Ísafold - 24.09.1904, Page 1

Ísafold - 24.09.1904, Page 1
Kemur út ýmist einn sinni eöa tvisv. í vikn. Yerð árg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða l1/, doll.; borgist fyrir miðjan ’úli (erlendis fyrir fram). ISAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bnndin við áramót, ógild nema komin sé ti) útgefanda fyrir 1. október og kaup- andi skuldlaus við blaðið. Afgreiðsla Austurstrœti 8. XXXI. árjK. Reykjavík lauffardaginn 24. september 1904 63. blað. I 0. 0 F. 8693081/, Augnltzkninq ókeypis 1 ne 3. fird. á hverium mán. kl. 11—1 i spttalanum. Fornqripasnfn opið mánnd., mvd. og ld '1-12. Tflutábankinn opinn kl. 10—8 og K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa op- in á liverjnm degi kl. 8 árd. til kl. 10 siðd. Almennir fundir á bverju föstudags- og sunnudagskveldi kl. 81/, siðd. Landakotskirkja. Guðsbjónusta kl. 9 og kl. 6 á hverjum lielgum degi. Landakot.sspítali opinn fyrir sjúkravitj- endur kl. 107s—12 og 4—(i. Landsbankinn opinn hvern virkan dag ?fci 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1. Bankastjóri við kl. 11—2. Landsbókasafit opið livern virkan dag kl. 12—3 og kl. 8—8. Landsskjalasafnid opið á þrd., fimtud. ■ og ld. kl 12—1. Ndttúrugripasafn, i Vesturgötu 10, opið 4 sd. kl. 2—3. Tannlœkniny ókeypis i Póstliússtræti 14b < og 3. múnud. hvers inán. kl. 11—1. Af ófriðinum. Einhver hin mikilfenglegasta orusta á síðari tímurh hefir það verið, þessi sem Rússar og Japanar háðu í mán- aðamótin síðustu við Líaó-Yang. þar hefir barist nær hálfri miljón manna og mauntjón orðið geysimikið; um það er engin vitneskja enn fengið að marki. það leikur á 20—30 þús., er fallið hafði eða óvígir orðið af Japön- um. Og líklega annað eins af Rúss- um. Kuropatkin hefir ekki staðnæmst í Mukden, borginni helgu og höfuðborg í Mandsjúríu, legstað keisarættarinnar kínversu, 8 mílur danskar norður frá Liaó-yang, heldur hefir hann haldið lengra norður á bóginn og býst nit við þar 8em heitir Tieling, 9—10 raílur þaðan í norður. þar er sagt landslag hentugra til viðnáms. |>ar búastJap- anar sem óðast að sækja hann á ný- jan leik og láta yfir lúka með þeim áður en vetrar. f>eim er nú miklu hægra orðið um aðflutning frá sjó en áður. Her Rússa sagður lítt við bú inn vetrarhörkum, klæðlítill nú jafn- vel, og mjög bilaður að kjark og á- ræði fyrir það, að þeir hafa til þessa borið jafnan halt höfuð af hverjum fundi við Japana, hvort heldur smátt hafa við ázt eða stórt. það hafði verið alla tíð áform Kúro- patkins, meðan hann sat í Líaó-Ya,ng, að þreyta Japana þar og vinna her- deildir þeirra sína í hverju lagi, í því 8kyni að komast síðan suður á bóg- inn og bjarga Port Arthur. Nú er það alveg búið að vera. Vistaskortur mikill orðinn í Port Arthur,- j;n vörn haldið uppi þar enn og ekkert lát á. Japanar kváðu vera að láta kaupa sér hesta af harðfengu kyni í Canada og Montana í Ameríku, til vetrarins. Nýr liðsauki var á ferð heiman frá Japan, um 40,000 manna. |>ar hlýt- ur að vera farið að ganga á mann- afla þó. Svo er enn sem fyr um viðureign Rússa og Japana í umsátinni um Port Arthur, að þar segir fátt af áreiðanlegt, með því að Japanar verjast vandlega allra frétta, en Rússum þar varnað allra málskifta við aðra. f>að eitt er fullyrt, að tnikið sé þar mannfall af hvorumtveggja, og þó meira af Jap- önum, hægra að verja en sækja. En það horfa þeir ekki í, Japanar. Eiahverju sinni hafði allmikil sveit Japana orðið fyrir því, er þeir höfðu unnið eitt útvirkið og runnu þaðan á Ieið til hins næsta, að svo var sem jörðin spryngi undir þeim og gysi eldi, en mold og grjót og mannabúkar alt í einum mekki hátt í lofti uppi. Rúss- ar höfðu grafið þar f jörðu sprengi- vélar tugum saman, og kveikt í með rafmagni, er Japana bar þar yfir. |>ær ullu eldgosinu og eyddu allri þeirri sveit fjandmanna þeirra. Fyrir fiotaleifum Rússa í Port Arth- ur hefir ráðið Ucthomski fursti síðan er Makaroff aðmíráll féll 13. apríl (sökk með Petropaulovsk). Hann var settur frá embætti 2. þ. m., en Wirén höfuðsmaður skipaður í hans stað. Af alþitigiskosnlng; ísfirðinsa segír svo ritstjóri þjóðviljans, al þingismaður Skúli Thoroddsen, sem staddur var á ísafirði kjördaginn, meðal annars í blaði sínu: nDagana á undan kosningunni höfðu stjórnarmenn haft atkvæðasmala sína á sífeldum þönum fram og aftur um kaupstaðinn og töldu sér sigurinn vís- an, þóttust hafa minst 30 atkvæði vís fram yfir mótflokkinn. Mælt er, að einn hinna meiri hátt- ar atvinnuveitanda 1 því liði hafi og látið einn þjóna sinna safna s k r i f- legum atkvæðaloforðum með- al verkmanna sinna, og munu hafa verið bygðar töluverðar vonir á því miður drengilega tiltæki. — — — Við 40 af atkvæðaseðlum síra Sig- urðar og 42 a£ atkvæðaseðlum síra þorvalds þótti og yfirkjörstjórninni það athugavert, að krossinn náði ým- ist ekki fyllilega út í hringinn, eða þá að einhverju leyti út fyrir hann, en mat þó þá atkvæðaseðla gilda. Vansmiði þessi, er virðast að vísu all-afsakanleg,, þar sem ko3ningaraðferð þessari var nú beitt í fyrsta skifti, hefði óefað orðið færri, ef kjörstjórn eða þingmannsefni hefði leiðbeint kjósendum í kjörstjórnarherberginu, áður en kjósandinn gekk inn í kjör- herbergið; en það var látið ógert, enda mun enginn kjósandi hafa beiðst slíkr- ar leiðbeiningar sérstaklega*. f>að sést á atkvæðatölunni, að ef þessir 40 og 42 atkvæðaseðlar hefðu verið gerðir ógildir, mundi atkvæða- munurinn milli þeirra þingmannsefn- anna ísfirzku hafa orðið heldur meiri að tiltölu. |>á hefði síra Sigurður haft .37 atkvæði, en sfra f>orvaldur 31. ....>------------ Síðdegisguðsþjónusta i dómkirk- junni ú morgun kl. ö (sira J. H.). Fágætt fiskahlaup. Um miðjan f. mán. (ágúst) varð vart við dálítið hlaup af m a k r í 1 (scomber scombrus) í Skaga- firði, við Sauðárkrók. f>ar veiddust af honum eitthvað um 20 fiskar. Frá því var sagt í Norðurlandi 27. ágúst. Meiri brögð hafa þó orðið að þessu markríl8hlaupi í Hrútafirði, því frá Borðeyrí var mér skrifað 10. þ. m.: »Hinn 20. ágúst sáust torfur hér á firðinum, er haldið var fyrst að væru síldartorfur og lögðu því síldarnet. Veiddust þá nokkrir makrílar, en síld engin, og einnig næstu daga til 25.; þá fór hann að hverfa. Torfurnar voru geysistórar, og gengu því nær inn í fjarðarbotn, en síldarnetin voru of smáriðin til þess að makríllinn gæti veiðst í þau*. Til sannindamerkis séndi bréfritar- inn Náttúrugripasafninu einn fisk. f>etta er ekki í fyrsta skifti, er fisk- ur þessi hefir sést hér við land; 'en áður hafa það að eins verið einstaka flækingar, sem slæðst hafa hingað með síld. Hinn fyrsti af því tægi, er full vissa er fyrir að sést hafi hér, veiddist í síldarnet í Keflavík við Faxaflóa 6. júní 1898. Hann er geymdur hér í safninu. Annan fekk safmð 10. sept. 1900 frá Vestfjörðura, og 1 fekst f.Eyjafirði um likt leyti; auk þess hefir mér ver ið sagt, að hans hafi orðið vart víðara, einkum í Hafnarfirði (sbr. Skýrslu Nátt- úrufræðisfél. 1899—1901, bls. 19). En þetta er í fyrsta skifti, svo menn viti, að hann hefir kornið hér að landi í stórhópum. Vanalega verður hans lítió vart þeg- ar kemur norður fyrir Hjaltland. En ekki væri neinum ami í því, ef þessi fagri og mjög svo nytsami fiskur vildi venja komur sínar hingað betur. Vel má vera, að lík hlaup og þetta hafi komið hér áður, þótt þeirra hafi ekki orðið vart, þar sem síldiuni var held- ur enginn gaumur gefinn. Lengd fullvaxins makríls er 15—18 þml. og þyngdin kring um 2 pd. Hann heldur sig úti í hafi á vetrum, en gengur upp að ströndum á vorin og sumrin til hrygningar. Eftir hrygn- inguna slangra oft torfur af honum langt inn í firði og sund. Egginfljóta og klekjast út við yfirborð sjávar. Hann lifir á ymis konar smákrabba- dýrum og fiskaseiðum. Makríllinn er veiddur mjög við aust- urströnd Bandaríkjanna í N.-Ameríku, 1 Englandshafi og hafhlutum þeim, er liggja inn úr því, ýmist í net, neknet (möskvavídd l8/s—D/2 þml., dýpt U/a—2fðm.), lagnet eða kvíanet, eða á dorg, sem dregin er á eftir skip- um á siglingu. Bjarni Sæmundsson. Hlutabanknntbnin tóku til starfa 1. þ. mán., eins og til stóð, á Akureyri, ísafirði og Seyðis- firði. pað hefir heyrst af Akureyri sérstak lega, að þar hafi verið þegar mikið aðstreymi að því fyrstu vikuna og al- menningi líkað við það mætavel. For- stjóri þess er porvaldur l ;>m. Davíðs- son og gæzlustjóri Eggert Laxdal verzlunarstjóri, en gjaldker iH. Schiöth er áður var póstafgreiðslumaður lengi á Akureyri. |>eim rógi hafði beitt verið í sumar á Akureyri af sumum' andstæðingum Páls Briem, til þess að spilla fyrir kosningu hans, að Hlutabankaútbúið ætlaði að beita okurkjörum, er það væri orðið eitt um hituna, en hann (P. Br.) hefði ráðið mestu um það, að sparisjóðirnir voru lagðir niður báðir og látnir renna inn í bankann, auk þess sem hann væri einn í stjórn að- albankans í Reykjavík. En rógur þe8si kom vitaskuld rógberunum sjálf- um í koll, er það sýndi sig löngu fyr- ir kjördag, að hann var gersamlega til- hæfulaus uppspuni, sannleikanum al- veg gagnstæður. Af hinum útbúunum 2 eru engar sérstaklegar fréttir komnar þann stutta tíma, er þau hafa staðið. Amtmenn, stiftsyíirvöld og landfögeti. pað er kunnugt, að þau embætti eiga að hverfa úr sögunni, samkvæmt lögunum um hina æðstu umboðsstjórn landsins, frá í fyrra. Nú er komin konungleg tilskipun um, hvernig skifta skuli störfum þeim, er þessum embættum hafa fylgt, dags, 23. f. mán. Af störfum amtmanna er margt falið sýslumönnum og bæjarfógetum, svo sem ýmsir sektarúrskurðir; af- skifti af barnsfaðernislýsingum og hjónaskilnaðarmálum og fjármálum hjóna; skipun hreppstjóra, yfirsetu- kvenna og sáttamanna utan Reykja- víkur; að veita tombóluleyfi; að selja af hendi og gefa út ýms leyfisbréf. |>á eru nefndir ýmsir sjóðir, er amt- menn hafa verið í stjórn fyrir, og fyr- irskipað, að þar skuli koma í staðinn hlutaðeigandi sýslumaður, o. s. frv. Til að hafa á hendi forsetastörf og framkvæmdarstjórn fyrir amtsráðin skipar 8tjórnarráðið einhvern af sýslu- mönnum amtsins eða einhvern annan lögfræðing f þeim landsfjórðungi. Önnur störf amtmanna hverfa undir stjórnarráðið. Af 8törfum stiftsyfirvalda hverfur undir stjórnarráðið alt það, er snertir skólamál og kenslumál, yfir- umsjón með Forngripasafni og Lands- bókasafni, undirbúningur verðlagsskráa og stjórn Thorkillii barnaskólasjóðs. Forsæti í synodalrétti tekur forstjóri landsyfirréttarins, í stað amtmanns sunnan og vestan. Öll önnur störf stiftsyfirvalda skulu fengin biskupi í hendur. Landsbankinn tekur við störfum landfógeta, gegn 2500 kr. árs- þóknun. Ráðgjafinn setur nánari regl- ur um framkvæmd þeirra starfa. Póstgufaskip Vesta (Gottfredsen) kom í gærmorgun frú Khöfn, Skotlandi og Austfjörðum. Parþegar frú Khöfn voru meðal annarra: Magnús Magnússon stýri- mannaskólakennari og ingeniör Koefod frú Ritsímafélaginu norræna. Frú Austfjörð- um kom mikill fjöldi verkafólks úr kaupa- vinnu, og ennfremnr Jón læknir Jónsson ú Yopnafirði og hans kona.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.