Ísafold - 10.02.1906, Síða 3
36
ÍSAFOLD
Bæjarstjórnarkosning
var á Akureyri sama dag og hér, 3.
þ. m., á 2 fulltrúum; þar er kosið á
hverju ári, 2 af 6 fulltrúum alla í
bæjaratjórn. Liatar voru þrír, og var
Stefán alþm. og kennari Stefánsson
hinn efri á einum. Gegn honum börð-
ust 8tjórnarliðar m9ð oddi og egg. En
langfleat hlaut eá atkvæðin, 108. Hinir
að eins 61 og 54. Kosningu hlutu því
Stefán Stefánsson og Otto kaupm.
Tulinius.
Kirkjumálanefnd
svo kölluð gettist hér á rökstóla f
gær, til að vinna upp þetta sem eftir
er af fjárveitingunni til hennar, en
halalaus þó: — Guðjón vor slitnað aft-
an úr, tjáist ekki eiga heimangengt
fyr en seint f marzmánuði. Hann
sér þvf lfklegast aldrei nema reykinn
af réttunum, vesalingur. En Árni pró-
fastur sótti fastara róðurinn. Hann
dreif sig heiman, norðan frá Mývatni,
á tilsettum tfma og brauzt suður hing-
að landveg, í Borgarnes, á 16—17 dög-
um, í þeirri færð og veðri, sem venð
hefir síðustu vikurnar. Eitthvað kost
ar það landssjóð.
Lárus nokkur H. B. er mælt að
skipi formannssæti í nefndinni, eftir
vísdómsfullri, óhlutdrægrí ráðstöfun
mágs síns, ráðgjafans. f>eir eru að
segja, að hann muni ekki kunna mjög
illa við þá vegtyllu.
300 kr. skaðabætur
úr landssjóði fyrir gabb við sig fer
Bened. Sigtryggsson í Kasthvammi fram
á í bréfi til stjórnarinnar 28. des. f. á.,
segir Nl. það er að eins fyrir ferð hans
til Khafnar með firðritunarnáms-áformi,
sem hann neyddist til að hætta við og
hverfa heim aftur, vegna þess, segir
hann, að fæst stóð heima af því, er
honum hafði heitið verið af stjórnar-
innar hendi og eins höfðuðgæðings
hennar, Péturs á Gautlöndum, þiög-
mannsins »yfir« kjördæmi því, er
Beried. á heima í.
Sá höfðingi hafði, segir hann, styrkt
hann í þeirri trú, að hann mundi fá
2000 kr. árslaun við fyrirhugaða firð-
ritastöð á Akureyri, þegar firðritunar-
sambandið væri á stofn komið.
En í Khöfn segir hann sér hafi verið
sagt, á stjórnarskrífstofunni fsl. þar, að
engin firðritunarstöð yrði sett á stofn
á Akureyri og að laun firðritunar-
manna mundi ekki fara fram úr 1400
kr.
þá hafði hooum og í bréfi frá stjórn-
inni hér, dags. 12. okt., verið heitið
1000 kr. námsstyrk, en þegar til
Khafnar kom, var honum tjáð (af
konferenzr. Ólafi Halldórssyni), að
jjann fengi að eins 750 kr.!
Maður beið bana
að Búðum í Fáskrúðsfirði nýársdags-
kveld, Bigurður að nafni Oddssou, með
þeim hætti, að hann féll niður af
bryggju í grjóturð og rotaðist.
Snæfellsnesi 2. febr. Næstliðið ár
var að mörgu leyti árgæzku-ár, bæði til
lands og sjávar, fiskafli að öllu samlögðu
með bezta móti, og þegar þar við bættist,
að fiskurinn rar i svo hán verði, blýtur
það að bafa happasæl áhrif á efnahag
þeirra sem þann atvinnuveg stunda.
Nokkrir sjómenn eru nú lika að bngsa
nm að kanpa mótor-báta, og er vonandi að
það megi teljast til framfura.
Landbúnaður bygg eg að hafi nú veríð
hér í nokkrnm nppgangi á árinu. Yetrar-
og vor-veðráttan var fremur góð, og skepn-
nr i góðum holdum, og þar af leiðandi
mikið gagn af þeim. Sumarið var líka
gott og hey-fengur vfða í góðu lagi.
Haust-veðráttan var veðra- og rigningasöm
mjög frá þvi fyrir réttir, og fram-nndir
veturnætur. Svo kom bezta tið til lands
og sjávar, þar til vikn fyrir jólaföstu. Þá
byrjuðu hrakviðri og snjókoma á milli fram
til jóla og var svo góðviðri og stilt veð-
ur til nýárs, og siðan fremnr slæm veðr-
átta það sem er af þessu ári, en þó mjög
litil frost. Nú er kyndilmessa í dag, og er
logn og heiðrikt veður.
Bráðapest fremur litil, að eins dálitið á
stöku stað.
Heilsufar manna gott á nýlega liðnu
ári. Og litlar slysfarir, að eins einn mað-
nr druknaði af hesti í Bugsós niður undan
Fróðá, snemma i október; það var nngur
maður, ókvæntur, og hét Björn Vernharðs-
son.
Yerzlun með langbezta móti; mun það
að minsta kosti að miklu leyti vera því
að þakka, að tvær verzlanir nýjar I afa
verið settar á stofn I Stykkishólmi og ein á
Sandi, og hefir þvi verið meiri samkepni á
milli kanpmanna, og svo var lika sett á stofn
dálitið kaupfélag i Eyrarsveit, til að verzla
við þann kaupmann, sem bezta korti bauð.
Fjársalan var I haust mjög mikil bér
í Stykkishólmi, og munu snmir hafa fengið
mjög hátt verð fyrir fé sitt, en það mnn
þó ekki hafa verið jafnt fyrir alla, þvi
kanpmenn bjóða sumum mikil kostaboð, til
þess að koma í veg fyrir almenn verzlun-
arsamtök I nokkuð stórum stil, og er það
mikið mein, að verzlunarsamtök geta ekki
komist á, sem um munar; hér er of litill
félagsandi, enn sem komið er, en þó er
vonandi það breytist til batnaðar með
framtið.
Alt of litlar eru framfarir i landbúnað-
inum, en þó er nú von nm, að Staðarsveit
ætli að ganga á undan öðrum hér í sýslu
með að stofna r j ó m a b ú á komanda vori,
og er óskandi að það lánist vel.
J 0 11Ð I N
Fljótstunga í Hvítársíðuhreppi fæst til
kaups nú þegar og ábúðar í fardögum
1907. Jörðin hefir stórt tún (18 dag-
sláttur) og að auki 2 nátthaga 2324
□ f., víðáttumiklar slægjur á valllendi
rennisléttar, fjallslægjur nægar (brok
og stör), takmarkalausa beit og land-
gæði sumar og vetur, skóglendi eigi
alllítið; silungs- og rjúpnaveiði hefir
verið talin stór kostur jarðarinnar.
Semja má við eiganda og ábúanda
jarðarinnar
.Jón Pálsson.
2 herbergl eldhús og geymslupláss ósk-
ast til leiifu 14. maí. Ritstj. visar á.
8krifístof‘a
byggirigarfulltriíans
er framvegis í Skólastræti nr. 4, opin
kl. 9—10 árd. og kl. 6—7 síðdegis.
(Talsímanúmer 190).
Jpangað skal senda uppdrætti og bréf
til byggíngarnefndarinnar, eigi síðar
en fimtudag næst á undan byggingar
nefndarfundi, sem er 1. og 3. laugar-
dag í hverjum mánuði.
Byggingarfulltrúinn í Rvík 7. febr. 1906.
K. Zimsen.
Öllum þeim, sem sýndu mér á ýmsan hátt
hluttekningu við fráfall og jarðarför míns
elskaða eiginmanns Sigurðar Einarssonar
votta eg hér með mitt og barna minna
hjartans innilegasta þakklæti.
Seli 10. febr. 1906.
Virðingarfylst
Sigríður .íafetsdóttir.
Líkklæði
með kvaða gerð sem óskað er, hvort
heldur höggin, útsaumuð eða slétt og
einföld fást ætíð hjá
Stefantu A. Guðmnndsdottur,
?-nei-
J?að er ekkert spursmál hvert á að
fara til að fá bezt kaup á skófatnaði, í
Aðalstræti nr. ÍO
er vandaður skófatnaður ódýrastur.
Grammófóninn
ætti að vera til ú hverju heimili. Hann er fullkomnasta
áhald nút’mans til að láta heyra söng og hljóðfæraslátt.
Grammófóninn veitir mönnum tækifæri til að
hlusta á frægustu söngvara, svo sem Herold, Nissen,
Simonsen, Chr.Schröder,Fred.Jensen,IduMöller o. fl.
Grammófóninn kostar 40 kr. og þar yfir. Biðjið
um nákvæma verðlista, sem sendir eru ókeypis. jgjg
Jörgen Hansen
Brolæggerstræde 14. Köbenhavn.
Einkasali til íslands og Færeyja.
Flókaskór
og stígvél frá 60 a. til 10,50 a. parið
í Aðalstræti 10.
ö«I 'U'JP vl» 1.
Eíds og uudanfarin ár eru nú komn-
ar miklar birgðir af hiuum ágætu
annáluðu sjófötum, 8em allir ættu að
skoða áður en þeir kaupa annarstaðar.
K3’ Munið eftir, að matgra ára
reynsla hefir sýnt, að sjófötin hjá
Z i m s e n eru þau beztu og ódýrustu,
sem þekkjast.
Komið Of£ skoðið!
Reynslan er sannleiknr!
Virðingarfylst
JES ZIMSEN.
Matsöluhúsið
í Skindergade 27 í Kaupmannahöfn
leigir herbergi og selur mat. Herborgi
handa einst. leigjanda með daglegum
(3) máltíðum kostar 65 kr. á mánuði,
samherbergi og fæði 10 kr. á viku o.
s. frv.
G< ð brekan tyrir sjómenn fást i Hegn-
ingarhúsinn til kanps; lágt verð. Sömuleið-
is gólfdúkar. S. Jónsson
* duglegir snikkarar og
I y q|| einn góður múrari óskast
til kirkjubyggÍDgar á Pat
rekBÍirði, að byrja i maímán. Yinna
verður nokkra mánuði.
Jpeir sem vilja sinna þessu, gefi sig
fram og segi til um daglaun og vinnu-
tíma á dag, og skrifi sem fyrst með
hvaða kjörum þeir vinna að öllu leyti,
til mín undirritaðs.
Markús Snæbjörnsson.
jpeir sem vilja gerast kaupeDdur að
blaðinu DöSiflH !, panti það áður
en‘ s/s Ceres fer austur þ. 18. þ. m.,
hjá Jóni Hermann88yni Hverf-
isgötu 6.
Tómar
stÉillitmir
kaupir JES ZIMSEN.
Eg hefi nálægt missiri látið sjúkl
inga mína endur og sinnum taka inu
K í n a L í f s-E 1 i x í r hr. W a 1 d e-
mars Petersens, þegar eg hefi
álitið það við eíga. Eg hefi komist
að raun ura, að elixírinn er ágætt
meltingarlyf og séð læknandi áhrif hans
á ýmsa kvilla t. d. meltingarleysi eða
meltingarveiklun samfara velgju og
uppköstum, þrautir og þyngsli fyrir
brjósti, taugaveiklun og brjóstveíki.
Lyfið er gott og eg mæli óhikað með
því. Kristiania
Dr. T. Rodian.
Heimtið stranglega ekta Kína-Lífs-
Elixír frá Waldemar Petersen. Hann
fæst hvarvetna á 2 kr. flaskan.
Varið yður á eftirlíkingum.
Umboð.
Undirskrifaður tekur að sér að kaupa
útlendar vörur og selja isl. vörur gega
mjög sanngjörnum umboðsIauDum.
G. Sch. Thorsteinsson
Peder SkraroBgade 17. Köbeuhavn K.
©
©-
Munntóhak — Kjól —
Reyktóbak og Vindlar
frá undirrituðum fæst í flestum
verzlunum.
C. W. Obel, Aalborg.
stærsta tóbaksverksmiðja í Evrópu.
Umboðsmaður fyrir ísland:
Chr. Fr. Nielsen, Reykjavík,
sem einnig hefir umboðssölu
á flestum öðrum vörutegundum
frá beztu verksmiðjum og verzl-
unarhúsum erlendis.
©
©
Oiíufatnaður
innlendur og norskur
{æst sterkastur og ódýrastur f
verzlun G. Zoega.
Hau s tull
kciupir JE8 ZIMSEN
Verzlunannaðnr,
ungur og reglusamur, vanur afgreiöslu
og skrifstofustörfum, óskar eftir atvinnu
á næ9tkomandi vori. Góð meðmæli
ef óskað er. Ritstjóri þessa blaðs gef-
ur upplýsingar.
og hreinar
Ullartuskur
kaupir verzl.
Gísla Jónssonar.
Laugav. 24.
Margarine
er íiott Oíí ðdýrt
______hjá JES ZIMSEN.
Margarine
fæst bezt og ódýrast í
verzlun G. Zoega.
Dugleg stúlka,
rúml. tvítug, sem vill læra matartil-
búning og ínnanhússtörf í Kaupmanna-
höfn, getur uú þegar fengið þar góða
vist og hátt kaup. Ritstj. víaar á.
Enskt vaðmál
er áreiðanlega bezt að kaupa í
verzlun G. Zoega.
Ritstjóri B.jörn .Jónsson.
Tsafoidarprentsmiðja.