Ísafold - 27.04.1904, Page 3
°g byrja á einhverjum framkvæmdum
í þessa átt, t. d. gera út 2 skútur
til reyuslu.
Heyrat hefir mér á einstöku manni,
að einfaldaBta ráðið til að bæta úr
fiskþörf bæjarin8 væri, að gera út
botnvörpung og láta hann fiska handa
bænum. það væri líka ágætt ráð, ef
bærinn væri nógu stór eða vildi gjalda
nógu mikið fyrir fiskinn. En, eins og
nú stendur á, býst eg ekki við, að það
mundi bera kosíinaðinn, jafnvel þóttsá
fiskur, sem ekki gengi út, yrði verk-
aður til verzlunar.
Oðrum hefir dottið í hug að fá út-
lenda botnvörpunga, er veiða hér þorak
til söltunar, að koma hingað inn og
selja bæjarmönnum smáfisk, ýsu og
kola. f>að gæti ef til vill rekið að
því, ef fisk yrði ekki öðruvísi að fá og
er enda að vissu leyti byrjað (botn
vörpungar þeir, er fiska handa Edin-
borgar-verzluninni), hve lengi sem það
stendur.
Eeykvíkingar og nágrannar þeirra,
þar á meðal Akurnesingar, ættu að geta
aflað sjálfir þess fisks, er bærinn þarfn-
ast. Og í þeirri von, að þeir g e r i
það, enda eg þessar línur.
Botnvörpungar hjálpa.
|>eir mega eiga það, botnvörpung-
arnir ensku, svo mikið mein sem þeir
vinna oss oft ella, að þeir eru mjög greið-
viknir og hjálpfúsir við landsmenn í
nauðum stadda á sjó.
Eitt dæmi af því er ísafold skrifað
núna frá Vestmanneyjum:
þriðjudag 5. þ. m. (apríl) reru allir
fiskibátar hér snemma nætur í blíðu
veðri; en er á daginn leið og um það
leyti er þeir fyrstu voru að koma af
sjó, hvesti hann svo á vestan útsunn
an, að bátar þeir, 6r langt voru undan,
hefðu naumlega ná' landi hjálparlaust
eða að minsta kosti ekki fyr en seint
um kveldið.
Um það leyti, er veðrið var skollið
á, komu hér inn á leguna nokkrir ensk-
ir botnvörpungar til að leita sér skjóls.
j?á kom Gísla kaupm. Jónssyni í
hug, ungum og ötulum vaskleikamanni,
að reyna að fá einhvern þeirra til að
sækja bátana sem eftir voru.
Hann fekk með sér þá Hannes
Jónsson hafnsögumann og Guðjón
bónda Bjarnason til leiðbeiningar, er
festa skyldi bátana, ef til kæmi, og líta
eftir þeim.
Flestir höfðu botnvörpungarnir lagst
nm akkeri, en einn var laus. Hann
var nýkominn með skip er hann hafði
bitt á leið sinni og boðið að verða aft-
ftn í sér heim óbeðið. Sá hét Cryst-
aHte, skipgtj. W. Sörensen. Gísli
kaupmaður kallaði upp til hans á stjórn-
pallinn og spurði, hvort hann vildi
gera sér þann mikla greiða, að fara
austur fyrir Eyjar og leita þar uppi
og sækja báta, er þar mundu vera og
naumast mundu ná landi hjálparlaust.
Skipstjóri svarar viðstöðulaust:
»1 will do for you what you like«.
Hann eimdi því næst með þá félaga
beint austur fyrir Bjarnarey. þar
bittu þeir 2 báta og var annar að draga
lóð, en hinn á siglingu. þeir urðu
mjög fegnir hjálpinni; mjög tví-
sýnt hvort þeir næðu landi ella. þeim
var tylt aftan í botnvörpunginn og þá
haldið heimleiðis. En er komið var
í nánd við Erlendsey, sást hvar 2 bát-
ar lágu austan undir henni í skjóli;
þeir treystuBt eigi að halda lengra
vegna roksins.
Skipstjóri hét að fara aftur eftir
þeim, er hann hefði komið hinum tveim
heim, og það gerði hann.
Fyrir alla þessa fyrirhöfn vildi hann
ekki þiggja einn eyri.
Annar botnvörpungur kom þennan
sama dag með mannlausan bát, er
brotnað hafði nokkuð og slitnað aftan
úr, en skipshöfn af honum komin upp
í skipið, annan botnvörpung. Það skip
heitir Selanon, skipstj. Arthur Smith,
og hafði bjargað í fyrra bát í róðri frá
Vestmanneyjum, er mundi hafa farist
ella. Fyrir tilhlutun yfirmannsins á
Heklu (varðskipinu) fekk skipstjóri
fyrir það verðlaun frá stjórninni í
Khöfn, silfurbolla með nafni hans á-
letruðu og þrekvirki þessu hinu drengi-
lega.
Strand Inga kongs.
Einn farþeginn þar, Jóh. Vigfússon
konsúll frá Akureyri, hefir ritað Norð-
url. ítarlegri skýrslu um slysið það og
róttari en dönsk blöð fluttu, en eftir
þeim var höfð frásögniu f Isafold um
daginn.
Skipið hafði lagt á stað frá Akur-
eyri 2 dögum áður, sunnud. 20. marz,
og byrjað þá ferðalagið á því, að sigla
upp á Toppeyrargrunn við Eyjafjörð;
var þar fast ll/2 stund.
Klukkan var tæplega 3 aðfaranótt
þriðjudags, 22. marz, er skipið heyrist
hrína einu sinni snöggvast og nemur
þá staðar að vörmu spori. »Eg sá
ekki neitt fyrir hríð« segir bréfritarinn,
»og hljóp niður; en í því brunaði skip-
ið yfir flúðir, og hélt eg fyrst, að vér
hefðum rekið oss á ísjaka; en fljótlega
vis8Í eg, að það var ekki; því skipið
hjó hvað eftir annað niðri. Eg vakti
svo þá farþega í fyrsta farrými, sem
voru ekki vaknaðir. Vér vorum 7, þar
af 1 kvenmaður. En í 2. farrými
voru 9 farþegar, þar af 1 stúlka og
2 ung börn á 1. og 2. ári.
Nú var beðið dagsbirtunnar. Skipið
hjó alt af í grjótinu. Vór vorum komn-
ir svo langt upp í grjótið, að hægt var
að fara á kaðli þurrum fótum niður f
klungrið. En í myrkrinu sýndist sem
vór hefðum lent undir hömrum, og
var annar stýrimaður sendur á land
með kaðal til þess að hægt væri að
bjarga fólki, ef á þyrfti að halda.
Hann átti mjög ilt að komast upp
fyrir hamrabeltið.
þegar kaðallinn var kominn á land,
var mesta hættan búin. Enda var
ekki mjög mikill sjógangur.
þegar bjart var orðið, þektum vér,
að vér vorum rétt skamt innan við
HafDarbæinn (í Bakkafirði).
Bátar komu nú fram og farþegar
sendu með þeim alt dót sitt.
Skipstjóri kennir því um, að komp-
ásinn sé vitlaus, og muni um lö—16
stigum frá réttvísun. f>ess vegna höf-
um vér lent hingað á tanganum í stað
þess að ná Vopnafirði. [f>að munar þó
4—5 mílum, sem Kollumúli við Vopna-
fjörð er sunnar].
Enginn ótti sást á farþegum. Enda
var þegar auðséð, að hér var ekki um
neinn lífsháska að tefla, veður stilt og
sjógangur nær enginn. Skipið liggur
grafkyrt, rótast hvergi né ruggar.
Skipstjóri hefir sýnt af sér mestu
stilling, rósemi og nærgætni við far-
þega — —«.
Bæjarbruni.
f>ess mun ekki hafa getið verið áður,
að í vetur, 19. janúar, brann bærinn á
þingvöliura í Helgafellstveit. f>að var
um miðjan dag. Heimafólk komst alt
út og bjargaði því sem það gat úr
baðstofunni, en búr og eldhús brann,
með öllu því, sem inni var, og var það
mikill skaði.
Hólmverjar brugðust drengilega við,
gengu í félög, karlar og konur hvað
sér, og öfluðu samskota, og munu bætt
hafa skaðann að mestu eða öllu, — er
skrifað þar vestan að.
Fuglveiði við Drangey. Um 53
þÚ8. fuglar höfðu veiðst þar í fyrra vor.
Sýslunefnd Skagfirðinga veitir verðlaun til
sandgræðslu í eynni með sáningu, 50 kr.
þetta ár, og annast það Jósef Björnsson á
Hólum. Sýslunefnd segir heimi'.t hverjum
sem vill að gera tilraunir með kartöflurækt
i eynni.
Snæfellsnesi 11. april. Vetur þessi,
sem nú er þegar á enda, hefir verið frem-
ur góður. Kýr gengu út i haust fram á
veturnætur og í stöku stað lengur; á jóla-
föstu kom nokkur snjór, en tók upp aftur;
með þorra var snjólaust; á þorra var norð-
anátt og austan, og næðingar, en ekki mik-
il fijnn Hefir viða ekki orðið haglaust
fyrir útigangsskepnur. Síðan í góulok hef-
ir verið hagstæður bati og munu því flest-
ir hafa nóg hey.
Bráðapestin mjög litið gert vart við
sig og eru því skepnuhöld góð alment.
Og almenn heilbrigði manna á milli.
Frá veiðistöðunum undir Jökli er það að
segja, að þar hefir fiskast vei i vetur af
vænum fiski; frá nýári til pásKa sagður
hæstur hlutur eitthvað á sjötta hundruð.
Heldur ósumarlegt veður.
Hór er og hefir verið alhvít jörð frá
því síðasta vetrardag, meira að segja
kaffenni hór niSur við sjó sumstaðar, og
jafnvel harðfetmi, eins og á þorra. En
frostið komist upp í 6 stig. Og ilt í
sjóinu mjög. Veður af ýmsurn áttum,
mest útsunnan þó, með fjúki nótt og
dag með köflum. Sólbráð hefir hvergi
nærri undan.
Fiskirannsóknaskipið Thor,
frá Danmörku, var hér á ferð í vik
untii sem leið, að byrja satnkyns leið-
artgur sem i fyrra og með sömu fyrir-
mönnum: Jörgensett skipstjóra, dr. Joh.
Smith, er fæst við fiskiratinsóknir, og
cand. Nielsen, er sjóiun rannsakar og
mararbotn. Hinn þriðji vísindamaður,
cand. Poulsen, er væntanlegur á skipið
síðar, á Astfjörðum.
Boðið hefir verið adjunkt Bjarna Sæ-
mutidssyni að vera með skipinu í sum-
ar, og hugsar hann til að þiggja það
boð um tíma.
Gufuskip ísafold kom hér i fyrra
dag frá Vestmanneyjum til Brydes-verzlana;
hafði lagt á stað frá Khöfn 9. þ. m., degi
síðar en Laura, og kom við i Vik.
Farþegi með þvi hingað var Gísli kaupm
Jónsson.
Póstskip Laura (Aasberg) kom aftur
í gærmorgun af Vestfjörðnm.
Með henni kom frá lsafirði ráðherrafrú
Ragnhe.iður Hafstein og börn þeirra öll 5.
krónnr hafa tapast á götum hæjar-
ins. Skila má i afgr. Isaf.
Til leiiru 9 herbergi með góðri geymslu
nú þegar. Ritstj. visar á.
2 loftherbertii fást til leigu frá 14.
mai þ. á. i Ingólfsstræti 5.
5 herbergi og eldhús
eru til leigu frá 14. maí i Þingholtsstr. 23.
D. 0 stlund.
(frá Galle & Jessen)
bezt. og ódýrast í
W. Fischers-verzlun.
Óskilatrippi,
ljósbleik hryssa 2 vetur, mrk.: sýlt h.,
hefir verið tekið hér á götunum og
komið fyrir til geymslu. Réttur eig-
andi gefi sig fram innan 14 daga og
borgi áfallinn kostnað og þessa aug-
lýsingu. Að þeim fresti liðnum verð-
ur trippið selt sem óskilapeningur.
Bæjarfógetinn í Evík 26. apr. 1904
Haildór Daníelsson.
JSairtau
er bezt að kaupa í verzlun
V. Ottesens.
s/8 »Laura« nýkomið til
VEEZLUNAR
Vald. Ottesen
mikið af ÁLNAVÖRU; einnig ULL-
ARNÆRFÖT, KVENSOKKAR,
HANZKAR, o. m. fl.
Ný verzlun.
HÉRMEÐ leyfi eg mér að tilkynna
heiðruðum almenningi, að eg hefi
byrjað nýja verzlun í Aðalstræti nr. 9.
Þar eð eg í fleiri ár hefi verið við
stórverzlun á Þýzkalandi
og komist þar i góð sambönd, er
mér unt að selja, góðar vörur fyrir
iágt verð.
Sérstaklega hefiegmikið úrval af leir-
vöru, svo sem: Borðbúnað, Þvotta-
stell, Blómsturpotta, Kryddkrukkur,
Brauðplötur, Diska, Bollapör, Mjólk-
urkönnur, Kökukefli o. s. frv.
Postulín : Kaffistell, Kökudiska,
Desertdiska, Bollapör mjög falleg,
Nipsfigurer o. s. frv.
Emaljevörur: Kasterollur,
Katla, Kaffikönnur með misl. blómstr-
um, Húsvigtir, Olíumaskínur, Steik-
arapönnur, Mjólkurfötur með loki o.
m. m. fl.
Alnavörur: Léreft bleikt og
óbleikt, Tvisttau, Skyrtutau, Sæng-
urdúk, Chellas o. s. frv.
Allar þessar vörur seljast með ó-
vanalega lágu verði og ættu því allir
að nota slík kostaboð.
Gjörið svo vel að líta inn hjá ntér
áður en þér kaupið annarsstaðar, yð-
ur mun ekki iðra þess.
Virðingarfylst
J. J. Larabertsen.
Nýkomið naeð 8/s »Laura« mikið
af alls konar
þeir sem hafa seDt verkefni til
„Silkeborg Klædefabrik"
eru hér með beðnir að sækja tau sín
hið allra fyrsta
og borga vinnulaun um leið; annars
verða þau seld.
Virðingarf.
(Bífesen.
Frá Kirkjubæ á Rangárvöll-
um struku 2 hestar 12. apríl, rauð-
skjóttur og rauðblesóttur, ættaðir úr
Norðurlandi, klárgengir, ójárnaðir,
brennimerkdr á framhófum Gr. Th.
Hver sem hittir hesta þessa, er beð-
inn að koma þeim til mín, eða gera
mér viðvart um, hvar eru.
Kirkjubæ 25. apríl 1904.
Grímur Sk. Thorarensen.
Stumpasirz
er ódýrast í verzl. V Ottesens-
|G§“ Munið eftir að hvergi
er vandaðra og ódýrara hálslín, en
hjá Kristínu Jónsdóttur
Veltusundi 1.
Almanök á 12 aura fást nú
í afgreiðslu ísafoldar.
Alla reikninga til »Leikfé-
lags Reykjavikur« óska eg mér senda
ekki siðar en næstkomandi þriðjudag.
Kristján Þorgrimsson
p. t. gjaldkeri.