Ísafold - 12.08.1905, Blaðsíða 2

Ísafold - 12.08.1905, Blaðsíða 2
210 ÍS AFOLD að eftir landsháttum vorum sé enn ekki kominn tími til að lögbjóða al- menna skólaskyldu, allra sízt til sveita, þar sem heimafræðslan enn þá er og verður óefað um langan tíma helzti grundvöllur alþýðumentunarinnar. Heimafræðslan er arfur frá forfeðr- um vorum, frá einni kynslóð til ann- arar. það er hún, sem fremur öllu öðru hefir skapað hinar fornu bók- mentir vorar. Henni er það að þakka, að þær urðu svo einkennilega þjóðleg- ar. |>að er hún, sem fremur öðru hefir haldið hinni íslenzku þjóð vak- andi gegnum aldirnar og varðveitt mál vort og þjóðerni alt til þessa dags. Yér játum það, að heimafræðslan stendur að ýmsu á baki skólafræðsl unni. Sannmentaður skólakennari get- ur veitt lærísveinum sínum víðtækari, fjölbreyttari og dýpri þekking en hver óbreyttur alþýðumaður getur veitt barni sínu. En hins vegar hefir heima- fræðslan líka talsverða yfirburði yfir skólafræðsluna. Skólakennararnir verða að skifta sér á milli margra og geta síður gefið sig við eða lagað sig eftír hverjum einstökum nemanda, og því hættir þeim til að reyna að steypa alla lærisveina sína í einu móti, ef svo mætti að orði kveða. Aftur á móti kemst heimafræðslan í miklu nánara og innilegra samband við einstakling- inn, hefir meira vald yfir tilfinningalífi hvers einstaks barns, og getur, ef fræðslan er í nokkru lagi, lagað sig betur eftir andlegum og siðferðislegum þörfum barnsins og sérkennileik þess. Auk þess er miklu hættara við út- breiðslu næmra meina, bæði siðferðis- legra og líkamlegra, í skólum en á fá- mennum beimilum. Enn fremur hefir heimafræðslan mjög lítinn tilfinnanleg- an kostnað í för með sér, og hana má veita í daglegri umgengni alt árið í kring, án þess að barninu 3é íþyngt. Heimafræðslan varðveitir betur það, sem einkennilegt er í fari þjóðarinnar, en er hins vegar þröngsýnni en skóla- fræðslan. Loks er það ekki lítilsvert, að heimafræðslan hefir jafnframt stór- mikil mentandi og siðbætandi áhrif á hina eldri menn, sem fræðsluna veita. Með skyldunni til að fræða og uppala sjálfur barn sitt hlýtur að skapast sterk innri hvöt til þess að afla sjálfum sér þeirrar mentunar, sem er nauðsynleg til þess, að fræðslan verði að veruleg- um noturn, og um leið til að upp ala sjálfan sig, laga það í fari sínu, sem getur hneykslað eða saurgað hinu ungu sál barnsins. Nefndin telur lítið lið í farskólunum. |>eir hafi eftir skýrslum mag. G. F. ekki veitt tilsögn lengur en 1 mánuð á vetri þriðjung nemenda, og töluvert meira en helming 2 mánuði eða skem- ur, og eru þó þar með taldir allir þeir nemendur utan kaupstaða, sem ganga í fasta skóla. Misseri eða freklega það hafa rúm 900 börn stundað nám, um 3100 tvo mánuði eða skemur, og 1700 einn mánuð eða skemur. Hætt við, að hin ónóga og alt of stutta far- skólafræðsla dragi úr ábyrgðartilfinn- ing þeirra, er að börnunum standa og komi þeim til að varpa upp á þá allri sinni áhyggju fyrir fræðslu barnanna, en þá geri þeir meira ógagn en gagn. þeir boli þá heimafræðslunni burtu, í stað þess að styðja hana ogefla«. Nefudin vill þó ekki láta svifta þá farskóla, sem nú eru, þeim landssjóðs- styrk, sem þéir bafa notið að undan- förnu; en hafa það skilyrði fyrir hon- um, að lágmark námstímans sé 2 mánaða árleg fræðsla fyrir hvert barn. Annað ráð telur nefndin þó væn- legra til að efla heimafræðsluna: fá góðan kennara til að ferðast milli heim- ilanna sjálfra, yfirheyra börnin og koma þeitn á rekspölinn, leiðbeina þeim, sem hafa á hendi heimafræðsluna, hvernig þeir eigi að haga fræðslunni, sjá um, að ekki vanti nauðsynlegustu bækur, forskriftir o. s. frv, setja börnunum fyrir þangað til kennarinn kemur næst, o. s. frv. Kennarinn ætti ekki að dvelja lengi á hverjum bæ, en koma því oftar. Með því móti héldi hann áhuga barnanna og þeirra, sem fræðsluna veita, stö^ugt vakandi, og námstími barnanna lengdist að mikl- um mun í samanburði við það, sem gerist í farskólunum. það leiðir af sjálfu sér, að heimafræðslunni verður notadrýgstur sá stuðningur, sem hún fær á heimilunum sjálfum, og vér er- um vongóðir um, að með þessari að- ferð megi takast að reisa hana við aft- ur og jafnvel hefja haDa á hærra stig. þar sem heimafræðslan væri í ólagi, ætti kennarinn með aðstoð fræðslu- nefndar að hafa vald til þess að koma börnum fyrir á góðum fræðslustað á kostnað aðstandanda. Vér teljum æski- legt, að landsstjórnin styðji tilraunir í þessa átt. Og af því að vér teljum æskilegt, að eftírlitskennarinn komi sem oftast á heimilin, álítum vór hag- feldast, að upphæð styrksins farí eftir því, hve mörg heimili kennarinn hefir haft yfirsókn yfir og hve oft hann hefir komið á hvert þeirra. Enn hefir oss komið til hugar, að mjög æskilegt væri, að sunnudaga- s k ó 1 a r væri settir á stofn víðs vegar um alt land. J>eir eru tíðkaðir víða í öðrum löndum og hafa komið miklu góðu til leiðar. Hér á landi mundu slíkir skólar eflaust vera mjög hentugir til að styðja heimafræðsluna og fylla í skörðin, þar sem henni er helzt ábóta- vant. í 2. gr. frv. er þess krafist, að börn á fermÍDgaraldri viti nokkuð um merkustu menn vora, kunni að nota landabréf, hafi nokkra þekkingu á nátt- úru íslands og atvinnuvegum þjóðar vorrar, þekki legu helztu landa Norður- álfunnar og viti, hvernig álfur liggja á haettinum, kunni íslenzk kvæði, eink- um ættjarðarljóð, og nokkur einföld sönglög. Alt þetta væri auðvelt að kenDa börnunum í sunnudagaskóla. Landssjóður ætti að hlynna að stofnun slíkra skóla með fyrirheiti um styrk. Erum vér þá sannfærðir um, að helztu menn í ýmsum sveitum, einkum sóknar- prestamir, mundu gangast fyrir stofn- un sunnudagaskóla, og þegar rekspöl- urinn væri kominn á og góður árangur sæist, mundi þeim brátt fjölga svo, að fáar sveitir mundu vilja vera án þeirra. Landssjóðsstyrkurinn þyrfti ekki að vera mikill, því að kostnaðurinn er tiltölulega mjög lítill. Húsnæði mætti fá í kirkjum eða í þinghúsum hrepp- anna, að eins þyrfti að setja ofn í húsið til notkunar á vetrum, og er það ekki tilfinnanlegur kostnaður, enda er það nauðsynlegt hvort sem er, að setja ofna í kirkjur. Vér gerum ráð fyrir því, að margir, sem ant er um fræðslu æskulýðsins, mundu bjóða að- stoð sína við sunnudagaskólann fyrir lítið eða ekkert eDdurgjald, eins og tíðkast erlendis. Og þó að eitthvað þyrfti að gjalda þeim, sem stæðu fyrir kenslunni, yrði það ekki tilfinnanlegt. Vér teljum hagfelt að landssjóðsstyrk- ur til sunnudagaskóla sé bundinn því skilyrði, að hann hafi verið haldinn að minsta kosti 26 sinnum á ári og að upphæð styrksins fari eftir því, hve oft skóli hefir verið haldinn og f jölda þeirra barna, sem hafa sótt hann. Nefndiu telur rétt að gera það að skilyrði fyrir landssjóðsstyrk, að 1 a u n kennara séu ekki óhæfilega lág. |>að er ljóst, að helzta skilyrðið fyrir góðri barnafræðslu eru góðir kennarar, hvort sem þeir nú eiga að hafa eftirlit með heimafræðslu eða kenna í far- skólum eða föstum skólum, og að þeir fást ekki, nema kennurunum sé borguð talsvert meiri laun en nú tíðkast. Eeglan um ókeypis kenslu hyggur nefndin að muni valda hinni megnustu óánægju, sérstaklega meðal þeírra, sem ekki vilja trúa hinum lög- skipuðu skólum fyrir börnum sínum. *J>eir munu halda því fram, og það, að oss virðist með fullum rétti, að engin sanDgirni mæli með því, að þeir, sem ef til vill hafa ærinn kostnað af því að sjá börnum sínum fyrir heimafræðslu, skuli þar að auki vera skyldir til að kosta skólaveru annara barna, sér al- veg óviðkomandi, sem ekki séu þurfa- lingar. J>að er yfir höfuð að tala sannfæring vor, að lögboðin almenn skólaskylda verði því að eins að nokkrum notum, að hún sé borin fram og etudd af al- mennum þjóðarvilja. Ef svo er ekki, og það þykjumst vér, eins og nú á stendur, hafa ástæðu til að fullyrða, mun það sannast, að lögin (um skóla- skyldu) verða að engu gagni í fram- kvæmdinni, dauður bókstafur, sem enginn hirðir um og allir reyna að fara 1 kriugum. Hvert það barnafræðslu-fyrirkomu- lag, sem ekki hefir fylgi mikils meiri hluta almennings á bak við sig, er að vorri hyggju dauðadæmt fyrir fram. En hér er sá hængur á, að skoðanir manna í fræðslumálum eru mjög mis- munandi, þar sem menn annars hugsa nokkuð um fræðslumál. Einn vill þetta fyrirkomulag, annar hitt, og þar að auki eru landshættir svo margvíslegir, að það, sem á við í sumum sveitum, á ekki við í öðrum, Hvað á þá að gera? í fljótu bragði virðist ekki vera unt að setja nein al- menn lög um barnafræðsluna, er gildi fyrir landið í heild sinni, þegar skoð- anir manna eru svo mismunandi og sitt á við í hverri sveit. Og þó stendur einn vegur opinn, og hann er sá, að láta hverja sveit sjálf- ráða um það fræðsluíyrirkomulag, sem hún vill velja, þannig, að hún hafi sjálf bæði veg og vanda af fræðslumálum 8ínum, með öðrum orðum: að veita sveitunum heimild til að gera fraeðslu- samþyktir, er séu bindandi lög fyrir þá, sem hlut eiga að máli, en liggi þó undir staðfesting stjórnarráðsins líkt og aðrar þess konar samþyktir. þenn- an veg höfum vér valið. Vér treystum því, að til séu víðs vegar um land ein- stakir menn, bæði lærðir og leikir, sem hafa áhuga á uppeldi æskulýðsins og skorti hvorki vit né vilja til að berjast fyrir því, að koma fræðslumálum sveit- ar sinnar í sem bezt horf. Og þegar ein sveit hefir gengið á undan öðrum með góðu eftirdæmi, þá \onum vér að þar muní fleiri á eftir fara. Með þessu móti er trygging fengin fyrir því, að það sem samþykt verður í fræðslu- málum, hafi fylgi mikils meiri hluta sveitarbúa á bak við sig, en það er fyrsta og helzta skilyrði fyrir góðum árangri. Fræðslunefndir þær, sem frv. fer fram á að stofna, hafa hér mikið og fagurt verkefni fyrir höndum. t fræðslusamþyktir ætlumst vér til að megi setja ákvæði um alt það, er að barnafræðslunni lýtur, þar á meðal einnig um skólaskyldu, ef það þykir hagfelt, en þó þannig, að þeir sem sanna, að þeir hafi fullnægjandi heima- fræðslu, geti fengið undanþágu eftir úrskurði fræðslunefndar, er megi skjóta til yfirstjórnar fræðslumála. Að þessi hugsun um fræðslusamþyktir, fyrir einstakar sveitir, sé ekki gripin úr lausu lofti, sýnir dæmi Landmanna, sem hafa sett hjá sór fræðslusamþykt með frjálsum samtökum, og er hún prentuð í skýrslnm meistara G. F. Jafnframt teljum vér bæði sjálfsagt og skylt, að landssjóðnr styðji sveit- irnar í viðleitni þeirra að koma á hjá sór og halda uppi hentugu fræðslu- fyrirkomulagi. Hér verður að hafa það tvent fyrir augum, að laudssjóður hlynni að hverjum þeim fræðsluvísi,. sem orðið getur að almennum notum,. og styrki ekki neitt annað en það, sem telja má þess vert, að það sé styrkt.« Meðan ritsímanefndin hefir ekki látið uppi álit sitt, er til lítils að koma með álit sitt um fjárhag landsins. Við framhald 1. umr. fjárlaganna hefir samkvæmt þingvenju verió vant að rifja upp fyrir sér stjóruarástandið í landinu og minnaBt á gjörðir stjórn- arinnar. |>etta er í fyrsta skifti, er vér eig- um kost á að tala við ráðgjafa vorn sjálfan; það hefir lengi lamað krafb þingsins, að ráðgjafinn var óþektur maður og enginn kostur að hafa áhrif á hann. Ur þessu hefir stjórnarbótin bætt. En þótt þessi aukna samvinna sé gleðileg, þarf hún ekki að verða eintóm ánægja, og er það gott. |>ví ef svo væri, fyndum vér alls ekki til þess. Báðgjafastaðan er vandasöm staða, og að ráðgjafanum er eðlilega ýmsum skeytum beint — að því leyti er hann ekki öfundsverður. En þótt skeytin séu tíð og beitt, verða menn að skilja það, að þau eru ekki send af persónu- legu hatri eða kala, heldur einungis til þess að koma því fram, sem þjóð- inni er fyrir beztu. Eg bið háttv. þm. að muna þetta, er eg nú sný mór að aðgjörðum ráð- gjafans, því að eg tala hér ekki f nafni mín eins, heldur í nafni flokks, sem að vísu er fámennur á þiugi, en hefir mjög mikið fylgi hjá þjóðinni, fylgi, sem fer dagvaxandi. Brytt hefir á töluverðri óánægju með ýmsar gjörðir stjórnarinnar bæði út á við og inn á við. Ú t á v i ð hefir hún þótt fstöðu- minni heldur en vér hefðum óskað, þótt fara meir að vilja danskra stjórnar- valda og dansks auðvalds en íslendinga. Er þar fyrst að nefna u n d i r- skriftarm álið. Vér munum það allir, að einmitt sá flokkurinn, sem stjórnin »styðst við«, hefir lagt mesta áherzlu á það atriði, að vér viðurkendum ekki í neinu danska rfkisráðið í sérmálum vorum; með því aflaði flokkurinn sér mjög fylgis. J>eg- ar svo þingið neyddÍBt til þess að taka upp ríkisráðssetuákvæðið í frumvarpið, sætti almenningur sig við það í trausti til fullyrðÍDga þingsins 1903 og manns- ins, sem síðan varð ráðgjafi vor. Nú hefir hann gengið á bak orða sinna og brotið á móti fyrirvara þingsins; oss þykir það illa farið, þar sem hór er um mál að ræða, sem er afarmikils- vert fyrir sjálfstæði landsins. J>ví að hvernig er hægt að búast við, að þing- ræði komist hér á, þegar forsætisráð- gjafinn danski undirskrifar skipunar- bréf hins íslenzka sérmálaráðgjafa? Engan er hægt að skipa íslandsráð- gjafa nema þann, sem þessi útlendi ráðgjafi vill samþykkja. Górum ráð fyrir, að íslendingar vilji hafa einhvern þann fyrir ráðgjafa, sem fylgir sér- stæðisstefnu gagnvart Danmörku; mundi nokkur danskur forsætisráðgjafi undirskrifa skipun hans? Hér í móti hefir verið vitnað í orð konungs í boðskap hans til íslendinga í vor; en þar stendur einungis, að r í k i s þ i n g i ð muni engin áhrif hafa á skipunina. En ráðgjafarnir dönsku geta öllu ráðið um hana fyrir það. þetta mál kemur seinna fvrir í þings- ályktunarformi, og skal eg því ekki fara frekara út í það. Sennilegast virðist mér að ráðgjafan- um hafi orðið þetta á fyrir gleymsku —; en haus sök er þá, að halda því fram, að þetta sé rétt skipunaraðferð, eftir að mótmælin komu fram. Eldhúsdags-ræða Skúla Thoroddsen í á g r i p i. J

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.