halda uppi svörum fyrir kúgun við einstaklinga, rétt- læta ranglætið og reyna til að hefja það til vegs og virðingar hjá þingi og þjóð. í>eir, sem gerast leiðtogar og styrktar- menn slikra blaða, eru fyrirlitnir af öllum góðum mönnum, og það að maklegleikum. Sá ritstjóri, er slikt verk vinnur, er sá Efialtes, sem visar fjandmönnum þjóðarinn- ar leið til þess að ráða frelsi hennar bráðan bana. p. t. Reykjavík 22. júni 19J3. Satnson Eyóljsson. Alþingiskosningar. IV. AusturySkaftfellingar hafa endur- kosið 6. þ. m. Þorgrím lækni Þórö- arson á Borgum með 58 atkv. Þorleifur hreppstjóri Jónsson í HóJum fekk 39 atkv. Fleiri voru ekki i kjöri — Jón próf. Jónsson í StafafelJi hætti við að bjóða sig fram. Konungsmorö og stjórnarbylting. Hroðafréttir frá Serbíu. Konungur veginn og drotning hans, ásamt 2 bræðrum hennar og 2—3 ráðgjöfum. J>etta segir fréttin að gerst hafi að- faranóttina 11. þ. m., í konungshöll- inni í Belgrad. Konungurinn hét Alexander, sonur Mílans I. og Natalíu drotningar hinn- ar rússnesku, ungur maður og kvænt- ur þarlendri ekkju ótiginni, er Draga hét. þeim varð eigi erfingja auðið, og vildi drotning þá láta gera bróður sinn að ríkiserfingja. Til þess þurfti staðfesting löggjaf- arþingsins, en vonlítið um það. |>á gerir konungur þingrof og nemur stjórnarskrá ríkisins úr gildi. Út úr þessu spanst samsæri og dróst herinn inn í það, ea bak við hefir að líkindum staðið hin forna höfðingja- ætt ríkisins, Karageorgevitsj, enda til konungs kvaddur maður af því kyni, Pétur að nafni, sá er þar hefir kallað til ríkis. Unnið var á konungshjónunum og ráðgjöfunum með skotum. Gufuskip ísafold kom hér á helginni frá útlöndum með alls konar vörur til Brydes-verzlunar Eldgfosið. Svo segir frá Guðlaugur sýslum. Guðmundsson, er hér kom í gærkveldi, á amtsráðsfund, að maður frá Núps- stað, sonur bóndans þar, hafi gengið upp á Björninn, norður af Lómagnúp, á hvítasunnudag, og séð eldstöðvarnar þaðan í útnorður af Grænafjalli, milli þess og Hágangna. Eldurinn er þá í Skaftárjökli, en ekki Skeiðarár. Gosið heldur áfram og kemur ann- an og þríðja hvern dag. Oskufall nokkuð í Oræfum við og við, en ekki mikið. Skeiðarárhlaupíð búið. Skeiðarársandur orðinn færmeð hesta. En blautur enn og jakahrannir á hon- um víða. Fórn Abrahams. (Frh.) Kennedy lautinant beit á vörina. Honum líkaði ekki þetta blíða viðmót með vonleysisbragði undir niðri. Upp- eldi og lundarfar hafði hvorttveggja gert hann efasemdarmann í trúarefn- um, og alt sem hann hafði séð frá því hann kom til vits og ára, hafði styrkt hann í þeirri sannfæringu, að það 8é eigingirnin ein, sem heiminum stjórnar, og að þeir einir hlytu frægð og gengi, er mestan hefðu mátt og vilja til að hrifsa til sín hlífðarlaust hvað sem hönd á festi, en lítilmögn- um ófarnaður búinn. Hann furðaði sig á þessari gömlu afturgöngu frá þeim tímum, er það þótti ekki einung- is mikils um vert, að leggja sjálfan sig í sölurnar fyrir aðra, heldur voru margir, sem gátu gert það. Hann sem treysti öruggur tuttugu og þriggja ára reynslu sinni og þóttist vita með vissu, að hverju góðverki væri á glæ kastað. Honum fanst trúboðinn ekki eiga þarna heima innan um vopnin og fnasandi reiðskjóta og harðfenga bar- dagamenn. Hiun gamli maður varð fyrir hans sjónum eins og blettur á mynd, og hann virti hann fyrir sér með forvitnissvip, eins og gerist um hvað það, sem nýstárlegt er eða ó- kennilegt, og hann leit alla jafna nið- ur á hann, eins og sá lítur niður á ofstækiskendan draumóramann, er finnur sig vera honum meiri að hag- sýnilegri ráðdeild og vaskleik. Hvað stoða orð þín og gerðir, hugs- aði þessi mentaði, ungi maður, er fylgdist avo vel með tímanum. |>ú getur engu breytt með þeim; það verð- ur fram að koma, sem fyrir er hugað. jþú getur ekkert við það ráðið. Og hann kendi í brjósti um hinn gamla mann með sjálfum sér, en hafði enga lyst á að halda uppi viðræðum við hann. þeir héldu áfram ferðinni eftir ár- farvegnum og riðu jafngreitt alla tíð. Nokkrir Búar riðu á undan og höfðu byssurnar viðbiinar að skjóta, hve nær sem vildi; þá riðu næstir þeim riddar- arnir hertekuu og tíu varðmenn á tvær hendur þeim; þá koma vagnarnir fjórir, er ökumenn af Kaffakyni stýrðu, og skeiu í hvítar tennur þeim milli hárauðra varanna. Kennedy lautinant sneri sér við, til þess að þurfa ekki að sjá meira, Sat hann ekki þarna hlæjandi, Blámaðurinn, sem þeir mættu nóttina á undan skjálfandi af hræðslu. Aftast reið tuttugu manna sveit. |>að var ekkert nýtt eða merkilegt í þess- ari tilhögun, en óvissan lá yfir allri fylkingunni og hélt hverri taug í alspennu. Og brattir, gulir árbakkarnir risu á tvær hendur, ,en uppi yfir sá að eins í bláa rák af heiðum himnin- um. |>etta tilbreytingaleysi, sem hélzt tímunum saman, olli því, að hinn ungi.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.