Ísafold - 24.01.1906, Qupperneq 2
ÍSAFOLD
]s
leggur það til, að ráðnir séu í þá vinnu
kínverskir verkamenn.
Kvikna gerði í kolanámu í Paintcreek
í Vestur-Virginíu og létust þar 18
menn.
Wright, landstjóri yfir Filippseyjum,
hefir verið skipaður Bandaríkjasendi-
herra í Japan, hinn fyrsti með ambassa-
dors nafnbót.
Frá Rússlandi. Landstjórinn
yfir Moskva hefir gefið út þá skipun,
sem engin dæmi eru til áður, að allir
stúdentar við háskólann þar, sem séu
ekki teknir til náms aftur fyrir 25.
janúar, skuli gerðir útlagir til Síbir-
íu og nánustu skyldmenni þeirra með
þeim.
Hermálaráðgjafi B r e t a hefir álykt-
að, að búa öll strandvirki milli Temps-
ár til Plymouth stærri og langdrægari
fallbyssum en áður.
Alvarlegar róstur af hálfu sósíalista
í Hamburg gegn breyting á kosn-
ingarrétti. Mannmúgur réðst á lögreglu-
menn með múrsteinum og öðru grjóti
og hlóð strætavirki. Lögreglan tvístr-
aði loks óeirðarseggjum með brugðnura
Bverðum, og drap einn, en særði marga.
Marconi fjölgar þráðlausum hrað-
skeytastöðvum á Newfoundlanditil þess
að greiðafyrir fréttasambandi milli fjar-
lægra staða, sera er nú laklega sint af
land8Ímum.
II.
Ríkísforsetinn nýi á Frakklandi,
Fallieres, kjörinn til 7 ára, hefir verið
6—7 ár undanfarin forseti í efri deild
þingsins í París, öldungadeildinni, en
áður ráðgjafi nokkrum sinnum, einu
sinni forsætisráðgjafi um tíma. Hann
er maður nær hálf-sjötugur, vitur
maður og stiltur vel, dyggur þjóðvalds-
sinni og öruggur, líkur um margt fyrir-
rennara sínum, Loubet. Aðalkeppi-
nautur hans um forsetatignma var
Doumer, forseti í fulltrúadeildinni,
maður beggja blands kallaður í stjórn-
málaskoðunum.
Fróttin um ráðgerða umbót á strand-
vörnum á Englandi austan og sunnan
sætir tíðindum að því leyti til, sem
þar vottar fyrir, að Bretar trúi illa
jþjóðverjum, en kunnugt orðið mi, að
nærri lá að þeim mundi lenda saman
í suraar sem leið út af Marokko-mis-
klíðinni við Frakka, sem orðnir eru
hálfgildis-bandavinir Breta. En tví-
sýna á um sáttsamlegar lyktir á Mar-
okkomálsfundinum, sem nú stenduryfir.
Frá Rússlandi flytja blöð ýms-
ar nánari fréttir en Marconiskeytin
hafa gert, en stórtíðindi engin frekari.
Hryðjuverkin mestu og verstu vinna
andbyltingarmenn eða láta vinna, þ. e.
afturhaldsmenn, sem líkar afarilla
stjórnbótarfyrirheit keisarans og vilja
halda öllu í gamla horfinu og taka
fyrir kverkar á öllu lýðfrelsi.
Laugardag milli jóla og nýárs var
stóru úthverfi í Moskva gjöreytt með
fallbyssuskotum. f>ar höfðu byltingar-
menn haft sína aðalbækistöðu. f>ar
féllu margar þúsundir manna, flest
saklaust fólk, þar á meðal börn, konur
og gamalmenni. Tíu þúsundir manna
urðu húsnæðislausir.
Öðru hvoru þykist stjórnin hafa
bælt niður allar róstur. En óðara
gjósa þær upp á öðrum stöðum, hing
að og þangað.
Lettar, við Eystrasalt, hafa stofnað
hjá sér lýðveldi. Stjórnarherinn hefir
farið þar halloka. Klerka hafa þeir
sett frá embætti og gefa byltingarmenn
sjálfir saman hjón og vinna önnur
nauðsynleg prestsverk.
Sjúkralmsið á Brekku.
Nú þegar það er langt á veg komið
með að verða fullgjört, vil eg ekki
láta hjálíða að minnast orsakanna til
þess, að ráðist var í að koma því upp,
og svo þeirra manna sem mest og bezt
hafa styrkt þetta fyrirtæki með fjár-
framlögum.
Jafnskjótt sem eg settist að í þessu
læknishéraði, fann eg sárt til þess, hve
mjög að vöntun á sjúkrahúsi á heimili
læknisins er því til fyrirstöðu, að starf
læknisins komi að tilætluðum notum,
sérstaklega þar sem til hagar eins og
hér í Fljótsdalshéraði, að há fjöll og
heiðar liggja milli héraðs og sjávar, og
vegir torsóttir yfir þau, sérstakleg á
vetrum.
Eg vakti því máls á því við íbúana
í læknisumdæmi mínu, hvort þeir vildu
gjöra tilraun að safna fé til sjúkrahúss
í læknisumdæminu. f>eir tóku mjög
vel í það, undantekningarlaust. Nefnd
var kjörin sumarið 1903, níu manna
sjúkrahússnefnd, til þess fyrst og fremst
að gangast fyrir samskotum, og því
næst að sjá um að komið yrði upp
sjúkrahúsi, þegar^fært þætti að byrja
á því.
Sjúkrahússnefndin safnaði á stuttum
tíma loforðum um nær 2000 kr., bæði í
læknisumdæminu og nálægum sveitum ;
auk þess var sótt um styrk til alþingis,
amtsráðs norður- og austuramtsins, og
til sýslunefndanna í Norður- og Suður-
Múla sýslum.
Ennfremur fekk sjúkrahúsið eigi all-
Iítið fé frá útlöndum; frá þessum mönn-
um: L. Zöllner stórkaupm. kr. 250,00,
stórkaupm. V. T. Thostrup < Khöfn kr.
500,C0, stórkpm. Sigurði Jóhaunessyni
f Khöfn kr. 2400,00, og auk þess loforð
um kr. 300,00 á ári í 5 ár til reksturs-
kostnaður sjúkrahússins. Sigurður Jó-
hannesson er mörgura löndum áður að
góðu kunnur. Hann fór ungur til
Khafnar og hefur aflað sér þar fjár
með hyggindum og atorku.
Síðan hefur stórkaupm. Thor E.
T u 1 i n i u s gefið sjúkrahúsinu timb-
ur, sera nemur alt að kr. 7—800,00.
Stórkaupm. Thor E. Tulinius hefur, þótt
ungur sé, getið sér mikinn orstír fyrir
fraraúrskarandi dugnað, og hefur á síð-
astliðnu sumri, fyrir utan þessa gjöf til
sjúkrahússins á Brekku, sparað þjóð-
inni í heild sinni útgöld svo tugum
þúsunda nemur (rueð gufuskipsferða-
tilboði sínu).
|>essir menn/sýna allir, að þeir bera
hlýjan hug til lands og þjóðar. J>að eru
harla fögur dæmi og eftirbreytnisverð,
að styrkja svona fyrirtæki, sem erfitt
eiga uppdráttar, en geta orðið til að
bjarga lífi og heilsu margra manna.
|>að hefur verið farið fram á það við
þessa menn, að þeir gæfu sjúkrahúsinu
á Brekku af sér stórar myndir, sem
yrðu svo geymdar innan veggja þess til
minningar um gjafir þeirra.
Annars hafa flestír, sem leitað hefir
verið samskota til, tekið því vel, og
margir gefið mikið í samanburði við
efni; samskotin verða að líkindum
auglýst síðar.
f>að er óhætt að sega, að þingið hefir
tekið langstirðast í að styrkja sjúkra
húsið og sízt skilið nauðsyn þess.
Að endingu vil eg votta öllum þeim,
er stuðlað hafa að þvf, að sjúkrahúsið
kæmist upp með fjárframlögum eða á
annan hátt, mitt innilegasta þakklæti.
Fyrir hönd byggingarnefndar sjúkra-
hússins á Brekku.
Brekku 12. nóvenber 1905.
Jónas%Kristjánsson
læknir.
Skýrsla
um bazar Thorvaldsensfélagsins 1905.
Eins og flestum mun kunnugt, er
bazar Thorvaldsensfélagsins ekki stofn-
aður í gróða skyni, heldur í þeim til-
gangi að styðja fslenzkan heimilisiðnað
með því að útvega markað fyrir af-
urðir hans.
Fyrirtækið byrjaði í mjög smáum
stíl 1. júní 1900 og hefir síðan getað
borið sig sjálft, þó þannig, að félags-
konur leggja til alla vinnu ókeypis.
Bazarinn tekur til sölu alls konar ís-
lenzkan iðnað, svo sem tóvinnu, hann-
yrðir, smíðisgripi úr málmi, horni og
tré. Eigandi ákveður verðið sjálfur,
en greiðir í sölulaun 10 j° eða einn tí-
unda part söluverðs, sem géngur í
kostnað.
Smátt og smátt hefir salan farið
vaxandi, einkum síðan félagið sá sér
fært, árið sem leið, að kaupa bentugt
húsnæði handa bazarnum á góðum
stað.
Alþingi hefir stutt starfsemi fél. með
því að veita í síðustu fjárlögum lán
með hentugum afborgunarkjörum til
húskaupanna. Salan hefir aukist
smámsaman. Fvrsta ár bazarsins var
hún aðeins 4,296 kr. 45 a., en nú síð-
asta ár var hún 19,306 kr. 25 a. Síðan
bazarinn byrjaði, hefir alls verið selt
fyrir 61,973 kr. 41 a. Allir þessir pen-
ingar hafa skifzt. niður milli eigend-
anna að frádregnum sölulaunum.
Mest hefir bazariun verið notaður
af Reykjavík og nærsveitunum. Fjar-
lægari sveitir hafa einnig notað hann
nokkuð, en þó minna en æskilegt væri.
Kemur það að líkindum af því, að
bazarinn er ekki svo kunnur almenn-
ingi út um land sem skyldi.
Af því sem selt hefir verið árið sem
leið skal sérstaklega tekið fram það,
sem hér fer á eftir.
U 11 a r v i n n a : 632 pör veth’ngar,
596 pör sokkar, 163 hyrnur og klútar,
384 kvennhúfur, 23 ábreiður, band,
vaðmál og nærföt fyrir 982 kr. 91 e.
íslenzkir skór 557 pör.
Hannvrðir: 170 ljósdúkar og
kommóðudúkar, 201 st. af öðrum hvít-
um hannyrðum, 90 st. af mislitum
hannyrðum (ýmis konar vefnaði, blaða-
slíðrum, sessum o. fl.).
Smíðisgripir: 1) úr silfri: 35
belti, 45 beltispör, 5 millubönd, 142
brjóstnálar, 153 millur og hnappar,
78 aðrir munir af ýmsum tegundum;
2) úr horni og tré: 167 spænir, mikið
af tóbaksbaukum, hornum, útskornum
öskjum, öskum, kössum, rúmfjölum o. fl.
Ennfremur hefir verið selt talsvert
af einkennilegum íslenzkum munum,
svipum, skinnum (tóuskinn, sútuð skinn
o. fl.), myndum, bréfspjöldum, áteikn-
uðum hlutum og m. fl.
Hafi bazarnum borist forngripir, hef-
ir Forngripasafninu ætíð verið gert við-
vart og það látið ganga fyrir kaupum.
Almenningur ætti að nota bazarinn
meira en hann gerir. Alt af fer ferða-
mannastraumurinn hingað vaxandi, og
flestir af þeim koma á bazarinn.
Sérstaklega skal tekið fram, að síð
astliðið ár hefði mátt selja meira á
bazarnum af spónum, svipum, tóbaks-
baukum, útskornum munum (einkum
öskum), silfurbrjÓ8tnálum og sauðsvört-
um vetlingum.
Allir eru velkomnir, sem vilja skoða
bazarinn og fræðast um hann.
Sá ágóði, 8em verða kann af bazarn-
um, verður lagður í sérstakan sjóð,
sem síðar verður varið til almennings
þarfa.
Reykjavík, 22. jan. 1906.
Forstöðunpfndin.
Mannalát.
Ha llgrímur dbrm. Jónsson í Guð-
rúnarkoti á Akranesi lézt aðfaranóttf- .
18. þ. m. í svefni. Gekk alheill tií
hvíldar, en fanst örendur í rúminu að
morgni og stirðnaður. Hann var nær
áttræður (f.19/n 1826). Hann hafði
verið um Iangan aldur öndvegishöldur
Skagamanna, frá því er þar var mjög
fáment sjópláss og til þess er Skipaskagi
(Akranes) var orðinn með meiri háttar
kauptúnum á landinu. Hann var mjög
lengi hreppstjóri og nokkur ár þing-
maður Borgfirðinga(1869—73). Greind-
armaður mikill, gætinn og ráðsvinnur.
Vel efnum búinn. Einkabarn hans á
lífi er frú Halldóra, kona síra Jóns
prófasts Sveinssonar.
Að norðan er að frétta lát nokkurra-
merkismanna (Nl.).
Sigmundur Pálsson á Ljóts-
stöðum í Skagafirði lézt snemma í
vetur, 82 ára. Hann gekk í Reykja-
víkur lærða skóla nokkura vetur, em
hætti námi pereats-veturinn (1851)^
Hann bjó um langan aldur á Ljóts-
stöðum, en fekst oft við verzlunarstörf
á sumrum.
Jósafat hreppstj. Jónatansson
á Holtastöðum í Langadal andaðist og
á öndverðum’ vetri. Hann var bú-
höldur góður og í heldri bænda röð f
sínu héraði. Sat á þingi 1901.
Björn f>orleifsson bóndi á
vfk í Héðinsfirði dó snemma vetrar.
Bjó áður á Stórholti í Fljótum og var
mörg ár oddviti. Góður skipasmiður.
Að Hesti í Borgarfirði lézt 6. þ. m.
prestkonan þar, frú G u ð r ú n J ó n s-
d ó 11 i r Stefánssonar prófasts f>or-
valdssonar í Stafholti, systir síra Ste-
fáns á Staðarhrauni, — eftir langvinna
vanheilsu og nýlega afstaðinn barns-
burð. Hún var fríðleikskona og vel
að sér ger. Fædd var hún 17. nóv.
1867, og giftist 13. maí 1886 síra
Arnóri f>orlákssyni, er lifir konu sína
ásamt 10 börnum, er þau eignuðust
alls.
Hér í bæ lézt 16.þ.m. úr brjóstveiki
Friðrik Gíslason ljósmyndari,
upprunninn úr Vestmanneyjum, hálf-
fertugur að aldri, kvæntur Önnu.
f. Thomsen kaupmanns í Vestm.eyjum.
Aðfangadag jóla misti f>orvaldur(Har-
aldsson) Krabbe verkfræðingur í Khöfn
konu sína Sigríði f>orvalds-
dóttur (læknis á Isafirði JónssonarV
eftir nýafstaðinn barnsburð. f>au höfðu
gifst fyrir 2 eða 3 árum. f>etta var
annað barnið, sem þau eignuðust, og
lifa bæði. Frú Sigríður sál. var kona
vel að sér ger og vel látin, sem hún
átti ætt til.
Háskólapróf
hafa af hendi leyst í Khöfn í þ, m.
þessir landar: í málfræði, fyrri hluta,
þeir Böðvar Kristjánsson og Jón Ófeigs-
son, báðir með mjög góðri I. einkunn;
í læknisfræði, fyrri hluta, Kristinn
Björnsson með II. eink., og í lögfræðl
fyrri hl. Björn Líndal með I. einkunn
(62 st.).
S/s Ii>gi kongur fór béðan í fyrra
kveld tit Vestfjarða.
S/s Hólar og Laura (Aasberg) komu
bæði í dag frá Sam. félaginu, Hólar beina
leið, en Lanra kom við i Leith. Vörur of
miklar í eitt skip. Farþegi hingað með
s/s Hólum Emil Jensen bakari, en með s/s
Laura P. Nielsen verzlunarstj. 4 Eyrarbaka,
Páll Stefánsson verzlunarerindreki, Julius
Jörgensen (Hotel Island), Hagb. Thejll,
fyrrum kaupmaður vestra, með konu og 3
börnum, hingað fluttnr búferlum, og Einar
Jónsson skipstjóri frá Isafirði, svo og 2.
menn frá Vestmanneyjum. — Ennfremur
premierlautinant Gad; bann á að verða
8kipstjóri á s/ Ceres.