Ísafold - 24.11.1904, Page 1
Kemnr út ýmist einn sinni eöa
tvisv. i vikn. Verð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eöa
l'/s doll.; borgist fyrir miöjan
’úli (erlendis fyrir fram).
1SAF0LD.
Dppsögn (skrifleg) bnndin við
áramót, ógild nema komin sé tii
útgefanda fyrir 1. október og kaup-
andi sknldlaus við blaðið.
A fgreiðsla Austurstrœti 8.
XXXI. árg.
Keykjavík íimtmlaginn 24. nóvember 1904
74. blað.
JíuáÁldi jMaAýOstMV
if 0. 0. F. 86II2581/, 0.
Augnlœkning ókeypis 1. og 3. þrd. i
hverjnm mán. kl. 2 — 3 í spitalanum.
Forngrifiasafn opið á mvd. og Id i 1 —12.
Hlutabankinn opinn kl .10—3 og 6*/«—7 '/»•
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa op-
in á iiverjnm degi kl. 8 árd. til kl. 10 slðd.
Almennir fundir á hverjn föstudags- og
•nnnudagskveldi kl. 8‘/2 síðd.
Landakotskirkja. Guðsþjónusta kl. 9
g kl. 0 á hverjum helgum degi.
Landakotsspitali opinn fyrir sjúkravit-
jsndur kl. 10'/a—12 og 4—6.
Landsborikinn opinn hvern virkan dag
kl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
Landsbókasafii opið hvern virkan dag
kl. 12—3 og kl. 6—8.
Landsskjalasafnið opið á þrd., fimtnd
og ld. kl. 12—1.
Tannlœkning ókeypis i Pósthússtræti 14b
1. og d. mánud. hvers mán. kl. 11 — 1.
Gufubáturiiin Reykjavík fer upp
í Borgarnes 6. og 15. des. ; hann kemur
við * Akranesi í hverri ferð. Snð-
ur (til Keflavikur o.s. frv.) fer hann 23 og
28. nóvbr., og 20. des.
wa~ Fer alt af kl. 8 árdegiH.
Leikfélag Reykjavíkur
leikur næstk. laugard. kl. 8V2
Afturgöngur
|“|ftRMEÐ leyfi eg mér að biðja þá,
* sem skulda fyrir organspil í dóm-
kirkjunni, að borga mér það sem fyrst.
Kristján f> o r g r í m b s o n .
Brlend tíðindi.
Af ófriðinum engin stórtíðindi
þetta sinn.
Port Arthur enn óunnin í miðjum
mánuðinum.
Vörn Róssa þar mjög rómuð, sem
má óefað, einkum hugprýði og þol-
gæði yfirherstjórans þar, Stössels hers-
höfðingja. Hann lætur engan bilbug
á sér finna. þá er að berjast sér til
frægðar, er þrotin er von um sigur,
segir hann.
Japanar gerðu afarharða hríð að
borginni, landmegin, fyrstu daga mán-
aðarins. |>á langaði ákaflega mikið
til að vinna hana afmælisdag keis-
ara síns, 3. nóv. Bn það tókst ekki.
þeir biðu geysi-mikið manntjón.
Róssar hafa það lag, að létta skot-
hríð alt í einu, er mest gengur á, og
ginna fjandmenn sína nær með þeim
hætti. þeir, Japanar, ímynda sér
þá, að þrotin séu skotföng fyrir Róss-
um, og veita atgöngu að virki því eða
vígstöð, er þá er barist um.
En þá drífa að þeim skotin svo
ótt og mikilfenglega, að varla stendur
nokkur maður uppi.
Eða þá að Róssar hafa fólgið
sprengidufl í jörðu, þar sem Japanar
leggja leið sína til atlögu, kveikja í
þeim og þeyta öllu í loft upp.
Sumir spá sem fyr Port Arthur falli
á hverri stundu. En aðrir, að hón
vinnist ekki fyrir jól ór þessu.
Norður í Mandsjóríu hefir ekkert
sögulegt gerst síðan stórorustunni
lauk í miðjum f. mán., suður af Muk-
den (við Sha-elfi). þeir horfast þar í
angu.Kuropatkin og Oyama marskálkur,
yfirhershöfðingi Japana, bóast sem
bezt þeir mega við veírinum og draga
að sér Iið og vistir af sem mestu
kappi.
Svo fór, sem betur gegndi, að brátt
hjaðnaði vígamóðurinn í Bretum
við Róssa ót af voða-skyssu þeirri, er
Eystrasaltsflotanum varð á í Englands-
hafi 22. f. mán., við botnvörpungana
ensku. þeir áttuðu sig á því, að ó-
viljaverk hefði það þó verið, hvernig
sem á væri litið. Málsaðilar hafa nó
komið sér saman um að láta millilanda-
nefnd rannsaka málavexti og ef til vill
gera um málið síðan. það eru Frakk-
ar, sem stungið hafa upp á þeirri
miðlun.
Eystrasaltsflotinn er nó á leið ura-
hverfis Afríku, hin meiri skipin; hin
smærri fara um Zues-skurð. Austur f
Gulahaf kemst flotinn um miðjan janó-
ar, ef vel gengur; leiðin er það löng
og seinfarin vegna tafar að kolaótveg-
un m. m.
Mikið talað um ólag á stjórn og
heraga í flotaliði Róssa. Margir bera
það upp í sig, að þeir muni hafa verið
druknir, yfirliðarnir, er skjóta létu á
fiskiskóturnar ensku. Herskipin róss-
nesku eiga jafnvel að hafa skotið hvert
á annað, í óðagotinu þessa nótt, og róss-
neskur höfuösmaður einn nafngreind-
ur að hafa beðið bana af róssneskri
sprengikólu.
Svo lauk forsetakosningu í
Bandaríkjunum 4. þ. m., að Roosevelt
(frb. rósefelt) var endurkjörinn með
miklum atkvæðamun, eða réttara sagt
miklu fleiri kjörmenn hans megin, á
að gizka full 300 móts við um 150, er
andstæðing hans fylgja, Parker dóm-
ara; sjálf fer forsetakosningin ekki
fram fyr en 1 öndverðum desember.
þar ineð höfðu og Bamveldismenn,
flokksmenn Roosevelts, unnið mikinn
sigur í þingkosningum.
Dáinn er á Frakklandi í haust
Paul Cassagnac, gamall þíng-
maður og blaðamaður nafnkendur, ein-
hver hinn öruggasti og óhlífnasti tals-
maður keisaradæmisins þar, orðhákur
mikill og hólmgöngugarpur.
það bar til á þingi Frakka fyrir
fám vikum, að þingmaður einn, Syve-
ton, vatt sér að einum ráðherranum,
Andrée hermálaráðgjafa, er hann gekk
niður ór ræðustólnum, og laust hann
í andlitið með hnefannm svo hart, að
hann leið í ómegin, og varð ekki jafn-
góður nokkra daga. En nánustu vin-
ir hvers um sig fóru í handalögmál
og ryskingar þar í þingsalnum. Fátítt
hneyksli er það á þingum. En eins-
dæmi ekki þó.
Hlutabankinn.
Um síðustu mánaðamót voru ótgefn-
ir seðlar hjá honum komnir upp í
960,000 kr.
Lánin voru orðin hátt upp í U/4
miljón. þar af um 620 þós. gegn
veði og sjálfskuldarábyrgð, róm 430
þós. gegn víxlum og nær 180 þós.
handveðslán.
Rómum 400 þós. miðlað til ótbó-
anna.
Yfirbankastjórinn, hr. Emil Schou,
hefir afrekað það í utanför sinni
meðal annars, að nó eru s e ð 1 a r
b a n k a n s teknir með fullu ákvæðis-
verði bæði í Privatbankanum í Khöfn
og Centralbankanum í Kristjaníu.
Hjá landfógeta í Færeyjum og í
póststofunni í þórshöfn eru og seðlarnir
teknir án nokkurra affalla, og í vænd-
um kvað vera frá fjármálastjórninni
dönsku fyrirskipun um, að konunglegar
skrifstofur allar þar í landi skuli taka
seðlana með ákvæðisverði.
f>ar með eru þeir jafngjaldgengir er-
lendis dönskum, norskum og sænsk-
um seðlum, og er það allmikilsverð
framför.
Hr. Schou hefir og komið á í þess-
ari ferð beinu ávísanasambandi milli
Hlutabankans og ýmissa banka ót um
heim, um fram það er áður gerðist,
og það með góðum kjörum, til mikils
hagræðis fyrir viðskifti við þau lönd.
Reknetaveiðar Norðmanna
hér við land.
Stórkaupm. Thor E. Tulinius hefir
að vanda sent ísafold skýrslu frá
konsól Falck í Stavangri um rekneta-
veiði Norðmanna hér við land.
Hann byrjaði sjálfur á þeirri veiði
hér fyrir 5 árum og er þetta yfirlit
yfir hana síðan við ísland:
1900 . . 536 tunnur
1901 . . 916
1902 . . 5,000
1903 . . 40,000
1904 . . 85,000
þetta segir hann, sem satt er, að
séu svo miklar framfarir, að eins-
dæmi megi heita.
Hann gerir aflann þetta ár (1904)
1 milj. 100 þós. kr. virði, og að ótflutn-
ingstollurinn af þeim afla á íslandi
nemi 17,000 kr.
Eins og eg gat um við yðurí fyrra,
8egir ar. Falck ennfremur, höfðu þá
þegar ýmsir Islendingar fengið sér skip
og reknet, og þeir hafa verið töluvert
fleiri þetta ár, ekki einungis norðan-
lands, heidur einnig á Austfjörðum, og
jafnvel í Reykjavík.
Frá Norvegi var veiðin mest stund-
uð ór vesturfjörðunum, einkum ór
Stafangursamti.
Hér (í Noregi) var mönnum mest
forvitni á því, hvernig þeim mundi
ganga, gufuskipuuum Albatros og Imbs;
þau áttu að reyna til með ameríska
tygilnót (snurpenot). Handa báðum
þeim skipum höfðu verið pantaðar
slíkar nætur frá Ameríku, og þau
send á stað til íslands með góðum
skipshöfnum.
Albatros var einkum mjög heppin
framan af. Hón aflaði 1000 tunnur á
7 dögum og kom með það heim. Hón
aflaði og mikið vel síðan, og fekk alls
3100 tunnur.
Imbs fekk 2600 tunnur.
það sýndi sig þvf, að ekki var ein-
ungis hægt að nota tygilnót, heldur
og, að hón var afbragðs-veiðarfæri.
Slík nót kostar með öllum ótbónaði
4500—5000 kr.
Sumir öfluðu og mikið vel í reknet
í sumar. Sum gufuskip fengu alt að
2400 tunnurn og seglskip 1600. Allir
fengu eitthvað.
Eg hygg því, að ótbónaður muni
verðaenn meiri næsta ár en þetta ár,
og það er hugsanlegt, að enn fleiri
fái sér tygilnætur.
það má gera ráð fyrir, að allur afla-
tfminn sé ekki nema 6 vikur, og er
það þá meira en lítið, sem berst á
land af auðæfum sjávarins á ekki
lengri tíma.
það er kunnugt, að aíldarafli í vana-
legar nætur hefir verið mjög rýr í
sumar á íslandi, og því er það gleði-
legt, að þessi nýja aflaaðferð hefir
komist á, öllum þeim til hagsmuna,
er hana stunda, og ekki sízt íslandi,
sem hefir fyrir það áskotnast töluverð
tekjugrein.
Gæðin nokkurn veginn söm og í
fyrra, og meðferðin yfirleitt betri nú
en áður.
þetta ár hefir og, eins og áður,
danskur fiskimaður átt þátt í að
stunda veiði þessa á Albatros, eftir
beiðni, til þess að kynna sér hana.
Athugaverðar tízkur.
Rangfærsla og Reykjavikurhatur.
II.
Reykjavikurhatur.
|>að er farin að verða tízka, að tala
um Reykjavíkurhatur. Má sjá það
meðal annars á því, að í blaðinu
Reykjavík er farið þessum orðum um
þjóðminningarræðu héraðslæknis G. B.
í Reykjavík í sumar:
Brýndi hann einkum, eins og áður hef-
ir gert verið við sama tækifæri og oftar,
hver skammsýni væri fólgin í Reykja-
víkurhatrinu, sem svo oft bólar á.
þessi orð sýna, þó að þau séu ekki
nákvæm, að sitthvað er talað um
Reykjavíkurhatur, og ekki sízt í Reykja-
vík.
Reykjavíkurhatur er vissulega at-
hugavert, því alt hatur milli einstakra
manna eða bæja, borga eða landa er
skaðlegt.
En eg er í vafa um, hvar eða hvern-
ig Reykjavíkurhatur á sér stað. Eg
hefi hvergi orðið þess var, að sá stað-
ur sé hataður, og því síður, að það
hatur sé um land alt. Eg gæti miklu
betur tróað, að hér væri gagnstæðu
máli að gegna.
þess hefi eg víða orðið var, að fólk
hefir mikið álit á því að vera í Reykja-
vík, og hinn mikli fólksflutningur þang-
að sýnir, að það er enginn hugarburð-
ur. Eg held það ætti'því betur við
að tala um Reykjavíkur- e 1 s k u en
um Reykjavíkur- h a t u r.
Margir munu kannast við orðið
Reykjavíkursótt. það orð mun eiga
að benda til þess, að fólk sé orðið
sjókt af löngun til að komast til
Reykjavíkur. Skyldara er það elsku
en hatri til Reykjavíkur.
Eg man að vísu eftir því, að nýlega
hefir einum bónda (Vigfósi) verið bor-
ið á brýn Reykjavíkurhatur í þjóðólfi;
en mjög svo að ástæðulausu. það
virðist vera mest bygt á þar tilvitn-