Ísafold - 28.11.1903, Qupperneq 2
290
áfrýjuðu héraðsdómnum í sumar, en
nú hefir æðsti réttur staðfest hann.
Hegningin er 5 ára tugthúsvinna.
Alt af gengur mikið á á Englandi
um tollmálaþrasið milli Chamberlains
og andstæðinga hans. það er síðast
þar frá að segja, að Rosebery lávarð-
ur hefir heitið á alla frjálslynda
flokka á Englandi að taka saman
höndum til að verjast ófögnuði þeim
og ófarnaði, er Bretaveldi myndi líða,
ef Chamberlain fengi sinni fyrirætlun
framgengt. Oflugasti framfaraflokkur-
inn, sá er Campbell Bannerman ræð-
ur fyrir, hafði áður losað sig við Eose
hery, með því hann þótti vilja hér-
villast í landstnálum. En nú býst
Bosebery til að slétta yfir þá móðgun
og gerast aftur einlægur bandamaður
hinna, og er búist við, að því verði
vel tekið.
J. C. Poestion.
Zur Geschichte des islúnd-
ischen Dramas und Theat-
envesens. Mayer & Ko.
Wien 1903.
í riti þessu hefir hinn góðfrægi höf.
tekið sér fyrir hendur að skýra sér-
staklega frá íslenzkum leikritaskáld-
skap og leiksýningum frá fyrstu byrj-
un og fram á þessa tíma, og hefir
hann leyst verkefni sitt af hendi svo
vel, að naumast mundi neinn innlend-
ur hafa betur gert, eða enda ef til
vill jafn vel. Efnið í þessari grein
bókmentasögu vorrar er svo fáskrúð-
ugt, einkum framan af, og svo fult
af eyðum, að það var ekki lítil fyrir-
höfn að tína saman það, sem svo
mjög var á víð og dreif, og þá ekki
minna vandaverk, að halda í því þræð-
inum og koma því í skipulega heild,
en þetta hefir tekizt mæta vel, ekki
síður en í hinum fyrri ritum höf. um
ísland og íslenzkar bókmentir. það
er ekki annað mögulegt, en að dást
að elju, nákvæmni og vaudvirkni höf.
annarsvegar, og hinsvegar að hinni
skörpu dómgreind hans, er til heildar-
innar kemur. Hér er alt svo vel
rakið og ljóslega framsett, að bók
þessi er einnig sérstaklega fróðleg
fyrir hvern íslending, sem þetta efni
vill kynna sér, og á höf. rniklar þakk-
ir af oss skildar fyrir að hafa sarnið
rit þetta; enda hefir það líka ýmislegt
að geyma, sem ef til vill hefði fyrnzt
og gleymzt, ef hann ekki hefði haldið
því til haga og safnað upplýsingum,
sem seinna yrðu ófáanlegar, með því
alls ekki er víst að neinn Islendingur,
sem til þess er fullfær, taki efni þetta
svo bráðlega til meðferðar.
Annar íslandsvinur, Karl Kiichler,
hefir einnig skráð nokkuð um það í
riti BÍnu: »Geschichte der isl. Dichtung
der Neuzeit« (1800—1900) og annan
þátt um það: »Zur Geschichte der
isl. Dramatik«, og er það góðra gjalda
vert, en þetta rit tekur því talsvert
fram að fyllri framsetningu, meiri ná-
kvæmni og gleggri gagnrýni.
Höf. byrjar rit sitt með þessum
orðum:
*Eins og kunnugt er, hafa hinar ný-
íslenzku bókmentir framleitt sín feg-
urstu blóm á sviði ljóðkveðskaparins
(Lyrik), fyrst hins andlega en síðan
hins veraldlega, einkum á 19. öldinni.
Ljóðkveðskapur íslendinga hefir, með
skáldlegu flugi og þjóðlegum einkenni-
leika, látið svo á sér bera, að honum hef-
ir þegar verið unt sætis í heimsbókment-
unum, sem ekki verður vefengí, að
honum beri með réttu«. Setur höf.
íal. skáldsöguritun og leikritagerð skör
lægra, það sem af er, meðfram af
því, að þessar skáldskapargreinir séu
sprotnar af útlendum áhrifum. Að
því er hina sfðari snertir, kemst hann
svo að orði, að leikritabókmentir ís-
lands »líkist enn þá útlendri gróður-
hússplöntu, þó öll merki séu til, að sú
skáldment muni einnig á íslandi eiga
aflmikinn gróður í vændum. |>ó er
enn lakar ástatt með leikaramentina,
því þar vantar, að menn geti haft út-
leudar fyrirmyndir fyrir augum«.
Höf. lýkur lofsorði á margc í hin-
um íslenzku leikritum og skýrir frá
innihaldi hinna helztu, en segir
að öðru leyti kost og löst á þeim með
hispursleysi, sem er jafn langt frá
óbilgirni í dómum sem ósönnu lofi, og
þræðir þannig réttan meðalveg. **
»Thore«-félagið.
Formaður þess félags, stórkaupmað-
ur Thor E. Tulinius hefir nýlega
keypt stórt gufuskip, stærra en »Kong
lnge«, í viðbót við þau 3, er félagið
átti undir. Skipið heitir »Scotland«,
hleður 1000 tons, tekur 50 farþega á
1. farrými, hefir auk þess 2. og 3.
farrými, bæði rúmgóð, er hraðskreitt
og að eins 13 ára gamalt. f>að er
ætlað til stöðugra ferða næsta ár til
Suður- og Vesturlands en »Kong Inge«
til Austur- og Norðurlands.
Laura
kom hingað að kvöldi 24. þ. m.,
þrem dögum fyrir áætlun. Með henni
komu: bæjarfógeti Hannes Hafstein,
bankastjóri Emil Schou, Ólafur véla-
fræðingur Hjaltested, Helgi og Jón Jón-
assynir (Helgasonar) frá Ameríku, 2
katólskir prestar, 2 kvendátar í Hjálp-
ræðisherinn o. fl.
Landburður
af netjafiski er nú í Garðinum hjá
þeim fáu, sem þau veiðarfæri hafa,
og jafnframt hafa þor til að nota þau,
en það er ekki nema fyrir mestu full-
huga, því að
Botnverpingar aru þar eins og
víðar með vörpur sínar og sópa í þær
öllu sem fyrir þeim verður, fiski og
veiðarfærum. f>að er ^kki nema fyrir
Finnboga Lárusson og hans nóta að
staudast slíkan ófögnuð og þó hefir
hann orðið fyrir nokkru tjóni á veið-
arfærum; hafa botnverpingar stolið
þeim en ekki rænt, því Finnbogi læt-
ur ekki sinn hlut lausan fyrir nokkr-
um manni, jafnvel ekki botnvörpung-
um. f>að sem hann nær hendínni til,
það er fast, ef hann vill ekki sjálfur
sleppa.
íslandsbauki
tekur að líkindum eigi til starfa fyr
en einhvern tíma á næsta vori. Banka
stjórinn danski, Emil Schou, kom að
vísu núna með Lauru til að undirbúa
hér í Rvík undir komu bankans, út-
vega húsnæði, ráða starfsmenn o. s.
frv., en auk þess er enn eigi lokið
prentun seðla og ýrasum öðrum und-
irbúningi, og þar á meðal að ráða
íslenzka bankastjórann.
Lög: samþykt.
f>essi lög frá síðasta alþingi hefir
konungur staöfest og undirskrifað 23.
október.
1. Fjárlög fyrir árin 1904 og 1905.
2. Fjáraukalög fyrir árin 1902 og
1903.
3. Lög um heilbrigðissamþyktir fyrir
bæjar- og sveitarfélög. (Isaf. bls.
208).
4. Lög um varnir gegn berklaveiki.
(ísaf. bls. 223).
5. Lög um frestun á framkvæmd
laga 25. október 1895 um Ieigu I
eða kaup á eimskipi og útgerð
þess á kostnað landssjóðs.
6. Lög um viðauka við lög um með-
gjöf með óskilgetnum börnum o.
fl. frá 12. janúar 1900 (ísaf. bls.
203).
7. Viðaukalög við Iög Nr. 17, 13.
septbr. 1901, um breyting á til-
skipun 20. apríl 1872, um bæjar-
stjórn í kaupstaðnum Reykjavík.
(ísaf. bls. 200).
8. Heimildariög um áfangastaði. (Isaf.
bls. 183).
9. Lög um breyting á lögum Nr. 8
um vegi, frá 13. apríl 1894. (ísaf.
bls. 208).
10. Jjög um breyting á 1. gr. í lögum
Nr. 24 frá 2. okt. 1891. (Laun
bankabókarans).
11. Lög um gagnfræðaskóla á Akur-
eyri.
12. Lög um leynilegar kosningar og
hlutfallskosningar til bæjarstjórna
í kaupstöðum.
13. Lög um lífsábyrgð fyrir sjómenn
er stunda fiskiveiðar á þilskipum.
(ísaf. bls. 227).
14. Lög um ráðstafanir til útrýming-
ar fjárkláðanum. (ísaf. bls. 208).
Hlutabankinn.
Af hluthafa hálfu eru þessir 3 vald-
ir í bankaráðið fyrir þann banka.
Ludvig Arntzen, hæstaréttar-
málafærslumaður.
P. O. A. Andersen, ríkisskulda-
deildarstjóri hjá fjármálaráðherran
um.
Kielland Torkildsen, forstjóri
centralbankans í Kristjaníu.
|>að er ætlast til að þeir ferðist til
Reykjavíkur í sumar, til fundarhalds
þar, ásamt þeim 3 bankaráðsmönnum,
sem alþingi kaus 1901, svo og íslands
ráðherranum, sem er formaður banka-
ráðsins.
Bankastjórar við hlutabankann eiga
að vera 2, annar danskur en hinn
íslenzkur.
Altarisganga í Ládegisniessunni á morgun.
S k r i f t i r kl. II1/,.
Engin síödegisguðsþjónusta.
„Aldan“.
Aukafundur verður haldinn í Báru-
húsinu næstkomandi miðyikudag kl. 5
e. m., og verður þar gerð fullnaðar-
ákvörðun urn hvort félagið vill koma á
fót síldarveiði með reknetutn næsta
sumar.
Þeir félagsmenn sem á einn eðut'
annan hátt ætla að styðja að því fynr-
tæki eru beðuir að uiæta á furtdinum.
S t j ó r n i n.
Lotterímiðar
sendir gegn fyrirfram greiðslu. —
I þesssum untgangi eru 118000 hlutir
(miðar) en 75000 vinnirtgar. Hlutir við
1. drátt kosta I kr., við 2. drátt 1,50,
við 3. dr. 2 kr., við 4. dr. 3 kr., við
5. drátt 3,60 og við 6. drátt 4 kr.
Vinningum ráðstafað að undirlagi vinn-
anda. 1. dráttur fór fram 18. og 19.
nóvbr.; í 2. sinn verður dregið 16. og
17. desember.
Thomas Thomsen
yfirréttarmálafærslum.
Gl. Strand 38. Köbenhavn. K.
Löggiltur hlutasali fyrir hið almenna
danska vöru- og iðnaðarlotterí.
Púður og Högl
bezt í verzlun
W, Fischers.
eru beðnir
að vitja Isa-
foldar í af-
greiðslustofu blaðsins, Austurstræti 8,
þegar þeir eru á ferð í bænum.
Ymsar
mafvörufegunóir
svo sem rú gur, g r j ón, banka-
b y g g og margt fleira fæst með góðu
verði í V E RZ L U N
Björns Kristjánssonar.
Frímerki.
Islenzk frímerki, notuð og óuotuð,
afbrigði að oddun og í prentun eru keypt.
Segið til verðs.
Harry Ruben.
Ny Halmtorv. Khavn.
i-3 CD s
P i—'
œ
j. G.i,, j
Q/ i-S Cl sp Q* m
cr C ! SS
o 1
o* GTQ
O'
p o Cl
B 3
S kmmmmmumá c,
P O:
w 1 GfQ # =
Nýtt með Laura
MANCHETSKYRTUR
hvítar og mislitar. Alls konar
HÁLSLÍN. Mjög fáséðir
HNAPPAR, SLAUfUR,
hvítir og mislitir
VASAKLÚTAR, franskir.
Ullarnærlötiu f>óðu.
Millifatapeysur, úr alull
komnar aftur.
Barnasvuntur, barnakjólar,
millipils handa fullorðnum
o. m. m. fl.
Alt framúrskarandi ódýrt.
1. VELTUSUND 1.
Krstín Jónsdöttir.
Zeolinblekiö góða
er dú aftur komið I afgreiðslu Isafoldar.
VERZLUN
■■
m
0 © g %
cTbýRomió meó JSaura
Enskt vaðmál margar tegundir
Hroknu sjölin
XJHarhálsklútar
piðurhelt léreft
MiHi fata-peysnr
Slifsi, mjög falleg
Milhpils
Sængurdúkur.
JEairvörur,
Pa/ípappi)
Agæt Ofnkol
í W. Fichers-verzlun