Ísafold - 26.03.1904, Qupperneq 1
'Kenmr út ýmist einu sinni eða
tvisv. i viku. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
l'/j doll.; borgist fyrir miðjan
’úlí (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skmfleg) bnndin við
áramót, ógild nema komin sé ti >
útgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslustofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
XXXI. árg.
Reykjavík laugardaginn 26. marz 1904
16. blað.
Jiuóstadi JiaA^aAhv
1. 0. 0. F. 854l8‘/j. I. E.
Augnlœkning ókeypis 1. og 3. þrd. á
ijiverjum mán. kl. 11—1 í spltalanum.
Forngripasafn opið mvd. og ld 11
—12.
Frilotkning á gamla spitalanum (lækna-
-skólanum) á þriðjudögum og föstudögum
41. 11-12.
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa op-
in á hverjum degi kl. 8 árd. til kl. lOsiðd.
Almennir fundir á hverju föstudags- og
ounnudag8kveldi kl. 8'/j siðd.
Landakotskirkja. Guðsþjónusta kl. 9
<ag kl. t> á hverjum helgum degi.
Landakotsspítali opinn fyrir sjúkravitj-
«ndur kl. 10V2—12 og 4—6.
Landsbankinn opinn hvern virkan dag
41 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
Bankastjóri við kl. 11—2.
Landsbókasafn opið hvern virkan dag
41.12—3 og kl. 6—8.
Landsskjalasafnið opið á þrd., fimtud.
,og ld. kl 12—1.
Ndttúrugripasafn, i Yesturgötu 10, opið
k sd. kl. 2—3.
Tannlœkning ókeypisíPósthússtræti 14b
1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1.
Miljóna-þingið.
600—700 þúsunda lialli.
Svo hefir síðasta alþingi verið nefnt.
J>að hefir verið skírt miljóna-þingið.
Öllnm mætti þykja vænt um, ef
fjárhagsáætlun vor skifti mörgum milj-
ónum króna. |>á væri fremur en er fé
fyrir hendi til þjóðnauðsynja vorra.
En miljónaþingið hafði því miður
ekki slík fjárlög til meðferðar.
|>að voru að eins útgjöld landsins á
næsta fjárhagstímabili, sem því tókst
að láta skifta miljónum; en tekjurn-
ar voru líkt og að undanförnu eða
liðug hálf önnur miljón, og var þó víst
reynt að teygja úr þeim svo sem hægt
var; enda hafa víst sjaldan verið
rninni líkur en nú til þess, að tekj-
nrnar fari fram úr áætlun.
En þrátt fyrir það enda fjárlögin
með því, að liðugar 400 þúsund krón-
ur vantar til þess, að tekjurnar hrökkvi
fyrir útgjöldunum, og þegar þar bæt-
ast við öll önnur útgjöld, sem samþybt
voru með öðrum lögum, þá stendur
fjárhagsáætlunin þannig við þinglob,
að
6—700 þús. kr. vantar
til, að landssjóður geti greitt gjöld sín.
En miljóna-þingið lætur ekki hér við
lenda.
Landssjóður á hér á ofan að taka
til láns hálfa miljón króna til gadda-
vírskaupa fyrir bændur, til að girða
með öll tún á landinu á næstu 5 ár-
um.
Að vísu er þetta kallað lán, sem
bændur eiga að borga á ékki skemmri
tíma en 41 ári, þótt enginn allra þings-
ins gaddavírsfræðinga þori að fullyrða,
að girðingarefni þetta endist lengur
en 12—16 ár.
Sé litið til skilvísi vora að undan-
förnu í greiðslu landsjóðslána, þá geta
víst fáir látið sér detta í hug, að þessi
hálfa miljón verði nokkurn tíma að
fullu endurgreidd landssjóði, verði hún
annars nokkurn tíma notuð, nema ef
það ætti að gjöra endurgreiðBlu þessa
láns vissari en annarra landsjóðslána,
að íslenzku bændurnir eiga að hafa
þá ánægju, að borga það að minsta
kosti 20 ár eftir að enginn örmull er
eftir af girðingum þeim, er forfeður
þeirra reistu fyrir fé þetta.
þetta eru fjármála-afrek miljóna-
þingsins, og fyrir þau hefir það fengið
nafuið.
Enginn tekur til þess, þótt þingið
verji fé landsins í drjúgum mæli til
arðvænlegra og nauðsynlegra fram-
kvæmda og fyrirtækja, séu skynsam-
legar tryggingar fyrir því, að fjárveit-
ingar þess bomi að tilætluðum notum.
Meðal vor er þörf á miljónum til
andlegra og verblegra framfara.
En þeirri þörf er lítt borgið, þótt
fé landsins sé bruðlað, sumpart í fjár-
veitingar, sem mjög er tvísýnt að komi
að noturn, sumpart til þess, er vel má
dragast þjóðinni að meinfangalausu,
og sumpart í allsendis ónauðsynlega
og enda stórhneykslanlega bitlinga til
einstakra manna.
f>ess háttar fjárveitingar má telja í
tugum og enda hundruðum þúsunda
króna á síðasta þingi, og því er lands-
sjóði með sama áframhaldi stofnað í
hrein og bein fjárþrot.
Rangt væri að bregða síðasta þingi
um skort á fro.mfaraviðleitni, þótt ár-
angurinn yrði fremur lítill. Fram-
farakippirnir voru oft mjög harðir;
það voru framfara-kapphlaupmillihinna
heiðruðu fulltrúa, en forustulítið og
oft athugalítið kapphlaup, sem jafnan
er hætt við að endi með fleiri eða
færri gönuskeiðum.
Hygnir búmenn fresta oft þeim út-
gjöldum, sem fresta má að skaðlausu
fyrir bú þeirra, heldur en að hleypa
sér í skuldir, og ekkert er þeim fjær
skapi en að eyða bústofni sínum í ó-
þarfa og glingur. þeirra aðalregla í
búskapnum er, að sníða sér stakk eft-
ir vexti.
t framfara-kapphlaupinu á síðasta
þingi hefir þessarar reglu lítt verið
gætt.
Sumir hinna gætnari þingmanna
finna reyndar sáran til vandkvæðanna
í fjármálameðferð þingsins; þeim of-
býður handagangurinn í landsjóðs-
öskjunum, en fá engu við ráðið.
í orði kveðnu kannast og margir við,
að fjárhagurinn sé fremur bágborinn.
En þegar til atkvæðanna kemur, þá
þarf þetta björdæmið að fá þessar
þúsundirnar, þessi náungi þennan bitl-
inn; það þarf að hlaupa undir bagga
með sýslusjóðunum og sveitarsjóðun-
um, og krónurnar streyma í tugum
þúsunda til margs þess, sem nauðalitlar
líkur eru til, að þjóðinni sé til nokk-
urs verulegs gagns.
Svo endar alt framfarabramlið með
því, að ekki er éinn eyrir eftir í lands-
sjóðnum, jú, vantar hátt upp í miljón
krónur til þess að geta greitt af hendi
öll hin samþyktu útgjöld.
|>á er visað á viðlagasjóðinn.
Það er svo sem ekkert tiltökumál,
þótt gripið 8é til viðlagasjóðsins til
bráðnauðsynlegra framkvæmda, eins
og t. d. útrýmingar fjárkláðans, þótt
reyndar sé meira en vafasamt, að
honum verði algerlega útrýmt hér á
landi; en þar er um þjóðarnauðsyn
að ræða.
En þegar farið er að eyða þessum
viðlagasjóðskrónum í brutl og bitlinga,
þá hefir þeim til lítils gagns safnað
verið.
Annars ætti þingið að fara mjög
varlega í, að eyða þessum litla við-
lagasjóði, þegar framtíðarhorfurnar eru
ekki glæsilegri en nú gerast þær.
Landbúnaðurinn er talinn standa á
mjög völtum fæti og hrópar ár frá ári
á meira fé sér til viðreisnar; og sjáv-
arútvegurinn er fremur í hnignun en
framför, og fólkið streymir þúsundum
saman af landi burt.
jpjóðin virðist því alls ekki að þessu
leyti vel við því búin, að taka á móti
stórkostlega auknum skattálögum, sem
verða því óhjákvæmilegri, sem rösklegar
er að því unnið, að eyða því litla,
sem til er.
jpegar svona er ástatt, er fremur
ástæða til varfærni í fjármálum lands-
ins, en að ausa fé til ýmissa fjárveit-
inga, sem mjög er tvísýnt að komi
landinu að nokkrum verulegum notum,
— eða þá eru þess eðlis, að þær mega
vel bíða, þar til betur árar. —
Ef síðasta þing hefði haft þetta fyr-
ir augum í meðferð fjárlaganna og
annarra fjármála, þá hefði tekjuhallinn
sjálfsagt orðið drjúgum minni; en þá
hefði líka ef til vill verið minna látið
af framfaraviðleitni miljónaþingsins.
En ætli að framfarirnar verði ekki
endasleppar, ef mörg þing skilja við
fjármál landsins eins og þetta þing?
þ>að verður engin þjóð framfaraþjóð
með ráðlítilli méðferð á fé sínu; eyðslu-
seminni fylgir oftast sultur og seyra,
og þjóðmenning og sjálfstæði eru aldrei
í för með slfkum hjúum. —
jpetta er fyrsta sporið á þjóðræðis-
brautinni, brautinni sem á að liggja
til aukinnar hagsældar, menningar og
sjálfstæði þjóðarinnar.
það er óneitanlega ekki höfðing-
lega úr hlaði riðið.
En nýja stjórnin á líka að taka 1
taumana þegar í stað. .
Hún á að finna góð ráð til að auka
tekjurnar, svo að eitthvað verði til að
moða úr.
Síðasta þing mátti ekbi vera að því.
jpað hafði aðeins tíma til að auka út-
gjöldin, svo að það gæti kastað tómri
pyngjunni í nýju stjórnina.
Um þetta koma þær vinkonurnar
Heimastjórn og Framsókn sér prýði-
lega samau, þar sem þær sitja með
tvær hendur tómar yfir tómri lands-
sjóðsskrínunni. f>ær þvo sér um hend-
urnar eftir öll eldhússverkin og heita
síðan á nýja ráðherrann að hjálpa sér
að rétta við fjárhaginn.
Fyrsta verk nýju stjórnarinnar verð-
ar því það, að finna ráð til viðreisnar
fjárhagnum—, hún verður að koma
fram fyrir næsta þing með tillögur
um stórkostlega auknar skattálögur
á þjóðina.
Vér heimtum ötula og frarakvæmd-
arsama framfarastjórn og tölum borg-
inmannlega um alls konar framfarir;
en í sömu andránni búum vér svo í
hendurnar á þessari stjórn, að fyrsta
verkið hennar er að leitast við að
bjarga landinu frá fyrirsjáanlegum fjár-
bröggum sökum fjárráðsmensku alþing-
is.
|>etta er óneitanlega síður en eigi
skemtilegt fyrir fulltrúaþing þjóðarinn-
ar.
f>að hefði verið ólíkt skemtilegra að
byrja þjóðræðistímabilið með góðum
fjárhag og geta þegar heimtað af stjórn-
inni, að hún léti atorku sína og þjóð-
rækni lýsa sér í því, að gjörast þeg-
ar á næsta þingi frumkvöðull þjóðlegra
framfarafyrirtækja, með því að fé væri
fyrir hendi til þeirra í landssjóðnum, i
stað þess að nú verður að byrja á því
að útvéga fé.
|>egar svo er í garðinn búið, getur
þingið ekki vel verið mjög heimtufrekt
við stjórnina. f>að stóð ólíkt betur að
vígi gagnvart henni, ef fjárhagur lands-
ins hefði verið nokkurn veginn góður,
er hún tók við völdum.
Að því mátti ganga vísu, að stjórn-
in yrði skipuð þeim mönnum, er kunn-
ugir voru högum þjóðarinnar og gátu
helgað stjórnarstörfunum alla krafta
sína.
f>etta var auk þess, sem áður er
tekið fram, ærin hvöt fyrir síðasta
þing til að vera enda venju framar
varfærið í fjármálum og fresta heldur
afgreiðslu mikilla vandamála en að
flaustra þeim af lítt hugs>iðum og lítt
undirbúnum.
Sá var á næsta nesi, er gat íhugað
þau og undirbúið til næsta þings miklu
rækilegar en þetta þing átti kosti á.
Eg á við hina nýju stjórn.
Túngirðingamálið, sem í raun og
veru er mjög mikilsvert mál, hefði t.
d. haft betra af að bíða til næsta þings
til undirbúnings og athugunar fyrir
stjórn og þjóð, en af öllu flaustrinu og
bráðlætinu & síðasta þingi, sem veldur
því, að áfellisdómar þeir, sem upp
hafa verið kveðnir um lög þessi, eru
þvi miður í flestum greinum alveg
réttir.
Allmargar f járveitingarnar hefðu einn-
ig vel mátt biða til næsta þings; þær
hefðu þá verið betur athugaðar og fjár-
. hagurinn betri.
Nu munu allir telja sjálfsagt, að út-
vega verði landssjóði nýjar tekjur á
næsta þingi.
f>að hefði helzt átt að gera það á
siðasta þingi.
Hvað var í raun og veru sjálfsagð-
ara en að auka tekjurnar um leið og
útgjöldin voru hæbkuð svona stórkost-
lega?
þá hefði þing og stjórn átt hægra
með að ráða frarn úr ýmsum nauð-
synjamálum þjóðarinnar á næsta þingi
heldur en nú eru líkur til, eftir því
sem fjárhagnum mun verða farið.
f>egar það er fysirsjáanlegt, að auka
verður tekjur landsins, þá er alls ekki
hyggilegt að draga það þar til fjár-
hagurinn er kominn í óefni, svo að
demba verði þungum sköttum á þjóð-
ina, hvernig sem á stendur og hvernig
sem í ári Iætur.
f>að er líka mikill munur á því, að
leggja nýja skatta á gjaldþegna Iands-
ina til framkvæmdar nauðsynlegum
framfarafyrirtækjum, er alla þjóðina
varðar, eða til þess að bæta úr fjár-