Ísafold - 03.10.1903, Side 1

Ísafold - 03.10.1903, Side 1
’Kenrar nt ýmist einn sinni eða tvisv. í vikn. Yerð árg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða 1 */j doll.; borgist fyrir miðjan júli (erlendis fyrir fram). I XXX. árg. Reykjavík laugardaginn 3. október 1903 JúiAÁids jftaAya/tiAV I. 0. 0. F. 85I09873. Augnlœkning ókeypis 1. og 3. þrd. á hverjnm mán. kl. 11—1 i spitalannm. Forngripasafn opið md., mvd. og ld. 11—12. K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa op- in á hverjum degi kl. 8 árd. til kl. 10 síðd. Almennir fundir á hverju föstudags- og snnnndagskveldi kl. 8*/2 síðd. Landakotskirkja. G-uðsþjónnsta kl. 9 •og kl. 8 á hverjum helgum degi. Landakotsspitali opinn fyrir sjúkravitj- •endnr kl. 10'/2—12 og 4—6. Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1. Landsbókasafn opið hvern virkan dag k]. 12—2 og einni stundn lengur (til kl. 3) md., mvd. og ld. tii útlána. Náttúrugripasafn, í Vesturgötu 10, opið á sd. kl. 2—3. Tannlœkning ókeypis i Pósthússtræti 14h 1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1. Kostaboð. Nýir kaupendur að næsta árgangi er borga árganginn nú þeg- ar, fá ársijórðunginn, sem eítir er af þessum árgangi, ökeypis, og að auki í kaupbæti sög- una í heljar greipum 14 arka bók, mjög|skemtilega. Það kemur aldrei aftur. Kaupendur ísafoldar, er haft hafa bústaðaskifti, eru vinsamlega beðnir að láta þess getið á af- greiðslu blaðsins. t Húsfrú Kristín Einarsdöttir kona Jóhanns dómkirkju- prests Þorkelssonar, andaðist á heimili sínu hér í bænum síðari hluta dags í gær. Hún var íædd 4. júlí 1850 á Læk í Melasveit; misti föðursinn 4 ára gömul og var með móður sinni eftir það til fermingaraldurs. Þá fór hún til hálfbróður síns Björns járnsmiðs Hjaltesteðs og hjá þeim hjónum dvaldi hún þar til er hún giftist 15. júní 1878, og höfðu þau því ver- ið í hjónabandi rúm 25 ár. Erlentl tíðindi. Khöfn 1B. sept. 1903. fingmannakoBningum í N o r e g i mun nú vera hér um bil lokið, með þeim hætti, að aDdstæðing- ar stjórnarinnar, sem nú er, þeirra Blehrs og hans fólaga, hafa orðið 66, sumt hægrimenn, sumt miðlunarmenn og sumt hinir forsjálli vinstrimenn; en fylgismenn hennar 51, þar af 4 sósíalistar. Ráðherraskifti eru því al- veg vís, og eins bitt, að Hagerup verð- ur formaður hins nýja ráðaneytis. Hér í Danmðrku er helzt til tíðinda mikið mannskaðaveður 10. þ. m. og náði raunar víðar, einkum til Englands. Varð nokkuð skiptjón og manna nokkurt m. m. Alexandra Engladrotning lá veðurtept þá daga á leið hingað. Hún var 6 daga í þeirri ferð, í stað 2—3, og fór fólk hennar hér, ráðherrar og aðrir, þrívegis ónýt- isför til Helsingjaeyrar að fagna henni. Hún var á ferðasnekkju þeirra hjóna, •Viktoria and Albert*. |>að var bert gert almenningi ídag, að tvær helztu og mestu bókverzlanir hér, Gyldendals og Nordisk Forlag, hafa gert með sér félagsbú, hlutafélag, er nefnist »Gyldendals Boghandel, Nordisk Forlag«, og er Jakob Hegel formaður félagsins, en Gustav Philip- Ben varaformaður og þeir Ernst Boj- sen, Peter Nansen og August Bagge (mágur Hegels) stjórnendur. Bústofn- inn er sagður vera 4—5 miljónir króna, og er bókverzlun þessi þar með ein- hver hin stærsta f allri álfunni, með því að áður voru margar meiri háttar bókverzlanir (Reitzels, Philipsens, BojeBens o. fl.) runnar saman við Nordisk Forlag. Gyldendals bókverzl- un elzt og frægust á Norðurlöndum 150 ára. Engin stórtíðindi orðið frá því síð- ast á Balkanskaga. Pétur aum- ingi Serbíukonungur er alveg í greip- um konungsmorðingjauna, sem munu ekki horfa í að stytta honum aldur eins og fyrirrennara hans, ef hann ber við að reyná að gera annað en það, sem þeim Hkar. Svartidauði hefir gert vart við sig í Marseille á Frakklandi og orðið þar að bana nokkrum tugum manna, áður við yrði gert. Hafði fluzt þang- að með fatatuskum austan úr löndum, ætluðum til pappírsgerðar. |>ærskyldi síðan brenna, en þá brann pappírs- verksmiðjan öll. Ekki stendur mikill ótti af því, að sóttin færist út. Búist við uppreistarófriði f Columbíu í Ameríku, útaf Panama- skurðinum væntanlega meðfram. f>ing- ið þar ónýtti í sumar samning við Bandaríkin um skurðargröftinn og þótti það heimskulega gert. Sá hluti lands- ins, þar sem skurðurinn á að liggja og væntir sér mestra hagsmuna af hon- um, vill því segjasig úrlögum við ríkið og komast að samningum aftur við Bandaríkin. Nefnd sú, er Danir sendu í vetur vestur um haf til að rannsaka hag VeBturheimseynna Dönsku og gera tillögur um viðreisn þeirra, hefir látið uppi nýlega álit sitt. f>að er stór bók með allmiklum fróðleik. Bankastofnuu er eitt framfarafyrirtæk- ið, er hún stingur upp á. Annað er ýmsar Iandyrkjuframkvæmdir. Ferð með fiskirannsóknaskipinu „Thor“. Eftir Bjarna Sœmundsson. II. Hér um bil 15 mílur suður af Vest- manneyjum er dýpið orðið 1000 fðm. Út á þetta mikla dýpi héldum vér í blíðu veðri sunnudaginn 12. júlí og námum staðar nærri 20 mílur suður af Bjarnarey og var þá komið svo langt, að Eyjafjallajökull var horfinn »undir háa bylgju bláa«, en þó ekki nema að eins. Var fyrst mælt dýpið og reyndist það 1140 fðm. f>ví næst var sett út botnskafa og voru gefnir út nærri 1300 fðm. af vírstreng. Kom hÚD aftur upp með dálítið af kross- fiskum og kröbbum, mikið af svömp- um og hörðum móhellukendum leir. Svo var botnvarpan sett út og var það ekki auðvelt verk að draga hana á svo miklu dýpi, víst hinu mesta er botnvarpa héfir verið dregin á. Tvisv- ar kom hún upp í hálfgerðu ólagi, en í þriðja skiftið gekk alt vel og sýndi Jörgensen skipstjóri þar dugnað sinn i því, að fara með það veiðarfæri. Varpan var dregin í botni í tæpa kl.- stund, en 4 stundir liðu frá því að hún var sett út og þangað til hún kom upp aftur. í hana fekst nokkuð af kröbbum, krossfiskum, ígulkerjum og svömpum, allstór blágrýtisklettur og 3 fiskar fáséðir; einn þeirra, álkynjaður fiskur, var lifandi, þrátt fyrir það þó Uppsögn (skrifleg) btmdin viÖ úramót, ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslnstofa blaðsins er Austurstrœti 8. 62. blað. af honum væri létt 270 loftþyngda vatnsþrýstingu. Annars voru flestir djúpfiskar dauðir þegar upp kom, með augun langt út úr höfðinu og öll inn- íflin út úr munninum, sökum þrýstings- léttisins að utan. — í sandsílavörp- una fengust hér ýsu- og karfaseiði við yfirborð. Á þessum stað og víðar var eðlisá- stand hafsins kannað. Til þess var haft verkfæri, fundið upp af Svíanum, próf. Petterson. þ>að er hylki, þannig útbúið, að það innilokar í sér nokkuð af sjó, á hvaða dýpi sem vill og svo vel varið fyrir áhrifum hita og kulda utan að, að sjórinn, sem inn í því er, heldur sínum hita, þangað til upp er komið. Er þar lesið á hitamæli, er stendur niðri í því og svo er tappað út nokkuð af sjónum til rannsókna á lofti því, sem í honum er og efnasam- setningu hans (seltu). Hitinn á þess- um stað var 2,7° í botni og svo smá- stígandi upp á við, þar til hann náði 10,5° í yfirborði. Utan af djúpinu var haldið inn und- ir Landeyjasand, og þaðan austurmeð Söndum, austur í Meðallandssjó, — 1 mílu undan landi, á 30—40 faðma dýpi. Var leitað þar fyrir fisk með botnvörpu og sandsílavörpu og fekst þar mest smákoli ýmis konar og annar smáfiskur, auk ýmissa óæðri botndýra. Á þeBSU svæði fengust þorskseiði frá í vor, er farin voru að leita botnsins, í Meðallandssjónum kom stór melróta- flyksa í vörpuna á40fðm. Jörgensen skipstjóri sagði mér, að þess konar kæmi þar oft 1 botnvörpur. Vér vorum heilan dag inni undir Meðallandsfjörum og Skeiðarársandi og hafði eg því gott tækifæri til að sjá þessa háskalegu strönd, er svo mörg frakknesk fiskiskútan, og á síð- ustu árum svo margir botnvörpungar hafa borið beinin á. Hún er ekki til- komumikil að sjá: eins langt og aug- að eygir til beggja handa lítur húnút eins og örmjótt dökt strik, hálf sund- urslitið þar sem ósar vatnanna eru. Hæðin yfir sjávarmál er sára lítil, svo ekki er unt að sjá hana fyr en komið er mjög nærri, og ef brim er og þoka eða myrkur, þá er ekkert til leiðbeiningar annað en dýpið og brim- hljóðið, sem þó er ilt að heyra, ef hvass vindur er af hafi. Leiðarljós þyrftu að vera á fleirum en einum stað og góður viti á Ingólfshöfða. |>að þyrfti líka að vera góður viti á Dyrhólaey og bráðnauðsynlegt að fá góðan vita einhverstaðar á Veatmann- eyjum og svo hæfilega sterkan vita einhverstaðar á svæðinu milli |>or- lákshafnar og Selvogs, |>að er ekki altaf sólskin og birta á útmán- uðunum á svæðinu milli Vestmanneyja og Beykjaness. |>að vita þeirbezt, er eiga að standa þar vörð nótt eftir nótt, og þeir eru ekki fáir. Já, það vantar enn marga vita á vor mörgu lands- horn, en vitamálið er þýðingarmikið velferðarmál fyrir fiskiveiðar vorar og siglingar og því verður bráðlega að gefa meiri gaum «n hingað til. Frá Ingólfshöfða var haldið 10 míl- ur í suðaustur til að skygnast eftir fiska-ungviði. þaðan var eftir stutta dvöl haldið upp undir Eystrahoru og

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.