Ísafold - 23.12.1904, Page 1
Kemur út ýmist eiuu sinni eða
tvisv. i viku. VerÖ árg. (80 »rk.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
1 */, doll.; borgist fyrir miðjan
’úli (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Oppsögn (snrifleg) bundin við
iramót, ógild nema komin sé ti)
útgefanda fyrir 1. október og kaup-
andi skuldlaus við blaðið.
Afgreiðsla Austurstrœti 8.
XXXI. árg.
Beykjavík föstudagiim 23. desember 1904
81. blað.
JíuóJadi jfíaAýa/lútv
i. 0. 0 F. 8612308'/,.
Gufubáturinn Reykjayík
fer upp í Borgarnes 5., 12. og
27. janúar, 6. og 23. febrúar, 6.,
14. og 21. marz, en suður íKefl
avík m. m. 16. janúar, 14. febr.,
10. og 24. marz. Báturinn kem-
ur: við á Akranesi í hverri Borgar-
fjarðarferð.
Fer ult. af kl. 8 árdegis
héðan.
Landsreikniiiguiimi
1903.
Lokið er nýlega við að semja hann.
Tekjurnar hafa orðið það ár nokkuð
minni en árið á undan.
f>ær voru þá 1 milj. 40 þús.
Bn dú (1903) 1 milj. 12 þús.
Alt fjárhag8tímabilið hata þær þá
komist upp í rúmlega 2 m i 1 j . 5 0
þ ú 8.
Fyrir 20 árum eða fjárhagatímabil-
ið 1882—1883 voru þær að kalla rétt-
um helmingi miuni eða 1 milj. 22 þús.
Utan fjárlaga, þ. e. eftir fjárauka-
lögum og öðrum lögum ýmsum, hafa
greiddar verið úr landssjóði nær 118
þúa. kr. þar af farið 60—70 þúe. til
útrýmingar fjárkláðans og 20—30 til
Lagarfljótsbrúarinnar.
Margt af tekjunum hafði þetta ár
(1903) farið til muna fram úr áætlun,
pósttekjurnar mest eða um 70 þús.
Sá gróði er að þakka frímerkja-
breytingunni.
Bann var þó enn meiri árið áður,
eða 105 þús.
Hátt upp í 200 þús. hefir landssjóð
ur ábatast þetta fjárhagstimabil á því
að skifta um frímerki.
|>að eru gömlu frímerkin, er gengu
alveg úr gildi, þegar nýju frímarkin
voru lögleidd, sem hafa eelBt þetta.
jþar næst hefir kaifi- og Bykurtollur
gefið af sér 57 þús. kr. meira en á
ætlað var. Búist við 195 þús., en urðu
252 þús.
Ennfremur áfengist-ollur komist 42
þús. kr. fram úr áætlun. Hún var
100 þúa., en tolluriun sá varð 142
þús.
Sömuleiðia hefir útflutningsgjald af
fiski og lýBÍ komist upp í 8372 þús. í
stað 55 þús.
Tóbak8tollur fór og nál. 8 þús.
fram úr áætluu, og aukatekjur 11 þúe.
Loka urðu óvissar tekjur 10 þús.
kr. meiri en gert var ráð fyrir.
Nokkuru minni en við var búist
urðuáragjöld af verzlun og veitingum
áfengra drykkja; og munu fáir kunna
það að lasta.
Mjög litlu skakkar frá áætlun í út-
gjöldunum flest öllum.
Helzt er það á vegafénu. Tilflutn-
ingabrauta varið 31 þús. í stað 24
þÚB. |>ar af meira en 17 þÚ8. til við-
halds þeim vegum.
Til verðlauna fyrir útflutt amjör
höfðu verið ætlaðar aðeina 500 kr.,
en urðu nátt upp í 4000 kr.
Nú 8em fyr sparaðiat 8000 kr. styrk-
til gufubátsferða á Breiðafirði.
Af útgjöldum landssjóðs þetta ár,
samtals um 937 þúe,, hafa annars
250—260 þúa. farið til samgöngumála.
Til skóla og annarrar kenslu rúm
100 þús.
Til lækna rúm. 70 þúa. og þar að
auki Dær 30 þús. til holdsveikraspítal-
ans. Til landbúnaðar 60—70 þús.
Laudshöfðingi, amtmenn og önnnr
umboðsstjóru hafa kostað 41 og al-
þingi 37 þús.
Fjárlögin þessi 2 ár, 1902 og 1903,
gerðu ráð fyri 133 þús. króna tekju-
halla.
En í þess stað hefir fjárhagstíma-
bilið eudað á um 220 þús. kr. af
gangi alls.
Hann var 144 þús. kr. eftir fyrra
árið, og 75 þús. eftir þetta hið síðara.
Víst er það góður búskapur.
En þetta er áður en miljóna þing-
ið, frá í fyrra, kemur til skjalauna,
og áður en Dýja stjótnin heimleuda
aezt á laggir.
því miður er hætt við öðrum ár-
angri af landsbúskapnum 1904—1905.
Bœjarstjórn Reykjavíkur samþykti
á fundinnm 15. þ. m. breytingar þær 3
á beilbrigðissamþyktinni, er landsstjórnin
hafði stungið upp á, og ákvað, að sain-
þyktin gengi i gildi 1. apríl 1905.
Frestað var samþykt á vegarstefnu með-
fram Tjarnarbrekkn, og byggingarnefnd og
veganefnd falið að útvega npplýsingar um
dýpt Tjarnarinnar á þvi svæði, áætlun nm
kostnað vegagerðarinnar, stærð þeirrar
lóðar, er bæjarstjórn lætur af bendi o. fl.
máli þessn viðvíkjandi.
Sömul. var frestað samþykt á lóðarsölu
til Völundar.
Bæjarstj. vildi ekki endurborg Hlutabank-
anum neitt af verði þvi, er hann hafði
greitt fyrir lóðarkaup við Austnrstræti,
enda þótt bankinn noti hana ekki alla nnd-
ir hús tiitt.
Vegafé 1905 var þannig ráðstafað, S0O0
kr.:
Hverfisgata frá Klapparstíg að Baróns-
stig 2000 kr., Ingólfsstræti 1400, ofaniburð-
ur í götur og vegi 2000, Vesturgata (700
fðm.) 1000, Amtmannsstigur 550, ýmsar
götur 30—200 kr., ýmsar smáaðgerðir 480
kr., — alt eftir áætlun og tillögum vega-
nefndar. Ennfremur var samþykt að
verja nær 400 kr. til að lengja Njálsgötu
austur að Barónsstig (88 fðm.) og til 34
fðm. i Barónsstíg milli Grettisgötu og
Njálsgötu um 150 kr., og loks um 80 kr.
til 18 föm. í Vitastig, milli Laugavegs og
Hverfisgötn
Veganefnd falið að koma með fyrir vor-
daga áætlun yfir gagngerða viðgerð á Hafn-
arstræti, Aðalstræti og JÞingboltsstræti.
Bæjarstjórn afsalaði sér forkaupsrétti að
hálfri dagsl. af erfðafestulandi Dan. Bern-
höfts, Melkotstúni, er hann semr fyrir 1350
kr , að áskildu vegarstæði ókeypis.
Bened. Jónssyni sótara synjað um launa-
bót.
Oddur Arnórsson afsalrði sér lóð sinni
við Frauin sveg.
Penna dag lieíi eg ír.ist!
Yfirvald rekur svo embætti sitt, að
kalla má þá embættisþjónustu því
nær eina óshtna festi af embættisaf-
glöpura.
Af embættinu alveg óviðkomandi á-
stæðum halda þeir, sem yfir hann eru
settir, svo í hönd með honum, að alt
helzt honum það uppi að ósekju.
Margítrekaðar áskoranir um að
grenslast eftir um háttemi mannsins
embættislega eru vettugi virtar og að
engu hafðar.
Loks er til málamyndar, þegar ekk-
ert er undanfæri framar, fenginn til
þess handónýtur óreglumaður, vesal-
ingur, sem er þrásir.nis ósjálfbjarga.
Hann heldur próf yfir embættis-
bróður sínum — við skál!
jbar verður úr hneyksliskák og ekk-
ert annað. Enda var svo til ætlast,
vitanlega.
Frá réttarhaldinu verða þeir félag-
ar samferða heim á leið til rannsókn-
ardómarans, hvor öðrum til samlætis,
laugau veg, »syngjandi fullir og skan-
dalíserandi á hverjum bæ.«
Sakborningur rekur embætti sitt á-
fram með saroa veg og prís sera áð-
ur, en rannsóknardómarinn er »for-
framaður* fyrir afrekið.
því að í því landi sat réttvísin í
hásæti, með spekinnar bók fyrir fram-
an sig, lesaDdi hana og íhugandi öll-
um stundum, en lítandi aldrei við
veigum né vina kjassmálum, og seg-
jandi líkt og Títus keisari, af hjá leið
svo nokkur dagur, að ekki lægi eftir
hana einbver skínandi vottur vizku
og réttlætis, dáðar og drengskapar:
þenna dag hefi eg mist!
Frikirkjan.
Hún dafnar býsna-vel, fríkirkjan
hérna í Reykjavík. Söfnuðurinn sá er
nú orðiun svo fjölmennur, að hann
ætlar að sprengja kirkjuna utan af
sér, ekki nema 2 ára gamla, og er
hún þó 20 álnir á lengd, auk forkirkju,
með setpöllum uppi (veggpöllum) o. s.
frv. En nú á að lengja hana nærri
um belming, eða 15 álnir, á sumri
komanda. það var samþykt með öll-
um atkvæðum á safnaðarfundi sfðasta
sunnudag. það ev fullyrt, að þá muni
hún verða stærsta kirkja á l&ndinu.
Sigling'. Piskiskipið G-olden Hope,
eign þeirra Jóns Pálssonar og Sigurðar-
Þórðarsonar skipstjóra o, fl., kom hingað
21. þ. m. eftir 18 daga ferð frá Mandal,
þangað sent í haust til viðgerðar — látið
i það nýtt þilfar. Það var fermt salti til
eigendanna. Fekk ilt veður. Misti mann
útbyrðis um nótt, í góðu veðri þó, Helga
Jóhannsson bér úr bæ (frá Ármóti), ein-
hleypan; hafði kent geðbilunar í sutnar.
Rektor B M Olsen
og lestrarfélagið íþaka.
tlát.tvirti herra ritstjóri!
Viljið þér gjöra svo vel, að taka grein
þessa í blað yðar?
1 2.^. tölublaði Þjóðólfs þ. á. stendur
grein með fyrirtögninni: íþökuafmœli.
Avarp til rektors.
í grein þessari er þess getið, að 2 menn
úr stjórnarnefnd Iþöku hafi afhent þáver-
andi rektor latínuskólans, B. M. Ólsen,
þakkarávarp, á 25 ára afmæli félagsins.
Ávarpið er lof eitt um Olsen og afskifti
hans af Iþöku, og telur ritstjórinn það
piltum til sæmdar, svo sem hans var von
og vísa.
Þetta finnum vér ástæðu til að leiðrétta.
Sannleikurinn er sá, að Ólsen var afhent
ávarp þetta að félagsmönnum fornspurðum.
Tveir menn úr stjórnarnefndinni sömdu
og sendn ávarp þetta án vilja eða vitund-
ar annarra, og annar þeirra borgaði skraut-
ritun á þvi úr sínum vasa.
Þetta tiltæki vakti. sem von var, megna
óánægju meðal pilta, þvi þeim fanst sizt
ástæða til að færa þakkarávarp manni, sem
margsinnis stóð í vegi fyrir nanðsynlegum
lagahreytinguiu i félaginu og var svo marg-
8kiftinn um stjórn þess, að hann meinaði
stjórnarnefndinni nauðsynleg fundarhöld og
sýndi að öðru leyti svo mikla stirfni, að 3
nefndarmenn gátu ekki við unað og neydd-
nst til að segja af sér störfunum.
Og eins og allir vita, var hann eigi svo
vinsæll sem skólastjóri, að knnnugir gætn
látið sér detta i hug, að piltar sendu hon-
um slikt ávarp.
Þetta er i fullu samræmi við það, hvern-
ig þesBÍr 2 piltar fara í felur með ávarpið
og láta það birtast á prenti einmitt á þeim
tima, er piltar voru á heimleið úr skólan-
um, og því von til þess, að þeir veittu þvi
ekki eftirtekt.
Samþykt á íþökufundi 19. des. 1904.
Fyrir hönd félagsmanna,
stjórnarnefnd íþöku:
Olafur Gunnarsson Steindór Björnsson
p. t. forseti. ritari.
Jakob Ó. Ldrusson. Haraldur Jónasson.
Guðm. Asmundsson.
Mannalát
Hér í hænvim lézt 14. þ. mán. eftir langa
legu (i tæringu) frá Anna Hafliða-
d ó 11 i r, kona cand. Einars Gunnarssonar, góð
kona og vel að sér. Þau áttu 1 harn á lífi.
Bráðkvaddur varð sama dag Svend
H a 11 verzlunarmaður Jónasson, frá Þing-
eyri, á þrítngsaldri, eftir langa vanheilsu.
Hér í bæ lézt 18. þ. m. ekkjufrú Helga
M a g n ú 8 d ó t ti r, ekkja sira Jóns Jak-
obssonar i Glæsibæ, tengdamóðir H. And-
ersens klæðskera og móðir Jakobs Jóns-
sonar verzlnnarmanns, komin á áttræðis-
aldur.
Póstgufuskip Vesta ^Gottfredsen)
lagði á stað á tilteknum tima 18. þ. m
til útlanda. Með henni tóku sér far til
Khafnar þeir Ólafur Hjaltesteð hugvits-
smiður, Sigfús Einarsson söngfræðingur og
Jóh. J. Reykdal verksmiðjueigandi frá
Hafnarfirði.
Berklaveikisbókin.
Nýprentað er af henni önnur út-
gáfa og fæst ókeypis sem fyr hér í
bæ hjá héraðslækni Guðm. Björnssyni.
Frá útlönduin.
Ensk blöð til 17. þ. m. með gufu-
skipinu ísafold í dag. Port Arthur
þá enn óunnin. Svo að heyra sem
flotaleifar Rúasa á höfninni aéu alveg
frá; alls eitt höfuðorustuskip ofan
sjávar þar, Sevastopol. Rússar segjast
hafa sökt skipuDum ejálfir. En því
er ekki trúað. — Mjög ókyrt orðið
heima á Rússlandi.